Alþýðublaðið - 16.02.1985, Qupperneq 16
16
Laugardagur 16. febrúar 1985
Skattsvikin:___________
Svona skaltu
fara að, Albert
Auglýsingaherferð fyrir milljónir
virðisl helsta úrræði ríkisstjórnar-
innar til að stemma stigu við skatt-
svikum. Fyrirhuguð fjölgun skatt-
eftirlitsmanna og rannsóknar-
manna virðisl ætla að renna í sand-
inn þar eð enginn fæst til að sinna
þessum störfum fyrir þau laun sem
rikið býður upp á.
Fyrir rúmu ári voru á Alþingi
samþykktar tvær tillögur Alþýðu-
flokksins um úrbætur í skattamál-
um, er nánar tiltekið lutu að rann-
sókn á umfangi skattsvika og að-
gerðir gegn skattsvikum. Málin
voru sett í nefnd sem vart hefur
komið saman enn. Áhuginn er svo
mikill. Á blaðamannafundi í sjón-
varpinu nýlega auglýsti Albert eftir
því hvar skattsvik vreru að finna og
hvernig ætti að ná þessum sviknu
aurum inn.
Af þessu tilefni er rétt að minna
á, að auk þeirra tillagna sem ráð-
herra hefur af veikum mætti reynt
•að taka til sín frá Alþýðuflokknum,
þá sendu þingmenn Alþýðuflokks-
ins fjármálaráðherra bréf í mars
I984 þar sem honum var leiðbeint
vinsamlegast um hvernig hann gæti
hagað mögulegum úrbótum í
skattamálum. Rétt er hér og nú að
rifja þetta bréf upp, el'Albert skyldi
vera búinn að týna því:
Hr. Albert Guðinundsson, fjár-
málaráöherra
Fjármálaráðuneytinu
Arnarhvoli
Reykjavík.
Hér fylgja til áréttingar samtali
okkar í dag tillögur frá þingflokki
Alþýðuflokksins um hvernig bregð-
ast skuli við skattsvikum hér á
landi. Að stofni til eru þessar tillög-
ur byggðar á tveimur þingsályktun-
artillögum þingmanna Alþýöu-
flokksins sem nú eru í meðförum
Alþingis og er það von þingflokks-
ins að þú, herra fjármálaráðherra,
stuðlir að því að þessar tillögur fáist
samþykktar þannig að vinna megi
gegn skattsvikum sem við teljum
hiklaust einhverju mestu meinsemd
þjóðlífsins um þessar mundir.
1. Byrjað verði á því að gera sér
grein fyrir umfangi skattsvika
hér á landi miðað við upplýsing-
ar um þjóðartekjur sem fyrir
liggja í þjóðhagsreikningum og
öðrum opinberum gögnum
annars vegar og upplýsingar um
framtaldar tekjur í skattframtöl-
um hins vegar.
2. Jafnframt þessu verði reynt að
gera sér grein fyrir í hvaða at-
vinnugreinum líklegt sé að skatt-
svik séu algengust.
3. Söluskattur er ein helsta tekju-
lind ríkisins. Það orð leikur á að
hann skili sér illa. Nauðs'ynlegt
er að gera sér grein fyrir umfangi
söluskattssvika og Ieita aðgerða
til úrbóta. Endurskoða verður
allt fyrirkomulag söluskattskerf-
isins og kanna sérstaklega hvort
ekki sé rétt að fækka undanþág-
um frá greiðslu söluskatts og
lækka þar með skattprósentuna.
Við teljum fullvíst að stórhert
eftirlit með innheimtu söluskatts
geti skilað mjög auknum tekjum
til ríkisins.
4. Við teljum nauðsynlegt að
stofna sérdeild við sakadóm
Reykjavíkur eða sérdómstól sem
hefði það afmarkaða megin-
verkefni að fjalla tnn skattsvik,
bókhaldsbrot og annað þvi skylt.
5. Einnig er nauðsynlegt að endur-
skoða refsilöggjöf og refsi-
ákvæði einstakra laga svo sem
skatta- og bókhaldslaga til aö
sarriræma þau og beita í stór-
auknum mæli sektarákvæðum
og hækkuðum sektum fyrir af-
mörkuð afbrot í stað tímafrekra
rannsókna á flóknum og um-
fangsmiklum afbrotum.
6. Einnig þarf að gera breytingar
Fasteignaviðskipti hafa mjög
verið til umfjöllunar síöustu vik-
urnar. Helgarpósturinn hefur vakið
athygli á því að ekki nær því allar
fasteignasölur uppfylla þau skil-
yrði, sem þeim eru sett í lögum.
Óþarfi er að geta þess, að mjög
mikilvægt er að vel sé um alla hnúta
búið, þegar fasteignaviðskipti
eru annars vegar. Þar fara stórar
fjárhæðir á milli aðila. Fólk er
raunverulega að höndla með lífsaf-
komu sína; fjármagn sem samsvar-
ar tekjum margra ára hjá fjölskyld-
um launafólks. Milljónir króna eru
i dæminu.
Þingmenn Alþýðuflokksins hafa
oftar en einu sinni vakið athygli á
nauðsyn þess að löggjafinn tæki
þessi mál fastari tökuni en veriö
hefur og lög og reglugerðir um fast-
eignavióskipti yrðu afdráttarlaus-
ari en verið hefur; valdamenn verið
værukærir og lítið viljað snerta á
málinu þrátt fyrir mikilvægi þess.
Alþýðublaðinu hefur borist bréf
frá íbúöarkaupanda, þar sem hann
segir sínar farir ekki sléttar. Al-
þýöublaðið leggur ekkert mat á
réttmæti þeirra ásakana, sem fram
eru bornar í bréfinu, enda hér að-
eins önnur hlið málanna kynnt. Á
hinn bóginn er í þessu bréfi drepið
á nokkur atriði, sem einmitt hafa
áður vakið deilur og skapað leið-
indi. Með ítarlegri og markvissari
reglugerðum og ströngu aðhaldi
væri unnt að koma í veg fyrir leið-
indamál á borð við það, sem rakið
er í bréfinu hér á eftir.
En hið umrædda bréf fer hér á
eftir.
Einn af þessum svokölluðu „lög-
legu“ fasteignasölum (samanber
Helgarpóstinn 7/2 ’85) auglýsti í
byrjun janúar ca. 114 fm íbúð með
stórum bílskúr (ca. 30 fm að sögn
fasteignasalans), verð 2,8 milljónir.
Ég bauð í eignina og fékk hana fyrir
2,7 milljónir, eftir að hafa selt mína
íbúð á sambærilegu verði miðað við
fermetrafjölda — hélt ég. Var hér
um skólabókadæmi fasteignasal-
ans að ræða, 70% útborgun á ári og
síðan restin á fjórum árum með
20% vöxtum. Hefð virðist vera hjá
fasteignasölum að reikna bílskúra á
300 þúsundir þannig, að 114 fm
íbúð kostaði mig 2,4 milljónir eða
rétt rúmar 21 þúsund á fermetra,
sem má kallast sanngjarnt miðað
við opinberar tölur Fasteignamats
ríkisins á verðgildi fermetra á frjáls-
um markaði.
Ég seldi mína íbúð á 20,5 þús-
undir hvern fermetra.
Enn sem komið er virðist allt með
felldu.
Ég vaknaði upp við vondan
draum þegar ég sá álagningarseðil
Gjaldheimtunnar fyrir fasteigna-
gjöldum á nýju íbúðinni minni. Þar
sem miða að því að tryggja
gleggri og áreiðanlegri fylgiskjöl
með skýrum upplýsingum fyrir
skattrannsóknarmenn þar sem
fram komi nákvæmari sundur-
liðun reikninga en nú er og að
skuldbinda alla aðila til að taka
í notkun tölusett eyðublöð og
reikningsform útgefin eða viður-
kennd af opinberum aðilum.
7. Breyta þarf lögum um tekjuskatt
og eignarskatt og framtalsregl-
um til að tryggja áreiðanlegri og
traustari upplýsingar um fyrir-
tæki og einstaklinga í atvinnu-
rekstri. I því sambandi leggjum
við þunga áherslu á að endur-
skoða þarf sérstaklega í þessu
sambandi frádrátt vegna tekna
af atvinnurekstri, þ. á m. risnu-
kostnað, bifreiðafríðindi, launa-
mat, afskriftir og fleira.
8. Taka þarf upp aukna hagræð-
ingu og tölvuvæðingu við upp-
lýsingaöflun við úrvinnslu skatt-
framtala og fylgiskjala.
9. Veita verður aukið fjármagn til
skattaathugana, einkum til
skattrannsóknadeildar ríkis-
er íbúðin skráð sem 95,2 fm og bíl-
skúrinn 22,5 fm! Fermetraverðið á
íbúðinni er í einu vetfangi komið úr
21 þús. í 25 þúsund, að ég minnist
ekki á bílskúrinn, sem skiptir mig
minna máli.
Ég hef sem sagt verið plataður
um 400 þúsund krónur.
Næsta skref var að kynna sér
málið betur. Ég fékk teikningar af
húsinu (ljósrit fékkst strax fyrir 20
krónur) og bað lögfræðing að
reikna út fermetrana fyrir mig, því
að ég var farinn að óttast að fleiri
tegundir af fermetrum væru til. Ég
bað hann að draga ekki af.
Á meðan lögfræðingurinn reikn-
aði fékk ég upplýsingar hjá Fast-
eignamati ríkisins um hvers konar
fermetrar þetta væru hjá þeim og
um leið hvað væri að marka statis-
tik þeirra eða tölur um flatarmáls-
verð íbúða. Þeirra flatarmál er
nefnt „innanmál“ og könnuðust
þeir ekki við neina skilgreiningu á
„nettó" eða „brúttó“ flatarmáli.
Innanmál er mælt út í miðjan vegg
hjá samliggjandi íbúð og svo út fyr-
ir útveggi. Þessa mælingu skildi ég.
Þetta er ytri rammi þess svæðis sem
búið er í = íbúð. Fasteignamat ríkis-
ins hefur prentaða bæklinga um
hvernig reikna megi þetta út og ef
um vafaatriði er að ræða, þá stend-
ur sérfræðingur til boða hjá Bygg-
ingafulltrúanum í Reykjavík.
Lögfræðingurinn, sem auk þess
hefur ástundað fasteignasölu um
áratuga bil gat blásið íbúðina út í
105 fm með því að taka utanmál alls
grunnflatar, þ. e. með sameiginleg-
um stigagangi og tjáði mér um leið
að þetta væru hinir venjulegu
„brúttó” fasteignasalafermetrar.
Enn vantaði 9 fm og eru það tæp
10% af íbúðinni eða um 200 þús-
und krónur. Bílskúrinn varð lítið
stærri.
Nú hef ég samband við fasteigna-
salann, sem seldi mér og krafðist
afsláttar, sem nemur 9 fermetrum,
muninum á íbúðinni sem hann seldi
mér og þeirri sem ég fékk. Fast-
eignasalinn sagðist ætíð fara eftir
því sem eigendur söluíbúðanna tjá
sér um fermetrastærð, þess vegna
auglýsti hann alltaf með circa (ca.
114 fm — sic!) til að fría sig allri
ábyrgð, en auk þess benti hann mér
á að ef ég reiknaði svalirnar utan á
húsinu með og eins geymsluna í
kjallaranum og svo hlutdeild mína í
þvottahúsi væru þessir 114 fm
komnir. Það getur verið að hann
láti gott heita að búa úti á svölum,
í stigagangi, í kjallarageymslu, að
ekki sé minnst á part úr þvottahúsi,
en ég hef hingað til haft aðrar hug-
myndir um íbúðir. Mér finnst þetta
siðlaust og lögfróðir menn telja
þetta svik.
Þegar ég fer í verslun og kaupi
skattstjóraembættisins, til að
ráða sérhæfðan mannafia þann-
ig að taka megi til ítarlegrar
rannsóknar a. m. k. 10—20% af
skattaframtölum fyrirtækja og
einstaklinga í atvinnurekstri á
hverju ári. Við teljum eðlilegt að
skattsektafé ríkisskattanefndar
standi straum af rekstri skatt-
rannsóknadeildar að einhverju
eða öllu leyti.
11. Margir hafa fyrir augunum
dæmi um einstaklinga sem ber-
ast stóriega mikið á en greiða
jafnframt litla skatta. Þetta
þekkja allir. Skattrannsókna-
deild þarf að geta rannsakað slik
tilvik jafnvel eftir ábendingum
frá almenningi.
11. Við þurfum að kynna okkur
ítarlega og taka upp þær skatta-
eftirlitsreglur sem best hafa gef-
ist í grannlöndum okkar.
F. h. þingflokks Alþýðuflokksins,
Eiður Guðnason formaður.
Jóhanna Sigurðardóttir varafor-
maður.
Karvel Pálmason ritari.
vöru, sem seld er á röngum forsend-
um, fer ég auðvitað með vöruna aft-
ur í verslunina til að fá leiðréttingu
minna mála en ekki til verksmiðj-
unnar, innflytjandans eða jafnvel
bóndans.
Fasteignasalinn sagði enn fremur
að þetta fermetravandamál væri
mál allrar stéttarinnar og ef hann
gerði ekki eins og hinir þá mundi
hann ekki selja eins mikið. Ein-
hvern tíma hef ég heyrt slíka rök-
semdafærslu áður!
Fasteignasalinn byrjar á því að
hrella öldruðu konuna, sem bjó enn
í íbúðinni þvert ofan í beiðni mína.
Skömmu síðar buðu ættingjar
hennar mér að rifta samningi, en
sáu sér ekki fært að veita afslátt
enda hækka fasteignir nú óðfluga í
verði. Þetta eru að mínu mati heið-
arleg viðbrögð, en ég afþakkaði
boðið vegna þess að peningar hafa
rýrnað á þessu verðbólgutímabili,
fasteignir hækkað og auk þess
nenni ég ómögulega að versla aftur
í bráð við einhvern fasteignasalann
eftir þessa reynslu.
Ég vil á engan hátt áfellast þá
heiðurskonu, sem býr enn í íbúð-
inni minni þó hún hafi haft ein-
hverja fermetratölu frammi eftir
minni og vil ég biðja hana afsökun-
ar á óþægindunum. Ég lýsi fast-
eignasalann að öllu leyti ábyrgan
fyrir röngum upplýsingum.
Hinn Iögfróði reiknimeistari
minn sagði mér að málarekstur í
svona tilfellum tæki nokkur ár og
ég hef annað og betra við tímann að
gera. Ef kerfið ynni eins fljótt að ná
rétti þegna sinna í þessum málum
og þeir eru að auglýsa uppboð
eigna vegna vangoldinna opinberra
gjalda, þá væru sennilega færri
skúrkar á markaðinum.
Með svona fölsunum geta fast-
eignasalar í raun ráðið miklu í verð-
myndun á hinum frjálsa markaði
fasteigna og niðurstöður og upplýs-
ingar Fateignamats ríkisins verða
þá ekki annað en tæki fasteignasala
til að maka krókinn. Þeir fá prós-
entuþóknun af söluverði.
Ég færi Neytendasamtökunum
eintak af þessu bréfi auk allra gagna
ef þau kæra sig um. Það sama fær
Verðlagsstofnunin.
Á meginlandi Evrópu og kannski
víðar hafa fasteignasalar á sér
braskaraorð, þrátt fyrir mun
strangari reglur og löggjöf eftir því
sem ég kemst næst. Ég sé ekki betur
en að stéttarbræður þeirra hér séu á
góðri leið með að verða þeim sam-
ferða.
Löglegir eða ólöglegir er því í
raun alls ekki málið. Þetta er fyrst
og fremst spurning um heiðarleika
og þar með réttlæti. Ekkert circa.
12. febr. 1985.
Friðrik G. Friðriksson.
I ^
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna
starfa hjá Heilsuverndarstöö Reykjavíkur. Starfs-
kjör samkvæmt kjarasamningum.
• Hjúkrunarfræöingar viö barnadeild, heima-
hjúkrun, heilsugæslu í skólum og einnig á
kvöldvaktir í heimahjúkrun.
• Sjúkraliðar við heimahjúkrun, bæöi heilar
stöður og hlutastörf.
• Deildarmeinatæknir í hálft starf.
• Sjúkraþjálfari við heimahjúkrun.
• Skrifstofumaður í hálft starf við húö- og kyn-
sjúkdómadeild.
Upplýsingar veita hjúkrunarforstjóri og fram-
kvæmdastjóri Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur
í síma 22400.
Umsóknum ber aö skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,6. hæö á sér-
stökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir
kl. 16.00 mánudaginn 25. febrúar 1985.
Utboö
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum I eftirfar-
andi:
RARIK—85002: 19 KV Aflrofaskápar.
Opnunardagur: Miðvikudagur 10. aprll 1985, kl. 14:00.
Tilboöum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
rfkisins, Laugarvegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunar-
tfma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum
þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
rlkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
þriðjudegi 19. febrúar 1985 og kosta kr. 300,- hvert
eintak.
Reykjavík 15. febrúar 1985,
Rafmagnsveitur ríkisins
Fasteignamarkaðurinn:__________
Ræður frumskógar-
lögmálið ríkjum?