Alþýðublaðið - 16.03.1986, Side 2
" "
2
Sunnudagur 16. mars 1986
.-----------------------------:
SÉRTILBOÐ Á
HEIMILISTÆKJUM
í MARS
VIÐTÖKUMÁMEÐ
ÞORSTEINI OG LÆKKUM
VÖRUVERÐ LANGT UM-
FRAM TOLLALÆKKANIR
Þjóðareign landsins
Úr kynningarríti Alþýðuflokksins 1976
Hugmyndin um þjóðareign
landsins er jafngömul jafnaðar-
stefnunni og var í fyrstu stefnuskrá
Alþýðuflokksins. Hér á landi hefur
þó til skamms tíma ríkt sá hugsun-
arháttur, að landrými sé feikinóg
og náttúruauðlindir takmarkalaus-
ar, og hafa fleiri þjóðir vaðið í þeirri
villu.
Nú er annað komið á daginn.
Allt er þetta takmarkað, og þjóðin
deilir um auðlindir landsins, en ótt-
ast eyðingu nytjafiska. Alþýðu-
flokkurinn hefur nú ár eftir ár flutt
á Alþingi tillögur um þjóðareign
landsins, mætt þar harðri mót-
spyrnu íhaldssamari afla og Al-
þýðubandalagsmanna, en þessar
hugmyndir hafa vakið þjóðarat-
hygli og fengið undirtektir um land
allt. Hér er fyrst og fremstu um að
ræða átök milli félagshyggju og sér-
hagsmunahyggju — og hefur sjald-
an verið meira í húfi í einu máli fyrir
samtíð og langa framtíð.
Félagshyggjan lítur svo á, að frá-
leitt sé, að fjölmennar byggðir nái
ekki að virkja nærtæk fallvötn sér
til ljóss, hita og iðnaðar, vegna eign-
arhalds landeigenda, sem eru þess
ekki umkomnir að koma þessum
auði í almannagagn.
Félagshyggjan lítur svo á, að
þann jarðvarma, sem ríkis- og sam-
félagslegt fjármagn og framtak
þarf til að koma til almannanota,
eigi að gera þjóðareign og taka til
almannaþarfa án stórgjalds til
hugsanlegra landeigenda.
Félagshyggjan telur það stríða
gegn eðlilegri réttarkennd, að land-
eða lóðareigandi grípi af því offjár,
að þétt byggð hafi án hans tilverkn-
aðar myndazt í eða við landareign
hans og þurfi aukið vaxtarrúm.
Gaggenau tilboð
Ofnar: Áður Nú
EB 795- -100 kr. 53.390 Kr. 44.900
EB 795- -110 kr. 53.390 kr. 44.900
EB 795- -120 kr. 53.390 kr. 44.900
EE 798- 104 kr. 55.150 kr. 45.900
EE 798- 114 kr. 55.150 kr. 45.900
EE 798- 124 kr. 55.150 kr. 45.900
Sambyggður ofn og 4ra hellu eldavél:
Áður Nú
EC 693- -104 kr. 58.460 kr. 49.900
EC 693- -124 kr. 58.460 kr. 49.900
Viftur: 15% afsláttur
Electrolux tilboð
Eldavélar: Áður Nú
CF 6423 60cm kr. 27.900 kr. 23.250
CF 5533 55 cm kr. 19.640 kr. 16.900
CF 6484 60 cm kr. 31.310 kr. 25.990
Ryksugur: Áður Nú
D-720 1100W kr. 11.900 kr. 9.400
D-730 Electrónik kr. 16.330 kr. 12.720
ísskápar: Sértilboð á afsláttarskápum
Rowenta tilboð
Gufustraujárn: Áður Nú
DA-15 kr. 4.100 kr. 3.330
DA-47 kr. 3.380 kr. 2.680
Kaffivélar: Áður Nú
FK-16,0 kr. 2.800 kr. 2.470
FK-60,0 kr. 3.940 kr. 3.090
Brauðristar: Áður Nú
TO-19 kr. 2.460 kr. 2.050
TO-18 kr. 2.350 kr. 1.850
Vöfflujárn: Áður Nú
WA 01,0 kr. 4.900 kr. 3.280
Ryk- og vatnssuga: Aðu r Nú
RU 11,1 kr. 8.300 kr. 7.290
Oster tilboð
Hrærivélar: Áður Nú
kr. 16.990 kr. 12.900
Svo gefum við 15% afslátt
af allri málningu í mars mánuði
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1a s.686117
Tekjuskattur úreltur
Úr kynningarriti Alþýðuflokksins 1976
Hróplegasta félagslega ranglæti,
sem viðgengst á íslandi, er á sviði
skattamála, sérstaklega tekju-
skatta. Þessu fylgir þvílíkt misrétti,
að þjóðin getur ekki lengur sætt sig
við það.
Fyrir nokkrum kynslóðum var
stighækkandi tekjuskattur nálega
eina hagstjórnartækið, sem ríkis-
valdið gat beitt til að jafna kjör
þegnanna. Nú eru fjölmargar betri
leiðir til að ná því marki, almanna-
tryggingar, ókeypis menntun, nið-
urgreiðsla nauðsynja og ýmisskon-
ar þjónusta við barnafjölskyldur og
aðra, sem standa höllum fæti.
Á sama tíma hefur tekjuskattur-
inn orðið að skatti á almenna laun-
þega, sem bera óhóflega þungar
byrðar og standa að mestu undir því
gjaldi. Á sama tíma greiða þúsund-
ir atvinnurekenda og fyrirtækja alls
engan tekjuskatt.
Árið 1975 voru 5190 félög á skatt-
skrá, en greiddu aðeins 1200
milljónir í tekjuskatta — um
230.000 kr. hvert! Þá sýndu athug-
anir, að 7500 einstaklingar á íslandi
hefðu aðaltekjur sínar af eigin at-
vinnurekstri, en rúmur helmingur
þeirra, 3—4000 manns, greiddu alls
engan tekjuskatt! Þeir geta lifað
ríkmannlega, en með því að sýna
bókhaldstap á rekstrinum losna
þeir við tekjuskattinn.
Alþýðuflokkurinn hefur rann-
sakað og fjallað um þessi mál og
ákveðið að setja fram þá nýju
stefnu, að horfið verði að fullu frá
innheimtu tekjuskatts til ríkisins af
tekjum launþega, en haldið verði
áfram að heimta tekjuskatt af at-
vinnurekstri. Þá vill flokkurinn
greina á milli atvinnurekstrar ein-
staklinga og einkabúskapar þeirra,
svo að ekki verði lengur hægt að
bókfæra halla á rekstri og gera eig-
andann tekjuskattslausan, þótt
hann taki sérfíflegar tekjur sjálfur.
V >V
W íáC-X X- Á-Á Í.
V .
V < •'\ s' V S< \
\ ,\ s \ \ \ >• V
' *s »s \' \V ,*v \ S V >
\*‘ \W S' s' - *
V N v' \ O
• > C C V
:-n > \s\\.
: \
- '\
\y.\\-
■ KN\ \\v \ > V '' V «. \ ,-r*r
' \ v.vv‘v
.• J ^ < > y o c \ s. >
| í , -> V
' \ w VSf ,s ' \\ \ 5/
S.JKC'.íLt.s 1 JUSJfc 7. V-\.5 \
■> > e- "fif «.
c Á v .w- v :■./■; 1 f .
' - V v
\ \ \
> *\ s' \\ \\\ S '* »'s
> V
\ • V
í It "XXtX >k n C •? VsC
S Á S C Aiv >-» > S >s > - Í .Ss'.vC .s.4.>
Sláturfélag Suðurlands er eign félagsmanna sinna
og upphaflegur ■tilgangur félagsins — að losna við
ónauðsynlega milliliöi og stuðla að því að seljend-
ur fái allt verð fénaðar síns að frádregnum sölu-
kostnaði, er enn höfuðmarkmiðið.
Við höfum því frá upphafi átt samleið með
ASÍ og samstarfið alla tfð verið með ágætum.
Á þessum tímamótum í sögu ASÍ sendum við
félagsmönnum bestu kveðjur með von og ósk
um ágæta samvinnu hér eftir sem hingað til.
SLÁTURFÉLAG
4*
SUÐURLANDS