Alþýðublaðið - 07.05.1990, Blaðsíða 6
6
SMÁFRÉTTIR
Þriðjudagur 8. maí 1990
Eiga íslendingar að
kaupa erlend verðbréf?
Fjárfestingarfélagið gengst
fyrir ráðstefnu fimmtudaginn
17. maí nk. um erlend verð-
bréfaviðskipti og þá nýju
möguleika sem slíkar fjárfest-
ingar gætu haft í för með sér
fyrir íslendinga.
Sérfróðir aöilar, innlendir og er-
lendir, munu koma fram og varpa
ljósi á þessa möguleika, sem sjóðs-
stjórnendur, fyrirtæki og einstak-
lingar standa frammi fyrir í dag.
Erlendis hefur þróunin í verð-
bréfaviðskiptum veriö hröð, miklu
hraðari en hérlendis. Hefur þetta
Hæöir hafa yf irleitt þýtt blitt og sólrikt veöur — en ekki lengur. Nú virðist þykk þoka allsráöandi i hæðinni. Þokan
er þéttust úti viö ströndina, en nær skammt inn á landiö, en hefur þó kælandi áhrif. Inn til landsins er reiknað meö
heiðríkju í dag. Veðurstofan reiknaöi meö aö búast mætti viö 16 stiga hita viöa á landinu þar sem þokan er ekki
að angra fólk. Myndin er af þokunni að læöast inn frá Fossvogi, — það rétt grillir i háhýsin i Hamraborg í Kópa-
vogi. A-mynd: E.ÓI.
gerst í takt við stórbætta fjar-
skiptatækni og aukið frjálsræði í
viöskiptum milli þjóða.
,,Eigi íslenskt viðskiptalíf að
dafna verða íslendinga að taka
þátt í því að rjúfa viðskiptahömlur
og auka frelsi í viðskiptum. Með
slíkum breytingum munu fjöl-
breyttari ávöxtunarmöguleikar
standa íslendingum til boða og
tækifæri gefast til að ávaxta fjár-
muni í erlendum verðbréfum jafnt
sem innlendum", segir Gunnar
Óskarsson hjá Fjárfestingarfélagi
íslands.
Með kaupum á erlendum verö-
bréfum á áhætta í ávöxtun fjár-
muna að minnka, sem hlýtur aö
vera keppikefli í sveiflukenndu
þjóðfélagi. Avöxtun fjármagns á
að aukast innanlands, erlend
ávöxtun á að geta gefið mun meiri
arð en innlend, t.d. er meðalávöxt-
un hlutabréfa í Bretlandi um það
bil 10%. Erlend bréf á markaði hér
gætu ennfremur komið á meira
jafnvægi í efnahagslífi okkar.
Meðal fyrirlesara verða Jón Sig-
urðsson, viðskipta- og iðnaðarráð-
herra, Sten Westerberg frá En-
skilda Securities og John Ster frá
Lloyds Investment Int'n.
Hafnfirdingar mœla mengun:
Hverfandi mengun
á Hvaleyrarholti
Undanfarna mánuði hafa
Hafnfirðingar verið með meng-
unarmælingar á Hvaleyrarholt-
inu til að kanna hvaða áhrif ál-
verið í Straumsvík hefur hvað
varðar brennisteinstvíildið í
andrúmloftinu þar. í þeim nið-
urstsöðum sem fyrir liggja er
brennisteinstvíildiðsmengun á
Holtinu langt fyrir neðan ströng-
ustu viðmiðunarmörk.
Niðurstöður mælinga frá því í
nóvember fram í mars sýna mesta
mengun 12.6 míkrógrömm á rúm-
metra á dag en stöngustu viðmiðun-
armörk eru 50 míkrógrömm. Það
vekur athygli að þá tvo daga sem
brennisteinsmengunin nær 12
míkrógrömm er suðvestanátt en ál-
verið er suðaustur af Hvaleyrarholt-
inu.
Reyndar fer mengunin aðeins ör-
fáadaga á þessu tímabili yfir 5
míkrógrömm og af þeim stendur átt
af álverinu í fimm daga. Þá daga
mældist brennisteinsmengunin frá
bilinu 5,4—11,6 míkrógrömm. Sam-
kvæmt þeim niðurstöðum sem að
þegar liggja fyrir er því langur veg-
ur frá því að brennisteinstviildiðs-
mengun á Hvaleyrarholtinu nálgist
stöngustu viðmiðunarmörk.
RAÐAUGLÝSINGAR
^ RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS.
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í lagn-
ingu 11 kV jarðstrengs á milli aðveitustöðvar við
Hóla í Hornafirði og ratsjárstöðvar á Stokksnesi.
Lengd strengs er u.þ.b. 12,7 km.
Verktími: Júní og júlí.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns-
veitna ríkisins við Álaugareyjarveg 11, Höfn og
Laugavegi 118, Reykjavík frá og með mánudegin-
um 7. maí 1990 gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Þrátt fyrir að útboðið sé opið eru einungis tilboð
tekin til greina frá verktökum, sem taka þátt í skoð-
unarferð um væntanlegt vinnusvæði þann 11. maí
nk.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitn-
anna á Höfn fyrir kl. 14.00, mánudaginn 21. maí
1990, og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóð-
enda, sem þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu
„RARIK-90004, Strenglögn Hólar — Stokksnes".
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118,
105 Reykjavík.
Floldksitarfið
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Tillaga uppstillingarnefndar til stjórnarkjörs í Al-
þýðuflokksfélagi Reykjavíkur liggur frammi á skrif-
stofu flokksins, Hverfisgötu 8—10 frá 8—10. maí
1990.
Á þessum tíma geta félagsmenn komið með við-
bótartillögur studdar af 10 fullgildum félagsmönn-
um.
Uppstillingarnefnd.
Garðabæjarkratar og
aðrir velunnarar
Kosningaskrifstofa A-listans í Garðabæ, Goðatúni
2, verður opinn þessa viku á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 13.00—22.00 og laugardag
13.00—16.00, sími 43333.
FUJ Reykjavík
Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 8. maí kl.
20.30 í Félagsmiöstöð jafnaðarmanna, Hverfisgötu
8—10.
Fundarefni:
Sveitarstjórnarkosningarnar, önnur mál.
Sýnum samstöðu og mætum öll.
Stjórnin.
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður
haldinn, þriðjudaginn 15. maí nk. kl. 20.30 á Holiday
Inn.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning stjórnar
3. Önnur mál.
Stjórnin.