Alþýðublaðið - 07.05.1990, Blaðsíða 8
MMÐUBLÍÐIÐ
Þriöjudagur
8. maí 1990
RITSTJÓRN
27 681866 - 83320
FAX 82019
• ••• •••• • • ••••• •••• ••••
• •• •••• ••
•••• •••• • • • •••• ••••
• •• •••• ••
• • •••• ••• • •••• • •
KAIRO — Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra
átti fund með leiðtogum Egiptalands um málefni Miðaust-
urlanda og samskipti íslands og Egiptalands í Kaíró, tíöfuð-
borg landsins í gær. Steingrímur hitti fyrst Hosni Mubarak
forseta Egiptalands að máli og síðar. samstarfsmann hans
Atef Sedki. Sedki sagði fréttamönnum eftir fundinn að
Steingrími hefði verið kynnt afstaða stjórnvalda í Kaíró til
lausnar á deilum Araba og Israelsmanna. Sedik sagði
Steingrím hafa lýst yfir stuðningi íslendinga við stefnu
Egipta í málefnum Miðausturlanda þegar hann ræddi við
Mubarak. Steingrímur fundar með Yasser Arafat, leiðtoga
Palistínumanna í Túnis síðar í vikunni.
MOSKVA- Þing Lettlands kaus sér nýjan forsætisráð-
herra, Ivar Godmanis, aðalverkefni ríkisstjórnar hans
verður að fara fyrir þjóðinni í baráttunni fyrir sjálfstæði
landsins.
BEIRUT — Sautján manns voru myrtir, þar af fimm
manns sem leitað höfðu skjóls í sprengjuskýli í austurhluta
Beirút þegar fylkingar kristinna bárust á banaspjótum í
borginni í gær. Heimildir segja að auk þess hafi og 31 særst
í átökunum.
WASHINGTON — Sameinað Þýskaland á ekki aðeins
að vera hluti Atlantshafsbandalagsins heldur er eðlilegt að
þar verði áfram staðsett kjarnorkuvopn er haft eftir aðal-
ritara Atlantshafsbandalagsins Manfred Woerner. Woern-
er gaf þessa yfirlýsingu skömmu áður en hann gekk á fund
með George Bush til að ræða framtíð NATO. Hann taldi
eðlilegt að kjarnorkuvopn sameinaðs Þýskalands yrðu
undir eftirliti NATO eins og kjarnorkuvopn Vestur-Þýska-
lands eru nú.
WASHINGTON — Fulltrúar fátækra og ríkra þjóða
heims áttu fund í gær þar sem rætt var um aukið framlag
efnaðari þjóða til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Bandaríkja-
menn og bandamenn þeirra hafa haldið fram mjög ósveigj-
anlegri stefnu gagnvart skuldugum löndum sem neitað
hafa að greiða lán sín.
L0ND0N — Flugvél Díönnu prinsessu af Wales þurfi að
nauðlenda á Gatwick flugvelli í gær vegna rafmagnsbilun-
ar í stjórnbúnaði flugvélarinnar stuttu eftir að vélin hóf sig
á loft. Prinsessan var á leið til Italíu þar sem hún hittir eig-
inmann sinn Charels Bretaprins en þaðari munu þau halda
til Búdapest í opinbera heimsókn. Þetta mun vera í fyrsta
sinn sem meðlimir bresku konungsfjölskyldunnar fara í
opinbera heimsókn til Austur-Evrópu.
BONN — Stjórnvöld í Bonn leiða nú hugann að því að
flýta allsherjarkosningum í Þýskalandi eftir að úrslit sveit-
arstjórnarkosninganna í Austur-Þýskalandi og afstaða Sov-
étmanna til sameiningar landsins lá fyrir. Líkur Helmut
Kohls á kanslarasæti í sameinuðu þýskalandi eru taldar
hafa aukist.
VESTUR-BERLIN — Nasistaveiðarar segja Vestur-Þýsk
stjórnvöld hafa varið miklu fé til þess að fanga Josef
Schwammberg, fyrrum yfirmanns fangabúða SS sveíta
Nasista. Þá kemur fram í yfirlýsingu þeirra að Hermann
Abs, mikilvirtum bankamanni hafi verið meinað að stíga
á bandaríska grund.
JERUSALEM — Yitzhak Shamir, forsætisráðherra segir
ísraeli aðeins geta átt vinsamleg samskipti við þau ríki sem
lýsa sig andvíg Frelsissamtökum Palestínu. Shamir sagðist
líta á höfnun ríkja á PLO sem mælikvarða á vináttu við
ísraelsmenn þegar hann ræddi við gestkomandi hollenska
þingmannanefnd í gær.
SEATTLE — Sex fjallgöngumenn frá Bandaríkjunum,
Sovétríkjunum og Kína sem vilja beita sér fyrir friði á jörð
og klífa nú Mount Everest eru komnir í 8,847 metra hæð
að sögn talsmanns hópsins.
ERLENDAR FRÉTTIR
Umsjón: Laufey E. Löve
Lettland:
Sovéskir skríðdrekar
keyra um götur Rigu
(MOSKVA, Reuter) Sovésk-
ir skriðdrekar keyrðu grá-
ir fyrir járnum gegnum
Rigu, höfuðborg Lettlands
í gærmorgun á mesta anna
tíma, rétt áður en lett-
neska þingið átti að koma
saman í fyrsta sinn eftir að
sjálfstæði landsins var iýst
yfir á föstudag.
Sovétmann sögðu herfylk-
inguna þátt í æfingu til undir-
búnings hátíðarhaldanna á
morgun í tilefni af því að þá
eru liðin 45 ár frá því banda-
menn báru sigurorð af Þjóð-
verjum í seinni heimsstyrj-
öldinni. Lettar telja heræfing-
ar sovétmanna hins vegar yf-
irskin og til þess eins ætlaða
að ógna lettneskum stjórn-
völdum.
Anatolijs Gorbunov, forseti
Lettlands kvað yfirlýsingu
þingsins um sjálfstæði Lett-
lands í áföngum gefa svigrúm
til umræðna bæði innanlands
og við yfirvöld í Moskvu í
ræðu sem útvarpað var um
stóran hluta Sovétríkjanna á
sunnudag.
Ekki lá fyrir í gær hver við-
brögð Sovétmanna við sátta-
viðleitni Letta yrðu en Gor-
bunov, forseti Lettlands sagði
engar breytingar á stjórnar-
farslegri stöðu eða á efnahagi
landsins yröu teknar án sam-
ráðs við þegna landsins.
Mikhail Gorbatsjov, forseti
Sovétríkjanna sem hefur for-
dæmt sjálfstæðisyfirlýsingu
Litháa og Eistlendinga, segir
yfirlýsingu Letta brjóta í bága
við stjórnarskrá Sovétríkj-
anna. Gorbatsjov hefur ítrek-
að bent á að Eystrasaltslýð-
veldin þrjú geti nýtt sér rétt
sinn samkvæmt stjórnar-
Lettar eru teknir að óttast
efnahagsþvinganir Sovét-
manna og fregnir fara af þvi að
fólk sé tekið að hamstra ýms-
ar nauösynjavörur.
skránni til að ganga úr sov-
éska ríkjasambandinu með
því að boða til þjóðarat-
kvæðagreiðslu þar sem sam-
þykki tveggja þriðju hluta
íbúa þarf til að úrsögnin öðl-
ist gildi.
Að sögn lettneska útvarps-
ins er talsverðs ótta tekið að
gæta meðal íbúa höfuðborg-
arinnar og er fólk farið að
hamstra vörur til að undirbúa
sig undir efnahagsþvinganir
Sovétmanna.
Lettar eru líkt og nágrann-
ar þeirra Litháar og Eistlend-
ingar háðir Sovétríkjunum
um olíu, gas.
Talsmaður lettneska þings-
ins hvatti íbúa Rigu til að
leiða hátíðahöldin þann 9
maí hjá sér og bætti við að
þannig mætti komast hjá
uppþotum.
Genscher, utanríkisrádherra Vestur-Þýskalands:
Vesturhluli sameinaðs
Þýskalands verður í
A tlantsha/sbandalaginu
(BONN, Reuter) Vestur-
hluti sameinaðs Þýska-
lands verður aðili að N ATO
burt séð frá því hvað kann
að semjast um hernaðar-
lega stöðu landsins í fram-
tíðinni sagði Hans-Diet-
rich Genscher, utanríkis-
ráðherra Vestur-Þýska-
lands í útvarpsviðtali síð-
asta sunnudag.
Genscher sagöi leiðtoga-
fund helgarinnar þar sem
fjórveldin og þýsku ríkin tvö
funduðu um framtíð samein-
aðs Þýskalands, marka tíma-
mót. Þar lýsti Eduard She-
vardnadze því yfir að Sovét-
menn féllust aldrei á að af
sameiningu þýsku ríkjanna
gæti orðið, án þess að
ákvörðun um hernaðarlega
stöðu landsins heföi veriö
tekin. Genscher kvaö þetta
þó ekki breyta afstöðu stjórn-
valda í Bonn um að Vest-
ur-Þýskaland verði áfram
hluti Atlantshafsbandalags-
ins. Sovétmenn hafa til
þessa haldið þeirri kröfu til
streitu að sameinað Þýska-
land verði hlutlaust en báru á
fundinum fram tillögu um að
sameinað þýskaland yrði
hluti beggja hernaðarbanda-
laganna, NATO og Varsjár-
bandalagsins. Tillaga Sovét-
manna var felld af hinum
fimm ríkjunum sem sátu við-
ræðurnar í Bonn.
Genscher tók fram að sam-
einað Þýskaland muni standa
við allar skuldbindingar
Austur-Þýskalands við Sovét-
ríkin og að hagsmunir Sovét-
ríkjanna yrðu virtir hvort
sem um væri að ræða öryggis
eða efnahagslega hagsmuni.
Austur-Þýskaland:
Krístilegir demó-
kratar tapa fyigi
ýmissa grasrótarsamtaka og
sjálfstæðra frambjóðenda.
Mest varö tap flokksins í
syðri héruðum landsins þar
sem íbúar eru mjög íhalds-
samir, en tapið var þó ekki
meira en svo að flokkurinn
fór með sigur af hólmi í þess-
um héruðum.
Kommúnistaflokkur lands-
ins sem nú bauð fram í nýjum
búningi og undir nýju nafni,
Lýðræðislegi sósíalistaflokk-
urinn, fékk aðeins 13,3% at-
kvæða en það er um fimmt-
ungi minna en flokkurinn
fékk í kosningunum 18 mars.
Þess má geta að kommúnista-
flokkur Austur-Þýskalands
fékk 98,85% atkvæða í sveit-
arstjórnarkosningunum sem
haldnar voru í fyrra.
Kosningaþátttaka í sveitar-
stjórnarkosningunum var
tæp 80% á einum heitasta
degi maímánaðar sem um
getur í Austur-Þýskalandi, en
það er nokkru lakara hlutfall
en var í þingkosningunum
þegar 93% atkvæðabærra
þegna kaus.
Þingkosningar í Króatíu:
Stórsigur Þjóðernissinna
(ZAGREB, Júgóslavía,
Reuter) All útlit er fyrir
stórsigur Þjóðernissinna í
júgóslavneska lýðveldinu
Króatíu í síðari hluta þing-
kosninganna sem fram
fóru á sunnudag.
Flokkur Þjóðernissinna
sem er hægriflokkur er fylgj-
andi aðskilnaði lýðveldisins
Króatíu úr júgóslavneska
ríkjasambandinu.
Kommúnistaflokkurinn
sem nú situr að völdum miss-
ir mikið fylgi samkvæmt
kosningaspám, en ekki er bú-
ist við endanlegum úrslitum
fyrr en á morgun.
Allt útlit er fyrir að flokkur
Þjóðernissinna geti myndað
meirihluta stjórn án þátttöku
annarra flokka og þar með
bundið enda á 45 ára stjórn-
artíð kommúnistaflokksins.
Genscher fullyrðir að staðið verði við skuldbindingar Aust-
ur-Þýskalands við Sovétríkin.
(AUSTUR-BERLÍN, Reuter)
Kristilegir demókratar,
flokkur Lothar de Maizi-
ere, forsætisráðherra
Austur-Þýskalands hélt
stöðu sinni sem stærsti
stjórnmálaflokkur lands-
ins í sveitarstjórnarkosn-
ingunum sem fram fóru á
sunnudag. Flokkurinn
tapaði þó fylgi frá því í
þingkosningunum sem
fram fóru 18 mars.
Kristilegir demókratar töp-
uðu fylgi til jafnaöarmanna,