Alþýðublaðið - 20.06.1990, Side 1
MÞYÐuBLMfi
Boðberi
nýrra lima
90. TOLUBLAÐ 71. ARGANGUR
MIÐVIKUDAGUR
20. JLINÍ 1990
SJÁLFSTÆÐISFLOKKU RIN N í VESTMANNA-
EYJUM KLOFINN: Sigurður Jónsson, í meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins í Vestmannaeyjum, ætlar ekki að starfa
með meirihlutanum þetta kjörtímabil. Hann hlaut ekki
stuðning flokkssystkina sinna í embætti bæjarsjóra eða
sem forseti bæjarstjórnar. Honum var hins vegar boðin for-
mennska í bæjarráði sem hann neitaði. Sigurði fannst
þetta mikil niðurlæging og hefur ákveðið taka afstöðu í
hverju máli fyrir sig.
MEINATÆKNAFÉLAG ÍSLANDS ÚR BSRB:
Meinatæknafélag íslands hefur sagt sig úr BSRB og óskar
nú inngöngu í BHMR. Meinatæknum þykir stefna BHMR
í kjara- og félagsmálum meira að sínu skapi en stefna
BSRB. Meinatæknar segjast ekki hafa notið áunninna rétt-
inda innan BSRB, til dæmis í sambandi við orlofshús.
UPPBOÐ Á HROSSUNUM VARÐ EKKI: Vanfóðr-
uðu og illa hirtu hrossinn í Hafnarfirði verða afhent um-
boðsmanni eigenda þeirra. Uppboð á hrossunum varð því
ekki í gær. Þau fara í vörslu Guðmundar Sigurðssonar sem
hefur umboð til að annast þau. En áður en það verður gert
mun héraðsdýralæknir skoða hrossinn og kanna hvort þau
þoli að vera tekin úr vörslu fógeta.
LEYNILEGT ÚTBOÐ AKURNESINGA: Tilboð að
hafnarframkvæmdum á Akranesi voru opnuð í dag. Sex
fyrirtæki buðu í verkið. Lægsta tilboðið kom frá fyrirtæki
á Akranesi — 33 milljónir króna. Kostnaðaráætlun hljóð-
aði upp á 65 milljónir króna. Oánægja er meðal verktaka-
sambands íslands hvernig staðið var að tilboðinu. Segja
þeir að bæjaryfirvöld á Akranesi hafi reynt að fara leynt
með útboðið. Það hafi eingöngu verið auglýst í bæjarblaði
á Akranesi, þrátt fyrir að fjölmargir verkatakar hafi haft
áhuga á verkinu — einkum vegna þess að lítið sé að gera
hjá verktökum á þessu sviði um þessar mundir.
HREPPSTJÓRI GRÍMSNESHREPPS VILL
KOSNINGAR : Hreppsnefnd Grímsneshrepps frá siðasta
kjörtímabili kemur saman í dag til að bregðast við úrskurði
frá því í fyrrdag um ógildingu kosninganna í vor. Böðvar
Pálsson, hreppstjóri og oddviti, sem einnig var kjörstjóri
samtímis því sem hann leiddi einn listann sem í boði var,
vill efna til kosninga svo fljótt sem auðið er og að ný kjör-
stjórn verði mynduð af fólki sem ekki sé í framboði. Úr-
skurðurinn um ógildingu byggir á því að utankjörfundarat-
kvæðagreiðsla hafi farið fram á heimili formanns kjör-
stjórnar sem jafnframt var í framboði og að vottun hefði
verið ábótavant.
SEX MILLJÓNIR í KVIKMYNDIR: Ríkisstjórnin
samþykkti í vor að veita aukalega 6 milljónir króna til kvik-
myndamála. Að ósk menntamálaráðuneytis auglýsti Kvik-
myndasjóður síðan eftir umsóknum um undirbúnings- og
tapstyrki að upphæð 5 milljónir. Kvikmyndasjóður gerir
ráð fyrir því að fá þá einu milljón sem á vantar til úthlutun-
ar nú í haust. Undirbúningsstyrki fá Kristín Jóhannesdóttir
fyrir Svo á jörðu, eina milljón, Oskar Jónasson 400 þús fyr-
ir Vont efni. Hæstu tapstyrki fá Hrif og Umbi, milljón hvort
fyrirtæki, — en fjórir einstaklingar sem stóðu að Atóm-
stöðinni fá 375 þús. hver.
LÁNSKJARAVÍSITALAN HÆKKAR: Lánskjaravisi-
tala er ögn hærri nú en undaníarna tvo mánuði, sam-
kvæmt útreikningi Seðlabankans. Seðlabankinn hefur
sent frá sér útreiknaða lánskjaravísitölu fyrir júlí 1990 og
þar kemur fram að hækkun á lánskjaravísitölu frá mánuð-
inum á undan er 0,62%. Það þýðir að samkvæmt því er árs-
hraði verðbólgunnar 7,7% en ef miðað er við þróun síð-
ustu þriggja mánaða er verðbólgan 6,6%.
LEIÐARINN í DAG
Atlaga svonefndra Svavarsmanna að formanni
Alþýðubandalagsins er til umfjöllunar í Al-
þýðublaðinu í dag. Blaðið er þeirrar skoðunar,
að lokasóknin sé hafin gegn Ólafi Ragnari
Grímssyni og hugsanlegt fall hans sem for-
manns gæti skerpt línur Alþýðubandalagsins
sem harðlínuflokks til vinstri.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: ATLAGAN AÐ ÓLAFI
RÁGNARI.
5
Glódísin með
gullbarkann
Ríkarður Örn Pálsson skrifar
um Fiömmu er lætur vel að
túlka sorglegar ástríður með
silkimjúkri sópranröddu.
6
Norðurlandamet í
geðlyfjaáti
íslendingar eiga ásamt Dön-
um Norðurlandamet í geðlyfja-
áti. íslenskir læknar ávísa 40%
geðlyfja í gegnum síma. ís-
lendingar eiga einnig fá sjúkra-
pláss fyrir geðsjúka. Ófögur út-
tekt á aðbúnaði geðsjúkra hér
á landi.
7
Krókódíllinn í
kornflex-
pakkanum
Dagfinnur tekur fyrir aðal-
frétt gærdagsins um krókódíl-
inn í Norðfjarðará. Það er gam-
alt trikk að flytja inn gúmmídýr
í kornflexpökkum.
— segir Jón Baldvin utanríkisráöherra
um fréttaflutning Reuter og Ritzau um ESS
„Það sem tíðindum sæt-
ir er að það er kominn
botn í málið, það er komið
umboð frá ráðherraráði
EB til þess að hefja þessa
formlegu samninga og
þeir samningar byrja á
morgun. Fréttaflutningur
sem borist hefur, svo sem
eins og frá Reuter og
Ritzau, um þetta mál er yf-
irleitt bull frá upphafi til
enda eins og venjulega,“
sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson, utanríkisráð-
herra, um fréttaflutning af
samningaviðræðum milli
Afnám viöskiptahindrana
hagstætt fyrir neytendur í
okkar landi, segir Jón Baldvin
utanríkisráðherra.
EB og EFTA um ESS sem
eru að hefjast.
Jón Baldvin sagði enn
fremur: „Það er hægt að telja
upp 19 orðalagsbreytingar á
þessu umboði frá fyrstu gerð.
Að því er varðar sjávarútveg,
þá er breytingin sú í 6. grein
að staðinn fyrir orðalag í eldri
texta sem var: „Mikilvægt er
að EB sækist eftir aðgangi að
fiskveiðiauðlindum
EFTA-ríkjanna“, stendur
núna: „EB mun sækjast eft-
ir . . .“ Með öðrum orðum,
ekkert hefur breyst.
Að því er varðar 8. gr. þar
sem að fjallað er um óskir EB
um að samið verði um,
hvernig unnt verði innan evr-
ópska efnahagssvæðisins,
ESS, að minnka félagslegt og
efnahagslegt misræmi, þá
kemur viðbót á þá leið, að
þetta þurfi einnig að ná til
stefnunnar í landbúnaði og
sjávarútvegi. Þetta þýðir al-
menna tilvísun, að því er
varðar sjávarútveg, til efna-
hags- og félagsstöðu jaðar-
svæða."
Um deilumálið um styrk-
ingu EFTA og aðild einstakra
aðildarríkja EB og F.FTA að
þessum samningum hafði
Jón Baldvin eftirfarandi að
segja. „Þar er frekar ýtt undir
svokallaða tveggja stoða
lausn með því að tala um að
EFTA komi sér upp stofnun-
um sem hafi vald til þess að
framfylgja samkeppnisskil-
yrðum. Áður var talað um
sameiginlegar stofnanir.
Að því er varðar samning-
anna sjálfa þá er í sérstakri
bókun kveðið á um það að
EB hafi fyrir sitt leyti ekki
gengið frá því hvort for-
mennskuland eða fram-
kvæmdastjórn muni hafa orð
fyrir EB í samningunum. Ef
þetta þýðir það að einstök að-
ildarríki EB vilji draga úr
valdi framkvæmdastjórnar-
innar og tryggja aðild ríkis-
stjórna, í gegnum for-
mennskuland sitt sem verður
Ítalía, yrði það EFTA-ríkjun-
um út af fyrir sig ekki óhag-
stætt."
Þá sagði utanríkisráðherra
að það væri eitt atriði enn
sem væri rétt að staldra við:
„í 5. gr. er hert á mikilvægi
landbúnaðar fyrir samning-
anna einkum mikilvægi auk-
ins aðgangs EB-landbúnaðar-
afurða að mörkuðum EFTA
og stefna beri að því að af-
nema viðskiptahindranir
sem byggjast m.a. á heilbrigð-
isreglugerðum. Þetta er auð- ur í okkar landi ef af yrði,"
vitað hagstætt fyrir neytend- sagði Jón Baldvin að lokum.
Stöllurnar Kristín Ingvadóttir og Guðrún Möller, fyrrum fegurö-
ardrottningar, nutu sólarinnar á einum besti degi júnímánaðar
sem var í gær, 19. júní, í sundlaugum Reykjavikur. Samkvæmt
gamalli hjátrú boðar góöur sólardagur á afmælisdegi bjarta
framtíð fyrir þann eða það sem á afmæli. Þessi dagur boðar því
bjarta framtiö fyrir konur á íslandi og baráttu þeirra fyrir jafnrétti.
A-mynd: E.ÓI.
II
H
■
BB
■
Gœludýr:
Króki ekkert einsdæmi
Vesalings meinti
krókódíllinn, sem á
samkvæmt sumum að
hafa látid lífið í Norð-
fjarðará um helgina.
Harkaleg viðbrögð yf-
irdýralæknis við hon-
um, hafa vakið upp um-
ræðu um skrítin gælu-
dýr sem kunna að hafa
komið til landsins eftir
ýmsum leiðum.
Alþýðublaðinu er til
dæmis kunnugt um
snákagryfju á heimili i
miðbæ Reykjavíkur. Á
sama heimili mun einnig
vera „tarantúla" risa-
könguló, loðin og blíð.
Áreiðanlegur heimild-
armaður sagði frá virðu-
legum embættismanni
sem ku hafa í fórum sín-
um sex metra ianga
kyrkislöngu. Hann mun
hafa smyglað henni barn-
ungri til landsins innan-
klæða, þó tryggilega
saumaðri fastri. Hún lifir,
biessunin, á því að kok-
gleypa lifandi mýs.
Nú hefur eigandi Króka
litla á Neskaupstað afneit-
að honum í samtali við
dagblaðið Tímann. Þó
vildu heimildarmenn Al-
þýðublaðsins þar fyrir
austan kannast við að
einn íbúi bæjarins hafi til
skamms tíma verið lif-
andi krókódíll, en hvort
það var umræddur Króki
vildu þeir ekki segja. „En
það er nú svo margt dul-
arfullt við Neskaupstað,"
sögðu þeir.
RK