Alþýðublaðið - 12.05.1990, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 12.05.1990, Qupperneq 1
jmUBLMfi 70. TÖLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR BHBBBBBHflBBHBHBBBHBHBBBI^BBflHBI LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1P90 TÆP 2% MANNAFLA ATVINNULAUS: sam- kvaemt upplýsingum vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðu- neytis voru atvinnuleysisdagar á landinu öllu 51.400 í apríl og skiptast nokkuð jafnt milli kynjanna. Jafngildir þetta því að 2400 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysis- skrá í mánuðinum, — 1.9% af mannafla. Verst var ástandið á Noröurlandi og Austurlandi 5.4 og 5.5%, — í Reykjavik 1.5% og á Vestfjörðum aðeins 0.4%. Siöasta dag mánaðar- ins kom fram að fyrsta skólafólkið var að koma á virinu- markaðinn, þá voru á atvinnuleysisskrá 2700 manns. SAS 0G FLUGLEIÐIR í SAMEININGARHUG- LEIÐINGUM: Eins og Alþýðublaöið greindi frá fyrst fjöl- miðla hefur SAS áhuga á að vinna að vissri sameiningu við Flugleiðir, á svipaðan hátt og flugfélög í Evrópu gera nú. Viöræöur eru þegar hafnar milli aöilanna um gagnkvæma eignaraðild. Kann þetta að breyta mjög munstri Flugleiöa í framtíðinni og trúlega verða til þess aö starfsmönnum þess fækki enn, þegar söluskrifstofur félaganna sameinast. Siguröur Helgason, forstjóri Flugleiöa, sagði í sjónvarpi í gærkvöldi aö „engin hætta væri á að Flugleiðir yrðu étnar upp til agna". HEILDSALAR KÆRA GRUNDARKJÖR: Heildsalar munu tapa tugum milljóna króna á viðskiptum viö Grund- arkjör, sem virðist, eftir öllu að dæma, gjaldþrota fyrir- tæki, enn eitt ævintýrafyrirtækið, sem heildsalar hafa ekki varaö sig á. Taliö er að óeðlileg birgðasöfnun hafi átt sér staö, og sala þessara birgða í kjölfariö til annarra aöila, jafnvel á verði langt undir heildsöluveröi. Heildsalar hafa nokkrum sinnum áður lent í svipuöum málum, en ekki uggaö að sér. Alþýðublaðið hefur það eftir góðum heimild- um að Kjötiönaðarstöð KEA eigi mest inni hjá fyrirtækinu og nemi sú upphæð tugum milljóna, — ennfremur Mjólk- ursamsalan nokkrar milljónir, en venjan er sú aö mjólk er staðgreidd af kaupmönnum. DAGUR ÞRENNRA VERÐLAUNA: Dagurinn í gær var sannarlega dagur mikilla verölauna. Sveinn Einarsson var heiðraður fyrir menningarlega starf- semi á Norðurlöndum. Fyr- irtækiö Marel hf. var heiðrað af Utflutningsráði eins og lesa má á bls. 5 í blaöinu í dag — og loks var Hjálmar R. Bárðarson fyrrum skipaskoðunar- stjóri heiöraöur af Ferða- málaráði fyrir bókina Vatnasvæði Hvítár. LEIÐARINNIDAG Málefnastaða jafnaðarmanna er til umræðu í leiðara Alþýðublaðsins í dag. Alþýðublaðið er þeirrar skoðunar að Alþýðuflokkurinn njóti þess um land allt að hafa byggt upp sterka og víðfeðma málefnaskrá og það geti nýst sveitar- félögunum ef jafnaðarmenn nái sterkum áhrif- um að loknum sveitarstjórnarkosningum. Al- þýðublaðið nefnir sem dæmi húsnæðisfrum- varp Jóhönnu Sigurðardóttur sem samþykkt var rétt fyrir þinglok og sem opnar sveitarfélög- um leið að skynsömum lausnum í húsnæðis- málum. SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: ALÞÝÐUFLOKKURINN BÝR í HAGINN Valdiö til hverfanna Viðtal við Bjarna R Magnússon borgarfulltrúa Al- þýðuflokksins á nýjum vettvangi. Verðbólgu- draugur klofinn í herðar niður Sjá fréttaskýringu Jóns Daníelssonar. BYKO / Húsasmidjan losna viö ,,höfudverk“ Landsvirkjun vill kaupa Krókháls 7 Viðræður standa yfir um kaup Landsvirkjunar á húsinu Krókháls 7 í Reykjavík þar sem áður var Byggingavöruverslun Sambandsins til húsa. BYKO og Húsasmiðjan keyptu Krókháls 7 af Sam- JÓHANNES i Bónus ánægður. Bóiws greinilega belur Verðlagsstofnun gerði verðkönnun í marslok í 55 matvörubúðum á höfuð- borgarsvæðinu á 50 al- gengum vörutegundum. Athygli vekur að verslanir Bónus bjóða í nær öllum tilvikum mun lægra vöru- verð en aðrar matvöru- verslanir. Sé verslun með meðalverð látin hafa töl- una 100 sem vísitölu er Bónus með 80.7. Næst Bónusbúðunum kemur Fjarðarkaup með 89.2, Hagkaup í Kringlunni 91.8. Þess skal getið að í verðkönnuninni voru kannaðar 22 vörutegundir hjá Bónus í Faxafeni, en 27 í Skútuvogi. Hjá stórmörk- uðum fannst meira af við- miðunarvörunum, 42—50 atriði. Jóhannes Jónsson kaup- maður í Bónus sagði í gær að niðurstaðan væri vissulega gleðiefni fyrir sig og starfs- fólk Bónus. Hann sagði aö „galdurinn” við lágt vöru- verð verslananna væri að hjá þeim ynnu aðeins 10 manns, innkaupin væru tiltölulega einföld og allri vinnuhagræð- ingu beitt. Jóhannes sagði að velta verslana hans væri nú 80—90 milljónir á mánuði. Veltan á hvern starfsmann væri því 8—9 milljónir á mán- uði. bandinu og líkur benda til að gengið verði frá sölu hússins til Landsvirkjunar á næstunni. Halldór Jónatansson, for- stjóri Landsvirkjunar stað- festi í samtali við Alþýöublaö- iö að samningaviðræður stæðu yfir. Hann sagði að Landsvirkjun heföi hug á að eignast húsið til nota undir línulager og fyrir véla- og tækjamiöstöð sem nú væri til húsa í gufuaflstöðinni við Ell- iðaár. Landsvirkjun leigir þar en hefur verið gert að rýrna húsnæðið. Aö sögn Halldórs hentar húsið að Krókhálsi 7 mjög vel fyrir þessa starfsemi Lands- virkjunar. Hann vildi ekki nefna tölur um mögulegt kaupverð, en sagði að þessi mál skýrðust i næstu viku. Aðilar í viðskiptalífinu tjáöu Alþýöublaðinu að sala hússins kæmi sér vel fyrir nú- verandi eigendur — þessi stóra eign hefði veriö orðin „höfuðverkur" fyrir starí- semi risanna tveggja í bygg- ingavörusölu. Hinsvegar væru nú líkur á aö þeir los- uðu sig við húsiö á góöu verði — og væru lausir við aöal- keppinautinn, Sambandið. I sól og sumaryl Þessi ungi kappi er í sól og sumaryl á suðlægum slóöum i Evrópu. Þangað munu íslendingar fjöl- menna i sumar, treysta ekki allskostar veðurfarinu okkar. Um helgina ættum við þó að upplifa hið besta vorveður, — Veðurstofan spáði i gærkvöldi allt að 12 stiga hita á vestanverðu landinu og hægri átt og björtu veðri. Við vonum það besta. A-mynd E. Ól

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.