Alþýðublaðið - 10.03.1990, Qupperneq 1
MMDUBUBIB
Laugardagur 10. mars 1990
39. tbl. 71. árg.
Stórveldaslagur i skák sjá bls. 6 og V O
Nenni
ekki til
Austur-
rikis '92
— segir Jón Hjaltalín
h'rá Andrési Mugnússyni, Alþýdublaöid,
Prug:
Formaður Handknattleiks-
sambandsins var brattur í kvöld,
þegar ég hitti hann að máli í
íþróttahöllinni hér í borg.
,,Eg nenni ekki að fara til Austur-
ríkis í b-keppni 1992, — það er helst
að ég væri til í aö fara þangað sem
ferðamaður," sagði Jón Hjaltalín.
Um þær mundir sem lesendur Al-
þýðublaðsins eru að lesa blaðið sitt,
liggja úrslitin fyrir og hefur alþjóð
fylgst með leiknum gegn Frökkum í
beinni útsendingu eldsnemma
morguns.
Hér eru leikmenn og aðstandend-
ur liðsins bjartsýnir í hófi, -en
ákveðnir í að gera sitt besta. Ekki
var búið að tilkynna liðið, sem leika
átti, en óvíst var um Héðin Gilsson.
:::::
milljóna
dagsektum
— eigendur bílageymslu-
kjallara þráast uid aö opna
fyrir bíla, — nýta húsnæöiö
sem uörugeymslu
Eigendur bílageymslukjallara
að Laugavegi 118, Grettisgötu-
megin, þ.e. í stórbyggingunni
þar sem Egill Vilhjálmsson hf.
starfaði áður, hafa þverskallast
við að opna kjallarann til þeirra
nota sem ætlast hefur verið til.
Þess í stað er kjallarinn leigður
út sem vöruskemma.
Tveir bygginganefndarfulltrúar,
Gissur Símonarson og Gunnar H.
Gunnarsson, hafa lagt fram tillögu í
nefndinni þar sem byggingafulltrú-
anum er falið að innheimta dagsekt-
ir, rúmlega 1,2 milljónir króna af
eigendum húsnæðisins, allt þar til
kjallarinn hefur verið opnaður til af-
nota fyrir starfsfólk hússins eins og
til var ætlast.
Á fundi í bygginganefnd Reykja-
víkur vorið 1988 var samþykkt að
beita dagsektum, kr. 2.000 á dag þar
til bílageymslan opnaði sem slík.
Þessi samþykkt virðist þó fljótlega
hafa gleymst, — þar til nú, að skrif-
stofustjóra borgarverkfræðings og
byggingafulltrúa er falið að athuga
málið.
Jafnframt var samþykkt á fundi
bygginganefndar tillaga þeirra Giss-
urar og Gunnars um að bygginga-
fulltrúa yrði falið að gera skrá yfir
bílastæði innanhúss, sem ekki hafa
verið gerð eða eru notuð til annarra
hluta en að vista bifreiðar og þannig
gera bílastæðavandann í miðborg
Reykjavíkur minni en hann er í dag.
Viöskipta, ,vinur“ Áuöxtunar:
Ætlar i mál við
bankaeftirlitið
— vegna adgerdarleysis eftirlitsins gagnvart fjármögnunarfyrirtækinu
Einn af viðskipta„vin-
um“Ávöxtunar hf. hyggst fara í
mál við Bankaeftirlit Seðla-
bankans vegna aðgerðaleysis
þess um nokkurra mánaða
skeið, þegar nánast allir töldu
að maðkur væri í mysunni hjá
fyrirtæki þessu. Telur maður-
inn og lögmaður hans að með
þessu aðgerðaleysi hafi Banka-
eftirlitið skapað sér stórfellt
fjárhagstjón.
Maðurinn hefur farið fram á að
fá gjafsókn í málinu og bíður þess
nú hvort hann fær hana eða ekki.
Umboðsmaður Alþingis hefur
fjallað um mál mannsins og hefur
komist að þeirri niðurstöðu að eft-
irlitið beri ábyrgð í máli þessa
manns og fleiri aðila sem treystu
Ávöxtun fyrir vörslu peninga
sinna. Bankaeftirlitið er að sjálf-
sögðu á allt annarri skoðun í þessu
máli og telur að ekki hafi verið
ástæða til aðgerða gegn Ávöxtun
hf.
„Forsvarsmenn v Ávöxtunar
komust upp með að féfletta al-
menning meðan þeir opinberu að-
ilar sem áttu lögum samkvæmt að
fylgjast með starfsemi þessara fyr-
irtækja vanræktu skyldu sína,"
sagði umræddur viðskiptavinur
Ávöxtunar i samtali við Alþýðu-
blaðið. Hann sagðist hafa átt 2,5
milljónir hjá fyrirtækinu en það
voru peningar sem hann fékk þeg-
ar hann neyddist til að selja bát
sinn vegna slys sem hann lenti í.
„Eg hef nú aðra skoðun á störfum
opinberra starfsmanna en áður.
Þeir eru með opin augu en sjá ekk-
ert, eyru en heyra ekki, tala en þaö
er lítið að marka það sem þeir
segja."