Alþýðublaðið - 16.02.1985, Side 15
Laugardagur 16. febrúar 1985
15
Kennarafélag
Reykjavíkur:
Skóla-
haldi
stefnt
í voda
Fundur trúnaðarráðs Kenn-
arafclags Reykjavíkur haldinn
13.2. 1985 lýsir yfir eindregnum
stuðningi við kjarabaráttu
kennara í Hinu islcnska kenn-
arafélagi.
Fundurinn telur það sýna
litilsvirðingu við kennarastétt-
ina að nú aðeins hálfum mánuði
áður en uppsagnir kennara Hins
íslenska kennarafélags korna til
framkvæmda skuli mennta-
málaráðuneytið fara fram á
framlengingu uppsagnarfrests.
Trúnaðarráð KFR vill benda
á þá staðreynd að á síðustu vik-
um og mánuðum hafa kennarar
séð sig tilneydda til að hætta
kennslustörfum vegna lélegra
launa sem eru í engu samræmi
við menntun, ábyrgð og vinnu-
tíma. Nú er svo komið að erfitt
reynist að fá til starfa kennara
með kennsluréttindi í Reykjavík
og fyrirséð að fjöldi kennara
með margra ára starfsreynslu
muni hætta störfum í haust.
Ef ekki er tryggð leiðrétting á
kjörum kennara er öllu skóla-
haldi á íslandi stefnt í voða. Það
er á ábyrgð stjórnvalda ef kenn-
arar í Hinu íslenska kennarafé-
lagi neyðast til að ganga út úr
framhaldsskólunum 1. marsnk.
Kratar í verkalýðs-
hreyfingunni á ferð
Þessi mynd var tekin fyrr í vetur
af nokkrum vel þekktum verkalýðs-
foringjum úr röðum alþýðuflokks-
manna, þá er þeir ferðuðust um
Noreg og Svíþjóð og kynntu sér
málefni verkafólksins, starf og
skipulag verkalýðshreyfingarinnar,
þar í löndum.
Á myndinni eru frá vinstri: Pétur
Sigurðsson, forseti Alþýðusam-
bands Vestfjarða, Guðríður Elías-
dóttir, varaforseti Alþýðusambands
íslands og formaður verkakvenna-
félagsins Framtíðarinnar í Hafnar-
firði, Ragna Bergmann, formaður
verkakvennafélagsins Framsóknar í
Reykjavík, Sigurbjörn Björnsson,
starfsmaður verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur og ná-
grennis, Hallsteinn Friðþjófsson,
formaður verkamannafélagsins
Einingar á Akureyri, Grétar Þor-
leifsson, formaður Félags bygging-
armanna og loks Þráinn Hallgríms-
son, starfsmaður Menningar- og
fræðslusambands alþýðu, en hann
var hópnum til halds og trausts.
Píanótónleikar
í Þjóðleikhúsinu
Martin Berkofsky leikur verk
eftir Liszt til styrktar Samtökum
um byggingu tónlistarhúss
Næstkomandi inánudag verða
haldnir tónleikar í Þjóðleikhúsinu
kl. 20.30. Það er píanóleikarinn
Martin Berkofsky, sem inun leika
verk eftir tónskáldið Franz Liszt.
Allur ágóði af tónleikunum mun
renna til samtaka um byggingu tón-
listarhúss.
Á efnisskránni eru ungversk
rapsódía no. 9, Harmonies de Soir
no. 11, Un Sospiro, Lyon, Valse
Oubliée no. 1, Waldesrauschen og
Eftir fyrirlestur Dantes.
Martin Berkofsky
Martin Berkofsky er rúmlega fer-
tugur Bandaríkjamaður og er hann
nú nýkominn úr 6 vikna tónleika-
ferðalagi á vegum U.S. State
Department til Sovétríkjanna og
annarra Austantjaldslanda, auk
Tyrklands og Kýpur. Hann býr nú
með eiginkonu sinni, píanóleikar-
anum Önnu Málfríði Sigurðardótt-
ur, suður á Garðskagavita. Hann er
fæddur í Washington, hlaut tónlist-
armenntun sína við Peabody tón-
listarskólann, var styrkþegi við
Vínarakademíuna og Yale háskóla,
þar sem hann lagði stund á fræði-
mennsku. Fræðistörf hans á tón-
listarsviðinu eru athyglisverð, þann-
ig hefur hann t. d. fundið og komið
á framfæri konsertum eftir nokkra
gamla meistara.
Sem konsertpíanisti hefur
Berkofsky komið fram í 4 heimsálf-
um. Hann hefur leikið m. a. með
Lundúna- og Berlínarsinfóníunni,
hann hefur leikið í yfir 170 útvarps-.
og sjónvarpsþáttum báðum megin
Atlantshafs svo og á listahátíðum.
Þegar hann kom fyrst fram í New
York árið 1965, þá fullyrti gagnrýn-
andi New York Times: „Tónleikar
þessir voru þeir áhrifamestu og
áhugaverðustu í ár“. Aldrei hefur
«ríkt lognmolla um píanóleik
Berkofsky og eru flestir sammála
um yfirburðatækni hans. Er því
kannski rétt að enda á orðum gagn-
rýnanda, sem skrifaði um Liszt-
tónleika hans í Stuttgart: „Aldrei
heyrt slíkan flutning fyrr . . . ótam-
inn og eldlegur . . . djöfullega upp-
ljómandi inferno . . . ótrúlega
þrumandi“
Martin Berkofsky og Franz Liszt
eru samofnir í hugum íslenskra tón-
listarunnenda eftir tónleika sem
hann hélt i Þjóðleikhúsinu vorið
1983. Um þá tónleika skrifaði Jón
Ásgeirsson í I^prgunblaðið: „Aðra
stundina leikur hann sér því að
skálda í tónana angurværð, en
þrumar því næst boðskap höfuð-
skepnanna.Þannig sveiflast leikur
hans milli viðkvæmni og storma-
þrunginna átaka með svo miklum
andstæðum að fágætt má telja“
Franz Liszt
Nafn Franz Liszt kallar fram í
hugann ýmsar öfgakenndar mynd-
ir; mynd af loddara og píanósnill-
ingi, mynd af spjátrungi og djúp-
hugulu tónskáldi, glaumgosa og
Martin Berkofsky
ástríkum föður. Þessar andstæður
eiga allar við um Farnz Lizst,
undrabarnið, sem varð eftirlæti
aðalsins, sem varð bráðþroska lista-
maður og tónskáld, og sem 18 ára
varð bókstaflega dauðvona vegna
ástarsorgar og varð naumlega forð-
að frá því að ganga í klaustur. Yfir-
borðsmaður, en um leið vinur
fremstu hugsuða síns samtíma á
sviði lista og stjórnmála.
Hann umbylti hefðbundinni
tækni píanóleiks, og áhrifa hans
sem tónskálds má finna í tónsmíð-
um 20. aldar tónskálda eins og t. d.
Bartok og Schönberg. En þótt lífs-
stíll hans ylli hneykslun samtíma-
manna hans og kæmi jafnvel páfa-
stóli í vanda, þá hafði hann lokið
flestum áfangaprófum að prest-
skap þegar hann lést.
Pönkari síns tíma eða framsæk-
inn hugsuður og listamaður? Sú
flokkun skiptir líklega engu máli,
enda eru þetta ekki endilega ósætt-
anlegar andstæður.
Ýmsir gagnrýnendur hafa í
áranna rás haft tilhne.igingu til að
afgreiða tónsmiðar Lizst sem bil-
legar tæknibrellur án dýptar. E. t. v.
væri réttara að segja, að ýmis verk
Lizst krefjist meiri dýptar af flytj-
anda verksins en flestir skólar í dag
rækta með nemendum sínum. Hin
rómantíska túlkun hefur oft óverð-
skuldað fengið óorð á sig, „býró-
kratar píanósins“ hafa fremur verið
í fararbroddi. Það er því gæfa okk-
ar hér norður við heimskautsbaug,
að Martin Berkofsky telur sig ekki
í hópi hinna síðasttöldu.
Það er löngu viðurkennt að hér á
landi bráðvantar tónlistarhús. Því
tóku nokkrir einstaklingar sig sam-
an og hófu undirbúning að stofnun
samtaka til byggingar tónlistarhúss,
vorið 1983. Eftir miklar vangavelt-
ur hefur verið talið heppilegast að
byggja tónlistarhús með einum
1400 manna sal og öðrum fyrir 250
manns. Borgaryfirvöld hafa boðið
lóð í Öskjuhlíðinni, og nú er undir-
búningur fyrir hönnunarsam-
keppni á lokastigi.
Einsog fyrr segir mun allur ágóði
af tónleikum Martin Berkofskys
renna til Samtaka um byggingu tón-
listarhúss. Um svipað leyti mun
einnig Fílharmóníuhljómsveit
Lundúna halda tónleika undir
stjórn Vladimir Ashkenazy til
styrktar sama málefni.