Alþýðublaðið - 12.05.1990, Side 3

Alþýðublaðið - 12.05.1990, Side 3
INNLENDAR FRÉTTIR i 3 FRÉTTIR IHNOTSKURN FRJÁLST HUMARVERÐ: Verðlagsráð ákvað í gær að gefa verðlagningu á humri frjálsa á humarvertíðinni sem nú er framundan. VELKOMINN, UNGI GRÍMSEYINGUR: í sj« ár hefur Grímseyingum ekki tekist að eignast stelp- ur — þar hefur heilmikið strákastóð verið að vaxa úr grasi, efnilegustu piltar að sjálfsögðu — 15 drengir á 8 árum. Litla Grímseyjar- daman fæddist á Akureyri «g er dóttir Þorgerðar Einarsdóttur og Óttars Jóhannssonar. — Mynd: Kristján Logason, Dagur. GIRNILEG PRESTAKÖLL í BOÐI: Prestar landsins renna yfirleitt hýru auga til prestakalla í höfuðborginni eða í næsta nágrenni hennar. Nú hefur Biskup íslands auglýst fimm prestaköll laus, — þar af eru tvö í nánd við Reykjavík, — Kársnesprestakall i Kópavogi og Grindavíkurprestakall. Hin eru Setbergsprestakall á Snæfellsnesi, Staðarpresta- kall í Súgandafirði og Arnesprestakall í Húnavatnssýslu. Umsóknarfrestur er til 5. júní. Sr. Arni Pálsson í Kópavogi er að fara til þjónustu í Borgarnesi, tekur við af syni sínum, sr. Þorbirni Hlyni Arnasyni, sem verður nú biskupsrit- ari. Sr. Örn Bárður Jónsson í Grindavík fer til starfa á biskupsstofu. Séra Jón Þorsteinsson á Setbergi tekur við Mosfellsprestakalli. H C ANDcRSEN SNÆLDUR í STAÐ BÓKA: oft er.aiað um að tækni nútímans muni útrýma bókum og blöðum. Ekkert bendir hinsvegar til þess. Börn í dag hlusta hinsvegar stöðugt meira á tónsnældur eða kassettur, með ævintýrum og öðru barnaefni. Hörpuútgáfan er iðin við slíka útgáfu auk þess að gefa út bækur. Nú síðast komu Ævintýri H.C. And- ersen út á snældu, ennfremur ævintýri úr þjóösögum Jóns Árnasonar og Ævintýri Zacharias Topeiius, alls 8 snældur. Nútímabarnið fer inn í rúmiö sitt meö segulbandstæki og Heiödís Norðfjörð segir barninu sögur, pabbi og mamma horfa á sjónvarpiö. ÁLFUR LAND- GRÆÐSLU OG MANNRÆKTAR: Eftir rúma viku kemur þessi litli kall — sjá mynd — fyrir augu landsmanna. Álfur heitir hann, gulur kall meö litskrúðugan fjaðrahatt. Hann er tákn fyrir tvöfalt átak Landgræðslunnar og SÁÁ, sem báðir vilja byggja upp land og lýð. Álfur slær þannig tvær flugur í einu böggi og því munu menn taka því vel að fá sér einn slíkan fyrir 300 krónur. GOLFARAR Á FLEYGIFERÐ: í Vestmannaeyjum eru golfarar farnir að munda kylfur sínar, — búið að bera á völlinn og hann að verða iðjagrænn. Golfmót hafa veriö haldin þar frá'páskum og verða um hverja helgi héðan í frá. Morðvopnið melspira Morðvopnid sem talið er að hafi orðið bensínaf- greiðslumanninum í Stóragerði að bana er fundið. Það fannst í Reykjavíkurhöfn eftir ábendingu Snorra Snorra- sonar sem hefur játað að hafa verið viðstaddur þeg- ar morðið var framið. Um er að ræða melspíra sem er notuð við að splæsa saman vír. Á blaöamannafundi sem rannsóknarlögreglan hélt í gær kom fram að mjög sterk- ar vísbendingar lægju fyrir um hver tildrög morðsins væru. Auk Snorra hefur unn- usta hans og unnusta Guð- mundar Svavarssonar, sem er grunaður um aðild að morð- inu en neitað sakagiftum. báðar staðfest að hafa vitað um ferð þeirra á bensínstöö- ina morðmorguninn. Helgi Daníelsson hjá rann- sóknarlögreglunni vildi ekki tjá sig um hvernig staöiö liefði verið aö morðinu í smá- atriðum. Ljóst væri hins veg- ar aö annar hinna grunuöu heföi opnað peningaskáp á staðnum með lykli og hinir grunuðu haft féð á brott með sér. Báðir mennirnir og önn- ur konan sitja nú í gærslu- varðhaldi en hin konan er undirsérstöku eftirliti fram til 18. maí. Helgi Daníelsson rannsóknarlögreglumaður skýrði blaðamönn- um frá gangi morðmálsins i gær. Salan á SÝN hf, fyrír dómstóla? Hluthafafundur í Sýn hf., sem haldinn verður 18. þessa mánaðar á að af- nema forkaupsrétt hlut- hafanna og tryggja þannig að af sameiningunni við Stöð tvö geti orðið. For- svarsmenn Frjálsrar fjöl- miðlunar sem gefið hafa til kynna að þeir hyggist neyta forkaupsréttar síns, segja á hinn bóginn að of seint sé að breyta sam- þykktum eftir að kaupin eru gerð og útiloka ekki máiaferli verði ákvörðun um afnám forkaupsréttar keyrð í gegn. Á vegum Sýnar voru lög- fræðingar fengnir til að finna leiðir til að koma í veg fyrir að forkaupsréttarákvæðið í samþykktum Sýnar hf. kæmi í veg fyrir sölu fyrirtækisins til Stöðvar 2. Urræði lög- mannanna var að boða til hluthafafundar til að afnema forkaupsréttarákvæðið. Þetta töldu lögmennirnir að væri unnt að gera með tveim þriðju hlutum atkvæða. Hjá Frjálsri fjölmiðlun álíta menn hins vegar aö þessu ákvæði sé ekki unnt aö breyta án samþykkis allra hluthafa. Auk þess sé of seint aö afnema forkaupsréttar- ákvæðið eftir að samningur- inn hefur verið gerður. Allt virðist þó benda til þess að meirihlutamenn í Sýn hf. hyggist keyra þessa breytingu í gegn á hluthafafundinum 18. maí. Hörður Einarsson, annar af framkvæmdstjórum Frjálsrar fjölmiðlunar, sagði í samtali við Alþýðublaðið í gær aö menn væru ekki farnir að hugsa fyrir því í smáatriöum hvað gert yrði undir slíkum kringumstæðum, en örugg- Úflutningsverðlaun For- seta Islands voru veitt í annað skipti í gær og féllu í hlut iðnfyrirtækisins Marels hf. Geir Gunn- laugsson, framkvæmda- stjóri Marels, tók við við- urkenningunni frá Forseta íslands, Vigdisi Finnboga- dóttur, við hátíðlega at- höfn en þau eru veitt í sam- ráði og samvinnu við Út- flutningsráð Islands. Verðlaunin eru veitt í við- urkenningarskyni fyrir mark- vert framlag til eflingar út- flutningsverslunar Islend- inga. Utflutningsnefndin leit- aði í upphafi eftir hugmynd- um um verðlaunahafa í sam- ræmi við úthlutunareglur, safnaði upplýsingum um vöruþróun og markaðsstarf þeirra sem komu helst til greina og valdi síðan Marel úr þeirra hópi. í greinargerð nefndarinnar segir meðal c\:nnars að Marel lega yrðu einhver viðbrögð og útilokaöi ekki málssókn í því sambandi. Hörður sagði heldur ekkert ákveðiö um það hvort reynt yrði að ná samningum um hærra verö við Stöö 2 ef Frjáls íjölmiölun nýti íslenskt hugvit og þekk- ingu og reynslu í fiskvinnslu til að þróa, hanna og fram- leiða hugbúnað og tæki, sem auka hagkvæmni fiskvinnslu og annars matvælaiönaðar og selja þessa vöru um allan heim. Marel sé leiðandi á heimsmarkaöi í framleiðslu á hugbúnaði og tækjum sem auki framleiðni og hag- kvæmni í fiskvinnslu á sjó og landi og megi þar sérstaklega nefna skipavogir. Frá 1983 til 1989 hafi útflutningur Marels meira en 100 faldast að raun- virði. Vægi útflutnings í veltu Marels hafi vaxið ört og verið tæp 80% á árinu 1989. Marel fékk í hendur sér- hannaðan verðlaunagrip sem var gerður af Erni Þor- steinssyni, myndlistarmanni. Auk þess fékk Marel heiðurs- skjal og merki sem fyrirtækið má nota á kynningarefni sitt næstu fimm árin. eignaðist hlutabréfin í Sýn hf., eða hvort haldiö yrði áfram samkvæmt fyrri áætl- unum og Sýn rekin sem sjálf- stæö sjónvarpsstöð í sam- keppni við Stöö 2. Geir Gunnlaugsson, forstjóri Marels hf. Útflutningsverdlaun Forseta Islands 1990: Marel hrepptí hnossið Norðanmenn i sumarskapi Akureyringar eru komnir í sumarskap — veörið nyröra er hlýtt og lofar góöu um framhaldið. Snjór, sem var meö almesta móti i vetur, hverfur nú óöum, og miöbæjarlifiö hefur tekið á sig þetta skemmtilega sérnorölenska svipmót. Þaö fer varla á milli mála þegar þessi mynd frá í fyrradag er skoðuð. — Ljósmynd Kristján Logason, Dagur.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.