Alþýðublaðið - 12.05.1990, Blaðsíða 16
MÞBUBUBIB
Laugardagur
12. maí 1990
esægaBaaaaim
RITSTJÓRN
Q* 681866 - 83320
FAX 82019
•••• •••• • • ••••••••• ••••
••• •••• ••
•••• •••• • • • •••• ••••
• •• •••• ••
• • •••• ••• • •••• • •
MOSKVA — Ráðamenn í Lithaui>alancii sögðust í gaer
halda áfram af auknum krafti tilraunum sínum til að rjúfa
ofíubann Sovétmanna. í höfnum landsins er unnið að und-
irbúningi þess aö taka á móti olíuskipum og í fyrsta sinn
er farið að eyða af neyðarbirgðum í landinu. Leonas As-
mantas orkuráöherra sagöi í gær að viöræöur stæðu yfir
viö olíufélög í Saudi Arabíu, Danmörku og Norður Amer-
íku. í dag hittast forsætisráherrar Kystrasaltsríkjanna
þriggja í Tallin, höfuðborg Eistlands, til að samræma bar-
áttuna gegn yfirráðum Sovétmanna.
CARPENTRAS — Frakklandi — Franskur rabbí minntist
helfarar nasista viö athöfn sem fram fór í kirkjugaröi gyö-
inga þar sem skemmdarverk voru framin á leiöum og leg-
steinum.
TUXTLA GUTIERREZ
— Mexíko — Jóhannes Páll
páfi breytti ferðaáætlun
sinni um suöurhluta Mex-
íko eftir flugslysið sem varð
21 manni að bana þar á
meöal biskupi sem ætlaði
að hitta páfa.
AÞENA — Konstantin Mitsotakis, forsætisráðherra (Irikk-
lands, sagði eftir fund meö F.W. de Klerk, forseta Suður-Afr-
iku, að Evrópuríki ættu að endurskoða andstöðu sína gegn
kynþáttaaðskilnaöi og eru þetta ákveönasta vísbendingin
til þessa um að lát kunni að veröa á efnhagsþvingunum.
JERUSALEM — Yitzhak Rabin, fyrrverandi varnar-
málaráöherra ísraels.skoraði í gær á Simon Peres.leiðtoga
Verkamannaflokksins að segja af sér vegna deiina i flokks-
forystunni.
JERUSALEM — Óeirðir brutust út á hernumdu svæðun-
um á Vesturbakkanum eftir að herbíll ók á fimm ára gamla
telpu með þeim afleiðingum að hún lést. Tveir Palistinu-
menn biðu bana í mótmælaaögerðum gegn lsrael.
BUKAREST — Vestrænir stjórnarerindrekar sögðu í gær
að ríkisstjórn Rúmeniu væri reiö út í stjórnina í Washing-
ton vegna þess að hún kallaði heim sendiherra sinn í Búk-
arest níu dögum fyrir fyrstu frjálsu þingkosningarnar í
landinu.
AUSTUR-BERLIN — Mongolia ráðgerir aö halda fyrstu
fjölflokkakosningar landsins seint í júlí, að sögn heimilda
hinnar opinberu fréttastofu Austur-Pýskalands i Ulan Bat-
or.
L0ND0N — Verðbólga í
Bretlandi mælist 9,4%, hin
mesta í átta ár og hefur rik-
isstjórn Thatcher vindinn í
fangiö um þessar mundir.
SRINAGARJNDLANDI — Stríðsmenn múslima í
Kashmir skutu pólitískan andstæöing til bana í gær er
hann var á heimleið frá mosku. Vopnuö frelsisbarátta held-
ur áfram.
MOSKVA — Sovétríkin og Evrópubandalagið luku í gær
tveggja daga viöræðum um viðskipti og fjárfestingar milli
bandalagsríkjanna 12 og Sovét.
BERGEN — Umhverfisverndarsinnar á ráðstefnu fulltrúa
24 ríkja í Noregi um mengun andrúmsloftsins hafa ásakað
Bandaríkjamenn og Breta um að standa gegn hertum að-
gerðum.
ERLENDAR FRÉTTIR
Umsjón: Laufey E. Löve
Bush hugsar út í geiminn:
TIL MARSINNAN
ÞRJÁTlU ÁRA
(TEXAS,Reuter) Georg
Bush Bandaríkjaforseti
boðaði í ræðu I gær að
Bandaríkjamenn kæmu
mönnum til Mars innan 30
ára. Forsetinn hafði lagt til'
í fyrra að menn yrðu send-
ir aftur til tunglsins sem
yrði notað sem áfanga-
staður á leið til Mars.
Forsetinn minnti á að
Geimferðastofnun Bandaríkj-
anna, NASA, hefði verið
komið á fót fyrir 30 árum og
kapphlaupið í geimnum haf-
ist. Hann sagðist trúa því að
eftir önnur 30 ár muni menn
verða á annarri plánetu.
Bandaríkjaforseti sagðist
ekki aðeins vera að kynna
markmið heldur einnig tíma-
áætlun. Eg trúi því að áður en
minnst verður 50 ára afmælis
lendingar Apollo á tunglinu
muni bandaríska fánanum
verða flaggað á Mars,“ sagði
Georg Bush.
Appolo 11 var geimferjan
sem flutti fyrstu bandarísku
geimfaranna til tunglsins i júlí
árið 1969. I ræðu forsetans
kom fram að á næsta ári
verður framlag til Geimferða-
stofnunarinnar aukið um
24% og nemur það þá 15,2
milljörðum dollara. Er hér
um að ræða mestu aukningu
á einstökum liðum ríkisút-
gjalda. Byggingu geimstöðv-
arinnar Frelsi hefur dregist
mjög en áætlaður kostnaður
við hana er 30 milljarðar doll-
ara. Forsetinn sagði að mönn-
uð geimstöð árið 2000 væri
framtíðar fjárfesting Banda-
rikjanna sem hefði í för með
sér nýja tækni, iðnað og ný
störf.
Myntsameining þýsku ríkjanna:
DRÖG AÐ SAMKOMU-
LAGIUM HELGINA
(BONN, Reuter) Þýsku rík-
in tvö hófu í gær loka-
samningafund sinn um
myntsameiningu Þýska-
lands sem framkvæmd
verður 2. júlí nk. Útlit er
fyrir að drög að samkomu-
iagi liggi fyrir á morgun,
sunnudag. Uppkastið að
samkomulaginu gerir ráð
fyrir að vestur-þýsk mörk
og lögmál hins frjálsa
markaðar nái til alls Aust-
ur-Þýskalands.
Drögin að samkomulaginu
eru unnin í minnstu smáatriði
en enn er eftir að semja um
einstakar kröfur Aust-
ur-Þýskalands, m.a. að fast-
eignir í A-Þýskalandi fái
ákveðna lögvernd fyrir kaup-
um vestur-þýskra fasteigna-
braskara. Austur-Þýskaland
fer einnig fram á aukagreiðsl-
ur til handa eldri borgurum
og lágtekjufólki sem óttast er
um að verði undir þegar
verðlag á matvörum og öðr-
um nauðsynjavörum ásamt
leigukostnaði rýkur upp eftir
Dauöaslys i sovéskri umferö:
58 þúsund lét-
ustífyrra
(MOSKVA, Reuter) Rúm-
lega 58 þúsund Sovétmenn
létu lífið í bifreiðaslysum á
fyrra ári. Það er 20 %
hærri tala en árið á undan.
Sovéska blaðið Rabochaya
Tribuna sagði í gær að tveir
þriðju bifreiðaslysannaættu
rætur sínar að rekja til van-
hæfni ökumanna og lítillar
ögunar undir stýri. Um þriðj-
ungur dauðaslysanna má
rekja til öviunar við akstur
sem er 7 % hækkun frá 1988.
mynteiningu þýsku ríkjanna í
byrjun júlí nk. Fjármálaráð-
herrar þýsku ríkjanna
tveggja munu funda um sam-
komulagsdrögin nk. mánu-
dag og leggja fram tillögur
hvernig myntsameining ríkj-
anna verði fjármögnuð og
framkvæmd.
Berlinarbúar fagna hruni Berlinarmúrsins. Þann 2. júlí nk. munu
þeir fagna myntsameiningu þýsku rikjanna.
Vilja kveikja í ferjunni aftur
(OSLÓ, Reuter) Norræna
rannsóknarnefndin sem
rannsakar brunann um
borð í ferjunni Scandinavi-
an Star, vill nú fá að
kveikja í ferjunni aftur tii
að komast að raun um
hvers vegna eldurinn
breiddist svo hratt út.
Nefndin hefur snúið sér til
norsku ríkisstjórnarinnar
með beiðni um að hún ábyrg-
ist þann kostnað sem af þessu
kann að hljótast. Ábyrgð
norskra stjórnvalda er sögð
nauðsynleg vegna þess að
danska tryggingafélagið, sem
tryggði skipið, leggst gegn
því að kveikt verði í því á nýj-
an leik. Tryggingafélagið
metur verðmæti ferjunnar á
um 10 milljónir dollara, eða
um 600 milljónir króna.
Sérfræðingar nefndarinnar
segjast ennfremur vilja fá að
vita hvers vegna svo mikið
varð til af eitruðu gasi í göng-
um skipsins.
Norska lögreglan rannsak-
ar einnig brunann í ferjunni
og þar eru menn þeirrar
skoðunar að kveikt hafi verið
i. Grunsemdir lögreglunnar
beinast þó ekki að neinum
sérstökum aðila.