Tíminn - 22.05.1968, Page 2

Tíminn - 22.05.1968, Page 2
Fyrir aðeins kr. 68.500.oo getið þér fengið staðlaða eldhúsinnréttingu i 2 — 4 herbergja ibúöir, meö öilu tll* heyrandi — passa i flestar blokkaríbýðir, Innifalið i verðinu er: Q eldhúsinnrétting, klædd vönduðu plasti, efri og neðri skápar, ásamt kústaskáp (vinnupláss taepir 4 m). 0 ÍSSkápUr, hæfilega stór fyrir 5 manna fjölskyldu I kaupstaö. ^uppþvottavél, (Sink-a-matic) ásamt eldhúsvaski. Uppþvottavélin þvær upp fyrir 5 manns og að aukí má nota hana til minniháttar tauþvotta. (Nýtt einkaleyfi). 9 eldarvélasamstæða með 3 hellum, tveím ofnum, grillofni og steikar- og bökunarofni. Timer og önnur nýtizku hjálpartæki. 0 lofthreinsari, sem með nýrri aðferð heldur eld- húsinu lausu við reyk og lykt. Enginn kanall — Yinnuljós. Allt þetta fyrir kr. 68.500.oo. (söluskattur innifalinn) Ef stöðluð innrétting hentar yður ekki gerum viö yðuf fast verðtilboð á hlutfallslegu veröi. Gerum ókeypis Verðtilboð I éldhúsinnréttingar I ný og gömul hús. Höfum einnlg fafaskápa. staölaða. - HAGKYÆMIR GREIÐSLUSKlLMÁLAR - sir'* ilLswi Gúmmívinnustofan h.f. Skipholti 35 - Símar 31055 og 30688 MELAVÖUUR íslandsmótið í II. deild 1967: í kvöld kl. 20,00 fer fram leikur milli ísaf jarðar og Sigluf jarðar, um tilverurétt í II. deild 1968. Komið og sjáið spennandi leik. MÖTANEFND Bíll - Bátur - Hús 40 ferm. hús með 2 herb. í risi, selst til flutnings strax. Æskileg skipti á trillubát eða bíl. Sími 18398 BÆNDUR Höfum til sölu lítið notaða 22ja hestafla lágfalls- vatnstúrbínu með sjálfvirkum gangráð. Hentug fyrir tvíbýli. Einnig rafal með búnaði. Staðhættir: Fjögurra metra fallhæð, 500 sec. lítra vatnsmagn. Hagstætt verð. BRÆÐURNIR ORMSSON, Reykjavík. PÍPULAGNIR Tek að mér viðgerðir, — breytingar, uppsetningu á hreinlætistækjum o.fl. Guðmundur Sigurðsson, pípulagningameistari, Grandavegi 39. Sími 18717 * TIMINN ' MIIWyiKUDAGUR 22. maí 1968. LEIKRIT Leikrit þetta gerist í New York borg á hóteli því, sem heitir Sheraton Atlantic. Hótel þetta er að sligast undan við- skiptum sínum við íslenzkt flug og ferða-fólk, og hefir í því sámbandi orðið að láta stækka um helming geymslu þá, sem ætluð er undir pakka, sem geymdir eru fyrir gestina. Er hún nú orðin á stærð við eina af skemmum Eimskips í Örfir- isey. Sviðið er eitt af herbergjum áðurnefnds hótels. í því er stórt, lúið rúm, sem geymir mörg íslenzk-amerísk leyndar- mál, tveir hægindastólar, tveir borðstofustólar, kommóða með skúffum, sem aldrei er látið ofaní, sjónvarp, sem mest er notað á nóttunni og lágt lit- laust borð, alsett hringjum und an glösum ofsterkra, íslenzkra sjússa. Persónurnar í leiknum eru: Hæringur Blokk, stór-fisksali af íslandi með búsetu í miðjum heimsmarkaðnum; Arður Axía, velheppnaður, íslenzkur verð- bréfamiðill í Ameriku; Binna Brán, þræl-velgift amerískum uppgjafahermanni með tvo bíia og hús á Long Island (hún kall ar það sjálf Langa ísland); Guð mundur Gjaldþrot, ráðunautur um rekstur smá fyrirtækja í New Yorik, en hann fluttist hingað fyrir 13 árum eftir að hafa farið fjórum sinnum á hausinn á Fróni (hann segist hafa verið ofsóttur á fslandi) og Fölur (bókvitið-verður-víst- látið-í-askana!) Alfróði, sem ný skeð hlaut 12 ára vísindastyrk íslenzka ríkisins til rannsókna á afbrigðum af amerískum stofnunum af íslenzkum sóleyj um og fíflum. Hæringur: Kæru samlandar í Ameríku: Við erum hér saman komin í kvöld til að halda dá- lítinn málfund um okkar kæra föðurland, ísland. Þið vitið öll. að þar hefir verið slæmt ástand I HALFUM að þar hefur verið slæmt ástand að undanförnu, svo sem mögn uð verðbólga, hafís, glœpaalda og peningaleysi. Hefir þetta skapað hálfgerð leiðindi heima bæði til sjávar og sveita og í borg og bæ. Þar sem við eigum nú að heita fyrirsvarsmenn ís- lendinga í þessari milljónaborg, þótti mér tilhlýðilegt, að við eyddum einni kvöldstund til að ræða þessi mál, til að sjá, hvort við gætum nokkuð það fram lagt, sem til úrhóta gæti orðið. Ég mun sjá um, að frétt af þessum fundi komi í blöðun- um heima, svo alþjóð geti séð, að við berum hag hennar fyrir brjósti. Guðmundur: Af því, sem ég hefi séð í íslenzkum blöðunum, get ég nú ekki séð, af hvoru þeir hafa meiri áhyggjur, hvort presturinn fer frá Kaupmanna höfn eða hafísinn frá landinu. Svo hafa þeir heldur ekkert lært í bisness heima á þessum árum síðan ég fór. Núna les ég um mikla herferð til að fa fólk til að kaupa íslenzkan iðn- varning. Ef fólkið bregzt nógu vel við líður líklega ekki á löngu, þar til þeir þurfa að fara að flytja inn erlent vinnu afl til að framleiða meiri ís- lenzkan varning, svo hægt sé að fullnægj'a eftirspurninni, ha? Binna: Ég veit nú lítið um þennan þisness heima, nema ég veit það er góður bisness að giftast Ameríkana á fslandi. Það er bezti bisness, sem ís- lenzkar stelpur geta gert. Og ég veit líka, að þaö skaðar ekki bisnessinn heima, að hún Gunna í Holtunum skuli eiga dóttur í Ameríku, sem sendir henni simávegis fyrir jólin, eins og nælonsokka, skyndikaffi og álfojl (eða kalliði það enn þá alúmíníumpappír?) Ef nógu margar mæður væru eins heppnar og hún mamma mín, þá myndi það sko ábyggilega ÞÆTTI spara þjóðinni mikinn gjald- eyri. Arður: Ég er viss um, að það er til lykiU að hurðinni, sem gæti opnað íslendingum veginn út úr efnaihagsörðugleikunum og inn í vel tryggða afkomu fyrir ailla landsmenn. Það væri að koma á verðbréfamarkaði í landimu. Ég tala af góðri reynslu, og myndi ég jafnvel taka í mál að fórna mér og fara heim til að veita slíkri stofnun forstöðu, ef slíkt boð kæmi frá lamdsmönnum. Fölur: Ég verð nú að segja, að mér finnst íslendingar ekki geta beðið öllu lengur með að viðurkenna vísindamenn síná, og ættu þeir að fara að reyna að r*ota sér af hæfileikum þeirra. Ef þessu heldur svona áfram, verðum við bráðum bún ir að fylla allar vísindastöður, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa á boðstólum. Guðmundur: Þá get ég nú heldur ekki látið vera að minn ast á það, að fslendingar skilja ekki ennþá einkaframtakið. Ríkisvaldið vill ráða öllum rekstri með höftum og höml- um og það eina, sem maður fær að gera á eigin spýtur er að fara á hausinn. Þá eru þeir hvergi nærri. Hæringur: Þið hafið komið með margar góðar athugasemd ir og tillögur. Heyri ég á öllu, að þið berið mikla umhyggju fyrir velferð okkar góða lands- Nú heyri ég, að fólkið í næsta herbergi er farið að syngja ís- lenzk ættj arðarlög, og hrærir það það sannarlega í manni hjartað. Það ber fagran vott um ættjarð'arást lainda okkar, þótt þeir séu staddir fjarri fóst urjarðar ströndum, að hugurinn skuli samt vera heima á Fróni. Ég legg til, að við bönkum upp á og fáum að taka lagið með þessu góða fólki. Tjaldið. Þórir S. Gröndal. Sendum ókeypis verðlista yfir frímerki og frímerkjavörur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.