Alþýðublaðið - 13.06.1990, Page 6
6
Miðvikudagur 13. júní 1990
Fyrsti fundur nýrrar bœjarstjórnar í Kópavogi:
Nauðaómerkilegur
málefnasamningur
— segir Guömundur Oddsson fulltrúi minnihlutans
Kristjén Guömundsson, fyrrum bæjarstjóri, ásamt nýja bæjarstjóranum Sgurði Geirdal og Gunnari Birgissyni á fyrsta
fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar.
„Þessi málefnasamningur
nýja meirihlutans er nauða-
ómerkilegur og ófrumlegur,
hvorki fugl né fiskur, enda bygg-
ir hann á stikkorðum og loforð-
um á framkvæmdum sem þegar
hafa verið bókaðar af gamla
meirihlutanum“, sagði Guð-
mundur Oddsson fulltrúi minni-
hlutans í Kópavogi. „Við ætlum
að ástunda málef nalega og grjót-
harða stjórnarandstöðu.
Annars taka þeir við góðu búi og
mér sýnist að engin slæm upptaln-
ing sé í í málefnasamningnum. Þeir
segjast ætla að auka atvinnutæki-
færi aldraðra og auka valkostina í
dagvistarmálum. Kannski hugsa
þeir þetta sem svo að gamla fólkið
fari að passa börnin," sagði Guð-
mundur.
Hann sagði ennfremur að nýi bæj-
arstjórinn, Sigurður Geirdal, gæfi
sig út fyrir að vera sérstakur gæslu-
maður Framsóknarflokksins svo að
hann myndi ekki gleymast. Mér
sýnist einna helst þeir vera að reyna
vernda síðasta Geirdalinn.
Hann sagðist ekki skilja hvernig
þeir ætluðu að fara að því að stór-
auka framkvæmdir og um leið að
lækka útgjöldin. ,,Það fer einfald-
lega ekki saman.
Eg vona bara að þeir klúðri þessu
ekki svo við þurfum ekki að taka við
bæjarfélagi t molum á næsta kjör-
tímabili."
Flug og bíll aö veröa algengur feröamáti landans:
Vikuferð til Bret-
lands kostar innan
við 20 þúsund kr.
Einar Sigurðsson blaðafulltrúi
Flugleiða segir að ódýrasti
ferðamátinn sem hægt er að
bjóða upp á í dag sé flug og bíll í
Bretlandi. Fjögurra manna fjöl-
skylda sem flýgur til Glasgow og
leggur upp í viku ferð um skosku
hálöndin og sveitir Englands
greiðir innan við 20 þúsund
krónur á mann fyrir flugið og
bílinn. Hver aukavika á bílnum
kostar um 3.300 krónur á mann.
Flug og bíll er að verða afskaplega
algengur ferðamáti Islendinga. Ein-
ar segir að þannig hafi fjölgað veru-
lega þeim Islendingurn sem völdu
þennan kost í l.úxemborg, enda eru
bíláleigur þar í landi einhverjar hin-
ar ódýrustu í Evrópu.
Kinar sagði ennfremur að Eng-
land og Skotland væru forvitnileg
og skemmtileg lönd til að ferðast
itm og ódýrir gististaðir ævinlega á
næsta leyti.
RAÐAUGLÝSINGAR
Útgerðarmenn og eigendur
smábáta minni en 10 brl.
Athugið!
í samræmi viðnýsett lög frá Alþingi nr. 38, 15. maí
1990 um stjórn fiskveiða er koma til framkvæmda
um næstu áramót undirbýr Sjávarútvegsráðuneyt-
ið úthlutun veiðiheimilda til smábáta minni en 10
brl. í því sambandi vill ráðuneytið vekja athygli á
eftirfarandi.
1. Skráning báta.
Samkvæmt nýju lögunum þurla nú eigendur
allra báta 10 brl. og minni sem sækja um leyfi til
veiða í atvinnuskyni að vera skráðir á skipaskrá
eða sérstaka skrá Siglingamálastofnunar ríkisins
fyrir báta styttri en6m. Þá þurfa agendur þeirra
báta sem ekki hafa veiðileyfi frá ráðuneytinu
samkvæmt lögumum stjórn fiskveiða nr. 3/1988
eða eru ekki á skrá Siglingamálastofnunar að
óska eftir sktáningu báta sirrta hjá Siglingamála-
stofnun fyrir 18. júní 1990. Beiðni um skráningu
þarf að fylga eignarheimild, smíðalýsing og
teikningar af viðkomandi bát.
2. Nýir bátar í smíðum.
Eigendur nýrra báta sem smíði hefur verið hafin
á (skipsbolur uppbyggður) fyrir gildistöku lag-
anna 18. maí 1990 þurfa að óska eftir skráningu
þeirra hjá Siglingamálastofnun fyrir 18. júní 1990.
Til að koma til greina við veitingu leyfa í atvinnu-
skyni þurfa bátarnir að vera fullbúnir og hafa öðl-
ast fullgild haffærisskírteini fyrir 18. ágúst 1990.
Sérstakir skoðunatmenn Sjávarútvegsráðuneyt-
isins og Siglingamálastofnunar munu meta inn-
an tíðar hvaða bátar teljast ísmíðum samkvæmt
framansögðu Eigendur báta sem eru í smíðum
erlendis þurfe að f ramvísa vottorði frá þar til bær-
um yfirvöldum um að smíði báta þeirra hafi verið
hafin (skipsbolur uppbyggður) fyrir 18. maí 1990.
3. Uppiýsingar og forsaga báta.
Eigendur og útgerðarmenn þeirra báta sem ekki
hafa fengið sérstakt eyðublað Sjávarútvegsráðu-
neytisins til útfyllingar um forsögu báta sinna
þurfa að verða sérúti um slík eyðublöð hjá ráðu-
neytinu eða Landsambandi smábátaeigenda,
fylla þau út og senda Sjávarútvegsráðuneytinu
Skúlagötu 4, 150 Fteykjavík, við fyrsta tækifæri.
Nánari upplýsinga má leita hjá Sjávarútvegsráðu-
neytinu, veiðieftirlitsmönnum þess og Siglinga-
málastofnun.
Sjávarútvegsraðuneytið 13. júní 1990.
Þórsmerkurferð
Alþýðuflokksfélögin í Reykjavík, Reykjanesi,Suður-
landi og Vesturlandi fara í árlega sumarferð 23. og
24. júní nk. Að þessu sinni er áfangastaðurinn
ÞÓRSMÖRK.
Boðið er upp á, annars vegar dagsferð sem kostar
1.000 kr. (500 kr. fyrir börn) og hins vegar tveggja
daga ferð sem kostar 1.500 kr. (750 kr. fyrir börn)
auk þess kostar gisting í skála kr. 600 á mann og
íjaldstæði 300 kr. á mann. Nesti er alfarið í höndum
þátttakenda.
Margt verður sér til gamans gert, s.s. gönguferðir,
leikir, söngur og trall.
Fararstjórar verða auglýstir síðar.
Skráning fer fram á skrifstofu Alþýðuflokksins í
síma 91-29244.
Allir velkomnir.
Alþýðuflokksfélögin.
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi leitar eftir
kennurum í eftirtaldar greinar:
íslensku, dönsku, ferðamálagreinar, félagsfræði,
stærðfræði, fagteikningu tréiðna, sálfræði, stjörnu-
fræði.
Nanari upplýsingar veitir skólameistari (sími
98-22111). Umsóknir berist honum fyrir 25. júní
1990.
Skólameistari.
Laus staða
Sjávarútvegsráðuneytið vill ráða ritara til starfa sem
fyrst.
Starfsreynsla er nauðsynleg og kunnátta á rit-
vinnslukerfið Word Fterfect æskileg
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist ráðuneytinu að Skúlagötu 4, eigi
síðar en 29. júní nk.
Sjávarútvegsnáðuneytið, 12. júní 1990.
UXER“R
BR0SUM /
í umferðinni ^
- og allt geníur beturl —