Tíminn - 01.05.1968, Síða 1

Tíminn - 01.05.1968, Síða 1
Y 24 síður Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. Ávarp verkalýðsmálanefndar Framsóknarflokksins Launþegar um allt ,Iand! Verkalýðsmálanefnd Framsóknarflokksins sendir ykkur öllum beztu óskir sínar um sigurríka framtíð á þessum baráttudegi verkalýðsins, og hvetur ykkur til einbeittrar samstöðu í baráttunni fyrir hagsmunamálum ykkar og þjóðarinnar í heild. — Verkalýðsmálanefndin minnir á, að á undanförnum mánuðum hefur ógn atvinnuleysis vofað yfir þjóðinni, og um tíma ráðið ríkjum hjá fjölmörgum einstaklingum og fjölskyldum um allt land. Vegna þess- asrar afvarlegu reynslu telur Verkalýðsmálanefndin sérstaklega nauðsynlegt, að á þessum degi sé bent á þann lærdóm, er launþegar geta dregið af atburðum undanfárandi mánaða: ^ Að röng stjómarstefna liefur leikið atvinnulífið svo grátt, að mikill fjöldi nauðsynlegustu fyrirtækja landsins riða til falls þegar tímabundnir erfið- leikar steðja að, svo að nm alvarlegan samdrátt hefur verið að ræða í atvinnu- lífinu, og öryggislcysið á vinmimar.kaðinum verið meiri en dæmi eru til um síð- nstu áratngL ^ Að vegna þessa alvarlega samdráttar er hætta á verulegu atvinnuleysi meðal skólafólks í sumar, og verulegu atvinnuleysi í fjölmörgum atvinnugreinum næsta haust og vetur, yerði stjómarstefnunni ekki breytt. ^ Að samhliða þessari ófamaðarstefnu í atvinnumálum hefur ríkisstjómin aldrei fjandskapast meir við samtök launþega en einmitt nú síðustu mán- uðina, er hún, með meirihlutavaldi sínu á Alþingi, svipti launþega sjálfsögðum réttindum þeirra og kallaði yfir landið allsherjarverkfall. Verkalýðsmálanefndm telur launþegum nauðsynlegar en nekkru sinni fyrr að draga réttar ályktanir af þessari hættulegu stefnu núverandi ríkisstjórnar, og að launþegasamtökin einbeiti öllum kröftum sínum að því að knýja fram stefnubreytingu sem feli í sér eftirfarandi höfuðatriði: 0 Að ríksstjómin hefji skipulega endurreisn íslenzkra atvinnuvega í sam- vinnu við samtök launþega og atvinnurekendiir, og á grundvelli nákvæmra, kerfisbundinna athugana og áætlunargerðar — og að atvinnuöryggi verði þannig ti-yggt til frambúðar. Að nú þegar verði gerðar mauðsynlegar ráðstafanir til þess að framleiðslu- geta fyrirtækja I sjávarútvegi og iðnaði nýtist sem bezt, m. a. með því að auka mjög rekstrarlán til þeirra. \ * . ' £ Að launþegum takist að ná þvi sjálfsagða takmarki, að dagvinnutckjur einar nægi til mannsæmandi lifs fyrir meðalfjölskyldu. £ Að Byggingarsjóði ríkisins verði aflað fjármagns til þess a'ð hægt sé að afgreiða allar lánshæfar úmsóknir um ibúðalán án tafar, jafnframt því sem íbúðalánakerfið verði endurskoðað og þá stefnt að þvi að lánsupnhæðin verði 70—80% af byggingarkostnaði, lánstíminn 40—60 ár, vextir lágir og vísitölu- binding lánanna afnumin. V 1 Verkalýðsmálanefnd Framsóknarflokksins vill auk þess leggja áherzlu á eftirfarandi baráttumál sín: , £ Að Iaunþcgasamtökin og samvinnuhreyfingin kanni ítarlega allar færar leiðir til mjög aukins samstarfs, m. a. á sviði kjaramála, atvinnumála, bankamála, tryggingarmáia og menningarmála. A Að liagstofnun launþega verði sem fyrst komið á fót. £} Að lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn komi til framkvæmda sem fyrst.. £ Að þurflartekjur verði skatt- og útsvarsfrjáisar osrálpgur á lágla»inafólki verði lækkaðar í samræmi við það. Jafnframt verði elli- oe örorVulffeyrir alveg skattfrjáls, en álögur á gróðarekstur og verðhólgugróða hækknðar. ströngu skattaeftirliti komið á og staðgreiðslukerfi tekið upp við skattheimtu. < Dagvinnuvikan verði stytt í 40 stundir á viku. Eftirvinnutaxti falli niður en yfirvinnutaxti cinn gildi að lokinni dagvinnu. A Orlof verði fjórar vikur ár hvert, þar af þrjár vikur á sumri og ein vika á vetri. £ Að stjóm Atvinnuleysistryggingasjóðs verði í höndum launþega sjálfra og bætur úr honum hækkaðar tii samræmis við tillögur launþegasamtakanna um það efni. Verkalýðsmálanefndin hvetur alla launþega til heitstrengingar á þessum degi um einbeitta samstöðu í baráttunni fyrir atvinnuöryggi og bættum kjörum! Framsókn einbeittrar fylkingar alþýðunnar fær enginn stöðvað! Með baráttukveðju. Verkalýðsmálanefnd Framsóknarflokksins.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.