Tíminn - 02.04.1968, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 2. apríl 1968.
TÍMINN
n
M E0 mwmam
Gretar Fells
rlthöfundur
Einn af þjóðkunnum mönnum
iþessa lands, Grétar Fells rithöf-
ur.dur, var jarðsettur frá Fríkirkj
unni í Reykjavík 14. f. m. að við-
stöddu mi'klu fjölmenni. Sökum
verkfalls og stöðvunar blaðaút-
gáfu varð hann þá ekki Kvaddur
eins og margir mundu helzt hafa
kosið. Þótt nokkuð sé um liðið
er mér því bæði ljúft og skylt
að minnast þessa ágæta manns,
vinar og skólabróður. Eins og svo
margir aðrir stóð ég og fjölskylda
mín í þakkarskuld við hann, sem
hvorki verður metin né goldin til
fulls.
Grétar Fells var fæddur að
Guttormshaga í Rangárþingi 30.
des. 1096. Foreldrar hans yoru
þjóð'kunn merkishjón, séra Ófeig
ur Vigfússon og Ólafía Ólafsdótt-
ir. Fluttu þau árið 1000 að Fells-
múla á Landi og bjuggu þar síð-
an um áratugi. Þar ólst því Grét-
ar upp ásamt bróður sínum Ragn
ari, síðar presti, en þeir voru tví-
burar og einkabörn foreldra
sinna. Að Fellsmúla hafði séra
Ófeigur lengi einkaskóla, sem
margir sóttu og nutu. Beint það-
an komu þeir bræður, Grétar og
Ragnar, vorið 1017 og luku stú-
dentsprófi við Menntaskólann í
Reykjaví'k. Eftir ársdvöl í Kaup-
mannahöfn, við nám í samanburð
artrúfræði og trúarheimspeki
settist Grétar í lagadeild Háskól-
ans í Reykjavík. Þar lauk hann
prófi í lögfræði vorið 1924. Lög
fræðin mun þó aldrei hafa fallið
vel að hug hans eða skapgerð,
enda hvarf hann fljótt af hennar
vegum. Vann hann fyrst fyrir sér
með kennslu og ritstörfum um
nokkurra ára skeið. En árið 1029
varð hann ritari landlæknis og
sinnti því starfi óslitið fulla þrjá
áratugi.
Grétar Fells var gáfaður mað-
ur, ljóðfær vel og ritfær í bezta
lagi. Hann var ávallt maður and-
ans en ekki efnisins. Lengst af
bjó hann við óvenju lág laun og
sóttist aldrei eftir fé, veg eða
völdum. Snemma hneigðist hugur
hans að einkunnar orðum guð-
spekinnar: jafnrétti, bræðralagi,
sannleiksleit. Þeirri stefnu gekk
hann á hönd árið 1921 og helgaði
henni síðan krafta sína af þeim
heilindum og óeigingirni, sem’'
með eindæmum má teljast. Stjórn
íslandsdeildar Guðspekifélagsins
hafði hann á hendi í full 20 ár
og ritstýrði tímariti þess, Gang-
lera um 30 ára skeið. Þar að auki
flutti hann fjölda fyrirlestra á
fundum og í námsflokkum bæði
hérlendis og erlendis. Ennfremur
birtist rödd hans ‘oft í útvarpi,
þar sem hann reifaði hugræn og
ardleg mál. Var mér kunhugt um,
að þeirra erinda var af ýmsum
með óþreyju beðið.
Sem rithöfundur var Grétar
Fells bæði frjór og mikilvirkur.
Eftir hann munu liggja átta fyrir-
lestrarsöfn, nokkrar Ijóðabækur
og ýmsar sérprentaðar hugleiðing
ar um andleg mál. Af flestu því,
sem ég hef skoðað úr þessum efn-
um, leggur slíkan ilm göfgi g
fegurðar, að ég ætla verða betri
manns hvern þann, sem því kynn-
ist nánar.
Ýmsir efnishyggju- og raun-
sæismenn munu vafalaust stund-
um hafa talið Grétar Fells vera
nokkuð utan og ofan við heiminn.
Svo fer jafnan um þá, sem telja
sig geta skoðað og skýrt til fulls
alla hluti og fyrirbæri með skyn-
fœrunum einum saman. En Grét-
ar Fells átti sinn heim, víðan,
heiðan og háan. Hann gat aldrei
hugsað í formúlum, „dogmum“
eða „paragröfum“. Til þess var
andi hans allt of Ijóssækinn,
fleygur og frjáls. Hann vissi að
okkar skynsvið nær að jafnaði
svo skammt. Hann vissi að tveir
og tveir eru ekki alltaf fjórir.
Flestum fremur var hann
gæddur dulrænum hæfileikum og
djúpri innsýn í lögmál lífsins og
tilverunnar. Að minni hyggju átti
hann sj'ötta skilningarvitið. þá
náð'argjöf, _ sem fæstum er gefið
að njóta. í gegnum það skynjaði
han’n framlífið og hina heilögií
hönd, sem allt gefur og geymir.
í þeirri hönd fann hann sig
oft hvíla á hljóðum stundum.
Fra þeirri hönd fann hann þann
yl og styrk', sem hann vildi miðla
frá sér út í lífið. H’ann trúði á
einingu í fjölbreytni alls lífs og
tilveru. Hann trúði á vaxtarmátt
mannsins innan þessa heims og
utan. Og hann þráði betri og
bjartari heim. Til þess lagði hann
sig allan fram að bæta annarra
böl og raunir. Hús hans^stóð öll-
um opið og þangað komu margir
ekki sízt mæddir og særðir. Tel
ég að langflestir þeirra hafi farið
þaðan léttari í huga og spori. Að-
eins hljóð návist hans var allt í
senn, vermandi, styrkjandi og frið
andi.
Grétar Fells var ekki kirkjuno-
ar maður í þrengri merkingu orðs
ins. En hann var kristinn maður
eigi að síður. Hann trúði á Krist
sem sígildan meistara og leiðtoga.
Haon trúði á áhrifamátt hans á
mannssálina á liðnum og ókomn-
um öldum. En hann leit svo á
að hjálpræðið væri ekki bundið
við Krist einan. Að hans dómi
átti Alfaðir svo margar leiðir til
mannssálarinnar og mannshjart-
ans. Hann trúði því, að hingað á
jörð hefðu frá örófi alda verið
sendir að ofan fræðarar og frels-
arar, og svo væri enn. Þess vegna
vildi hann opna alla glugga til
þess að hleypa ljósiou inn, hvar
svo sem það annar6 birtist.
Sumir hinna fornu. grísku vitr-
inga töldu spekina æðsta allra
goða. Grétar Fells var spekingur-
inn með barnshjartað, er átti út-
sýn tiil allra átta. Hógværð hans í
skapgerð, orði og allri framkomu
var öðrum til fyrirmyndar. Vafa
laust mun mál hans -oftast hafa
náð betur til hjartans og fegurðar
skynsins en kaldrar rökhyggjunn-
Framhald á bls. 10.
Vorið er fegursti tími\ársins í Evrópu;
náttúran vaknar af dvala og allt iðar
af lífi og fjöri. Þá hefst tímiferða-
laganna og Flugfélag íslands býður
yður sérstakan afslátt af flugfargjöld-
um til 16 stórbórga í Evrópu. Vorfar-
gjöld Flugfélagsins eru
en venjuleg fargjöld á
flugleiðum og gilda á tímabilinu
15. marz til 15. maí. Flugfélagið og
IATA ferðaskrifstofurnar veita allar
upplýsingar og fyrirgreiðslu.
Með þotu Flugfélagsins fáið
þér fljótustu og þægilegustu I j ATA )
ferðina — hvergi ódýrari far- V------s
gjöld AlpjóSasamvinna
um íiugmál
25% læ^ri
sömu
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
I