Alþýðublaðið - 10.03.1990, Qupperneq 7
Laugardagur 10. mars 1990
7
Áriö er 1984. Ólympíu-
leikarnir eru í Los Angeles.
Sovétmenn mæta ekki til
leiks frekar en Bandaríkja-
menn höfðu mætt fjórum
árum áöur í Moskvu. Kalda
stríöiö stendur enn. An-
dropov er leiðtogi Sovét-
manna en liggur fyrir
dauðanum. Næstur í röö-
inni sem leiðtogi er Mikha-
il Gorbatsjov, að vísu með
Chernenko millispilinu. Þaö
var þá sem Margareth
Thatcher bauð Gorbatsjov
til London til viðræðna.
Jafnvel þó hann væri enn
ekki orðinn leiðtogi. Og
hún lýsti yfir ánægju sinni
með fund þeirra sem var
langur og strangur. Járn í
járn. Henni líkaði að tala
við þennan mann. Mann
sem gat talað beint og hik-
laust án þess að vera stöð-
ugt að líta á einhverja
minnispunkta, mann sem
gat talað án þess að vera
stöðugt að ráðfæra sig við
ráðgjafa sína, mann sem
þorði að ræða hugmynda-
fræði. Og Gorbatsjov
spurði og spurði. Hvernig
fóru Bretar að því að af-
nema heimsveldið og
koma á samveldinu, hvern-
ig fer frú Thatcher að því
að afnema miðstýringu
spurði hann varfærnislega.
Og vildi vita allt um málið.
Frú Thatcher kepptist við
að sannfæra þennan lág-
vaxna Sovétmann um að
Ronaid Regan væri maður
sem hann gæti treyst.
Strax eftir fundinn hitti
Thatcher Ronnie vin sinn í
Bandaríkjunum og eftir
það gaf hún út hina frægu
yfirlýsingu sína. „Mér líkar
vel við herra Gorbatsjov.
Ég held að við getum átt
samstarf." Fimm árum síð-
ar hrundi Berlínarmúrinn
og öll austurblokkin í kjöl-
farið.
Gorbatsjov var maöur 9da ára-
tugarins að mati flestra erlendra
fréttaskýrenda. Það er hann, öðr-
um fremur, sem stendur að baki
þeim breytingum sem eru að
verða í Evrópu, að austurblokkin
er að hrynja, opnast og leitar leiða
til að eiga samstarf við Vesturlönd.
Þegar Gorbatsjov kom til valda ár-
ið 1985 hefði enginn getað sagt fyr-
ir þá þróun sem orðið hefur í Evr-
ópu. Og það voru Sovétmennirnir
sjálfir sem stóðu að baki þessari
þróun, sama þjóðin og hafði við-
haldið kalda stríðinu og marið
önnur lönd í Austur-Evrópu undir
járnhæl hervaldsins til fjölda ára.
Perestroika — þ.e. hinar efnahags-
legu umbætur — og glasnost, hin
opna umræða, komu frá Sovét.
Fyrst og fremst frá hinum nýja
leiðtoga — manni sem hafði hald-
ið sér saman í tuttugu og fimm ár,
unnið verk sín í kommúnista-
flokknum af fullkominni trú-
mennsku. Flokkurinn hafði verið
Gorbatsjov bæði móðir og faðir en
um leið og hann komst til valda
sneri hann baki við hugmynda-
fræði hans. Samt stendur hann í
andstæðunni miðri — hann er
maður flokksins, alinn upp af hon-
um, elskar hann og dáir en um leið
veit hann að til að ná þeim árangri
sem hann stefnir að verður hann
sennilega að fórna flokknum. Af-
nema völd hans — ef til vill leggja
hann niður að lokum. Gorbatsjov
er í þeirri stöðu að það sem skóp
hann verður að víkja.
Þolinmæðin þrautir____________
vinnur allar_________________
Ef lýsa ætti ævi Gorbatsjovs í
einu orði, a.m.k. fyrir þann tíma
sem hann varð leiðtogi, mætti
Gorbatsjov og eiginkona hans, Raisa. Það þarf tvo til að stef na stöðugt fram á við, bæta við í sífellu. Margir segja
að hún sé annar aðal hugmyndafræðingur perestroiku og glasnost um leið og hún er helsti bandamaður eigin-
manns sins og ígiidi margra ráðgjafa og ráðherra. Saman hafa þau breytt ímynd leiðtoga Sovétrikjanna og heims-
mynd gjörvallrar Evrópu á fáum árum.
Madurinn sem
breytti
heiminum
Eftir Kristján Kristjánsson
nota orðið þolinmæði. Flann sat á
strák sínum í tuttugu og fimm ár,
þagði um hið hróplega óréttlæti
sem fyrir augu hans bar. Reyndi að
vinna innan kerfisins að breyting-
um í stað þess að gera það sem
margir hefðu gert í hans sporum,
annaðhvort gefist upp ellegar
leiðst út í mótmæli og verið sendir
í útlegð. Gorbatsjov hefur lifað
undir Stalín og Krúsjov og
Bresjnev, lifað öld stöðnunar,
hreinsana, gífurlegrar spillingar
en virðist engu að síður hafa náð
að komast sjálfur heill frá öllum
þessum ósköpum. í það minnsta
nógu heill til að halda heilbrigri
hugmyndafræði og sjá annmarka
þess kerfis sem hann hefur þó alla
tíð unnið í. Flann hefur fyrirmynd-
ir sínar frá Vestur-Evrópu sem
hann heimsótti tíðum á 6da og
7da áratugnum, hann hreifst til að
mynda mjög af Vestur-Þýskalandi.
En um leið og Gorbatsjov er þol-
inmóður er hann mikill diplómat,
harðsnúinn samningamaður með
sterka sannfæringu. Flann hefur
óhemjulegt minni og þarf aldrei
að fletta upp í skýrslum eða ráð-
færa sig við aðra þegar hann ræðir
málin. Þetta er annað en fyrri leið-
togar Sovétríkjanna sem komu
fram á þveröfugan hátt. Hann er
lítt bundinn af hugmyndafræði
kalda stríðsins og þorir að ræða
vandamál Sovétríkjanna opin-
skátt, bæði við sitt fólk og útlend-
inga. Hann er alinn upp við fátækt
þar sem hugsjónin um betra líf
blundaði í öllurn en um leið gerði
hann sér snemma grein fyrir sam-
spili veruleika og hugsjóna, tók
raunsæja afstöðu til manna og
málefna. Það er fyrst og fremst
það sem fleytti honum í gegnum
valdavef Sovéska kommúnista-
flokksins. Hann naut fjarlægðar-
innar frá Moskvu og skaut skyndi-
lega upp kollinum þar sem einn af
æðstu mönnum ríkisins. Aðspurð-
ur ságði hann; ,,það er víða hægt
að fela sig í Sovétríkjunum."
Æskuárín í Privolnoye
Gorbatsjov er rétt tæplega sex-
tugur, hann er fæddur í mars 1931
í þorpinu Privolnoye í héraðinu
Stavropol í Suður-Rússlandi. U.þ.b.
24ja tíma lestarferð frá
Moskvu-Stavropol átti eftir að
koma verulega við sögu þessa
unga metnaðarfulla manns sem
alltaf hefur átt sér aöeins eitt
markmið; að verða leiðtogi.
Privolnoye er lítið þorp, í dag
búa þar um 3.000 manns. í frjó-
sömu landbúnaðarhéraði klúkir
þorpið eins og þúst á óendanlegri
sléttunni. Forfeður Gorbatsjovs
sem hann segir vera Úkraínu-
menn, voru ekki dæmigerðir rúss-
neskir leiguliðar eða undirokaðir
smábændur. Heldur kraftmikið
duglegt fólk sem hafði ferðast um
langan veg á 18du öldinni til að
leita sér betri samastaðar en þau
komu frá. Fólk sem Stalín sjálfur
átti jafnvel erfitt með að kúga.
Héraðið var forðabúr Sovétríkj-
anna á Stalínstímanum, reyndar
bæði fyrir hann og eftir og hinir
harðduglegu bændur sem þar
unnu fengu sjaldnast notið ávaxta
vinnur sinnar. Fátæktin var því
landlæg og í dag er fæðingarþorp
Gorbatsjovs næsta óbreytt frá því
sem það var fyrir 30—40 árum.
Áróður ílokksins fyrir sameignar-
búum skilaði sér. Bændurnir gáfu
eftir sjálfstæði sitt; jjeir vita hins-
vegar betur í dag. I æðum þeirra
ólgaði frelsisþráin, hinsvegar
horfðust þeir í augu við veruleik-
ann. Eitt af því sem skóp leiðtoga
Sovétríkjanna í dag.
Flokkurinn eina leiðin út
Gorbatsjov var óþolinmóður og
metnaðargjarn, hann vildi ólmur
gera eitthvað úr séi, sá ekki fyrir
sér sjálfan sig í hlutverki forfeðra
sinna. Hann fór því þá einu leið
sem opin var út úr eymdinni, hann
gekk í kommúnistaflokkinn. Hann
var 14 ára gamall. Það var eina
leiðin fyrir bóndason til að komast
til metorða, í raun einasta leiðin
upp úr drullunni. Hann var feikn-
arlegur námsmaður og naut þar
ótrúlegs minnis, maður með lím-
Framhald á næstu sídu
r