Alþýðublaðið - 12.05.1990, Side 8
8
J.'.i.i <J. v ,‘,'.i.
Laugardagur 12. maí 1990
*
Islenski hesturinn á sigurskeiöi
GRAÐHESTAR
*G GLEÐIMENN
Nú nötrar viða ísland af hófatökum gæðinga, sem
stefnt er á landsmót hestamanna, sem fram fer i
Skagafirði að Vindheimamelum i Lýtingsstaða-
hreppi dagana 3. til 8. júli nk. Gifurleg vinna liggur
að baki þjólfun þessara gæðinga og sýningarhrossa
sem hreppa það hnoss að komast á þetta landsmót.
Enda er nokkuð til að vinna, þar sem góðviðrisspór
hafa nefnt töluna allt að tuttugu þúsund manns, sem
mæta ú mótið að njóta sýninga, félagsskapar og
fegurðar sveitarinnar. Af þessum f jölda eru yfir þrjú
þúsund útlendingar, sem boðað hafa komu sina. Þar
af eru tvær sneisafullar þotur af Svisslendingum
sem fljúga beint á mótið og lenda á Akureyri.
Áætlað er að fjöldi manna komi
ríðandi á landsmótið að venju,
enda er Skagafjörðurinn Mekka
fleiri hundruð þúsund manna um
víða veröld sem unna íslenska
hestinum, göfgi hans og gæðum.
Hafa heimamenn brugðist skjótt
við að venju og leigt Borgareyjuna
alla af Lýðingsstaðahreppi, en hún
er grösug mjög og um hundrað
hektarar á stærð. Fara mun því vel
um ferðahestana að vanda á
landsmóti fyrir norðan, en hag-
beitargjald er kr. 100,- fyrir hest;, á
sólarhring. Annars er aðgagns-
eyrir að landsmótinu kr. 4.500,- en
lækkar á laugrdagskvöldið í kr.
2.500,- Frítt er fyrir börn og allur
annar kostnaður innifalinn í
Texti og myndir:
Guðlaugur Tryggvi Karlsson
þessu, hvað varðar tjaldstæði og
þess háttar. Þá munu hinir frægu
gleðimenn Skagfirðinga skemmta
fólki á föstudags og laugardags-
kvöld og dans síðan stiginn á palli
að hætti íslendinga allt frá land-
námsöld. Ef að líkum lætur fer
enginn hnugginn frá þeim leik.
Mesta hópreið er um getur hér-
lendis er ætluð sunnudaginn 8. júlí
og munu félagar allra hesta-
mannafélaga landsins taka þátt í
henni. Verða þetta yfir fimm
hundruð knapar í litklæðum á
völdum gæðingum. Gleðitíðindi
eru það mikil að hinir göfugu Ey-
firðingar í hestamannafélögunum
Hring, Funa og Letti sendu inn
umsókn um að gerast fullgildir fé-
lagar í Landssambandi hesta-
mannafélaga L.H. á ný. Þeir
strunsuðu þar út í fússi á sínum
tíma, eins og kunnugt er, þegar
landsmótsstaðurinn var valinn í
Skagafirði. Töldu sig hafa fengið
vilyrði fyrir Melgerðismelunum í
Eyjafirði. í mörg ár hafa góðir
menn gengið á milli með sáttarorð
og féllust menn síðan í faðma á
stjórnarfundi L.H. Allt er gott, sem
endar vel. Félög í L.H. eru nú 48
talsins.
Ekki verður heiglum hennt að
koma gæðingum á þetta mót og
einnig ferðast hrossaræktarráðu-
nautar landið á enda að velja kyn-
bótagripi á mótið. Nýtt hesthús
fyrir fimmtíu graðhesta verður
tekið í notkun á mótinu. Þá hefur
veitingahúsið á Melunum verið
stækkað um helming og er nú orö-
inn einn stærsti samkomustaður í
Skagafirði.
Samhliða Landsmótinu fer fram
„Evrópumót" þar sem íslendingar
og útlendingar munu keppa í
hestaíþróttum eins og gerist á Evr-
ópu- eða heimsmeistaramótum í
reiðmennsku á íslenska hestinum.
Sem kunnugt er hefur nú þessi ein
elsta íþróttagrein mannkynsins
séð náð fyrir augum íþróttafor-
ystunnar íslensku og eru hesta-
menn nú gildir félagar í íþrótta-
sambandi Islands.
Fyrsta meiriháttar hestamót árs-
ins fór fram við Stóðhestastöð rík-
isins að Gunnarsholti á Rangár-
völlum um síðustu helgi og voru
þar sýndir hreint undurfagrir stóð-
hestar á ýmsum aldri. Áhorfendur
létu sig ekki vanta frekar en fyrri
daginn og voru þeir á fjórða þús-
und. Lysti hrossaræktarráðunaut-
ur ríkisins því sem fyrir augu bar
af landskunnri skarpskyggni og ilj-
aði mönnum um hjartaræturnar
með dómum um menn og hesta.
Meðal annars fékk rafvirki sýning-
arinnar þá sendingu, að hann væri
ágætur í faginu, að öðru leyti væri
best að þekkja hann ekkert. Fylgja
hér myndir frá þessari sýningu og
geta menn rétt ímyndað sér hvað
á ferðinni er, þegar fimm vetra
stóðhestur fær einkunnina 8,46
fyrir fjórtán aðskiljanleg atriði í
byggingar- og hæfileikadómi. Aft-
ur á móti fékk eigandi þessa ger-
semis þá tilkynningu frá hrossa-
ræktarráðunautnum að hann
hefði víst ekkert efni á því að eiga'
svona hest. Tveir aðrir 5 vetra fol-
ar „sprengdu" fyrstu verðlauna
skalann og einn fjögurra vetra foli
fékk einkunnina 8,17 og er það aö
dómi hrossaræktarráðunautsins,
eitt mesta stóðhestaefni, sem
komið hefur fram á íslandi.
Sýning stóðhestanna í Gunnars-
holti lofar sérstaklega góðu með
sýningar sumarsins svo ekki sé
minnst á kynbótasýningarnar á
landsmótinu. Heiðurinn af vel
heppnaðri sýningu í Gunnarsholti
eiga þau umsjónarmenn stöðvar-
innar Rúna Einarsdóttir og Eiríkur
Guðmundsson, sem einnig sýndu
hrossin og svo að sjálfsögðu sjálfur
hrossaræktarráðunauturinn sem
sér þarna ævistarfið kórónast í
nánast fullkomnun á skaparans
meistaramynd.
Að lokum nutu svo fleiri hundr-
uð manns veitinga heima í Gunn-
arsholti hjá kvenfélagi sveitarinn-
ar.
Fallegt bros frá Rúnu Einarsdóttur, enda situr hún toppinn í islenskri stóðhestaræktun, Topp
frá Eyjólfsstöðum undan Hrafni frá Holtsmúla og Seru frá Eyjólfsstöðum. Fyrir framan standa
eigandinn Björn I. Stefánsson og Leifur Jóhannesson, framkvæmdastjóri Stofnlánadeildar
landbúnaðarins, sem veitti verðlaunin.
Umsjónarfólk stóðhestastöðvarinnar í Gunnarsholti á Rangárvöllum, þau Eiríkur Guðmunds-
son og Rúna Einarsdóttir á tveimur glæstum stóðhestum. Rúna heldur á blómvendi frá Sveini
Runólfssyni landgræðslustjóra sem stendur hjá þeim, en hann hefur sýnt málefnum stóð-
hestastöðvarinnar sérstakan velvilja.
Rúna Einarsdóttir situr hér hæst dæmda fjögurra vetra folann, Orra frá Þúfu, en hann hlaut
einkunnina 8,17 þótt hann sýndi ekkert skeið. Fyrir framan stendur eigandinn Indriði Ólafsson
og Leifur Jóhannesson sem veitti verðlaunin. Orri er sonur Oturs frá Sauðárkróki Hervarisonar
,og Dömu frá Þúfu Adamsdóttur. 7/
Graðhestar og gleðimenn fóru mikinn á stóðhestasýningunni og hér tekur Eirikur Guðmunds-
son einn fákinn til kostanna á Rangárvöllum. „Þar skyggir ei tréð." segir Einar Benediktsson
en kvæðiö Fákar varð einmitt til, þegar Einar var sýslumaður Rangæinga. Ljósm.: G.T.K.