Alþýðublaðið - 15.05.1990, Side 4

Alþýðublaðið - 15.05.1990, Side 4
4 VIÐHORF Þriðjudagur 15. maí 1990 MÞYÐUBMÐI9 Ármúli 36 Sími 681866 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Auglýsingastjóri: Dreifingarstjóri: Setning og umbrot: Prentun: Blaö hf. Hákon Hákonarson Ingólfur Margeirsson Jón Birgir Pétursson Hinrik Gunnar Hilmarsson Siguröur Jónsson Leturval, Ármúla 36 Oddi hf. Áskriftarsíminn er 681866 Áskriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands.í lausasölu 75 kr. eintakið RÁÐHUSIÐ KEMUR ÚR SKURNINNNI Ráöhúsiö í Reykjavík er nú aö brjóta af sér byggingaskurnina og birtast höfuöborgarbúum í allri sinni stærö og fáránleik. Þetta sér- staka dekurbarn Davíð Oddssonar borgarstjóra sem hann hefur vaöiö eld og brennistein til byggja, er nú aö veröa aö veruleik eöa réttara sagt aö stööugri mártröö fyrir Reykvíkinga. Byggingin sting- ur í fyrsta lagi í stúf viö rótgróiö umhverfi tjarnarinnar meö timbur- húsum Tjarnargötunnar og látleysi Lækjargötunnar. Ráöhúsiö er einna helst líkt risastórum flugskýlum á súlum og hefur enga sam- svörun í umhverfi. í ööru lagi gera stærðarhlutföll ráöhússins þaö aö verkum aö hin rótgrónu hús miðbæjarins í nágrenni Tjarnarinnar veröa lítil og vesældarleg viö hliö ráöhússins sem æ meira er aö veröa tákn fyrir hiö mikla bákn borgaryfirvalda. Viö fyrstu fjárhagsáætlun í árslok 1987 var heildarkostnaöur ráö- hússins áætluður 750 milljónir króna. í árslok á þessu ári er kostnað- ur vegna ráöhússins orðinn tæplega 1700 milljónir króna. Þó hafa byggingaráformin minnkaö, meðal annars hefur áætlaöur bílakjallari upp á þrjár hæöir orðið aö einni hæö. Áætlaö er nú aö heildarkostn- aöur við ráöhúsiö fullgert veröi um 3000 milljónir króna. Þaö er um fjórföld upphæö frá fyrstu fjárhagsáætlun. Borgarstjóri er meö öör- um orðum á góöri leiö aö fara fjórfalt fram úr fjárhagsáætlun ráö- hússins! Þessi upphæð; þrír milljarðar króna er sú sama og Reykjavíkurborg þarf til þess aö koma umhverfismálum allrar strandlengjunnar meö- fram höfuðborgarsvæðinu í viöunandi ástand. Fyrir þrjá milljarða mætti bæta úr knýjandi dagvistarvanda borgarbarna. Þrír milljarðar myndu breyta öldrunarmálum Reykjavíkurborgar til batnaöar. Harmsagan um ráöhúsiö er dæmisaga um bruðl og óráösíu borgar- stjórnarmeirihluta sjálfstæöismanna undir forystu Davíös Odds- sonar. Fjárfestingar sjálfstæöismanna í Reykjavík í ráöhúsinu nýtast ekki borgarbúum. Það grátbroslega er ennfremur aö ráöhúsiö þrátt fyrir mikla fyrirferð, veröur samt ekki nógu stórt til aö hýsa allt skrif- stofubákn borgarstjóra. Höfuöverkur í Hvíta húsinu: Gliml við hallann Yfirvöld í Bandaríkjunum standa nú frammi fyrir þeim vanda að minnka hallann á ríkis- sjóði án þess að draga úr hag- vexti í landinu. Stjórnarherrarn- ir í Washington treysta nú á að bankayfirvöld muni leggja þeim lið í þessari baráttu með því að lækka vexti i landinu til að auka eftirspurn eftir fjármagni. ,,Við vonum að Seðlabankinn taki tillit til þess sem viö höfum verið að gera til að ná niður hallanum," sagði Marlin Fitzwater. talsmaður Hvíta hússins í síðustu viku eftir að tilkynnt var um fund milli Bush-stjórnarinnar og Þingsins. Á sama tíma og sá fundur mun eiga sér stað munu sérfræöingar Seðlabanka Bandaríkjanna stinga saman nefjum til að ræða vaxta og peningamál. Ekki er búist við mikl- um árangri á þessum tveimur fund- um, en hagfræðingar segja að stjórnin og Seðlabankinn verði aö vinna saman til að ná fjárlagahall- anum niöur. Undanfarin átta ár hef- ur verið uppsveifla í viðskiptalífi Bandaríkjanna en hvorki Reag- an-stjórninni né Bush-stjórninni hef- ur tekist að ráða við fjárlagahallann Bush Bandaríkjaforseti mun ekki brosa ef hann hækkar skatta landa sinna. sem hefur verið vaxandi með hverju árinu. Þessir fyrrnefndu sérfræöingar eru þó sammála um að niðurskurð- ur myndi koma sér illa á þessum tíma því hagvöxtur hefur hægt mjög á sér að undanförnu og niður- skurður í útgjöldum alríkisstjórnar- innar myndi hægja enn meira á honum. Fjármálamenn eru greinilega bjartsýnir að bjartir tímar séu fram- undan því verðbréf á Wall Street hækkuðu mjög í síðustu viku. Fjárlagahalíinn i Bandaríkjunum hefur komið illa við stjórnmála- menn þar í landi og er jafnvel rætt um að Bush Bandaríkjaforseti sé til- búinn að hækka skatta þar í landi til að ná hallanum niður, jafnvel þó að það hafi verið eitt að kosningalof- orðum hans að hækka alls ekki skatta. Það eru þó ekki allir bjartsýnir að stjórnmálamennirnir hafi nægjan- legt þor í sér til að taka þær óvin- sælu ákvaröanir sem óhjákvæmi- lega fylgja þegar dregið er úr ríkis- útgjöldum. Aö sama skapi eru for- ráðamenn Seðlabanka tregir aö lækka vexti þangað til þeir fá staö- festingu á að raunverulega verði dregið úr útgjöldum stjórnarherr- anna í Washington. Klandur í Kina: Skjóta fríðardúfurnar Kínverjar undirbúa nú af kappi Asíuleikana í íþróttum sem fram eiga að fara í Bejing í haust. Hluti af opnunarhátíð- inni átti að vera flug fieiri þús- unda dúfna frá leikvanginum út um alla borg. Þetta átti að sýna hinn frjálsa anda leik- anna. Það hefur hins vegar sett strik í reikinginn að skotveiði- menn hafa setið fyrir dúfunum á æfingsvæði þeirra og segja forráðamenn leikanna að þeg- ar hafi þeir misst fleiri hundr- uð dúfur í hendur þessara óprúttnu veiðimanna. Æfingaflug dúfnanna hefur leg- ið frá borginni Shijiazhuang í um 300 km fjarlægt frá höfuðborginni inn til Bejing en á þeirri leið hafa þá yfir 100 veiðimenn legið í leyn- um og fretað á friðardúfurnar. Síð- an eru þær seldar á mörkuðum þrátt fyrir að hver einast dúfa sér merkt Asíu-leikunum. Yfirvöld standa ráðþrota gagnvart þessari veiðimennsku en þau hafa samt sem ekki áður gefið upp alla von að hægt verði að halda þessu at- riði inni í opnunarhátíðinni. Það er ekki nóg að þrifa borgirnar ef veiðimennirnir skjóta allar friðar- dúfurnar. RADDIR Hvaö er hœgt aö gera til aö sporna viö sívaxandi fíhniefnaneyslu hér á landi? Þorgrímur Pétursson 27 ára nemi „Fræösla fyrir börn og unglinga er þaö sem dugir. Ég hef ekki trú á því aö aukin löggæsla eigi eftir aö draga úr þessari þróun aö neinu marki. Ástæöan er sú aö þaö eru svo miklir peningar í þessum við- skiptum aö þaö mun veröa smygl- aö áfram til landsins á meöan ein- hver markaöur er til aö metta." Ester Gísladóttir 64 ára verslun- armaður „Þaö þarf aö stórauka löggæsl- una. Viö búum á eyju þannig aö þaö er vitað aö öll fíkniefni koma þá annaöhvort landleiöina eöa sjóleiðina. Þaö ætti ekki því ekki aö vera erfitt aö skrúfa fyrir þessar leiöir með auknum mannaafla í toll- og löggæslu." Pétur Þorgeirsson 62 ára verslun- armaður „Þaö þarf bæði aö auka fræösl- una og svo aö þyngja dómana yfir bæöi innflytjendum og seljendum þessara fíkniefna. Þeir menn sem selja börnum eitulyf eru verri en morðingjar og þá menn ætti aö loka inni í langan tíma." Axel Birgisson 20 ára nemi „Það þarf aö herða viðurlög yfir þeim sem selja slík efni. Síöan þarf aö stórauka fræösluna í bæöi grunn- og framhaldsskólum því ef tekst aö breyta hugarfari krakka gagnvart fíkniefnum þá veröur enginn markaður fyrir hendi í framtíöinni. Þórarinn Tyrfingsson 43 ára læknir „Þaö þarf aö auka endurhæf- ingu á þeim hópi sem háöur er fíkniefnum því sá hópur elur af sér nýja fíkniefnaneytendur. Svo þarf auövitaö aö stórauka forvarnar- starf til sem flestra hópa í þjóöfé- laginu. Sérstaklega er mikilvægt er aö ná til foreldra þannig aö þeir geri sér grein fyrir ef börnin eru farin aö neyta lyfja því þá geta for- eldrarnir gripiö í taumana."

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.