Alþýðublaðið - 15.05.1990, Page 3
Þriðjudagur 15. maí 1990
INNLENDAR FRETTIR
3
FRÉTTIR
í HNOTSKURN
HVÍLÍKUR VIÐSKILNAÐUR: í Eystrahorni lásum vid
skemmtilega klausu um forkastanlegan viðskilnað: ,,For-
maður byggingaráðs Hafnar sagði í fermingarveislu á skír-
dag að þær aðstæður sem skapast hafa við Ósinn séu nátt-
úruöflunum að kenna, en allir aðrir sem blaðið hefur haft
samband við eru sammála um það að þetta sé allt saman
bæjarstjþrninni að kenna. Hún tók við Ósnum í góðu ásig-
komulagi fyrir fjórum árum síðan og á að skila honum til
okkar eins nú. Ekki er nema mánuður til kosninga svo nú
eru góð ráð dýr."
FRAMBOÐSFUNDUM ÚTVARPAÐ: Fremur rólegt
hefur verið til þessa yfir kosningabaráttunni. Líklega mun
þó hvessa í þessari viku, ekki síst eftir framboðsfundinn frá
Reykjavík í sjónvarpi og útvarpi um helgina. í kvöld er
framboðsfundur á Akureyri í sömu fjölmiðlum, á þriðju-
dagskvöld í Hafnarfirði og í Kópavogi á miðvikudags-
kvöld. Akureyrar-, Hafnarfjarðar- og Kópavogsfundir
veröa á Rás 1, en öðrum umræðuþáttum verður útvarpað
á Rás 2. Kópavogsumræður eru í sjónvarpi á sunnudaginn
og Hafnarfjörður á fimmtudag í næstu viku. Fréttamenn
útvarps og sjónvarps verða væntanlega orðnir saddir á
fundum þegar þeim lýkur 23. maí — fundirnir verða 30
talsins þegar yfir lýkur, almennir fundir, án þátttöku fund-
argesta.
LITLU FISKARNIR
VEGA ÞUNGT: Verð-
mæti rækju- og hörpudisks-
afurða á síöasta ári nam 5,6
milljörðum króna, — millj-
arði meira en í hitteðfyrra,
sem er svipað verömæti
miöað við meöalgengi milli
áranna. Litlu krílin úr sjón-
um vega því þungt í þjóðar-
framleiðslunni, eru 10% af
allri sjávarvöruframleiðsl-
unni. Loðnuafurðir voru til
samanburðar 8% og síld 3.4%. Alls veiddust í fyrra 26.700
tonn aðallega af djúpslóö og hefur samdrátturinn orðiö
mikill frá því 1987 sem var metár með nær 39 þús. tonna
afla. Af hörpudiski veiddust 12.500 tonn í fyrra. Samdrátt-
urinn sem varð á veiði og sölu hörpudisks virðist liðinn, —
mun betra verð fæst nú í Bandaríkjunum og í Frakklandi.
HANDMENNT ALDRAÐRA: Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar rekur félagsstarf aldraðra á níu stöðum
i Reykjavík. A hverju vori er afrakstur handmennta gamla
fólksins sýndur almenningi og veröur svo nú í vor. Sýning-
arnar veröa í Hvassaleiti 56—58, í Gerðubergi, Bólstaða-
hlíð 43 og Vesturgötu 7 dagana 19,—21. maí frá 13.30 til 17
og í Vistheimilinu Seljahlíð 25. og 26. maí kl. 13.30 til 17.
Hluti munanna er til sölu. Á sýningarstöðum verður kaffi
og meðlæti til sölu og þangaö eru allir velkomnir.
KYNFERÐISLEGT 0FBELDI: stigamót, upplysinga-,
fræðslu- og ráðgjafarmiðstöð fyrir konur og börn sem orð-
iö hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi, halda námskeiö dagana
23.-28. ágúst aö Þelamörk, sem er skammt norður af Ak-
ureyri. Fjallað veröur um kynferðislegt ofbeldi, s.s. ein-
kenni, afleiðingar og úrræði. Er námskeiðið miðaö við
þarfir þeirra sem fá þessi mál til umfjöllunar í dreifbýlinu.
Skráning á námskeiðið er hjá Stigamóum, Vesturgötu 3 í
Reykjavík.
ÁBYRGJAST FISKELDISLÁNIN: Stjórnarnefnd
Ábyrgöadeildar fiskeldislána hefur verið skipuð sam-
kvæmt nýrri reglugerö frá fjármálaráðherra og er starf-
semi deildarinnar að hefjast. Deildin er stofnuð sam-
kvæmt lögum sem samþykkt voru á þessu ári á Alþingi. í
stjórnarnefndinni sitja þeir Jóhann Antonsson, við-
skiptafræðingur, Árni M.Mathiesen, dýralæknir, Sigur-
geir Jónsson, deildarstjóri, Eiríkur Briem, hagfæröing-
ur, Gunnlaugur Júlíusson, hagfræöingur.
ALDARGÖMUL
PRENTSMIÐJA: Félags-
prentsmiðjan hf. er eitt ör-
fárra íslenskra fyrirtækja
sem náð hafa þeim áfanga
að verða 100 ára. Afmæl-
inu var fagnaö 1. maí síð-
astliðinn. Prentsmiðjan
hefur farið mörg heljar-
stökkin á tæknisviðinu og
viðhefur í dag nýjustu
prenttækni sem völ er á.
Fyrstu eigendur Félags-
prentsmiðjunnar voru Halldór Þóröarson bókbindari, Þor-
leifur Jónsson ritstjóri Þjóðólfs, Valdimar Ásmundsson rit-
stjóri Fjallkonunnar og Torfi Hallgrímsson prentari. Kon-
ráð Bjarnason er prentsmiðjustjóri í dag, en faöir hans,
Bjarni Konráðsson, læknir, er formaður stjórnarinnar.
Sjálfsagt að sýna
þeim myndirnar
— segir bœjarstjórirm í Hafnarfirdi um kynningarmyndirnar sem sjálfstæöismenn
fengu Stöö 2 til aö hœtta viö aö sýna en vilja fá að sjá sjálfir.
„Það er alveg sjálfsagt
ad bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins fái að sjá
þessar myndir og þar með
hversu hættulausar þær
eru,“ sagði Guðmundur
Árni Stefánsson, bæjar-
stjóri í Hafnarfirði í sam-
tali við Alþýðublaðið í
gær. Tilefnið er bréf sem
bæjarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins sendu í gær til
forseta bæjarstjórnar
vegna kynningarmynd-
anna sem Stöð 2 hætti við
að sýna eftir að tilmæli um
það höfðu borist frá Matt-
híasi Á. Mathiesen alþing-
ismanni. í bréfinu spyrj-
ast bæjarfulltrúarnir m.a.
fyrir um hver hafi gert
samning við Stöð 2 um
sýningu myndarinnar og
hver hafi samið um gerð
hennar. Jafnframt óska
þeir eftir að fá að sjá
myndirnar.
Matthías Á. Mathiesen
þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins og fyrrum ráðherra sem
hafði samband við stöðvar-
stjóra Stöðvar 2 til að koma i
veg fyrir að sýndir yrðu tveir
sjónvarpsþættir, annar um
æskulýðs- og íþróttamál en
hinn um listalíf og menningu
í Hafnarfirði. Þorvarður El-
iasson sjónvarpsstjóri varð
viö þessum tilmælum og
Guömundur Árni Stefánsson
bæjarstjóri.
þættirnir voru teknir af dag-
skrá á síðustu stundu. Matthí-
as segist m.a. hafa gert þetta
til að tryggja að staöið yrði
við samkomulag flokkanna
um aö auglýsa ekki i sjón-
varpi.
Gqðmundur Árni Stefáns-
son, segir þessar myndir ætl-
aðar til almennrar kynningar
og þegar boðist hefði að sýna
Matthias Á. Mathiesen
alþingismaöur.
þær í sjónvarpi hefði því til-
boði verið tekiö. ,,Það var
samhljóða ákvörðun bæjar-
ráös að gera þessar myndir
og það voru reyndar sjálf-
stæöismenn sem bættu
íþróttamálunum inn, þannig
aö það er ekki hægt að segja
aö þeir hafi ekki komiö ná-
lægt þessu," sagði Guðmund-
ur Árni. Bæjarráð samþykkti
á sínum tíma að fela bagjarrit-
ara aö annast framkvæmdina
og að því leyti sagði Guðm-
undur Árni að spurningar
sjálfstæöismannanna svör-
uöu sér sjálfar. Hann kvaö
það á hinn bóginn umhugs-
unarvert aö sjálfstæðismenn
í Hafnarfirði skyldu geta haft
áhrif á það hvaöa sjónvarps-
efni Stöð 2 tæki til sýninga og
hvaö ekki.
Matthías Á. Mathiesen
kvaðst hafa haft samband við
Stöðvarstjóra Stöðvar 2 og
bent honum á þaö samkomu-
lag sem gert hefði veriö milli
stjórnmálaflokka þess efnis
að sjónvarp yrði ekki notað
til kynningarauglýsinga í
kosningabaráttunni. Jafn-
íramt kvaöst Matthías hafa
tjáð sjónvarpsstjóranum aö
hann væri hræddur við að
þættirnir yrðu þannig úr
garði geröir að þeir yrðu
túlkaðir sem brot á sam-
komulaginu. Það hefði svo
veriö ákvöröun stöðvarinnar
hvaö gert yrði aö fengnum
þessum ábendingum. „Þegar
svo myndirnar verða sýndar,
getum viö gert okkur grein
fyrir því hvort um ástæöu-
lausan ótta er aö ræða eða
ekki. Verði myndirnar hins
vegar ekki sýndar, þá segir
það sína sögu.
H-listakonur funda
Kvenframbjóðendur H-listans héldu fund í hadeginu á laugardaginn á veitingahúsinu Gauki á Stöng. Fundurinn var vel sótt-
ur og var hugur í frambjóðendum fyrir kosningar.