Alþýðublaðið - 07.05.1990, Side 3
Þriðjudagur 8. maí 1990
INNLENDAR FRÉTTIR
3
FRÉTTIR
j HNOTSKURN
SKOÐAR ALUMAX: Jón Sigurðsson iðnaöarráð-
herra er á fundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins í Washington. Mun hann ávarpa fundinn fyrir
hönd Norðurlandanna og fjalla um þróunarverkefni bank-
ans og aðstoð við lönd í S-Afríku. Á morgun mun ráðherr-
ann halda til Suður Karólínu þar sem hann skoðar álver Al-
umax í Mount Holly. Á fimmtudag heldur Jón Sigurðsson
síðan til Atlanta í Georgíufylki og mun eiga viðræður við
Paul E. Drack, aðalforstjóra Alumax. Heim kemur ráð-
herra á föstudag.
H-STUÐNINGUR: Birtingarmenn héldu aðalfund sinn
á laugardag. Fundurinn lýsti yfir stuðningi við sameiginleg
framboð jafnaðar- og félagshyggjumanna um land allt.
Birting styður framboð Alþýðubandalagsins og annarra
jafnaðarmanna utan höfuðborgarinnar þar sem ekki tókst
að koma á sameiginlegu framboði. Sérstaklega er lýst yfir
stuðningi við H-listann í Reykjavík, lista Nýs vettvangs,
sem verður helsta andstöðuaflið gegn flokksræði sjálf-
stæðismanna. í stjórn Birtings: Árni Páll Arnason, Hrafn
Jökulsson, Kjartan Valgarðsson, Margrét S. Björnsdóttir,
Mörður Árnason, Ragnheiður Gyða Jónsdóttir og Svan-
fríður Jónasdóttir.
DYR MATVARA: Það er dýrt að vera Vestfirðingur —• að
maður tali ekki um að vera Áustfirðingur. Verðlagsstofnun
hefur kannað verðlag í matvöruverslunum úti á landi og
borið saman við verðið á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstað-
an er sannast sagna hrikaleg. Austfirðingar borga 6.2%
meira en Reykvíkingar, Vestfirðingar 6.1% meira fyrir mat-
vöru sína. Svo bregður við að Skagamenn greiða 0,7%
minna fyrir mataraðdrættina en Reykvíkingar og ná-
grannar. Skýring mun sú að á Akranesi eru hugsandi kaup-
menn, sem staðgreiða vöruinnkaup sín, — og taka ekki viö
plastkortum sem greiöslu.
105TONN ASTONG: Á síðasta ári veiddu veiðimenn
landsins 30.082 laxa á stöng og vó aflinn rétt um 105 tonn.
Tvær ár sem renna i Faxaflóa voru aflasælastar í fyrra,
Laxá í Kjós (2133 laxar) og Elliðaár (1773). Laxá í Aðaldal
með 1619 veidda laxa var i þriðja sæti. I ám við Faxaflóa
bar sem fyrr talsvert á eldislaxi, mest í Botnsá 47%, 30%
í Flliðaám.
GRUNDARKJÖRSÆVINTÝRI ÚTI: Verslunarrekst-
ur Grundarkjörsbúðanna, sem voru orðnar. 6 talsins í tæp-
lega tveggja ára sögu fyrirtækisins er búinn að vera. Kaup-
menn i Reykjavík hafa talið reksturinn „ótrúlegan" og
sagði einn þeirra í samtali við Alþýðublaðið í gær að slík
ævintýri í rekstri gætu einfaldlega ekki blessast, allra síst
í verslun með matvörur. Of lítið eigið fé — of stór lán af
gráa markaðnum, — útkoman væri síðan gjaldþrot, sagði
þessi kaupmaður.
DAUÐASLYS : Tveir ungir menn létu lífiö í slysi á Suður-
landsvegi í fyrrakvöld. Voru þeir á ferðinni skammt frá
Hveragerði, þegar þeir lentu á langferðabifreið sem var að
beygja af aðalveginum inn á veginn upp að Ölfusborgum.
Hinir látnu voru ungir menn, 20 og 21 árs gamlir.
KOSNINGASLAGUR: í Hafnarfirði er kosningaslagur
hafinn af kappi, — og hófst í raun eins og vera ber, með
knattspyrnuleik Guðmundar Árna, bæjarstjóra og liös Þor-
gils Óttars, minnihlutans. Fóru leikar svo aö lið bæjarstjóra
burstaði minnihlutaliðið með 5 mörkum gegn einu. Á
myndinni er Magnús Jón Árnason að sýna Ellerti Borgari,
sjálfstæðismanni, hvernig á að afgreiða boltann í netið.
Ný lög um félagslega íbúdakerfid:
Býðuruppá
nýja valkosti
Merkt frumvarp um fé-
lagslega húsnæðiskerfið
var samþykkt sem lög frá
Alþingi á laugardaginn.
Þar eru samræmd lög um
féleglegar íbúðarbygging-
ar og í þeim að finna ýmis
nýmæli. Félagsmálaráð-
herra, Jóhanna Sigurðar-
dóttir, hefur beitt sér fyrir
því að koma þessu máli í
höfn.
Nýju lögin taka til bygging-
ar félagslegra kaupleigu-
íbúða, félagslegra eignar-
íbúða (verkamannabústaða),
félagslegra leiguíbúða og al-
mennra kaupleiguíbúða.
Stjórnir verkamannabústaöa
verða lagðar niður en i þeirra
stað koma húsnæðisnefndir
sveitarfélaga og verða þá all-
ar félagslegar ibúðirbygging-
ar undir sömu stjórn.
Samkvæmt lögunum
hækkar framlag Húsnæðis-
stofnunar úr 85% í 90% af
verði félagslegra íbúða og
sveitarfélögin sem leggja
fram þau 10% sem upp á
yantar fá nú hlut sinn endur-
greiddan sem þau fengu ekki
áður. Með þessum nýju lög-
um gefst mun betra ráðrúm
en áður að mæta þörf og ósk-
um hvers og eins hvað varöar
búsetuform.
Breytingar á lögum um raforkuver:
Virkjanaáform fyrirliggjandi
rísi hér á landi nýff álver
Breytingar á lögum um
raforkuver voru sam-
þykktar á Alþingi á á síð-
asta degi þingsins. Um er
að ræða breytingar á lög-
unum vegna fyrirhugaðr-
ar nýrrar álbræðslu á ís-
landi og að hægt verði að
mæta aukinni raforkuþörf
verði af samningum.
Verði af því að hér á landi
verði reist 200 þúsund tonna
álver er gert ráð fyrir að auk
Blönduvirkjunar verði ráðist
í Fljótsdalsvirkjun, stækkun
Búrfellsvirkjunar, 5. áfanga
Kvíslarveitu og stækkunar
miðlunar i Þórisósi. Þá er gert
ráð fyrir stækkun Kröflu-
virkjunar og 1. áfangi Nesja-
vallarvirkjunar, takist samn-
ingar við Hitaveitu Reykja-
víkur um samrekstur virkjun-
arinnar við raforkukerfi
landsins.
Jón Sigurðsson iðnaðarráö-
herra hefur lagt áherslu á að
takist samningar við Atlan-
tal-hópinn um að reisa hér ál-
ver verði virkjanaáform fyr-
irliggjandi. Með breytingun-
um á lögunum um orkuver er
hægt að hefjast handa um
undirbúning og framkvæmd-
ir við virkjanir um leið og/ef
fyrir liggur að hér verði reist
álver.
Alþingi:
30 lög afgreidd á tveimur dögum
Alþingi Islendinga lauk
seint á laugardaginn með
því að forseti ísland Vigdís
Finnbogadóttir sleit 112.
löggjafarþingi íslendinga.
Miklar annir voru síðustu
dagana á þingi og um 30
mál afgreidd sem lög tvo
síðustu daga þingsins.
Þrátt fyrir titring og óvissu
um afgreiðslu ýmissa þing-
mála fór svo að lokum að það
tókst að afgreiða flest þeirra
sem mikilvægust þóttu. Af
stóru málunum sem afgreidd
voru má nefna; frumvarp um
stjórn fiskveiða og frumvarp
tengt þvi um Hagræðingar-
sjóð sjávarútvegsins, frum-
varp um yfirstjórn umhverfis-
mála, frumvarp um Húsnæð-
isstofnun ríkisins er tekur til
félagslega íbúðakerfisins,
frumvarp um raforkuver og
frumvarp um heilbrigðisþjón-
ustu.
Þingið i vetur er búið aö
vera æöi stormasamt og
gengið á ýmsu. Mjög óljóst
var um meirihlutastuöning
við ýmis stjórnarfrumvörp en
svo fór að lokum að þau náðu
í gegn, sum hver eftir víðtæk-
ar breytingar og málamiðlan-
ir. Einkum hefur mikill styrr
staðið um frumvarp um yfir-
stjórn umhverfismála. Eins
hafa lög um stjórn fiskveiöa
verið umdeild en það tókst
samstaða um nokkurs konar
millilendingu með ákvæöi
um endurskoöun laganna.
Tom Jones á íslandi:
,,Lofa fólki mjög
góðri skemmtun"
Hinn fimmtugi Tom Jon-
es er mættur til landsins
og heldur fimm tónleika á
næstunni á Hótel íslandi.
Hann virkaði afslappaöur
og yfirvegaður á blaða-
mannafundi í gær og
kvaðst geta lofað áhorf-
endum góðri skemmtun á
þessum tónleikum. „Ég
blanda saman gömlum og
nýjum lögum þannig að
sem fiestir ættu að fá eitt-
hvað við sitt hæfi,“ sagði
söngvarinn heimsfrægi.
Með hjartaknúsaranum frá
Wales eru hvorki fleiri né
færri en 26 aðstoðarmenn,
þar af níu tónlistarmenn og
þrír söngvarar. Fyrstu tón-
leikarnir verða í kvöld en
söngvarinn síglaði heldur síð-
an af landi brott eftir ná-
kvæmlega viku.
Tom Jones býr nú í Banda-
ríkjunum ,,af hagkvæmnis-
ástæðum", eins og hann orð-
aði það, en bætti því síðan við
að skattastefna stjórnvalda í
Bretlandi hefði á sínum tíma
hálf-hrakið hann frá Bret-
landi. Hann hefur hins vegar
ekki sagt skilið við fæðingar-
land sitt, Wales, því á síðasta
ári keypti hann þar hús og
þangað fer hann til tveggja
vikna dvalar eftir að hafa
glatt eyru íslenskra söng-
áhugamanna.
Þetta er í fyrsta skipti sem
söngarinn kemur til Islands.
Hann sagðist ekki vita mikið
um landið en kvaðst þó muna
eftir því að í landaíræðitím-
um í barnaskólanum hefði
verið rætt um að allur ísinn
væri á Grænlandi en það
græna væri á íslandi. ,,Þó er
ekki hægt að segja annað en
mér lítist vel á landið þegar
sólin skín í heiði,“ sagði söng-
arinn víðfrægi sem brætt hef-
ur hjörtu kvennaá tæp þrjátíu
ár.