Tíminn - 02.04.1968, Qupperneq 2
2 ------------------------- TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 2. apríl 1968.
Tugir ungmenna koma fram á fjölbreyttri skemmtun
Unga kyn-
slóðín '68
Á miðvikudags og föstu-
dagskvöld efua Karnabær og
Vikan til skemmtunar fyrir
ungt fólk í Austurbæjarbíói.
Meginaðriðið á ^agskránni er
fegurðarsamkeppni, nokkuð
sérstæð í sniðum, því að dóm-
endur, sem eru 6 valinkunm-
ar persónar leggja ýmislegt
fleira á metaskálarnar heldur
en snoppufegurð, og góðan
vöxt, þeir leggja einnig til
grundvallar andlegt atgervi
stúlknanna, persónuleika
þeirra, hæfileika, menntun og
hváð eina, sem kemur að
mestu haldi, þegar út í lífs-
ins ólgusjó er komið, en þátt-
takendur eru á aldrinum 15
—17 ára. <
Fyrsta keppnin þessarar teg
undar var haldin hér á landi
s.l. ár og þóttist takast með
afbrigðum vel, en víða erlend-
is hefur svona táningafegurð-
arsamkeppni verið haldin um
nokkurt árabil. Emmig hefur
verið stofnað til alheims-
keppni táninga, og svo kann
að fara, að su stúlka, sem hlut-
skörpust verður í þessari
keppni okkar, öðlist iþátttöku
í slíkri alheimskeppni nœsta
sumar. Að öðru leyti hlýtur
hún að lauinum skólavist í
Englandi í sumar. Sú, sem
verður númer 2 1 röðinni hlýt-
ur piötuspilara að launum, og
®ú þriðja fær guiliúr, en allar
stúlkurnar, sem eru 6 talsins
fá tízkufatnað frá Karnabæ.
Forráðamenn fegurðar
samkeppninnar seg.ja, að til-
gangurinn með henni sé fyrst
og fremst sá að velja verðug-
an fulltrúa hinnar' ungu kyn-
slóðar, sem við vitum öll að
hefur orðið fyrir talsverðu
hnútukasti. Þessi fulltrúi á að
vera búinn flestum þeim
dyggðum sem æskuna mega
prýða, sannkölluð fyrinmyndar
stúlka í flestu tilliti.
Svo sem fyrr segir, er það
dómnefnd, sem hefur algert úx
skurðarvald þessari keppni,
en áhorfemdur fá að sjá og
sannfærast, þvi að stúlkurnar
6 verða látnar leika ýmsar list-
ir á svið nu. Hver þeiira fær
verkefni við sitt hæfi, söng,
dans, upplestur, og ýmislegt
fleira, og þessi verkefni verða
þær að geta inmt skammlaust
af hendi.
Einnig verða stúlkurnar
látnar svara ýmsum fyrirspurn
um dómnefndarinnar þarna á
sviðinu, algjörlega óundirbúið,
og þá er um að gera að kunna
að koma fyrir sig orði. Ekki
er að efa, að keppnin verður
bráðskemmtileg í þessu formi,
en ýmislegt fleira verður á döf
iinni heldur en þetta eitt.
Skemmtiatriðin verða mjög
fjöltoreytt og er það ungt fólk
einvörðungu, sem um þau sér.
Óðmenn, þeir koma fram á skemmtuninni.
Þrjár pop-hljómsveitir ’ leika
nýjustu dæguriögin, og hér
haf’a áhorfendur úrskurðarvald
þvi að þeim er gert að gera
upp á milli hljómsveitanna og
velja Hljómsveit ungu kynsióð
arinnar 19@8. Þær hljómsveitir
sem hér er um að ræða, eru
Hljómar — Óðmenn og Fliow
ers,«em allar njóta piikiUa vin-
sælda fyrir lagaflutning sinn.
Þá heyrum við í tveimur uipp
rennandi umgum söngkonum,
þeim Maríu Baldursdóttir og
Sigrúnu Harðardóttur, og ungt
fólk úr Réttai'holtsskóla syng-
ur þjóðlög. Og segja má, að
hér verðir leiknar allar tegund
ir hljómlistar, því eitthvað fá-
um við að heyra af klassískri
músik líka.
Þá verður tízkusýning, og
einnig sér ungur hárgreiðslu-
nemi um hárgreiðslusýningu,
og telst það nýlunda á svona
skemmtunum. Fullyrða má, að
allt þetta unga fólk, sem fram
kemur, sé vandlega valið úr
glæsilegum hóp æskufólks hér
á landi, og verður þvi vonandi
þess vegna engin skotaskuld
úr, að gera skemmtunina sem
bezt úr garði og leitast jafn-
framt við að reka hið leiðin-
lega slyðruorð af æsku lands-
ins.
Skemmtanirnar verða 3. og
5. apríl kl. 11,.16 e.h., sjá nán-
ar í auglýsingum.
Ragnheiður Pétursdóttir
Rvík, 16 ára
Guðrún Birgisdóttir
Rvík, 16 ára
Edna Njálsdóttir
Rvík 15 ára
Soffía Wedholm
Eskifirði 17 ára
Henný Hermannsdóttir
Rvík, 16 ára