Alþýðublaðið - 28.11.1989, Page 8
fmiiiiiíifiiin
Þriöjudagur 28. nóv. 1989
Skipasmíðum opinberra
aðila verður flýtt
idnadarráherra kynnir aögeröir til bjargar íslenska skipasmíöaiönaöinum.
Aöstoö viö verkefnaleit erlendis. Sams konar bankaábyrgöir gagnvart inn-
lendum stöövum.
Skipasmíðum og við-
gerðum á vegum hins op-
inbera verður flýlt frá
því sem áætlað var og
þau fengin í hendur inn-
lendum skipasmíða-
stöðvum. Stjórnvöld
munu veita skipasmíða-
iðnaðinum aðstoð við að
leita verkefna erlendis,
auk þess sem ýmsar
breytingar verða gerðar
á lánafyrirkomulagi til
hagræðis fyrir þennan
iðnað. Þetta er megin-
inntak í nýjum tillögum
sem ætlað er að bæta
stöðu þessarar atvinnu-
greinar og iðnaðarráð-
herra hefur kynnt í rík-
isstjórninni.
Vandamál skipasmíða-
iðnaðarins hefur talsvert
verið í fréttum að undan-
förnu. Á undanförnum ár-
um hafa innlendar skipa-
smíðastöðvar verið illa
samkeppnisfærar við er-
lendar stöðvar og hefur því
meginþorrinn af nýsmíðum
farið fram erlendis. Sam-
fara breytingum á raun-
gengi hefur samkeppnis-
staðan lagast talsvert en nú
er hins vegar séð fram á
verkefnaleysi í nýsmíðum.
Sú áætlun iðnaðarráðu-
Eru íslensk skip fisknari?
Aflamagnstölur benda til aö skip
smíöuö hérlendis veiöi meira en skip
sem smíöuö eru í erlendum skipa-
smíöastöövum.
neytisins að flýta opinber-
um skipasmíðum er þess
vegna hugsuð til að færa
skipasmíðaiðnaðinum
verkefni. Þegar hefur verið
tekin ákvörðun um að við-
gerð á rannsóknaskipinu
Arna Friðrikssyni fari fram
innanlands og fyrir mán-
aðamótin verða opnuð til-
boð í smíði mælingaskips
fyrir Landhelgisgæsluna og
er stefnt að því að innlend
skipasmíðastöð fái það
verkefni. Þá er ennfremur
gert ráð fyrir því í tillögum
iðnaðarráðherra, að hér-
lendum skipasmíðastöðv-
um verði veitt aðstoð við
verkefnaleit erlendis og
veitt verði fé til þeirra
hluta. Iðnaðarráðuneytið
hyggst ennfremur stuðla að
samstarfi innlendra skipa-
smíðasöðva um tiltekin
stór verkefni.
Aðrir liðir í tillögum iðn-
aðarráðherra beinast að
því að bæta samkeppnis-
stöðu greinarinnar gagn-
vart erlendum keppinaut-
um. Er þar tekið undir ýms-
ar kröfur atvinnurekenda í
skipamíðum. Má þar nefna
að hér eftir mun, sam-
kvæmt tillögunum, verða
gengið eftir því að lána-
stofnanir veiti sams konar
ábyrgðir vegna verkefna
hjá innlendum stöðvum og
þær veita nú vegna verk-
efna erlendis.
í tillögunum er ennfrem-
ur gert ráð fyrir að lánafýr-
irgreiðsla vegna skipa-
smíða innanlands verði
bætt frá því sem nú er, m.a.
með því að breyta lánaregl-
um Fiskveiðasjóðs. Sam-
ræming á tilhögun útboða
og verksamninga. er einnig
á dagskrá og mun Fisk-
veiðasjóði falið að fram-
fylgja væntanlegum út-
boðsreglum við lánveiting-
ar úr sjóðnum. Þá mun iðn-
aðarráðuneytið í samvinnu
við fyrirtæki í greininni
beita sér fyrir kynningar-
átaki fyrir skipasmíðaiðn-
aðinn, jafnt innanlands
sem erlendis. Litprentaður
kynningarbæklingur hefur
þegar verið gefinn út á ís-
íensku og ensku-
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra kynnti tillögur sínar til bjargar íslenskum skipasmíðaiðan-
aði á blaðamannafundi i gær. Þar voru einnig staddir nokkrir frammámenn í atvinnugrein-
Jónína M.
Guðjónsdóttir
lótin
Jónína Margrét Guð-
jónsdóttir, fyrrverandi
formaður Verkakvennafé-
lagsins Framsóknar, lést í
Hafnarfirði föstudaginn
24. nóvember, níræð að
aldri.
Jónína var fædd 2. ágúst
1899 að Maríubakka i Hörgs-
landshreppi, Vestur-Skafta-
fellssýslu. Jónína fluttist til
Reykjavíkur barn að aldri og
starfaði þar lengi sem verka-
kona. Hún var um árabil í for-
ystu Verkakvennafélagsins
Framsóknar, varaformaður
um árabil en tók við for-
mennsku í félaginu árið 1962
og gegndi henni til 1974.
Jónína sat á mörgum þing-
um Alþýðusambandsins og
átti sæti í stjórn Verkamanna-
sambands Islands. Þá sat hún
einnig í framkvæmdastjórn
Alþýðuflokksins.
Hvíti vík-
ingurinn
fékk 200
milljónir
Stjórn Norræna sjón-
varpssjóðsins hefur sam-
þykkt að veita 20 milljón-
um sænskra króna (tæp-
lega 200 milljónum ís-
lenskra) til þáttaraðarinn-
ar „Hvíti víkingurinn**
sem unninn verður í sam-
vinnu sjónvarpsstöðvanna
á Norðurlöndum. Alls er
áætlað að þáttaröðin kosti
um 32 milijónir sænskra
króna í framleiðslu, eða
ríflega 300 milljónir ís-
lenskra.
Nafnið, Hvíti víkingurinn,
höfðar að sögn Hrafns Gunn-
laugssonar, handritshöfund-
ar og leikstjóra, til þeirra hug-
mynda sem norrænir menn
gerðu sér upprunalega um
Jesús. Þáttaröðin fjallar ein-
mitt um kristnitökuna á
Norðurlöndum, einkum þó
íslandi.
Hvíti víkingurinn verður
unninn í tveimur útgáfum.
Annars vegar verða gerðir
fjórir 70 mínútna þættir til
sýninga í sjónvarpi, en hins
vegar ein mynd til sýninga í
kvikmyndahúsum.
Fiskiskip byggð innan-
lands, virðast almennt
vera fisknari en þau skip
sem smíðuð eru erlendis. I
nýútkomnum bæklingi um
íslenskan skipasmíðaiðn-
að er birtur samanburður
á afla ísfisktogara undir
500 brúttólestum og þar
kemur fram verulegur
aflamunur. Á árinu 1988
fiskuðust að meðaitali
18,2 tonn á dag á þeim
skipum sem smíðuð voru
hérlendis en skip smíðuð í
útlöndum veiddu ekki
nema 13,9 tonn.
Aflaverðmæti á úthaldsdag
var 507 milljónir króna hjá ís-
lensku skipunum en um 426
milljónir að meðaltali hjá
skipum sem smíðuð voru er-
lendis. Hvort sem litið er á
aflamagn eða verðmæti er
munurinn umtalsverður. Af
hálfu Félags dráttarbrauta og
skipasmiðja, sem gefur bæk-
linginn út í samvinnu við iðn-
aðarráðuneytið, er því haldið
fram að skýringanna á þessu
sé einkum að leita í því að ís-
lensk þekking njóti sín til
fullnustu við smíðina. ís-
lenskir skipstjórnarmenn
koma meira við sögu og hafa
meiri áhrif á smíðina hér inn-
anlands auk þess sem inn-
lendar skipasmíðastöðvar
eru mun sveigjanlegri gagn-
vart breytingarhugmyndum
sem upp koma á smíðatíman-
um, að því er fram kemur í
bæklingnum.
I þeim samanburði sem
birtur er í bæklingnum er
ekki að finna upplýsingar um
hugsanlegan mun á stærð
skipanna, þannig að ekki er
unnt að útiloka að slíkur
munur kunni að hafa einhver
áhrif á aflamagnið.
Fólk
Við megum til með að
segja frá stórtíðindum af
kollega okkar úr blaða-
mannastéttinni. Þannig
vill nefnilega til að Jún
Guöni Kristjánsson frétta-
maður RUV er fertugur í
dag. Til hamingju Jón!
★
Út er komin bókin ,,Set-
ið á Svalþúfu — Handbók
fyrir veiðiþjófa," þar sem
Haraldur Ingi ræðir við -
Þórd Halldórsson frá
Dagverðará.
Þórður er þjóðsagna-
persóna í lifanda lífi og
lætur í þessari bók
gamminn geisa um veiði-
skap, kynni sín af dýrum
láðs og lagar, forspár,
áhrinikveðskap, matar-
æði og fleira.
Frásögnin er hispurs-
laus og engin hjartveiki
með í för. Ymsum áleitn-
um spurningum er svarað
s.s.: Hvað fást margar
gæsir á eina brennivíns-
flösku? Hver er sá lífsel-
exír sem gerir konur gljá-
andi fallegar eins og skag-
firskar stóðmerar á vor-
degi og gerir þeim kleift
að hella uppá kaffi á
frumlegri hátt en tíðkast
hjá öðrum? Hvernig á að
gangsetja bíl með galdri
þegar allt annað hefur
brugðist? Hvernig á að
veiða lax á sel og mink á
tvær gamalhænur og
einn sprækan hana?
Hvernig veiðir maður
Grálákinn? Maður sest á
drundinn, lætur launirn-
ar hanga og hefur drísil-
inn í hendinni. Hvar og
hvað eiga konur að skoða
á væntanlegum eigin-
mönnum sínum til þess
að fullvissa sig um að þeir
geti barist áfram eins og
hrútar í lífinu. Og fleira og
fleira.
★
Út er komin ný Ijóða-
bók eftir Sveinbjörn Bein-
teinsson. Bókin heitir -
Bragskógar. í henni eru
Ijóð sem tengjast landi og
gróðri, skógrækt og land-
vernd. Einnig Ijóð sem
vísa nokkuð út fyrir
hversdagslegan vettvang,
sum þeirra byggð á
draumum.