Alþýðublaðið - 13.06.1990, Page 8
MMBUBIUIIB
Miövikudagur
13. júní 1990
RITSTJÓRN
& 681866 - 83320
FAX 82019
••• •••• • •••••••••• ••••
• • •••• ••
••• •••• • • • •••• ••••
• • •••• ••
• •••• ••• • •••• • •
Forsetar
Eystrasaltslýðveldanna
þriggja fóru til Kremlar til
að reyna að rjúfa þögnina
sem ríkt hefur um kröfur
þeirra um sjálfstæði.
GALVESTONJEXAS: Norska olíuskipið Mega Borg er
enn logandi, en í dcipinu eru 150 rrnlljónir lítra af hráolíu.
Talsmaður strancfeæslunnar sagði að eldurinn væri að
kulna og minni hætta væri á því aðskipið sykki úr þessu.
PRAG: Borgaravettvangur, sigurvegari nýafstaðinna
kosninga, samþykkti að fela núverandi forsætisráðherra,
Marian Calfa, umboð til stjórnarmyndunar. Calfa er fyrr-
verandi kommúnisti.
GAZA: ísraelskur hermaður henti táragassprengju inná
troðfulla biðstofu fæðhgarheimilis Sameinuðu þjóðanna í
hinni herteknu Gaza-borg. Sprengjan saffði 66 palestínsk
börn, flest þeirra ungabörn.
GENF: Sovéskar og bandarískar samnhganefndir hófust
handa við að ná samkomulagi um mikinn niðurskurð á
iangdrægum kjarnorkuflaugum, enþeir eru hvattir áfram
af forsetum sínumað hraða verkinusem mest þeir mega.
GENF: Sameinuðu Þjóðirnar hyggjast taka til við að eyða
varabirgðum af ehavopnum sem ennþá finnast. Takmark-
ið er að losa hehiinn algerlega \ið þessi banvænu en
ódýru vopn.
ROM : ítalir drógu tii baka umsókn sinaþess efnis að Fen-
eyjar fengju að halda heimssýninguna árið 2000. Það var
gert til að koma til móts við beiðnir víðsvegar úr heimin-
um að vernda borginafyrir takmarkalausum ágangi ferða-
manna.
AUSTUR-BERLIN: Stærsti stjórnarflokkur Aust-
ur-Þýskalands lýsti þvíyfir að landiðætti að lýsa yfir sam-
einingu sinni við Vestur-Þýskaland á næstu mánuðum og
að samþýskar komingar ættu að \erða í desember.
S0FIA: Búlgaría varð fyrsta Austur-Evrópuríkið til að
kjósa yfir sig fytrverandi kommúnista í lýðræðislegum
kosningum. Sósíalistaflokkurinn, ehs og gamli kommún-
istaflokkurinn heiir nú, fékk helmingi fleiri þingmenn en
helstu andstæðingar þeirra.
M0SKVA: Fjöldi látinna í þjóðernisrátunum í Kirgisíu
er kominn uppí 139 manns, að sögn Tass fréttastofunnar.
JERUSALEM : ísradskir fjölmiðlar tóku nýrri ríkisstjórn
hægri manna fálega. Yitzak Shamir forsætisráðherra sagð-
ist vona að hún kæmist klakklaust í gegnum vandræðin
sem framundan au.
JERUSALEM: Hin sterka staða Ariels Sharons innan
hinnar nýju ríkisstjórnar hefur valdið áhyggjum um að
hann komi til með að verða ísraelsmönnum til skammar
og einangra þá ain frekar eins og hann gerði er hann
leiddi innrás Isradsmanna í Líbanon árið 1982.
CAPE CANAVERAL, FLÓRÍDA: Gamskutla var fjar-
lægð af skotpalli til viðgerðar í fjórða skipti frá upphafi
geimferða þeirra en þær eru alls 36.
ST0KKHÓLMUR: Hinn
útlægi þjóðarleiðtog Tí-
beta, Dalai Lama, spáði falli
kommúnismans í blóðug-
um átökum innan næstu
tveggja ára í viðtali.
ERLENDAR FRÉTTIR
MAGNÚS ÁRNIMAGNUSSON
Sameining Þýskalandí
Kohl hafnar til-
lögum Gorbatsjovs
(BONN, Reuter) Kanslari
Vestur-Þýskalands,
Helmut Kohl, hafnar alger-
lega hugmynd Gorbatsjovs
Sovétforseta um að sam-
einað Þýskaland verði
tengiaðili á milli NATO og
Varsjárbandalagsins með
aðild að báðum bandalög-
unum.
„Þetta er hugmynd sem við
teljum ekki raunhæfa, við
höfnum henni," sagði Kohl á
blaðamannafundL
,,Mér finnst þessi hugmynd
óraunhæf vegna þess að hún
byggist á misskiiningi um til-
gang og eðli NATO," sagði
Kohl. LÍann sagði að NATO
Nordursjór:
væri ekki eingöngu hernað-
arbandalag, heldur samfélag
lýðræðisþjóða og væri því
ekki sambærilegt við Sovét-
ríkin og Varsjárbandalagið.
Hann bætti því við að
Þýskaland ætti ekki að vera
tekið úr samhengi þjóða og
látið fylgja einhverri sérleið.
Snemma í gærdag sagði
Gorbatsjov að leiðin til sam-
einingar Þýskalands væri sú
að landið yrði einskonar
tengiliður milli bandalaga
með aðild að bæði NATO og
Varsjárbandalagi.
Vestrænir sendifulltrúar í
Moskvu sögðu að ummæli
Gorbatsjovs sýndu ekki að
einhver árangur hefði orðið
af viðræðum Eduards She-
vardnase utanríkisráðherra
Sovétríkjanna og Hans Diet-
richs Genchers utanríkisráð-
herra V.Þýskalands.
Gorbatsjov sagði í ræðu á
sovéska þinginu aðbreyting á
stefnu og kennisetningum
NATO á fundi leiðtoga þess í
næsta mánuði gæti auðveld-
að inngöngu sameinaðs
Þýskalands í bandalagið.
„Segjum að þetta gæti
byggst á tveimur meginstoð-
um, ekki aðeins í vestri held-
ur einnig í austri," sagði Gor-
batsjov.
„Hið nýja ríki gæti tilheyrt
bæði austurblokkinni og
vesturblokkinni á meðan
þær eru ennþá til staðar."
Kohl sagði að hann og Bush
Bandaríkjaforseti hefðu orð-
ið sammála um það að sátt-
máli þess efnis að Sovétríkj-
unum stæði engin ógn af
veru hins nýja ríkis í NATO
gæti verið leiðin til að róa
Sovétmenn.
Hann bætti því við að slík-
ur sáttmáli gæti ekki verið
gerður milli stórveldabanda-
laganna tveggja, heldur
þyrfti hann að undirritast á
vettvangi ráðstefnu 35 þjóða
um öryggi og samvinnu í Evr-
ópu, (RÓSE).
Mikið olíumagn enn ófundið
Norski hluti Noróursjáv-
ar inniheldur helmingi
meira olíumagn en áóur
hefur verid talið. Talið er
að enn sé ófundin olía að
verðmæti 2760 milljarða
íslenskra króna.
Alhliða rannsókn á neðan-
sjávarverðmætum sem hið
rikisrekna norska oliutyrir-
tæki, Statoil, lét framkvæma,
sýnir að um 40% af olíulind-
um Norðursjávar er enn
ófundið.
Þessar nýju rannsóknir tvö-
falda það sem Statoil reiknaði
með fyrir ári síðan. Stjórnar-
nefnd olíuauðlinda lítur þó á
þessar tölur með ákveðnum
efasemdum og segir Statoil
hafa „dottið útbyrðis" í mati
sínu á niðurstöðum rann-
sóknarinnar. „Við erum ekki
á heljarþröm, en við erum
ekki eins bjartsýnir eftir okk-
ar mat á rannsókninni," segir
Kristen Berle, jarðfræðingur
stjórnarnefndarinnar.
Núverandi olíunám Norð-
manna er 1,6 milljón tunna á
dag. Hinar nýju tölur Statoil
þýða að Norðmenn geta dælt
upp olíu tíu árum lengur en
hingað til hefur verið talið.
Þessi rannsókn, sem er
einskonar árleg athugun á
„innistöðu Norðmanna í olíu-
bankanumr veldur miklu
endurmati á vinnanlegum ol-
íubirgðum Noregs. Tölur um
ófundnar gasbirgðir eru álíka
yfirþyrmandi.
Talsmaður Statoil, Arild
Steine, segir að hinn norski
hluti Norðursjávar innihaldi
nærri 6 milljarða tunna af
vinnanlegri olíu, næstum
sama magn sé í jörðu útaf
miðhluta Noregs, og Barents-
hafið geymi 3 milljarða
tunna.
Þetta endurmat gæti þýtt
frekari frestun á flutningi ol-
íuvinnslunnar norður á bóg-
inn, en suðrænu olíulindirnar
eru að verða uppurnar.
HM á Ítalíu:
Rúmenar eftirsóttir
(BARI, Reuter) Vestræn
fótboltafélög eru komin í
biðröð til að ná til sín leik-
mönnum rúmenska knatt-
spyrnulandsliðsins, eftir
frækinn 2—0 sigur þeirra
á Sovétmönnum á laugar-
dag.
„Það er ótrúleg pressa á
leikmennina, við erum að
reyna að koma í veg fyrir
þennan ágang,“ sagði tals-
maður liðsins lonitoaia Ov-
idiu í gær.
Hann sagði um 20 evrópsk
félagslið hafa gert fyrirspurn-
ir um leikmennina, sem eru
nú, eftir byltinguna í desemb-
er, frjálsir ferða sinna.
„Síminn hringir stanslaust,
bréf berast og fólk er að
reyna að fáleikmennina til að
skrifa undir allskonar samn-
inga,“ sagði Ovidiu ennfrem-
ur.
Hann sagði að v-þýska fé-
lagsliðið Cologne og ítalska
liðið Lecce væru á höttunum
eftir varnarmanninum Ghe-
orghe Popescu. ítalska liðið
Fiorentina væri að ræða við
markaskorarann Marius Lac-
atus og a.m.k. þrjú lið hefðu
haft samband við sóknar-
rnanninn unga Fiorin
Raducioiu.
Lacatus sagði að þetta
angraði leikmennina ekki
neitt, þeir hefðu meiri áhuga
á heimsmeistarakeppninni
og landsliðinu, en Lacatus
skoraði bæði mörkin gegn
Sovétmönnum.
Markvörðurinn Silviu Lung
bætti því við að hann vildi
gjarnan leika erlendis en
hann hefði ekki fengið neitt
áþreifanlegt ennþá.
Það var miðvallarleikmað-
urinn Gheorghe Hagi sem
hóf „þjóðflutningana" en
hann skrifaði undir 24 millj-
óna króna samning hjá Real
Madrid í síðasta mánuði.
Sri Lanka:
Samið um vopnahlé
Ríkisstjórn Sri Lanka og
skæruliðasveitir aðskiln-
aðarsinnaðra Tígris-ta-
míla hafa ákveðið vopna-
hlé frá hádegi á miðviku-
dag, segirí yfirlýsingu rík-
isstjórnarinnar frá því í
gær.
Shahul Hameed, ráð-
herra, hitti skæruliðafor-
ingja í gær og var ákveðið
að hætta bardögum.
Tígrarnir höfðuráðist á lög-
regiu og hersveitir í norður-
og austurhluta landsins vopn-
aðir sprengjuvörpum og vél-
byssum. Að minnsta kosti 18
öryggissveitarforingjar féllu.
Yfirlýsingin var send út eft-
ir að Hameed sneri aftur til
Colombo fra borginni Jaffna,
sem Tamílar hafa á valdi sínu,
eftir tveggja daga samninga-
umleitanirtil að fá bardögum
hætt.
Talsmenn hersins segja að
Tamílar hafi ráðist á fjórar
herstöðvar í Batticaloa og
Amaparai-héruðum snemma
í gærdag.
Á mánudag drápu skæru-
liðarnir 18 örvggissveitarfor-
ingja í fyrirsáti og réðust á 10
lögreglustöðvar og námu á
brott 600 lögreglumenn.
Einnig stálu þeir vopnum,
skotfærum og farartækjum.
Ríkisstjómin hefur verið að
reyna að fáskæruliðana til að
leggja niður vopn og taka
þátt í lýðræðislegum stjórn-
málum.
Tígrarnir,sem eru sterkast-
ir af hópum Tamfla, tóku öll
völd á norður Sri Lanka, þar
sem Tamílar eru fjölmennast-
ir, eftir að indverskar her-
sveitir yfirgáfu héraðið í
mars.