Alþýðublaðið - 16.02.1985, Page 7
Laugardagur 16. febrúar 1985
7
• Vídeólögga
Nú í byrjun mars verða ráðnir 5
menn til að sjá um eftirlit með
vídeóleigum í Osló. Þeir verða und-
ir yfirstjórn lögreglumeistarans í
borginni, en mun algjörlega ein-
beita sér að myndbandamarkaðin-
urn. Þeir munu heimsækja leigurn-
ar og taka stikkprufur til að rann-
saka nánar. Á að reyna að láta þessi
mál ganga eins hratt fyrir sig og
mögulegt er. Einnig á hópurinn að
vera ráðgefandi fyrir lögregluna á
öðrum stöðum í Noregi. Mun lög-
reglan einkum einbeita sér að því að
gera upptæk myndbönd, sem eru
ólögleg, vegna einkaréttar og einnig
eiga þeir að hafa eftirlit með því að
ofbeidismyndír, sem misbjóða sið-
gæði Norðmanna og grófar klá-
myndir, séu ekki á boðstólum. Nú
er bara að sjá hvort frændum okkar
í Noregi gengur betur að manna
vídeólögguna sína en honum
Albert tekst að manna skattalögg-
una. En sennilega borgar hið opin-
bera í Noregi ögn skárri laun en
fjármálaráðherra hér.
• 7 svo til hættir
sem hugsar líkt og Þorgeir Ibsen,
með þeim Sjálfstæðisflokki, sem
orðinn er með hans eigin orðum að
„gullastokki til að fá útrás fyrir
hégómlegan metnað og valda-
græðgi?“
Ég skora á ykkur, sem þúsundum
saman standið í sömu sporum og
Þorgeir Ibsen að hugsa það til enda:
Eigið þið ekki samleið með íslenzk-
um jafnaðarmönnum? Þarf þetta
þjóðfélag okkar ekki nauðsynlega á
að halda sameiningarafli jafnaðar-
hugsjónarinnar, ekki aðeins í orði,
heldur líka í verki?
Og ég spyr þig, ungi íslendingur:
Átt þú ekki samleið með eina
flokknum á Alþingi, sem:
1. Varaði við afleiðingunum af
framferði kerfisflokkanna á
„áratug hinna glötuðu tæki-
færa“.
2. Sem hefur einn flokka lagt fram
framkvæmanlegar tillögur um
skilvirkt og réttlátt skattakerfi?
3. Sem þorir, í stjórnarandstöðu,
að leggja fram tillögur um að
skattleggja hina ríku til að bæta
fyrir misgerðir þjóðfélagsins við
hina ungu?
Hugsið þíð málið.
8. Framtíð jafnaðar-
manna
Sumir segja, að Alþýðuflokkur-
inn sé of veikburða. Það er auðveit
að kippa því í liðinn, því að það er
ykkar að breyta því. Því að pólitík
er að vilja og framkvæma.
íslenzkir jafnaðarmenn halda
senn flokksþing sitt. Við eigum nú
brýnna erindi við þjóðina en löng-
um fyrr. Þess vegna þurfum við að
taka af tvímæli um, hverjir við
erum, hvar við stöndum, og hvað
við viljum. I því efni sýnist mér
þetta mikilvægast:
1. Við eigum að hasla okkur völ!
vinstra megin við miðju I hinu ís-
lenzka flokkakerfi.
Alþýðublaðinu hefur borist frétta-
tilkynning frá íslenska bindindisfé-
laginu, þar sem greint er frá nám-
skeiði, sem félagið hélt fyrir reyk-
ingarfólk. Námskeiðið stóð í 5 daga
og var haldið í Háskóla íslands
3.—7. febrúar. Tæplega 40 manns
tóku þátt í námskeiðinu og var sam-
anlagður reykingartími þeirra
738/2 ár. Daglegur reykingakostn-
aður hópsins var 2.747,50 kr. Strax
eftir einn sólarhring var búið að
lækka þann kostnað niður fyrir 100
krónur. Síðasta kvöldið útskrifuð-
ust 35 manns. Af þeim höfðu 28
lagt reykingar alveg á hilluná en
þeir sjö sem enn reyktu, voru samt
svo til hættir því að sögn. Þá var
daglegur kostnaður reykingafólks-
ins kominn niður i 54 kr. í fréttatil-
kynningunni segir að það hafi verið
fagnandi hópur, sem yfirgaf Há-
skólann þetta kvöld. Og að lokum
er læknum og sjúkraliða þakkað
frábært starf og Háskólanum fyrir
ókeypis afburða fagurt húsnæði.
Þá er Krabbameinsfélagi Islands og
þakkað framlag ómetanlegs
fræðsluefnis og lán á sýningarvél
og kvikmyndum. Nú er bara að
vona að þeir 28 sem hættu alveg,
svo til byrji ekki aftur.
2. Við eigum að gera íslendingum
það ljóst að við erum róttækur
umbótaflokkur í efnahags- og
félagsmálum og í stjórnsýslu.
3. Við eigum að vera íhaldssamir á
farsæla og ábyrga stefnu í örygg-
is- og varnarmálum; stefnu sem
forystumenn flokksins frá fyrri
tíð áttu drjúgan hlut í að móta
og nýtur stuðnings yfirgnæfandi
meiri hluta þjóðarinnar.
4. Við éigum að vísa á bug ölium
kenningum um Alþýðubanda-
lagið sem sameiningar- eða for-
ystuafl vinstri manna, þótt ekki
væri nema vegna hörmulegrar
reynslu þjóðarinnar af ríkis-
stjórnarþátttöku þess flokks
árum saman.
5. Við eigum að taka af tvímæli
um, að við erum ekki gamaldags
ríkisforsjárflokkur; við erum
róttækur umbótaflokkur, en
ekki kerfisflokkur; við viljum
breyta þjóðfélaginu í átt til vald-
dreifingar og virkara lýðræðis,
gegn vaxandi miðstjórnarvaldi
og ríkisforsjá.
6. Við eigum að lýsa okkur reiðu-
búin til samstarfs um stjórn
landsins með þeim öflum, sem
leggja vilja þessari stefnu lið.
Við lýsum ábyrgð á hendur þeim
einstaklingum, sem á örlagastundu
rufu einingu íslenzkra jafnaðar-
manna, og bera því ábyrgð á hörm-
ungum þjóðarinnar undir núverandi
stjórnarstefnu. Það voru mistök.
Enn er hins vegar ekki of seint að
bæta fyrir þau. Þeir sem viðurkenna
mistök sín og vilja bæta fyrir þau,
verða menn að meiri. Við skulum
vona, að menn beri gæfu til þess.
Að telgja fogla í friði en
selja upp í ófriði
í Gerplu Laxness segir frá land-
stjórnarmanni, sem svo var heillum
horfinn að hann telgdi fogla í friði,
en seldi upp í ófriði og bauð aldrei
liði út nema á hendur sínum eigin
þegnum. Þá kemur mér hann í hug,
þegar ég horfi úr þessum ræðustól
á núverandi landstjórnarmenn — þá
Steingrím Hermannsson og Albert
Guðmundsson þessi vandræða-
börn íslenzkra stjórnmála.
Þeir telgdu fogla í friði sumars-
ins, en seldu upp stjórnarstefnunni
í ófriði haustmánaða. Nú geta þeir
ekki einu sinni boðið út liði lengur
gegn þegnum sínum, því að það er
brostinn flótti á liðið. Þann flótta
þurfum við að reka.
Við skulum ekki láta okkur vaxa
það í augum. Minnumst orða
Þorgeirs Ibsens, þegar hann lýsir
flokknum sínum: „Nú virðist mér
hann farinn að líkjast stórum slött-
ólfi. Hann er mikill vexti, en linku-
legur; og er það mikið harmsefni,
þvi vissulega hefur flokkurinn fram
til þessa átt erindi við þjóðfélagiðí1
Vissulega var sú tíð. En með
sama áframhaldi getur það orðið
liðin tíð. Inn i framtíðina munum
við hins vegar fylkja liði undir
gunnfánum jafnaðarstefnunnar;
undir kjörorðinu sígilda: Um jafn-
rétti, frelsi og bræðralag.
Nú er kjörið tækifæri til að skreppa i
Helgarreisu til Reykjavíkur með Flug-
leiðum. Einmitt um þessar mundir er
Hitt Leikhúsið að sýna söngleikinn Litlu
Hryllingsbúðina. Þessi stórskemmtilegi
rokk-söngleikur er hressandi viðburður
í menningarlífi borgarinnar.
Helgarreisa til Reykjavíkur felur i sér
flug og gistingu á einu eftirtaldra hótela:
Hótel Esju, Hótel Loftleiöum, Hótel
Sögu og Hótel Borg. Bílaleiga Flugleiða
útvegar góðan bíl, til afnota um helgina
Fljúgðu til Reykjavíkur með Flugleiðum
og líttu inn í Litlu Hryllingsbúðina i
Gamla Biói.
H/TT LzÍkhúsiÖ