Alþýðublaðið - 22.06.1990, Side 1
Boðberí
nýna lima
91. TÖLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR
FÖSTUDAGUR
22. JÚNÍ 1990
BREYTT VIÐSKIPIVIÐ
USSR: Riskov forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna
sagði í viðræðum við Vig-
dísi Finnbogadóttur í
Kreml á dögunum að breyt-
ing yrði óumflýjanlega á
viðskiptaháttum íslend-
inga og Sovétmanna sam-
kvæmt fréttum ríkisút-
varpsins. Fimm ára samn-
ingar um viðskipti þjóð-
anna heyrðu nú sögunni til
en breytingar hafa orðið
miklar á sovétska efna-
hagskerfinu. Um næstu áramót rennur út gildandi fimm
ára samningur Sovétmanna og Islendinga.
LÁNIÐ LÉK VIÐ ÍHALDIÐ: Sjálfstæðismenn í borgar-
stjórn voru mjög heppnir þegar gengið var til nefndakjörs
á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar. I öllum 5 mannanefnd-
um þurfti að varpa hlutkesti um 4. mann Sjálfstæðisflokks-
ins og 2. mann minnihlutaflokkanna sem stóðu sameigin-
lega að kjöri í nefndir borgarinnar. Minnihlutaflokkarnir
unnu aðeins 7 hlutkesti af 22 í fimmmannanefndir borgar-
innar en Sjálfstæðisflokkurinn 15.
4-11BORGARRAÐI: Meirihluti Sjálfstæðismanna vann
sinn fjórða mann í borgarráð á hlutkesti. Það var Árni Sig-
fússon sem vann hlutkesti gegn Kristínu Ólafsdóttur frá
minnihlutanum. Auk Árna sitja því í borgarráði Magnús L.
Sveinsson, Katrín Fjelsted, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, öll
frá Sjálfstæðisflokki, og Sigurjón Pétursson Alþýðubanda-
lagi frá minnihlutanum.
ÚTTEKTÁ HÚSNÆÐISSJÓÐUM: Formaður Sjálf-
stæðisflokksins, Þorstein Pálsson, hefur óskað eftir því að
ríkisendurskoðun geri úttekt á stöðu Byggingasjóðs ríkis-
ins og Byggingasjóðs verkamanna. Fram hefur komið í
bréfi frá Húsnæðisstofnun að framlag ríkisins til sjóðanna
þurfi að vera 200 milljarðar á næsta ári eigi þeir að geta
haldið áfram lánveitingum eftir gamla lánakerfinu sem var
sett á fót árið 1986.
ENN TALIÐIKEFLAVÍK? Það þarf að kæra aftur taln-
ingu atkvæða í Keflavík í sveitarstjórnarkosningunum til
þess að úrskurðað verði um efnisatriði fyrri kæru. Nú hef-
ur verið þrítalið í Keflavík. Fulltrúi G-lista sem hefur staðið
fyrir kærum vegna kosninganna verður því að kæra aftur
vilji hann fá málið tekið fyrir aftur.
FLESTIR FA VINNU: Nokkuð hefur ræst úr atvinnu-
málum námsmanna en atvinnutilboðum til þeirra hefur
fjölgað. Nú eru innan við 200 námsmenn á skrá hjá At-
vinnumiðlun námsmanna. Nokkuð var um það að náms-
menn höfnuðu atvinnutilboðum vegna vonar um eitthvað
betra. Útlit er fyrir að allir námsmenn sem sækjast eftir
vinnu geti fengið hana.
LAUNAVÍSITALAN HÆKKAR UM 0,3%: Launa-
vísitalan fyrir júnímánuð hækkaði um 0,3% miðað við
meðallaun í maí. Hagstofan segir vísitölu launa nú 115,0
stig. Samsvarandi launavisitala sem gildir við útreikning
greiðslumarks fasteignaveðlána tekur sömu hækkun og er
því 2517 stig í júlí.
SUNDFÓLK Á STERKU MÓTI: íslenskir sundmenn
hittu fyrir í keppni um síðustu helgi marga af sterkustu
sundmönnum heims í Canete á Spáni. Helga Halldórsdótt-
ir náði 6. sæti í 100 m og 7. sæti í 200 m bringusundi. Ragn-
heiður Runólfsdóttir lenti í 7. sæti í 50 metra skriðsundinu
— aðrir keppendur heldur aftarlega og komust ekki í úrslit.
Fremur lakur árangur, — en eitt er gott við þetta segir í
fréttapistli frá sundsambandinu, „menn eru búnir að gera
sér grein fyrir því að þeir þurfa að æfa“.
LEIÐARINNIDAG
Alþýöublaöið er þeirrar skoðunar að OLÍS hafi
þurft að berjast ótrúlegri baráttu gegn ættar-
veldi íhaldsins annars vegar og stórveldi Sam-
bandsins hins vegar. OLÍS sé hins vegar í stöð-
ugri sókn og hafi ekki aðeins stórstyrkt stöðu
sína, heldur sé orðið opið almenningshlutafé-
lag sem brýtur blað í verðbréfasögu hérlendis
með því að hafa sótt formlega um skráningu
hlutabréfa á Verðbréfaþingi íslands.
Bull fyrir börnin
„í aldarfjórðung hef ég hugs-
að um það og nú ætla ég að
segja það" segir Guðmundur
Einarson í föstudagsspjalli.
Hvað skyldi hann hafa verið að
hugsa?
Áframhaldandi
ánauð
Senn líður að því að núgild-
andi búvörusamningur renni
út og menn eru þegar farnir að
huga að nýjum samningi. í dag
skrifar Magnús Árni fréttaskýr-
ingu um nýjan búvörusamn-
ing.
5
Útflutnings-
flutningur
Ríkarður Örn Pálsson skrifar
um kammersveit tuttugu
vaskra manna sem hann telur
að hafi tekið flestu öðru fram á
Listahátíð af því sem hann
komst i tæri við.
Um 3000 manns söfnuðust saman á Lækjatorgi í gær með kröfuspjöld og fleira í farteskinu til að ná fram kröfu BHMR. Á mánudags-
morgun munu BHMR-félagar heilsa upp fjármálaráðherra sem um þessar mundir er erlendis.
Fjölmennur útifundur BHMR-félaga:
BIÐA OLAFS
„Við Crum mjög ánægðir
með þessar aðgerðir,"
sagði Páll Halldórsson for-
maður BHMR um útifund
og kröfugöngu félags-
manna í gær vegna kröfu
þeirra um frestun á fram-
kvæmd ákvæðis síðasta
kjarasamnings þeirra. Tal-
ið er hátt í að 3000 manns
hafi safnast saman á Lækj-
artorgi í gær. Varðandi
framhald þessa máls vís-
aði Páll til formanns að-
gerðanefndar, Ólafs Karv-
els Pálssonar.
„Það vill svo til að fjármála-
ráðherra hefur verið fjarri
þessum aðgerðum því höfum
við hug á að hafa smáathöfn
við hans vinnustað á mánu-
dagsmorgun. Mér skilst að
beðið sé eftir liðveislu fjár-
málaráðherra því verði ekk-
ert gert í málunum fyrr en
hann er viðlátinn," sagði Ól-
afur Karvel.
í gær voru afhentar yfirlýs-
mgar frá stjórnum félaganna.
í gangi eru undirskriftir allra
félagsmanna sem verða að
líkindum afhentar í næstu
viku, a.m.k. hluti þeirra.
BHMR mun funda í dag um
bréf sem barst frá formanni
ASÍ, Ásmundi Stefánssyni.
BHMR hafði krafist svara af
ASI um afstöðu til vissra at-
riða. í bréfinu segir orðrétt:
„Alþýðusamband ísiands
hefur hvergi sett fram kröfu
um það að samningsbundnar
kauphækkanir annarra hópa
verði felldar niður með vald-
boði.“
Ennfremur segir síðar í
bréfinu:
„í öllum aðdraganda og við
afgreiðslu samninganna kom
afdráttarlaust fram af hálfu
aðildarfélaga ASÍ að þau
væru ekki reiðubúin til þess
að bera skarðan hlut frá borði
miðað við aðra hópa.“
Páll Halldórsson vildi ekk-
ert um málið segja fyrr en
samninganefndjn hefði fund-
að um svar ASÍ í hádeginu í
dag.
Getraunaraunir:
Marki fró 28 milljónum
Samkvæmt fréttum í
gær var staðan sú í get-
raunum að eftir tólf leiki
var einn íslendingur, mið-
inn seldur í Keflavik, með
12 leiki rétta af 13 í hinum
sameiginlega getrauna-
potti Islendinga, Svía og
Dana. Til að fá þann
þrettánda þurfti Holland
að vinna og þar með
hefði þessi íslendingur
unnið 28 milljónir. Hann
eða hún hefur vafalaust
fylgst spennt með lokal-
eiknum á seðlinum milli
Hollendinga og Ira.
Hollendingar komust
snemma yfir er Gullit
skoraði fyrir lið sitt en
þegar langt var liðið á
seinni hálfleik jafnaði
Nial Quinn fyrir íra eftir
slæm mistök Hollendinga
í vörninni. Þar með voru
úrslitin ráðin og 28 millj-
ónir foknar út _um íslensk-
an glugga. írar verða
væntanlega ekki í háveg-
um hafðir hjá eiganda
viðkomandi seðils svo
ekki sé talað um Njál.
100 milljóna potturinn
sem var auglýstur fyrir
keppnina lét aldrei sjá sig,
sem betur fer segja ef-
laust þeir sem tippuðu án
árangurs. Það er ekkert
að verða af 28 milljónum
miðað við það að missa
100 milljónir í einni svip-
an og þurfa að horfa á
það í beinni útsendingu
sjónvarpsins. Ekki er
ósennilegt að ókunnur
eigandi seðilsins hafi ver-
ið taugatrekktur þann
tíma sem á útsending-
unni stóð. Það kemur
bara næst.
*v