Alþýðublaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 6
6 INNLENDAR FRETTIR Laugardagur 12. maí 1990 Islenskir útflytjendur: Líla í austurátt Útflutningsráð mun á næst- unni kanna hvaða möguleika breytingarnar ■ Austur-Evrópu gefa íslenskum útflytjendum. Norræna ráðherranefndin hefur boðið Útflutningsráðum Norður- landa sainstarf um sameiginleg- ar norrænar aðgerðir og mun Útflutningsráð Islands taka þátt í því. Þetta kom fram í ræðu Magnúsar Gunnarssonar, stjórnarformanns Útflutningsráðs á aðalfundi ráðsins. Uni þetta sagði Magnús ennfremur: Islandi hefur verið boðið að vera heiðursþjóð á haustvörusýningunni i Búdapest og er gert ráð fyrir, að þar verði kynntar íslenskar sjávaraf- urðir, jarðhitaþekking og ýmsar iðn- aðarvörur. í tengslum við sýning- una verður almenn kynning á Is- landi og er gert ráð fyrir, að fjölmiðl- ar í Ungverjalandi fjalli um ísland af þessu tilefni. Á sýninguna koma gestir frá flestum Austur-Hvrópu- löndum og verður fróðlegt að sjá liver viðbrögðin verða. Útflutnings- ráð hefur að undanförnu verið að athuga möguleika á útflutningi á vélum og tækjum til Sovétríkjanna og verður jrví verki haldið áfram. I ágúst verður alþjóðleg vörusýning fyrir vélar og tæki fyrir sjávarútveg í Leningrad og verður sameiginlegt sýningarsvæði íslenskra útflytjenda á þeirri sýningu." Kaupmenn í gamla miöbœnum: Funda með frambjóðendum Mikil og sivaxandi óánægja kaupmanna í miðbæ Reykjavík- ur mun væntanlega fá útrás á fundi sem Kaupmannasamtökin efna til í Húsi verslunarinnar annað kvöld. Þar munu fulitrúar þeirra stjórnmálaafla sem bjóða fram í borgarstjórnarkosning- unum, svara spurningum kaup- manna. Gamli miðbærinr. í Reykjavík má muna sinn fífil fegri og verslun þar hefur hrakað mikið á undanförnum árum, frá því að Kringlan tók til starfa. Kaupmenn í miðbænum eru margir hverjir óánægðir með frammistöðu borgaryfirvalda í mál- efnum gamla miðbæjarins. Sem dæmi um þetta má nefna umfjöllun Verslunartíðinda fyrir fáeinum vik- um, þar sem rætt er viö tvo kaup- menn í gamla miðbænum. Þar er t.d. haft eftir Katli Axelssyni kaup- manni aö engu sé líkara en yfirvöld séu jarðsambandslaus í þessu efni og skipulega sé unniö að því að gera fólki umferö um miöbæinn eins erf- iöa og mögulegt sé. Meðal kaupmanna I gamla mið- bænum virðist sú skoöun útbreidd að opnun Austurstrætis fyrir bíla- umferð sé forsenda þess að gamli miðbærinn lifni við að nýju. Auk þess telja menn að fjölga þurfi bíla- stæöum að miklum mun og haröari innheimta stöðumælasekta hafi einnig haft sitt að segja. RAÐAUGLÝSINGAR Starfsmannafélag ríkisstofnana Afgreiöslutími á tímabilinu 14. maí—30. september er skrifstofa SFR opin frá kl. 8.00—16.00. Aðalfundur Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis verður hald- inn í Súlnasal Hótel Sögu laugardaginn 19. maí kl. 10.00. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins, en auk þess gerð tillaga um að leggja niður innlánsdeild félags- ins. Stjórn KRON. Félagsstarf aldraðra í Reykjavík Hinar árlegu sumar og orlofsferðir hafa verið skipulagðar og tímasettar. Nánari upplýsingar eru í Fréttabréfi um málefni aldraðra sem sent er öllum Reykvíkingum 67 ára og eldri. Upplýsingar og pantanir í Félags- og þjónustu- miðstöðinni Bólstaðarhlíð 43 í símum: 689670 og 689671 frá og með mánudeginum 21. maí nk. milli kl. 9.00 og 12.00. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar. Félagsstarf aldraðra í Reykjavík Hinar árlegu yfirlits- og sölusýningar á handa- vinnu unninni í félagsstarfi aldraðra í Reykjavík verða dagana 19., 20. og 21. maí frá kl. 13.30 til 17.00 í Hvassaleiti 56, Gerðubergi, Bólstaðahlíð 43 og Vesturgötu 7. I Seljahlíð v/Hjallasel verður sýningin 25. og 26. maí frá kl. 13.30 til 17.00. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar. Alþýðuflokksfélag Garðabæjar og Bessastaðahrepps Opinn stjórnmálafundur í Kirkjuhvoli, fimmtudag- inn 17. maí kl. 20.30. Stuttar framsöguræður flytja: Helga Kristín Möller bæjarfulltrúi Jóhanna Sig- urðardóttir félagsmálaráðherra Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Karl Steinar Guðna- son alþingismaður. Almennar umræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri: Gizur Gottskálksson og Erna Gunnarsdóttir. ALLIR VELKOMNIR. Stjórnin. Reykvíkingar! Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins, verður með viðtalstíma í Félagsheimili jafnaðarmanna, Hverfisgötu 8—10, miðvikudaginn 16. maí kl. 16.00—19.00. ALLIR VELKOMNIR Alþýðuflokkurinn, sími 15020 og 626701. Aðalfundur Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður haldinn, þriðjudaginn 15. maí nk. kl. 20.30 á Holiday Inn. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Kosning stjórnar 3. Önnur mál Bjarni R Magnússon bæjarfulltrúi flytur ávarp. Stjórnin. Góð orð ^ duga skammt. Gott fordæmi skiptir mestu máli

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.