Alþýðublaðið - 27.06.1990, Page 1
MÞYÐUBllÐIÐ
Aktu ekki út i óvissuna
aktu á
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhofða2 Simi 91-67 4000
94. TÖLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR
MIÐVIKUDAGUR
27. JÚNÍ 1990
HVALIR ERU ÍSLENSKIR: v:,i„damenn fullyrða sig
nú geta greint milli þriggja hrefnustofUa í Norður-Atlants-
hafi og a.m.k. geta fært ákveðin rök fyrir því að til séu sér-
íslenskir stofnar af langreyði og sandreyði. Þetta eru niður-
stöður úr rannsóknum m.a. í sambandi við vísindaveiðar
Islendinga á hvölum á síðustu árum. Útvarpið greindi frá
því í kvöldfréttum í gærkveldi að vísindamenn sem unnið
hafa að þessum rannsóknum gætu nú fullyrt að hrefnu-
stofnarnir séu þrír og þar af einn séríslenskur.
ÞUNNT ÓSONLAG:
Ósonlagið yfir íslandi er
þynnra en áður hefur verið
álitið og þynnist enn hraðar
en áætlað var. Þetta kom
fram á fundi Montreal
nefndarinnar í London í
gær. Gunnar G. Schram
sem sat fund nefndarinnar
fyrir fslands hönd, sagði í
samtali við útvarpið í gær-
kveldi að skýrsla um þetta
efni sem kynnt var á fund-
inum í gær væri afar vönduð og unnin af færustu vísinda-
mönnum. Þynning ósonlagsins getur m.a. haft áhrif á líf-
ríkið í hafinu og því alvarleg tíðindi fyrir íslendinga.
JÚGÓSLAVAR OG ENGLENDINGAR ÁFRAM:
Júgóslavar sigruðu Spánverja með tveimur mörkum gegn
einu og Englendingar Belga með einu marki gegn engu í
síðustu leikjum 16 liða úrslita í heimsmeistarakeppninni í
gær. Keppni Júgóslava og Spánverja var æsispennandi og
þurfti að framlengja leikinn að venjulegum leiktíma lokn-
um. Leik Englendinga og Belga þurfti líka að framlengja
eftir markalausan leik og flestir voru farnir að búast við
vítaspyrnukeppni þegar mark Englendinga kom rétt fyrir
lok framlengingar.
McENROE SLEGINN ÚT: Tenniskappinn frægi, John
McEnroe, varð í gær að bíta í það súra epli að vera sleginn
út í fyrstu umferð Wimbledon keppninnar sem talin er
virðulegasta tenniskeppni heims. Úrslitin í gær þóttu
reyndar afar óvænt því þrír aðrir hátt skrifaðir tennismenn
urðu að lúta í lægra haldi fyrir óþekktum nýliðum. Það var
landi McEnroes, Bandaríkjamaðurinn Derek Rostagno,
sem sló hann út. Lokatölurnar urðu 7—5, 6—4 og 6—4.
SAMBANDIÐ GRÆÐ-
IR A NY: Samband ís-
lenskra samvinnufélaga
virðist vera að snúa vörn í
sókn. Fyrstu sex mánuði
þessa árs varð hagnaður af
rekstrinum, að vísu aðeins
15 milljónir en hagnaður
samt. Skinnaiðnaðurinn á
Akureyri stóð sig best en á
hinn bóginn varð enn tap af
rekstri verslunardeildar-
innar. Guðjón B. Ólafsson
forstjóri Sambandsins virð-
ist því mega vel við una og þessi niðurstaða ætti að styrkja
stöðu hans innan Sambandsins.
HVAR RIS ALVER? Þessa dagana er fundað um nýtt ál-
ver og í útvarpsfréttum í gærkveldi var haft eftir Jóni Sig-
urðssyni iðnaðarráðherra að hann vonaðist til að eftir
þennan fund yrðu ekki eftir nema tveir staðir sem til
greina kæmu undir nýtt álver. Jafnvel er gert ráð fyrir að
viðræður komist svo langt á þessum fundi að unnt verði að
hefja undirbúning að virkjunarframkvæmdum.
LEIDARINNIDAG
Alþýðublaðið fjallar í leiðara um heimsókn
Bretadrottningar og Filipusar hertoga sem lýk-
ur í dag. Blaðið segir að heimsóknin hafi styrkt
tengsl og vináttu Bretlands og íslands og aukið
á gagnkvæma virðingu og vinsemd nágranna-
þjóðanna tveggja í Atlantshafi.
SJÁ LEIÐARA Á BLS 4: HEIMSÓKN BRETA-
DROTTNINGAR Á ENDA.
Hvernig varð
tungumál til?
Gunnar Dal fjallar um upp-
runa tungumálsins og segir
skynsemina hafa skapað orðið.
Það sé þó ekki skynsemin ein
sem leiti orða og maðurinn
stjórnist ekki bara af henni.
Þegar ungt fólk
vill ekki vinnu
Jónas Jónasson segist
undrast þá breyttu tíma, þegar
ungt fólk vill ekki þiggja lág
laun fyrir sumarvinnu en kýs
að sníkja af pabba og mömmu.
Einelti í skólum
Alþýðublaðið greinir frá
ótrúlegri frásögn, sem birtist í
nýjasta hefti Nýrra mennta-
mála, um einelti í skólum.
Elísabet Englandsdrottning og séra Heimir Steinsson þjóögarðsvörður skeggræddu margt á fundum sínum á Þingvöllum. Drottn
ingin var mjög áhugasöm um Þingvelli og upplýsti nokkru síðar á hádegisfundinum að forfaðir hennar hafi verið Kristján IX Dana-
konungur er færði Islendingum stjórnarskrána 1874. A-mynd: E.ÓL
Heilbrigdisrádherra um lœknaskort á Vestfjördum:
„EKKERT
EINFALT MÁL##
Helstu ástæðurnar fyrir
læknaskorti í fámennum
kauptúnum úti á landi eru
einangrun, launakjör
læknanna og fækkun
þeirra vegna takmarkana í
læknadeild Háskólans, að
mati Guðmundar Bjarna-
sonar, heilbrigðisráð-
herra.
Á laugardaginn sagði Al-
þýðublaðið frá vandræðum
tveggja kauptúna á Vestfjörð-
um vegna læknaskorts, sér-
staklega í ófærð að vetri til.
Kauptúnin sem sagt var frá
eru Þingeyri og Flateyri og
hefur Prestafélag Vestfjarða
sent frá sér ályktun þar sem
farið er fram á það við heil-
brigðisráðherra og landlækni
að úr þessu verði bætt.
Heilbrigðsráðherra segir í
samtali við Alþýðublaðið að
það sé vissulega erfitt ástand
á öllum H1 heilsugæslustöðv-
um, eða þar sem þjónar að-
eins einn læknir. Það eru
fleiri staðir en umræddir sem
svoleiðis er ástatt um, t.d.
Raufarhöfn og Þórshöfn á
Norðurlandi.
„Við höfum reynt ýmislegt
til þess að fá lækna á þessi
svæði til lengri tíma, en það
hefur reynst mjög erfitt," seg-
ir Guðmundur.
„Við höfum þurft að semja
við lækna á heilsugæslu-
stöðvum í þéttbýli um að taka
að sér tíma og tíma, og höf-
um þá þurft að greiða fyrir
því með ferðakostnaði og
dagpeningum og hefur það
verið mjög dýrt, en það hefur
ýmislegt verið reynt.“
Guðmundur segir það einn-
ig stórt atriði að læknarnir
hafi betri kjör á stærri stöðv-
unum þar sem hluti af laun-
unum sé fyrir unnin verkefni
og því séu launin meiri þar
sem meira er að gera.
Einnig sé það mjög stórt at-
riði að einangrunin á þessum
stöðum sé mikil og það að
vera einn á vakt allan sólar-
hringinn sé mjög mikið álag.
Guðmundur telur koma til
greina að auka vægi föstu
launanna í heildarlaunum
lækna og minnka auka-
greiðslurnar fyrir hvert verk,
en einnig að á sumum stöð-
um komi tveir læknar þar
sem nú er einungis gert ráð
fyrir einum.“
„Menn fást ekki lengur til
að vinna við þessa starfsein-
angrun."