Tíminn - 02.04.1968, Qupperneq 1
/
’ / ' I
Lyndon Johnson verður ekki í kjöri, bls. 13
24 síður
Auglýsing í Tímanum
lcemur daglega fyrir augu
80—100 þösund lesenda.
Mynd þessi sýnir hafísinn við Horn, eins og hann var i gærdag. (Tímamynd-Gunnar)
HAFIS LOKAR NORÐURLANOI
FB-OÓ-Reykjavík, mánudag.
Ótnileg kuldatíð hefur mi
gengið yfir landið. Siglingaleið
ir eru lokaðar bæði við vest
an og austanvert Norðurland.
Síðastliðna nótt mældist 16.4
stiga frost i Reykjavík og er
það mesta frost sem mælzt lief
ur í apríl allt frá 1881. Þá var
reyndar miklu kaldara fyrir
norðan, en nú er, en ekki jafn
kalt hér fyrir sunnan. Árið
1885 var allt að því jafn mikið
frost og nú hér í Reykjavík.
Landhelgisgæzlan fór í ís-
könnunarflug í dag, og sam-
kvasmt því sem þá kom í ljós
eru nú íseyjar og ísrastir mjög
langt inn á Húnaflóa og vikur
á Hornströndum eru flestar
fullar af ís. ísinn frá Straum-
nesi að Óðinsboða er víðast
samfrosta og er sjóinn að
leggja í vökum á þeirri leið.
Austur af Óðinsboða, sem er
suðvestur af Horni, inni á
Húnaflóa, gisnar ísinn lítið eitt,
en þéttist aftur vestan við
Siglufjörð. Frá Siglufirði ligg
uir ís 4—6/10 hluta, 4—6 sjó-
mílur frá ströndinni, unz komið
er að Rauðunúpum og undan
Sléttu er allt að 7—9/10 hl.
Þistilfjörður er allur þakinn ís
(6—9/10 hl.) og verður ísinn
þéttari eftir því sem innar
dregur. ísinn er kominn fyrir
Langanés og inn undir Digra-
nes, og í mynni Vopnafjarðar, en
nokkur ís er allt suður á móts
við Glettinganes.
Frá Straumnesi að Óðins-
boða er varla fært nema öflug
um skipum, og siglingaleið er
varasöm frá Látrabjargi að
Straumnesi. Siglingaleið fyrir
öllu Norðurlandi er mjög ó-
greiðfær og hættuleg, einkum
við Sléttu.
í ísfréttum, sem veðurstof
unni höfðu borizt síðdegis í
dag segir, að ísinn sé að mestu
horfinn frá Hvallátrum, og það
an sjáist aðeins ginstöku j-ak
ar. Frá Hornbjargsvita bárust
þær fréttir, að 1000 m. breitt í-s
laust belti væri frá Smiðjuvík
urbjargi norður fyrir Horn-
bjarg, en samfelidur is þar
fyrir utan. Frá Hrauni á Skaga
var tilkynnt, að stöðugt bæ-tt
ist við ísinn við land, og 1
allan dag hefur ís verið að reka
inn Skagafjörð. Frá Siglunesi
að sjá er í-s fyrir öllu hafi, og
nálgast mjög ört. Landföst ís-
breiða nær út fyrir siglinga
leið. en þar fyrir utan virðist
nokkuð greið-fært. Samfelldur
ís er út undir miðjan Siglu
fjörð. Frá Grímsey sést ekki í
auðan sjó nema smáræmu i
skjóli við eyna. ísinn hefur
aukizt mikið séð frá Mánár-
bakka á Tjörnesi í dag, en
í kvöld voru ekkj orðnar auðar
rennur nema frá au-stri til vest
urs í um það bil 8 km frá
landi.
GV-Trékyllisvík. Mikill ís er
hér fyrir landi. Ekki bar á
honum að ráði fyrr en í fyrra
dag og í gær. f fyrrinótt kom
talsveður ís hér inn á Trékvllis
víkina og hefur hann aukizt i
sífellu síðan. Autt er út norð
urfjörðinn út undir Reykjanes
hyrnu, en þar fyrir framan er
breið spnng sem ekki sér út
fyrir héðan. ísinn er ekki mjög
þéttur að sjá. íslaust er inn
á flóanum frá Giögri og i
áttina að Hólmavík.
Aftur á móti er ís á reki út
um allan flóa og Ófeigsflói er
fullur af ís. í dag hefur verið
norðlæg átt og heldur hún ísn
u-m nokkuð hér frá landinu en
Framhald á 10. síðu
TK-Reykjavík, mánudag
Ríkisstjórnin lagði í dag
fram á Alþingi frumvarp tii
laga um breytingu á vegalög
um þess efnis að hækka benzín
skatt um 1 krónu á hvern Iítra
og hækka þungaskatt og
gúmmígjald af hjólbörðum og
slöngum um 50%. Gert er ráð
fyrir að tekjuauki ríkissjóðs af
þcssari skattlieimtu nemi sam-
tals 109 milljónum króna á
þessu ári, hækkun benzín-
skatts 43 milljónir, hækkun
gúmmígjalds 26 og hækkun
þungaskattsins 40 milljónir
króna. Hækkun þungaskattsins
kemur einungis á dísilbifreiðar.
Ekki ein einasfa króna af þess
ari nýju skattheimtu fer í
lagningu varanlegra vega á
þessu ári, heldur er hún til
að fylla upp i þau göt, sem nú
eru á fjárlögum og vegaskuld
um.
ir Tii grciðslu kostnaðar
við undirbúningsvinnu að
vegaframkvæmdum á þcssu
ári fer 21 millj. kr.
★ Til greiðsiu halla á vega-
áætiun síðasta árs 23 milljón-
ir.
★ Til viðhalds þjóðvega 1968
17,3 milljónir.
★ Til brúargerða 1968 10
milljónir.
★ Til endurbóta á hættuleg-
um stöðum 4 milljónir.
★ Til kaupstaða og kauptijna
og rannsókna og tilrauna
við vega- og gatnagerð 9.4
milljónir króna.
★ Til Strákavegar, Ólafsfjarð
arvegar og Suðurfjarðar-
vegar 24,3 milljónir.
★ Með þessari hækkun benz-
ínskattsins hefur núver-
andi ríkisstjórn hækkað
þennan skatt á valdatíma
Framhald á bls. 23.