Tíminn - 02.04.1968, Qupperneq 10
t
10_______________________TÍMJNN
HAFÍS
Frarruhald af bls. 1. -—-
þeim mun meira rekur inn
Fl-óann. Ekkert vegasamband
hefur verið hingað í vetur, pn
flóabáturinn hefur komið hér
á hálfsmánaðarfresti. Von
var á Herðulbreið hingað en
búið er að aflýsa ferðinni og
kemst skipið ekki nema til
ísatfjarðar, þar sem ekki er
fært fyrir Horn. Von var á
heyi og fóðurbæti til Djúpa
víkur þar sem einstaka menn
eru orðnir heyilitlir, en yfirleitt
munu birgðir endast fram yfir
sumarmál.
JJ-Skagaströnd. — Héðan er
farinn að sjást jaki og jaki sem
rekur inn Húnaflóa og úti fyrir
sést í mikinn ís. Skyggni er
hér ágætt. f morgun hefur ver
ið sólskin og heiðríkt, en síð-
ari hluta dagsins kulaði að há-
norðan og er búizt við öllu
hinu versta í sambandi við ís-
inn. Norðaustan og austan átt
in hefur haldið honum að
Ströndum til þessa un.danfarið
og hefur hann því ekki rekið
eins mikið inn Flóann.
Einn bátur fór á sjó með
birtingu í morguin. Var ekki
lagt í að róa fyrr vegna hættu
á siglingarleiðum. Engir aðrir
bátar héðan eiga línu eða net
í sjó. Afli er lítill sem enginn
hér inni í Flóanum og væri
fremur aflavon ef hægt væri
að komast lengra út.
Færðin á landi er nohkuð
sæmileg.
EH-Akureyri. — Hafísinn hef
ur nú rekið inn Eyjafjörð og
er ísspöng landföst við Hjalt-
eyri og er á leið inn fjörðinn-
Strekkingsvindur er að norð
an og má búast við að ísinn
verði kominn inn undir Akur
eyri með morgninum.
Staþir jakar og íshröngl er
er komið talsvert innar en
spöngin, sem ekki er mjög
breið en löng. Pollurinn hef-
ur verið lagður i nokkurn tíma
og er ávallt fjöldi manns sem
d'orgar niður um ísinn, og fá
sumir ágætan afla.
ÞJ-Húsavík, — fs hefur rek
ið hér inn i dag. Frá Húsavík
eru sjáanlegar jakaspangir fyr
ir utan einstaka jaka, sem rekn
ir eru lengra inn. f dag er
norðanátt, ckki ýkja hvasst, og
er allur ísinn á innleið. Frost
ið er um 12 stig í dag, var
meira í gær.
Mikið liggur af netum í
sjó, bæði grásleppu og þorska
net. Sjómenn reyndu í gær að
bjarga netum sínum undan is-
um, en ekki tókst að ná nema
litlu af þeim. Er ekki gott að
segja hvcrnig veiðarfærunum
reiðir af, fer það allt eftir
hvort ísinn rekur enn lengra
inn en orðið er. en fyrisjáan
legt er að margir bátanna liafa
orðið fyrir miklu netatjóni. í
vetur hefur verið mikið gæfta
leysi og óstöðug tíð og ekki
bætir úr að nú liggur hafís á
miðunum.
Húsvíkingar eru nú innilok
aðir og skip sem koma áttu
hinj 11 nýlega hafa orðið að
losa á Austfjörðum. Vegurinn
milli Húsavíkur og Akureyrar
er fær eins og er og eins vegir
um flestar nærsveitir. Snjór er
ekki ýkja mikilil miðað við
það sem oft hefur verið.
I
HB-Kópaskeri, — Hér hafa rek
ið inn fjörðinn bæði stakir
jakar og spangir í dag. Fyrsta
ísinn rak hér inn í gær og
hefur hann aukizt mjög síðan.
f fyrstu voru það eingöngu
stakir jakar en nú eru farnar
að koma stærri spangir og er
ísinn kominn langt inn fyrir
Kópasker.
Ein ísspöngin er langstærst
og er komin hér langt inn fyr-
ir. fsbelti er fyrir höfninni,
en f'ærtf mun fyrir báta þar í
gegm eins og er.
Allir vegir hér eru ófærir
og flugvölluinn fór sundur í
hlákunni miklu fyrir skömmu.
Erum við alveg einangraðir og
héraðið læknislaust en heilsu
far er gott. Nóg er hér til af
vöru og ættu ekki að verða
nein vandræði af þeim sökum,
nema einangrunin standi i
langan tíma. Fóðurbirgðir eru
nægar og ekki hætta á að olíu
laust verði í bráð.
HH-Raufarhöfn, — Hér er
stórhríð og dimmviðri og sést
ísinn ekki nema öðru hvoru
þegar aðeins léttir til, en ís-
jnn er skanunt undan. Að vísu
er ekki ís við hafnarmynnið
en stutt er út í hann. Liggur
hann alveg fyrir Sléttu og er
víða landfastur eftir því sem
bezt er vitað. Það sem sést af
ísnum sýnist vera mjög þétt.
Frétzt hefur af ís úti í Þistil
firði og út af Skoruvík og er
hann mjög samfelldur.
ísinn byrjaði að koana hér
s. 1. föstudag, og rak þá mjög
SÖLUSKATTUR
Framhald af bls. 6.
rithöfundum, því þó listirnar séu
mikilvægar á öllum þessum svið-
um, þá hafa að sjálfsögðu skáld-
in og rithöfundannir mest að
segja og þá alveg sérstaklega í
sambandi við varðveizlu og efl-
ingu tungunnar. Okkar reynsla af
þýðingu listamanna, og þá sér-
staklega skálda og rithöfumda í
þessum efnum, er slík á und'an-
förnum öldum og áratugum, að
það ætti ekki að vera þörf á að
fara um það mörgum orðum, og
það á jafnframt að gera okkur
ljóst, hvaða þýðingu þessir aðil-
ar geta hafí á komandi árum, ef
rétt er að þeim búið.
LOÐINBARÐAR
Framhald ai bls. 6.
Nóg mun þeim verða eftir skil
ið og nóg munu þeir gera.
Búfjársjúkdómarnir eru ok'k
ur bændum þyngstir í skauti,
ein þó gjalda þeirra allir svip-
að um minkinn, fjárhagstjónið
skellur fyrst á bændum eða á
þeim, er eiga hlunnindi í
veiðiám og vötnum, varplönd-
um, síðan og samtímis þó, á
hverju mannsbarni, sem hefur
opin augu og eyru fyrrr nátt-
áru landsins.
Nú, er rætt um ræktun lax
og silungs í ám og vötnum og
. jafnvel eldisstöðum og tjörn-
um. Efalaust er þar um stór-
felld verðmæti að ræða og
þjóðarhag, en hætt er við að
mörg góð brandan fari til
minkaeldis, ef ekki tekst að
ná'lægt. Stórhríð hefur verið
síðan á laugardag, og 17 til
20 stiga frost. Raufarhöfn er
algjörlega einangruð eins og
er. Flugvölilurinn er ófær, allir
vegir ófærir og engin skip kom
ast að höfninni vegna íssins.
Oliubirgðirnar sem hér eru,
endaist í mánaðartfíma og hætt
er við að skortur verði á mörg
um vörutegundum ef svona læt
ur áfram einhvern tíma. Von-
azt var til að greiðast tœki um
skipakomur eftir verkfallið, en
svo kom ísinn og tokaði öllum
siglingaleiðum, og er útlitið
mjög dökkt, svo ekki sé meira
sagt.
Sjómenn hafa tapað tals-
verðu af grásleppunetum und-
ir ísinn. Eitthvað náðist upp
af netunum í gær, en hvergi
nærri öll þau net sem voru
í sjó. Þorskanet voru engin í
sjó.
Þegar ísinn fór að nálgast
um daginn var strengdur vir
ytfir höfnina, þannig að liann
kemst ekki inn í sjálfa höfn
ina. En höfnin er öll krapalögð
og frosin.
ÓH-Þórshöfn. — Hér er ofsa
hvasst að norðan og mikil snjó
koma. Skyggni er ekki nema
um 50 metrar. Einhver ís er
.kominn hér inn í fjarðarbotn,
en erfitt er að fylgjast með
hve mikið það er vegna þess
hve lítið sést. fsinn hér rétt
fyrir utan er ekki orðinn sam
frosta. Heita má að hér hafi
verið hríðarveður í þrjá vik
ur og muna elztu menn varla
annan eins liarðindakafla.
Allir , vegir eru lokaðir og
erum við því einangraðir. Flug
ferðir hafa verið strjálar og í
. síðasta mánuði kom hér flug
vél aðeins tvisvar sinnum. Hér
: eru allir vel frískir sem cnda
er eins gott því læknislaust er.
f gær birti aðeins og var
þá ís á reki inn flóann, og
hætt við að hann fari að leggj-
ast alveg upp að. Eitbhvað er
til af olíu og fóðri, en tæpast
svo mikið að hægtf sé að mæta
miklum og langvarandi harð-
indum.
eyða honum. Opinbert fé á alls
ekki að verja til lax eða fisk-
ræktar fyrr en min'kinum er a.
m. k. hnekkt svo, að hann eyði
ekki árangri hennar að mikl-
um mun.
Það var reginyfirsjón löggjaf
arvaidsins að ætla sveitar- og
bæjarstjórnum að annast minka
veiðar og dráp. Hlífðarl’aus og
ósérplægin barátta 9 þeirra af
hverjum 10, jafnvel 99 af l'OO
var o,g er dæmd til að mistak-
ast, ef brugðizt er að öllu á
einum stað, hvað þá fleirum.
Seint hefði mæðiveikinni verið
útrýmt með þvílíkum vinnu-
brögðum.
Það á að fá einum manni
framkvæmd bessa máls. Ráðn-
um til 2—3 ára í senn, tryggja
nægilegt fé og starfsskiljTði.
Skipulagning og skipting veiði
svæða um allt land. Sjálfsagt
er að leita liðsinnis þeirra
sveitarstjórna er vel hafa
reynzt en sniðganga hinar, leita
þar annarra liðsmanna til leita
og aðstoóar við veiðimenn.
Hefja síðan baráttuna af fyllsta
kappi og harðfylgi. Svo sjálf-
sagt sem það er, að ríkið beri
aðal'kostnaðinn af stríðinu er
hitt engu síður rétt að ætla
sveitar-, sýslu- og bæjarfélög-
um að greiða nokkra hlutdeild
vegna þeirra dýra, sem unnin
vrðu innan landa beirra.
Ég skora á alla þjóðholla og
hugsandi menn að taka mál
þetta til yfirvegunar.
Fjalli 20. 2. 1068.
\ K. Indriðason.
SAMTÍÐIN
hið vinsæla heimilisblaö sllrar fjölskyldunnar
flytur sögur, greinar skopsögm, stjörnuspár, —
kvennaþætti, skák- og bridgegreinar o.m.fl.
10 hefti á ári fyrir aðeins 150 kr.
Nýir áskrifendur fá þrjá árganga fyrir 290 kr., sem
er alveg einstætt kostaboö
Póstsendið í dag eftirfa-andi pöntunarseðil:
Ég undirrit...cska að gerast áskrifandi að
SAMTÍÐINNI og sendi hér mpf- 290 kr- fyrir ár-
gangana 1966, 1967, og 19öé Vinsamlegast sendið
þetta i ábyrgðarbréfi eða póstávísun.
NAFN ..............}............
HEIMHJ .........................
Utanáskrift okkar er SAMTÍÐIN Pósthólf 472,
Reykjavík.
\
Á VÍÐAVANGI
Framhald a-f bls. 5.
landsföðurlegri ritstjórnargrein
á sunnudaginn:
„Þjóðinni er nú meiri þörf
á skynsamlegum vinnubrögðum
en nokkru sinni fyrr“. Menn
setur hljóða við að heyra slíkt
aandvarp frá stjórnarmálgagni,
eftir níu ára „viðreisn" í land-
inu. Satt er það, að þetta er
tilfinnanlegur skortur og því
liatramlegri, þar sem þjóðinni
hefur verið sagt, að þessi ár
hafi einmitt verið stjómað af
alveg sérstakri fyrirhyggju með
skipulagningu vinnubragða,
áætlanagerð sérfræðinga og
annarri háþróaðri stjórnunar-
tækni. Þá uppgötvar Alþýðu-
biaðið allt í einu eftir allt
þetta, að „nú sé meiri þörf á
skynsamiegum vinnubrögðum
en nokkru sinni“. Ja, ljótt er
að heyra.
MINNING
Framihald af bls. 11.
ar. En hann flutti boðskap sinn
að jafnaði í litrikum lí'kingum og
á fögru og kliðmjúku máli. Fyrir
því eign'aðist hann svo rík ítök
í hjörtum margra — jafnvel í
íslenzkri þ.joðarsál. Ég hygg að
lengi enn verði búið að ýmsum
orðum ha-ns þeirri heiðríkju og
yl, sem af þeim lagði út í lífið.
Grétar F-ells var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Þuríður Kol-
-beinsdóttir Fells, sem lézt 1043.
Vafalaust hefir hún verið góð
kona og merk. Grétar Fells gat
ekki valið á annan veg. Síðari
kona hans, frá 104S, var svo
Svava Stefánsdótt-ir Fells. Með
þeim var mikill innri skyidleiki,
sterkur andlegur hjónasvipur.
AHt samlíf þeirra var svo bjart
og innilegt, svo talandi vottur
þess, hvernig maður og kona geta
verið eitt. Þau fylgdust að eins
og dagurinin og Ijósið. Hlún var
hans góði engill, sívakandi yfir
málstað hans og vegferð alveg
fram á s-íðustu stund.
Fjölskylda mín' var svo ham-
ingjusöm að eiga þau hjón að
vinum, Svövu og Grétar Fells.
Síðasta afm-ælisdaginn hans áttum
við að nokkru saman á heimili
okkar að Sól-heimum 23. Allar
stun-di-r með Grétari o-g Svövu
Fells voru o-kkur uppspretta fagn-
aðar, styrks og friðar. Þau voru
okkur þeir vinir í vanheilsu og
raunum, sem aldrei brugðust. Og
fyrir það skulu hér fluttar rík-
ustu þakkir u-m leið og við vottum
samúð og biðjum látnum vini
æðri blessunar á leiðum -nýrra
heima.
„Meira ljós“ voru síðustu orð-
in, sem þýzki skáldjöfurinn Goe-
the er sagður hafa mælt fram,
áður en hann kvaddi þennan
heim. „Meira ljós“ var yfirskrift-
in á öllu lífi Grétars Fells, hugs-
un hans og viðleitni. Sú er irú
mín, að það ljós hafi hann nú
fundið í ríkara mæli en nokkru
sinni fyrr.
Jón Skagan.
ÞRIÐJUDAGSGREIN
Framhald af bls. 7,
landsins. Ef það er satt sem
núverandi valdhafar segja oft,
að landið njóti nú mikils
trausts hjá erlendum fjármáia-
stofnunum, ,þá ættu þeir að
grípa tækifærið ,og fá að lini
2—3 þúsund milljónir til lagn-
ingar varanlegra vega. Fyrir
þá upphæð mætti mikið gera
með bví vinnuafli og þeim stór-
virku vélum, sem til eru í land
inu. Þá ynnist marít t einu.
Atvinnuleysi hyrfi, góðir vegir
myndu teygía sig um landið
og færa þjóðinni bæði gróða
og gleði. 800 ár er of langur
hiðtími fyrir framsækna og dug
mikla þjóð. eftir góðu og varan
legu vegakerfi.
Ágúst Þorvaldsson.