Alþýðublaðið - 15.05.1990, Side 1
Boðberí
nýrra lima
71. TÖLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR
ÞRIÐJUDAGUR
15. MAÍ 1990
STEINGRÍMUR HER-
MANNSSON — forsæt-
isráðherra gagnrýndi
Bandaríkjamenn og Breta
fyrir að vilja ekki sam-
þykkja bindandi yfirlýsingu
á Umhverfisráðstefnunni í
Bergen. Steingrímur var
harðorður í garð þessara
þjóða og sagði að ekki
þyrfti að bíöa eftir niður-
stöðum rannsókna til að sjá
dauða fiska eða fallinn trjá-
gróður víða um heim.
ARNARFLUG — Það á ekki af Arnarflugsmönnum að
ganga. Flugvélin sem félagið var búið að taka á leigu og
átti að koma til landsins í gær kemur að öllum líkindum
ekki fyrr en á morgun í fyrsta lagi. Steingrímur J. Sigfússon
samgönguráðherra hefur beint þeirri fyrirspurn til félags-
ins hvernig það ætli að haga rekstri sínum þar til vélin
kemst í gagnið. -
AKUREYRI — Samkvæmt skoðanakönnun sem fyrir-
tækið Kjarni gerði á Akureyri mun núverandi meirihluti
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, falla í komandi kosn-
ingum. Hringt var í 300 manns af handahófi og ef aðeins
er tekið tillit til þeirra sem tóku afstöðu mun Sjálfstæðis-
flokkurinn fá fjóra menn kjörna, Framsóknarflokkurinn 3,
Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag, Kvennalisti og Þjóðar-
flokkur einn fulltrúa hver.
MORÐIÐÍSTÓRAGERÐI-Báðir mennirnir sem set-
ið hafa í gæsluvarðhaldi vegna morðmálsins í Stóragerði
hafa játað aðild sína að málinu. Hins vegar ber þeim ekki
saman um hvor hafi banað bensínafgreiðslumanninum.
LÍTIÐ FÉ í RANNSÓKNIR — Rannsóknarsjóður Rann-
sóknarráðs hefur rýrnað um 40% á 5 árum. Þetta þýðir að
sjóöurinn hefur getaö styrkt mun færri verkefni á hverju
árinu sem líður. I ár fékk fyrirtækið Marel hæsta styrkinn,
8 miljónir, til að hanna tölvubúnað sem flakar og flokkar
fiskflök til saltíiskvinnslu.
IGULKER — Hafrannsóknarstofnun og Rannsóknarráð
ríkisins hafa undanfarin ár kannað ígulkersmið hér við
land. Nú hafa komið í ljós gjöful mið í Hvalfirði og víðar
og má búast viö að hægt sé að flytja út töluvert magn af
ígulkerjum til Frakklands, Bandaríkjanna og Japan á
næstu árum. Það eru hrogn ígulkeranna sem eru boröuð
og þykja þau losttæti.
SLEIPNIR — félag langferðabílstjóra, situr nú á fundum
hjá ríkissáttasemjara, en félagið hefur verið án samnings
síðan um áramót. Ef ekki tekst að semja má búast við
vandræðaástandi því nú fer í hönd mesti annatími lang-
ferðabílstjóra.
VOGUR í ERFIÐLEIK-
UM — Á þessu ári leita að
öllum líkindum hátt í 600
manns á aldrinum 16—29
ára hjálpar í sjúkrastöö
SÁÁ á Vogi. Þórarinn Tyrf-
ingsson yfirlæknir segir að
Vogur eigi í verulegum
rekstararerfiöleikum og
um 20 miljónir vanti til að
endar nái saman.
LEIÐARINN í DAG
Ráöhúsiö er nú aö koma úr byggingaskurn
sinni og birtast Reykvíkingum. Alþýöublaöiö
fjallar um ráöhúsiö í leiðara dagsins og telur
jjaö mikla óprýði á heildarmynd miðbæjarins.
Alþýöublaöiö bendir einnig á aö fjárhagsáætl-
unin viö byggingu ráöhússins er komin gjör-
samlega úr böndunum.
Ritskoðun
á Stöð 2
Matthías Á Mathiesen al-
þingismaður virðist vera rit-
skoðari á Stöð 2. Sárasaklaus
mynd um hafnfirsk ungmenni
var tekin af dagskrá umsvifa-
laust.
Ragnar Reykás
ekki falur
Meðal efnis í dálknum FÓLK
má lesa um „borgarstjóraefn-
ið" Ragnar Reykás. Margir
sækjast eftir honum — en
hann er ekki falur fyrir fé, sama
hvað boðið er.
Það á ekki af þeim
að ganga
Heildsalastéttin fellur stöðugt í
sömu gryfjuna — þeir lána æv-
intýramönnum varninginn i
verslanir þeirra — og tapa síð-
an tugum milljóna þegar ævin-
týrunum lýkur. Hver borgar
brúsann? Almenningur
ÁSGEIR SIGURVINSSON á fullri ferö i leiknum gegn Homburg á laugardag, — þetta eru síöustu mínútur glæsilegs ferils. Jafntefli
varð í leiknum 2:2. A-mynd: Hinrik Gunnar Hinriksson.
Síðuslu minútur vel
heppnaðst teríls Ásgeirs
(Frá Kristjáni Kristjáns-
syni, Alþýðublaðið, Stuttg-
art) ÁSGEIR SIGURVINS-
SON hefur tvímælalaust
verið íslendingum góð
landkynning þau 17 ár
sem hann hefur starfað
sem atvinnuknattspyrnu-
maður í Evrópu. Á laugar-
dag lauk hann glæstum
ferli — í toppformi — menn
munu minnast hans sem
slíks.
Stemmningin á leikvangin-
um, þegar Stuttgart lék gegn
Homburg á laugardag var
ógleymanleg. Ásgeir fór af
leikvelli upp úr miðjum
seinni hálfleik eins og fyrir-
fram hafði verið ákveðið. Var
hann hylltur af áhorfendum
sem kölluöu: ,,Við þökkuð
þér, Sigi”.
Á vellinum voru fjölmargir
íslendingar með íslenska
hvatningarboröa og hvöttu
þeir sinn mann ákaft. Að leik
loknum færði mjólkursamlag
héraðsins Ásgeiri forláta,
rauðan mjólkurbrúsa með
skreytingu að gjöf.
í samtali við Alþýðublaðið
sagði Ásgeir Sigurvinsson að
hann væri í alla staði hættur
við að hætta nú. Hann hefur
tilboð frá 5 löndum, en hygð-
ist engu þeirra taka. Ásgeirs
bíða ýmis störf hjá Stuttg-
art-félaginu, fyrst í stað mun
hann annast um samskipti
aðdáendanna og félagsins og
huga að ungum knattspyrnu-
mannsefnum framtíðarinnar.
Grímur Sœmundsen lœknir á aöalfundi Útflutningsráds: .
Skera burt biðlistana og
flytja inn sjúklinga
„Því ekki að setja fjár-
magn í að hreinsa íslenska
biðlista eftir bæklunar-
skurðaðgerðum og greiða
fjárfestinguna niður auk
þess að hagnast vel, með
því að gera samninga við
t.d. bresk heilbrigðisyfir-
völd um að stytta milljón
manna biðlista þar eftir
bæklunarskurðaðgerð-
um. Hvað með að setja upp
sérhæfða aðstöðu til að
sinna fegrunaraðgerðum
fyrir útlendinga?"
Svo spurði Grímur Sæ-
mundsen læknir meðal ann-
ars í erindi sem hann flutti á
aðalfundi Útflutningsráðs á
dögunum. Mitt í allri umræð-
unni um lokun sjúkradeilda
hér vegna fjárskorts og ann-
arra - aðhaldsaðgerða kvað
við annan tón i ræðu Gríms.
Hann ræddi um fjárfestingu í
vellíðan og kom þar með
ýmsar athyglisverðar tillögur
og ábendingar.
Hann sagði að fyrsta einka-
sjúkrahús sinnar gerðar á
Norðurlöndum væri nú risið
við Árósa í Danmörku. Það
muni sinna þjónustu á ýms-
um sviðum skurðlækninga.
Markaðssvæði þess væri
Danmörk, Svíþjóð og Noreg-
ur og sjúkrahúsið fengi
greiðslur fyrir þjónustu sína
frá þeim sem nytu hennar og
frá tryggingafélögum þeirra.
I Þýskalandi væru 950 slík
sjúkrahús og iðgjöld til trygg-
ingafélaga vegna heilsu-
trygginga þar næmu 16 millj-
örðum marka á ári. Ennfrem-
ur sagði Grimur Sæmundsen:
„Það hefur ekki verið
minnst á útflutning íslenskrar
sérþekkingar á heilbrigöis-
þjónustu. Svíar og Danir sjá
um uppbyggingu og rekstur
margra heilbrigðisstofnana í
Austurlöndum nær og
manna þær með löndum sín-
um. Miðað við gylliboð í at-
vinnuauglýsingadálkum
læknablaða virðast menn
hagnast „eitthvað" á því að
selja slíka þjónustu. Islenskir
augnlæknar fljúga til Svíþjóð-
ar og gera þar aðgerðir á
einkasjúkrahúsum. Má ekki
snúa dæminu við? Sjúkling-
arnir komi hingað!"
í þessu sambandi minnti
Grímur á að menn hefðu ekki
setið auöum höndum og
komið á fót áfengismeðferð
fyrir útlendinga og væri það
spennandi tilraun sem fylgst
væri með af athygli.
Grímur Sæmundsen ræddi
einnig um ísland sem alþjóð-
lega heilsulind og var þeirrar
skoðunar að hægt væri að
markaðssetja ísland á þeim
vettvangi og hafa af því um-
talsverðar gjaldeyristekjur
þegar fram liðu stundir.