Alþýðublaðið - 02.06.1990, Blaðsíða 4
4
Laugardagur 2. júní 1990
MMÐIUÐU)
Armúli 36 Sími 681866
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Auglýsingastjóri:
Dreifingarstjóri:
Setning og umbrot:
Prentun:
Blað hf.
Hákon Hákonarson
Ingólfur Margeirsson
Jón Birgir Pétursson
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Sigurður Jónsson
Leturval, Ármúla 36
Oddi hf.
Áskriftarsíminn er 681866
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands.í lausasölu 75 kr. eintakið
HINAR SKÝRU
LÍNUR
Hin nýja Evrópa er í örri gerj-
un. Eitt af aðalviðfangsefnum
leiðtoga stórveldanna á fundi
þeirra í Washington þessa dag-
ana er mótun sameinaðs Þýska-
lands. Þar ber liæst öryggis- og
varnarmál; spurninguna um
hvort hið nýja Þýskaland eigi að
vera aðildarríki í Atlantshafs-
bandalaginu eða ekki. Frá vest-
rænu sjónarmiði er svarið aug-
Ijóst: Vestur-Þýskaland er aðild-
arríki í NATO ogmun ekki hætta
þátttöku sinni við sameininguna
viö Austur-Þýskaland. Vandi
Gorbatsjovs er hins vegar sá, aö
sameinað Þýskaland í NATO
veikir vígstöðu Sovétríkjanna til
muna og gerir slæma stöðu Sov-
étleiðtogans enn veikari heima
fyrir. í ljósi þessa er hinn já-
kvæði tónn Sovétleiðtogans í
garð bandarískra herja í Evrópu
nokkuð mótsagnakenndur.
Gorbatsjov er að missa tökin á
umbótastefnunni. Umbóta-
stefna Gorbatsjovs er forsendan
fyrir hinum miklu umskiptum í
Evrópu. SovétJeiðtoginn var
reiðubúinn að veita þjóðum
Austur-Evrópu frelsi og sjálfs-
ákvörðunarrétt. Gorbatsjov var
hins vegar ekki reiðubúinn að
veita lýðveldum Sovétrikjanna
sömu réttindi. Það hefur skýrast
komiö fram í viðbrögðum
Moskvu við frelsistilraunum
íbúa Eystrasaltsríkjanna. Á
sama tíma hafa verið boðaðar
breytingar í Sovétríkjunum í átt
að markaðskerfi með fyrirsjáan-
legum verðhækkunum á nauð-
sýnjavörum. Þessar breytingar
koma þó ekki í kjölfar betra
vöruúrvals eða betra efnahags-
ástands. Efnahagslífið hefur
aldrei verið dapurlegra og þjóð-
arframleislan aldrei minni.
Verðhækkanirnar og svonefnt
markaðskerfi skellur því á
hrundu efnahagskerfi og mun
aðeins gera illt verra. Allt gerir
þetta stöðu Gorbatsjovs æ veik-
ari.
Jöreytingarnar í Evrópu halda
áfram af fullum krafti. Þýska-
land er í hraðri gerjun; lýðræðis-
uppbygging í austri og samein-
ing Evrópuríkja í vestri undir
fánum Evrópubandalagsins.
Evrópa er á hverjum degi að
taka á sig skýrari mynd samein-
aðrar heimsálfu: brotin sem
mynduðust í lok síðari heims-
styrjaldar eru óðum að falla
saman í heillega mynd á nýjan
leik. Línurnar eru að skýrast.
Hin nýja Evrópasetur hin hefð-
bundnu stórveldi i nýtt ljós.
Bandaríkin og Sovétríkin eru
ekki lengur fangaverðir Evrópu
og Japans. Evrópa er risin upp
og japanska efnahagsundrið
og velferðarkerfum, ekki síst í
Evrópu. Á sama tíma ryður jafn-
aðarstefnan séræ meira til rúms
bæði sem valkostur við stjórnun
hefur náð heimsyfirráðum á
undanförnum þrjátíu árum. Sov-
étríkin hafa hafnað áframhald-
andi yfirráðum yfir Austur-Evr-
ópu. Bandaríkin missa óðum
undirtökin í Evrópu, ekki sist
vegna nýrra qónarmiða um
hlutverk NATO og sterkari efna-
hags Evrópuríkja. Línur stjórn-
málakerfanna eru einnig að
skýrast. Hin tvö andstæðu öfl
hugmyndafræðinnar; kapítal-
ismi og kommúnismi eru bæði
deyjandi kerfi. Kommúnisminn
er þegar komin á hnén og í fjör-
brotum. Óheftur kapítalismi er
einnig á undanhaldi og fær
sterkt aðhald frá blönduðum
hagkerfum, umhverfismálum
éinstakra lýðræðisríkja og sem
alþjóðleg lausná ýmsum vanda-
málum heimsins.
Hvaða lærdóm geta Islending-
ar dregið af þessari öru þróun í
Evrópu og víða um heim allan?
Fyrsti lærdómurinn er þjóðhags-
legur: Að ísland má ekki dragast
aftur úr þróun annarra Evrópu-
ríkja og verður að opna öll sín
iandamæri í víðasta skilningi
RADDIR
A ad leyfa frjálsan útflutning á gámafiski?
Birna Einarsdóttir, 48 ára versl-
unarmaður:
Ég vil að íslendingar gangi fyrir
með vinnu og ef á að halda áfram
þessum mikla útflutningi á óunn-
um fiski eða jafnvel auka hann þá
bitnar það enn frekar á atvinnu í
landi. Þess vegna er ég alls ekki
meðmælt þvi að útflutningur
verði gefinn frjáls og fjöldi fólks
þar með sviptur vinnu í sinni
heimabyggð.
Magnús Tómasson, 87 ára ellilíf-
eyrisþegi:
Þaö verður að vera skipulag á
þessu. Ég er hræddur um að ef á
að gefa þetta allt frjálst þá fylgi því
bara skipulagsleysi sem eigi eftir
að koma okkur illa. Svo eyðileggur
allur þessi útflutningur fyrir fólki
sem hefur unnið við fiskinn hér
heima svo mér líst illa á að gefa
þetta alveg frjálst.
Helgi Gunnarsson, 39 ára skrif-
stofumaður:
Ég held að það verði að vera
ákveðnar reglur um þessi mál og
allir verði að hlýta þeim reglum
hvar sem þeir búa á landinu. Með
ákveðnum reglum á að vera hægt
að koma í veg fyrir að markaðir er-
lendis verði fullmettaðir með
þeim afleiðingum að verðið lækki.
Ef allt er frjálst í þessum útflutn-
ingi má búast við öngþveiti á
mörkuðum í útlöndum og þar
meö verðlækkun.
Benedikt Gústafsson, 29 ára
stresstöskumaður:
Það á að hafa þetta allt saman
frjálst enda búum við í lýöræðis-
ríki þar sem menn eiga að hafa at-
hafnafrelsi. Markaðurinn á að ráða
þessu en ekki neinar þvingunarað-
gerðir. Það er ekki hægt að stjórna
þessu með svoleiðis aðgerðum
og raunar gefst þaö best að láta
markaðinn um þetta án nokkurra
afskipta ríkisins.
þess orðs, Ieggja niður áratuga-
langa einangrunarstefnu og ger-
ast virkir þátttakendur í þróun
Evrópu. í öðru lagi getum við
dregið stjórnmálalegan lærdóm
af þróuninni í Evrópu: Hug-
myndafræði kommúnista jafnt
sem frjálshyggjumanna er hrun-
in í rúst, hugmyndafræði þjóð-
legra einangrunarsinna er liðin
undir lok og tími aukinna al-
þjóðlegra tengsla er runninn
upp. Eina íslenska stjórnmála-
hreyfingin sem fellur að þeim
hugmyndum sem sterkastar eru
í Evrópu í dag, er hreyfing jafn-
aðarmanna. Þessar línur munu
skýrast æ meirá komandi miss-
erum. Þess vegna eiga íslenskir
jafnaðarmenn meiri tækifæri í
dag en þeir hafa nokkru sinni átt
frá 1938. Guðmundur Árni Stef-
ánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði
sem leiddi glæsilegasta sigur Al-
þýðuflokksins í nýafstöðnum
sveitarstjórnarkosningum, segir
í viðtali við Alþýðublaðið í dag,
að fólk vilji skýrar línur. Alþýðu-
blaðið tekur undir þau orð bæj-
arstjórans. Alþýðuflokkurinn
hefur verið trúr hugsjónum sín-
um um frelsi, lýðræði, jöfnuð og
velferð. Flokkurinn stendur í
dag sem sögulegur sigurvegari
og er eini jafnaðarmannaflokk-
urinn á islandi. Það eru hinar
skýru línur.
Friðrik Pálsson, 43 ára forstjóri:
Allir aðilar í sjávarútvegi komu sér
saman um að standa að Aflamiðl-
un sem komið var á fót. Hún hefur
aðeins starfað í tvo mánuði og því
ekki komin full reynsla á þessa
starfsemi. Það kom fyrir slys á
dögunum sem væntanlega mun
ekki endurtaka sig. Meðan verið er
að láta reyna á starf Aflamiðlunar
er sjálfsagt að standa vörð um nú-
verandi fyrirkomulag.