Alþýðublaðið - 15.05.1990, Page 2

Alþýðublaðið - 15.05.1990, Page 2
2 iNNLENDAR FRETTiR Þriðjudagur 15. maí 1990 Könnun Félagsvísindastofnunar: Aldraðir Gafíarar ánægðir Aldraðir Hafnfirðingar við opnun nýrrar Strandgötu í fyrrasumar — miklar og göðar breytingar hafa orðið á félagsmálaþjónustu fyrir aldraða i bænum og almenn ánægja meö hana. A-mynd: E.ÓI. Fólk RagnarReykás er ekki til sölu — jafnvel þótt mikið fé sé i boði Fyrirtæki hafa boðið gull os> græna skóga fyrir að fá Rai>nur Reykás í sjón- varpsauglýsingar sínar — án árangurs. Einnig hafa stjórnmálaflokkar viljað fá hann til að koma fram á kosningaskemmtunum sínum, m.a. s.jálístæðis- menn í Keykjavík og Al- þýðuflokkurinn í Hafnar- firði, en svarið er alltaf neitandi, þrátt fyrir góð boð. Sii’nrdur Sigurjóns- son, leikari, er greinilega á því að spara þennan skemmtilega persónu- leika til seinni tíma. Ovenjuleg afstaða í því peningaumhverfi sem við nú Iníum við í dag. Arnarflugs- maður vill stöðva halla- rekstur — Hafnarfjarðar Magnús Bjarnason, ann- ar maður á lista Fram- sóknar í Hafnarfirði vill stóðva hallarekstur — Hafnarfjarðarbæjar. Magnús er annars aðstoð- arframkvæmdastjóri Arnarflugs og veit því um heilmargt um hallarekst- ur. Á forsíðu Hafnfirö- ings, blaðs Framsóknar er falleg mynd af Magnúsi — með Arnarflugsflugvél bak við sig. Þetta þótti Göflurum bráðfyndið að vonum, — ekki síst þar sem Hafnarfjarðarbær á ekki við neinn sérstakan fjárhagsvanda að stríða samkvæmt opinberum, pottþéttum upplýsingum. Johnny Cash til landsins Islendingar fá um þessar mundir að kynnast mörg- um af gömlu, góðu popp- urunum, sumir komnir til ára sinna, en fjári sprækir samt. Nú er von á Johnny Cash til Reykjavíkur. Heldur hann tvenna tón- leika í Laugardalshöll 7. og 8. júní. Cash heldur um þessar mundir upp á 35 ára starfsafmæli sitt og er á ferðinni vítt og breiit um hnöttinn í tilefni af því. Hann er sannarlega ekki dauður úr öllum æð- um, karlinn, hlaut Grammy-verðlaunin síð- ast 1987. Hann er auk þess ókrýndur kóngur kántrí-tónlistarinnar. „Um 80% svarenda eru ánægðir með fjárhagslega afkomu sína. Fólk virðist fá margar heimsóknir og fáir eru einmanna,“ segir í skýrslu sem Félagsvís- indastofnun hefur gert á högum aldraðra í Hafnar- firði. Skýrslan er úrdráttur úr stærri skýrslu sem Félagsvís- indastofnun vann fyrir Fé- lagsmálastofnun Hafnar- fjarðar. Um er að ræða ein- hverja viöamestu könnun sem gerð hefur verið hér á landi um hagi aldraöa. I iiiðurstöðum skýrslunnar segir enn fremur: ..'l'æp 90% svarenda búa í eigin hús- næöi. Meöaltekjur þeirra sem stunda launaða vinnu eru rúmar 93.000 krónur fyrir febrúarmánuð 1990 og með- altekjur þeirra sem ekki stunda launaða vinnu eru rúmar 45.000 krónur. Meöal- tekjur allra sem svara eru tæpar 57.000 krónur,' Lkki veit ég hverjum er ætl- aö að vikna undir þessum harmatölum. Ég vissi ekki betur en mennirnir væru í sjálfstæðum atvinnurekstri og hegðuðu sér samkvæmt því. Ef þeir vilja lána fólki varning uppá milljónir og aft- ur milljónir án þess að krefj- ast nokkurrar tryggingar hafa þeir ekki við neinn að sakast nema sjálfa sig ef illa fer. Það þýðir ekkert að koma vælandi í fjölmiðla í von um samúð almennings. Vilji menn taka áhættu þá þeir um það. Gjaldþrot koma ekki -á óvart Það er ekkert nýtt af nál- inni aö verlsanir leggi upp laupana af ýmsum orsökum og höndlarar orðið gjald- þrota af og til allar götur síð- an sögur hófust. Ef litið er til allra síðustu ára hafa verslan- ir í einkaeign farið í unnvörp- um á hausinn og ófáar kaup- félagsbúðir sömuleiðis. Samt hafa heildsalar og framleið- endur haldið áfram að lána í þaö óendanlega hverjum sem er að því er virðist án þess að fara fram á nokkrar tryggingar. Standa svo ras- andi þegar allt er komið í hönk og skilja bara ekkert í þessum ósköpum. Það þurfi að breyta lögum og það þurfi að breyta reglum til aö Þá kom fram í könnuninni að óskir varðandi öldrunar- þjónustu bæjarins beindust að aukinni heimilishjálp. tryggja þá gegn tjóni af þessu tagi. Hvar haía þessir menn eiginlega lært bisness? Hitt er hins vegar eftirtekt- arvert, að heildsalan virðist ekki vera lakari atvinnuveg- ur en svo að eflaust eigum við met í fjölda heildsala á hvern íbúa eins og á svo mörgum öðrum sviðum. Ekki fer held- ur mikið fyrir sögum af gjald- þroti fyrirtækja í heildverslun svo einhver ráð virðast þeir hafa til að klóra í bakkann. Hvaða ráð skyldu það vera? Borgar almenningur brúsann? Ýmsir halda því fram, að gjaldþrot smásöluverslana bitni að lokum fyrst og fremst á neytendum í landinu. Þeir þurfi að greiða tap heildsala sem lána út í loftið og smá- sala sem ekki kunna fótum sínum forráð. Þessu sé með einum eða öðrum hætti velt út í verðlagið og bitni því á þeim sem síst skyldi. Má ef- laust færa margvísleg rök fyr- ir þessari skoöun. Ef þetta er rétt er það hins vegar þjóð- hagsleg nauðsyn að fækka í heildsalastétt. Ekki til að tryggja hag heildsala heldur alls almennings. Raunar má segja að fækkun í stéttinni sé fyrir löngu tímabær burtséð frá umræðum um tap heild- sala vegna gjaldþrota í smá- söluversluninni. Það er auð- feröaþjónustu og hand- og fótsnyrtingu. Þá óskuðu 7% svarenda eftir þjónustuíbúð- um á hagstæðu verði til vitað út í hött að matvöru- kaupmaður skuli þurfa að skipta við um eða yfir 100 heildverslanir til að geta fyllt hillur sínar af daglegum nauðsynjum. Þetta breytir hins vegar ekki því, aö maður fer bein- línis hjá sér að horfa á og hlusta á forráðamenn versl- unar í landinu koma fram op- inberlega og grenja út af tapi heildsala vegna gjaldþrota matvöruverslana þegar í ljós kemur að ausið er birgðum uppá tugi eöa hundruð millj- óna í búðirnar án þess að beðið sé um tryggingar af nokkru tagi aö því er virðist. Spókaupmenn og aðrir kaupmenn Hiö marglofaða frelsi í verslun á að vera öllum til hagsbóta og samkeppni að tryggja lægsta vöruverð. Verslanir halda úti alls konar gylliboðum og stundum erfitt kaups eða leigu. Um 79% svarenda eru mjög eöa frem- ur ánægöir meö fjárhagslega afkomu sína meöan um 13% fyrir neytandann að vita hvert eigi að snúa sér til aö fá sem mest fyrir þær krónur sem hann hefur úr að moða. Enda ekki endilega víst, aö hagkvæmast sé að gera öll sín helgarinnkaup í verslun sem auglýsir sértilboð á kló- settpappír eða eplum. Aörar vörur kunna að vera á hærra verði en hinum megin við hornið. Það er að æra óstöð- ugan að hlaupa á eftir öllum skyndiboðum. Það er í fyllsta máta eðli- legt að ýmsum verslunareig- endum gremjist þegar ein- staka búðir taka sig út úr og verðleggja til dæmis matvör- ur niður fyrir kostnaðarverð. Hinir vita að slíkur verslunar- máti getur ekki gengið upp til lengdar en vercíur þó til að draga að kúnna og beina við- skiptum frá þeim er ekki taka þátt í þessum leik en leitast við að byggja upp trausta verslun. Spákaupmenn geta voru mjög eða fremur óánægðir. Hlutlausir voru því haft umtalsverð viðskipti og veltu þar til að spilaborgin hrynur einn góöan veöurdag. Sem betur fer eigum við marga mjög hæfa menn í verslun og viðskiptum sem geta boðið góða vöru og góða þjónustu á hagstæöu verði. En það mun líka verða framhald á því að í þessum rekstri sem öðrum komi upp aðilar sem ætli sér um of og þurfa að hætta rekstri með tilheyrandi gjaldþrotum. Fyr- ir utan þá sem fara í verslun eða annan atvinnurekstur með þaö eitt fyrir augum frá upphafi að hala inn fljóttek- inn gróða og stinga svo af frá öllu saman. Ekki óska ég neinum ófarn- aðar í heildsölu frekar en öðru. Hins vegar frábið ég mér að þurfa aö horfa uppá grátbólgna menn reyna að vekja samúð almennings vegna þess aö þeir kunna ekki að reka sín fyrirtæki. 8%. BAK ViD FRÉTTiRNAR Harmkvœli heildsala Brúnaþungir menn stiga nú fram i kastljós f jölmiðla hver á fætur öðrum og lýsa þvi yfir að heildverslunin i landinu hafi orðið fyrir enn einu úfallinu með hruni Grundarkjörs. Heildsalar tapi tugum ef ekki hundruð millj- óna króna ú óri vegna varnings sem þeir fúi ekki greiddan sökum gjaldþrota i smósölu- versluninni. Þessir óbúðarfullu segja að það gangi ekki lengur að menn kaupi endalaust vörur frá heildsölum og framleiðendum uppá krit,fari að versla útum allt og fari svo á hausinn einn góðan veðurdag. Eftir sitji heildsalar með sárt ennið. EFTIR: SÆMUND GUÐVINSSON

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.