Alþýðublaðið - 16.06.1990, Side 1
MMÐUBLMD
Boðberí
nýrra tíma
88. TOLUBLAÐ 71. ARGANGUR
LAUGARDAGUR
16. JÚNÍ 1990
AFVOPNUN A HOFUNUM:
„TÍMINN VINNUR MEÐ OKKUR" ,,Ég lýsti því sjón-
armiði íslensku rikisstjórnarinnar að við teljum að það sé
óhaldbær afstaða að segja að höfin skuli vera undanskilin
þeirri afvopnun sem á sér
stað í öllum vígbúnaði,"
sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra
við Alþýðublaðið í gær.
Undanfarna þrjá daga hef-
ur staðið yfir ráðstefna í
Helsingör í Danmörku um
traustvekjandi aðgerðir og
vígbúnaðareftirlit á höfun-
um í Ijósi annarra afvopn-
unarsamninga sem nú
standa yfir. Til ráðstefnunn-
ar er boðað af afvopnunar-
deildSameinuðu þjóðanna.
Allir utanríkisráðherrar
Norðurlanda ávörpuðu
samkomuna. ,,Ég gerði grein fyrir hinum sérstöku hags-
munum Islands, bæði varðandi þjóðarbúskap íslendinga,
hernaðarlegt mikilvægi Islands frá og með Kalda stríðinu
vegna samtengingarinnar af hættunni frá vígbúnaðar-
kapphlaupinu annars vegar og hugsanlegum umhverfis-
slysum hins vegar sem rústað gæti tilverugrundvöll íslend-
inga,“ sagði utanríkisráðherra. ,,Það er auðheyrt af mál-
flutningi sumra utanríkisráðherra innan Atlantshafs-
bandalagsins að þeir eru farnir að fjalla í alvöru um þessi
mál, t.d. Norðmenn en sérstaklega Kandamenn. Ljóst er að
við vorum á undan tímanum þegar við settum þessar til-
lögur fram 1988. Og það er Ijóst að tíminn vinnur með okk-
ur i þessu máli,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson við Al-
þýðublaðið.
GJALDKERINN STAL FRÁ BANKANUM: Aðai-
gjaldkeri Landsbankans á Seyðisfirði hefur viðurkennt að
hafa dregið sér rúmlega 5,6 milljónir króna úr peninga-
geymslu Seðlabankans á Seyðisfirði. Gjaldkerinn, sem er
handhafi af öðrum tveggja jykla sem ganga geymslunni,
hafði útbúið peningabúnt þar sem aðeins voru seðlar yst
en annars samanstóðu búntin af pappírseðlum. Þannig gat
hann blekkt félaga sinn sem var handhafi hins lykilsins og
hélt að búntin innhéldu raunverulega peninga.
FLEIRI ERLENDIR FERÐAMENN: í maimánuði
komu 15% fleiri ferðamenn til Islands en í sama mánuði í
fyrra. Þeir voru um 11.500 talsins. Þeim ferðalöngum sem
leggja leið sína hingað á vorin hefur fjölgað mjög mikið á
undanförnum árum.
HÁSKÓLINN AKUREYRI: ll nemendur frá Háskólan-
um á Akureyri voru brautskráðir í gær. Þeir eru allir af
rekstarbraut. Þetta er í annað sinn sem nemendur eru
brautskráðir frá skólanum og fyrsta sinn sem rekstrarfræð-
ingar eru brautskráðir.
ORYGGIR TEKKAR: Tékkar tryggðu sér áframhald-
andi þátttöku í úrslitakeppni HM í knattspyrnu er þeir
unnu Austurríkismenn 1—0 í gær. Þjóðverjar unnu sinn
annan stórsigur er þeir lögðu Sameinuðu arabísku fursta-
dæmin að velli 5—1.
LEIÐARINN Í DAG
„Ráðamenn hætta að þora að segja nei, fara að
deila út gjöfum til ýmissa hópa í þjóðfélaginu í
von um stuðning þeirra í kosningum. Slíkt
reynist oft dýrkeypt, allt efnahagslíf fer úr
böndunum og langvinnt starf sem hefur miðað
að efnahagslegum stöðugleika fýkur út um
gluggann í einni svipan," segir í leiðara í dag.
Þar erfjallað um efnahagsjafnvægið í tengslum
við BHMR-deiluna og fleira.
2
Samviskusamur
nákvæmnismaður
ISigurður Markússon, nýkjör-
inn stjórnarformaður Sam-
bands Islenskra Samvinnufé-
laga, er maður sem leynir á sér
segir í nærmynd af honum í
blaðinu í dag. Hann er líka litrík-
ur Ijóðaunnandi.
5
Samstaða um
evrópska
efnahagssvæðið
Öllum efasemdum um að
EFTA-ríkin geti náð samstöðu
hefur verið eitt. EB-ríkin veita
samningsumboð og taka ekki
á móti inngöngubeiðnum ein-
stakra EFTA-ríkja kemur fram í
viðtali við Jón Baldvin.
Af hverju?
IGuðmundur Snorrason er
maður sem lætur ekki bugast.
Eftir að hafa starfað hjá sama
fyrirtækinu í 33 ár var honum
sagt upp. Nú er hann öryggis-
vörður og forstöðumaður List-
húss.
Sjósleðaakstur er nýjasta della landsins og nú er hægt að leigja sér sleða víðs vegar við strendur höfuðborgarsvæðisins. Hún á það
sameiginlegt með öðrum dellum að vera sérstaklega skemmtileg. Aðalfjörið er þó að detta í sjóinn, en það má nú lika gera það
okeypis. A-mynd: E.ÓI.
17. júni hátiðisdagur
Sameinaðs Þýskalands?
h’rá Kristjáni Kristjánssyni, Al-
/nV) ublddi(\ Frciburi>:
Um þessar mundir er
mikil umræða uppi í
þýsku ríkjunum um sam-
einingarmálin. Eitt
þeirra atriða sem mikið
er rætt og ritað um er
sameiginlegur þjóðarfrí-
dagur, einskonar þjóð-
• hátíðardagur. Aðallega
eru tveir dagar taldir
koma til greina sem slík-
ir frídagar sameinaðra
Þjóðverja, — 17. júní og
9. nóvember, þjóðhátíð-
ardagur okkar vegna
uppreisnartilraunarinn-
ar í A-Þýskalandi 1953
og sá síðarnefndi vegna
opnunar iandamæranna
síðasta haust.
Önnur atriði sem inikið
eru rædd, er nafn hins sam-
einaða ríkis. Stungið hefur
verið upp á að kalla það
einfaldlega Þýskaland.
Ennfremur Sambandslýð-
veldið Þýskaland, og Al-
þýðulýðveldið Þýskaland.
Þriðja atriðið er þjóð-
söngurinn. Nokkur lög
koma til greina, en helst þó
Barnagæla eftir Bertold
Brecht og tónskáldið
Hanns Eisler, lag og Ijóð frá
1949.