Alþýðublaðið - 16.03.1986, Page 10
10
Sunnudagur 16. mars 1986
Drekkum mjólk á hverjum degi
•Mjólk: Nýmjólk, léttmjólk, eða undanrenna.
Allt frá því að tennurnar
byrja að vaxa þurfa þœr
daglegan kalkskammt,
fyrst til uppbyggingar og
síðan til viðhalds
Rannsóknir benda til að
vissa tannsjúkdóma og
tannmissi á efri árum
megi að hluta til rekja til
langvarandi kalkskorts,
Með daglegri mjólkur-
neyslu, a.m.k. tveimur
glösum á dag, er
líkamanum tryggður
lágmarks kalkskammtur og
þannig unnið gegn hinum
alvarlegu afleiðingum
kalkskorts.
Tennurnar fá
þannig á hverjum degi þau
byggingarefni sem þœr
þarfnast og verða sterkar og
fallegar fram eftir öllum aldri.
Gleymum bara ekki að bursta
þœr reglulega.
Helstu heimildir: Bætóngurinn Kak og beinþynning eftr dr. Jón Óttar Ragnarsson og
Nutrition and Physical Filness, 11. útg., eftir Briggs og Caioway, Holt Reinhardt and
Winston, 1984.
MJíVUi
gúSsnOT
MJÓLKURDAGSNEFND
Aldurshópur Ráðlagður dagskammtur afkalkilmg Samsvarandi kalk- skammtur í mjólkur- glösum(2,Sdl glös)* Lágmarks- skammtur í mjólkurglösum (2,5 dl glös)**
| Böm I -10 óra 800 3 2
Unglingar 11-18 óra 1200 4 3
Ungt fólk og fullorðið Ófrfskarkonurog 800“ 3 2
brjóstmœður 1200*“ 4 3
• Hör er gert róð fyrlr að allur dagskammturlnn af kalki koml úr mjólk.
" Að sjátfsögðu er mögulegt að fó altt kalk sem llkamlnn þarf úr ððrum matvaelum en mjólkurmat
en sllkt krefst nákvœmrar þekkingar ó naeringarfraeðl. Hér er miðáð vlð neysluvenjur elns og
þœr tfðkast 1 dag hér á landi.
"• Margir sérfrœðlngar telja nú að kalkþörf kvenna eftir tlðahvðrf sé mun melri eða 1200-1500
mg á dag.
” Nýjustu staðlar fyrir RDSI Bandarlkjunum gera ráð fyrir 1200 tll 1600 mg á dag fyrlr þennan hóp.
Mjólk inniheldur meira kalk en nœr allar aðrar fœðutegundir og auk
þess B-vítamín, A-vítamín, kalfum, magníum, zink og fleiri efni.
Um 99% af kalkinu notar líkaminn til vaxtar og viðhalds beina og tanna.
Tœplega 1 % er uppleyst í líkamsvókvum, holdvefjum og frumuhimnum,
og er það nauðsynlegt m.a. fyrir blóðstorknun, vöðvasamdrótt,
hjartastarfsemi og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af ýmsum
efnaskiptahvötum.
Til þess að Ifkaminn geti nýtt kalkið þarf hann D-vítamín, sem hann fœr
m.a. með sólþöðum og úr ýmsum fœðutegundum, t.d. lýsi. Neysla
annarra fœðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en
300-400 mg á dag, en það er langt undir ráðlögðum dagskammti. Úr
mjólkurmat fœst miklu meira kalk, t.d. 800 mg úr u.þ.b. þremur glðsum
af mjólk.
Alþýða
landsins
í einum
flokki
Svar Gauta Hannes-
sonar í bæklingnum
„Hvers vegna kýs ég
Alþýðuflokkinn“
1946
Af því fyrst og fremst, að hann er
vinstri flokkur og lýðræðisflokkur.
Hver er munur á „vinstri“ og
„hægri“ í stjórnmálum? Annars
vegar: samvinna, samhjálp og
bræðralag, hins vegar: samkeppni
eða m.ö.o. lofið þeim sterka að
hrifsa eins mikið til sín og hann get-
ur. Um hina, sem verða undir, verð-
ur að fara sem verkast vill. — Sam-
vinna — samkeppni. Það virðist í
fljótu bragði vera auðvelt að dæma
um, hver stefnan sé heppilegri í
þjóðarbúskap. En það undarlega
gerist, — að íhaldið fær við hverjar
kosningar ótrúlegan fjölda at-
kvæða. Það getur ekki annað verið,
en að margir þeirra, sem „verða
undir“ Ijái samkeppnismönnum at-
kvæði sitt. Hvers vegna? Það er mér
óskiljanlegt. Ég harma það, að öll
alþýða landsins skuli ekki bera
gæfu til þess að standa saman í ein-
um flokki.
Úr stefnu-
skrá Alþýðu-
flokksins
1963
Hluti af upphafskafla
Stefnt er að ríki jafnaðarstefn-
unnar, en það er:
1. Þjóðfélag, sem setur frelsi ein-
staklingsins í öndvegi og
verndar hann fyrir hvers konar
kúgun og ofríki, gerir alla
þegna jafna fyrir lögum og
tryggir félagslegt réttlæti.
2. Þjóðfélag, sem hefur skipu-
lega heildarstjórn á efnahags-
kerfinu til þess að tryggja al-
menna velmegun, næga at-
vinnu, réttláta tekjuskiptingu
og sanngjarna niðurjöfnun
skatta, örvar framtak einstakl-
inga, félaga og opinberra að-
ila, en lætur eign og stjórn at-
vinnutækja lúta hagsmunum
þjóðarheildarinnar.
3. Þjóðfélag, sem veitir öllurn
þegnum sínum öryggi frá
vöggu til grafar, verndar lítil-
magnann, tryggir afkomu
sjúkra, örkumla og gamalla.
4. Þjóðfélag, sem veitir öllum
þegnum sínum jafnan rétt til
hvers konar menntunar, án til-
lits til búsetu eða efnahags,
örvar menningarstarf og eflir
listir og vísindi.
5. Þjóðfélag, sem er aðili að al-
þjóðlegu samstarfi til varð-
veizlu friðar og frelsisí*
Óskum Alþýðuflokknum
og Alþýðusambandi fslands
innilega til hamingju
með 70 ára afmælið
Mjólkursamsalan