Alþýðublaðið - 12.05.1990, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 12.05.1990, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 12. maí 1990 íþróttafélag í sviðsljósi STÓRVELDIÐ KR Stofnað: 16. febrúar 1899. Formaður: Sveinn Jónsson. Höfuðstöðvar: Iþróttavellir og íþróttahús í Frostaskjóli 2, sími 18177. Skíðaskálinn í Skálafelli. íþróttagreinar: Knattspyrna, frjálsar íþróttir, sund, skíði, handknattleikur, körfuknattleikur, lyftingar, glíma, borðtennis, fimleikar og badminton. KR er sannkallað stórveldi i islenskum íþróttum, ekki aðeins iþróttalega, heldur i öllu starfi og skipu- lagi. Fólagið hefur kappkostað að skapa KR-ingum sem besta aðstöðu til iþróttaiðkana og þau glæstu mannvirki, sem fólagið hefur reist i Frostaskjjóli ó undanförnum óratugum, bera vott um þann kraft og dugnað, sem KR-ingar eru þekktir fyrir. Þessi iþróttamannvirki eru i notkun alla daga fró þvi snemma ó morgnana og langt fram ó kvöld. Upphaf KR___________________ KR er fyrsta íþróttafélag lands- ins, sem stofnað er með knatt- spyrnu sem aðalgrein, en það gerðist í mars 1899 og félagið er því 91 árs. Kn það ber aldurinn vel, síungt í leik og starfi. Upphaflega hét félagið fótboltafélag Reykja- víkur, en árið 1915 var nafninu breytt í Knattspyrnufélag Reykja- víkur. Við skulum vitna í einn af frumherjum KR og fyrsta formann félagsins, Þorstein Jónsson, en hann segir m.a. um upphafið: „Byrjunin var sú, að aðeins var hugsað um að eignast 1—2 „fót- bolta" til að spraka í suður á Mel- um, eftir að við höfðum séð ensku sjóliðana af herskipunum aefa sig þar. Melarnir voru þýfðir og óruddir og dytti engum nú í hug að nota slíkan leikvöll. Marksteng- ur voru engar, aðeins steinar með réttu millibili, en hæðarinnar varð maður að geta sér til um, ef ein- hverjum tókst eftir miklar þvæl- ingar og erfiði að spyrna knettin- um milli steinanna." Nu eru iðkadar 11___________ iþróttagreinur hjé KR I áðurnefndri tilvitnun segir, að vellirnir hafi verið þýfðir og óruddir á árdögum knattspyrn- unnar. Þá dettur manni í hug hinn ótrúlegi dugnaður, áhugi og eld- móður frumherjanna, sem seint verður fullþakkaður. Ýmsar hindr- anir og erfiðleikar urðu á vegi for- ystumanna í þróttamanna, en þær voru allar yfirstignar. íslenskt þjóðfélag væri öðruvísi í dag, ef ekki væri gróskumikið og fórnfúst starf íþrótta-ungmennafélaga. Þar er KR í forystusveit. Fyrst var það knattspyrnan hjá KR, en í dag eru alls ellefu íþrótta- greinar iðkaðar hjá félaginu, en þær eru: knattspyrna, frjálsar íþróttir, handknattleikur, skíða- íþróttir, körfuknattleikur, glíma, badminton, sund, fimleikar, lyft- ingar og borðtennis. Sigrur og meistaratitlar KR-ingar hafa unnið marga sigra á íþróttasviðinu, bæði innanlands og þá ekki síður í erlendri grund. Ef það ætti að tíunda það allt sér, þyrfti mörg Alþýðublöð til þess. Hér verður því aðeins getið um það helsta. Sigurkast Gunnars Huseby, KR, á Evrópumeistaramótinu í Ósló 1946. Hann varöi titilinn í Brússel 1950. íslandsmeistaratitillinn í knatt- spyrnu er það sem flestir KR-ingar þrá heitast, en þann titil hefur KR unnið oft eða alls 20 sinnum og m.a. þegar keppt var um hann í fyrsta sinn áricS 1912. KR hefur orðið bikarmeistari sjö sinnum, oftast allra félaga. KR-ingar hafa oft haft frumkvæði í málefnum íþróttamanna og m.a. tóku þeir fyrst allra íslenskra félaga þátt í Evrópukeppni félagsliöa í knatt- spyrnu og fengu Liverpool sem andstæðinga! Félagið hefur náð góðum árangri í handbolta og körfubolta og eru núverandi ís- landsmeistarar. Fjórum sinnunt________________ Evrópumeistaratitil Fræknustu afrekin hafa KR-ing- ar unnið í frjálsum íþróttum, en fé- lagsmenn hafa fjórum sinnum hlotið Evrópumeistaratitill í þeirri íþróttagrein. Gunnar Huseby tvisvar í kúluvarpi 1946 og 1950, Torfi Bryngeirsson í langstökki 1950 og Hreinn Halldórssqn i kúluvarpi innanhúss 1977. — I öll- um greinum hafa KR-ingar ótal sinnum hlotið íslands- og Reykja- víkurmeistaratitla og átt fjölmarga þátttakendur í flokkum, sem keppt hafa á Ólympíuleikum, heimsmeistaramótum og Evópu- meistaramótum. Framtið KR er björf og eftirvæntingafull Barátta KR, eins og annarra samtaka snýst um nútíð og framtíð, þó aö ávallt sé gott og gagnlegt að rifja upp það liðna og byggja framtíðina á verkum fortíðar. — Eins og flestir vita, sem fylgjast með íþróttum er unniö feikigott félagslegt starf innan KR. Yngri flokkum i öllum íþróttagreinum er sinnt af alúð, því aö þeirra er framtíðin. íþróttamannvirki félagsins að Frostaskjóli bjóða upp á fyrsta flokks aðstöðu fyrir flestar íþrótta- greinar. Ekki má gleyma Skíða- skálanum í Skálafelli. Góðir sigrar hljóta því aö falla KR-ingum í skaut í náinni framtíö. Körfuknattleikn- um er vel stjórnað hjá félaginu og nú nýveriö varð KR íslandsmeist- ari á sannfærandi hátt. Örn Eiðsson Alltof margir hverfa úr starfi er iþróttaferli lýkur___________ Við skulum Ijúka þessu spjalli um gamla góða KR með því að vitna í orð formannsins, Sveins Jónssonar í 90 ára afmælisblaði fé- lagsins, en þar segir hann m.a. þetta um nýjasta íþróttahús KR: „Húsið er sérhannað sem þrek- miðstöð. Það veröur í framtíðinni búið tækjum til lyftinga og heilsu- ræktar, auk gufubaðs, nuddpotta, Ijósalampa o.fl. Þá er gert ráð fyrir kaffistofu og félagsaðstööu. Það er von okkar að þrekmiðstöðin komi sér vel til æfinga fyrir allar deildir félagsins. Jafnframt skapar hún hinum fjölmörgu KR-ingum, sem ekki stunda æfingar með keppni í huga, möguleika til líkamsræktar og afþreyingar á félagssvæðinu. Reyndar er mjög æskilegt að við getum boðið fyrrverandi keppnis- fólki áframhaldandi þátttöku í starfsemi félagsins. Alltof margir hafa horfið úr starfi, er íþrottaferli þeirra lýkur. Einnig er vonast til þess, að sem flestir Vesturbæingar notfæri sér aðstöðu félagsins til aukinnar þátttöku í trimmi og íþróttum." Hreinn Halldórsson, KR, Evrópu- meistari í kúluvarpi innanhúss 1977. Torfi Bryngeirsson, KR, i stangar- stökki, en þaö var hans aðalgrein. Hann varð aftur á móti Evrópu- meistari í aukagreininni, langstökki 1950. ÖLL HELSTU mu* tisiu iþróttáfélöij höfuöborgar- inrtar, Glímuféluijid Armunn, Knattspyrnufélutf Reykjavíkur (KR), Iþróttafélajj Reykjavíkur (ÍR) (>H knattspyrnufélöi’in Víhinjjur, Valur oj> Frum eru stofnuö fyrir ojj eftir síöustu aldumót. Tvö þeirra, Armann op Knuttspyrnufélajj Reykjuuíkur voru stofnuö fyrir aldamót. Hin félöjjin fjoyur vuru öll stofnuö nokkrum úrum síöur. A næstu mónuöum mun Al- þýöubfaöiö kynna þessi félöp Oj> starfsemiþeirra í duf> Síöar veröur fjulluö um fleiri félöjf, bæöi liér á hofuöborjjarsiHeöinu oi> úli á landsbygjjöinni. h'vrst á dujjskrú er KR. íslandsmeistarar, bikarmeistarar og haustmeistarar 2. flokks sumarið 1988. Þetta var 6. íslandsmeistaratitill '69-árgangsins í yngri flokkunum, sem er íslandsmet. Nú er hafin alvara meistaraflokksáranna. Verða þeir íslands- meistarar?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.