Alþýðublaðið - 16.03.1986, Blaðsíða 15
Sunnudagur 16. mars 1986
15
Hannibal Valdimarsson:
Barátta fyrir laun-
um og mannréttindum
„Ég óska bæði Alþýðuflokknum
og Alþýðusambandinu innilega til
hamingju á þessum merku tíma-
mótum“, sagði Hannibal Valdi-
marsson, fyrrverandi formaður Al-
þýðuflokksins og einnig fyrrver-
andi forseti ASI. Þegar Alþýðu-
blaðið hafði samband við hann i til-
efni af 70 ára afmæli þessara
tveggja fjöldahreyfinga.
Hannibal sagði að þrátt fyrir gíf-
urlegar þjóðfélagsbreytingar á
þessum 70 árum, væri hlutverk
bæði Alþýðuflokksins og Alþýðu-
sambandsins æ eitt og hið sama og
hefði ekkert breyst. Þar væri launa-
baráttan höfuðþáttur en almenn
mannréttindabarátta skipaði einnig
mikinn sess.
„Alþýðuflokkurinn og Alþýðu-
sambandið voru nánast eitt og hið
sama fram til 1940. Þegar skipu-
lagslegur aðskilnaður varð milli
þessara hreyfingaþ sagði Hannibal.
Hann bætti því við að engu að síður
hefði verið mikið og gott samstarf
þarna á milli eftir þann tíma.
Hann kvað erfitt að segja til um
hvort þessi aðskilnaður hefði orðið
til ills eða góðs. „Þó er kannski
einkum erfitt að meta hvort nokkur
möguleiki hefði verið að koma í veg
fyrir aðskilnaðinnþ sagði hann.
Hannibal var beðinn að nefna
þær breytingar sem hann taldi
veigamestar á þessum 70 árum.
„Það er allt breytingum undirorp-
ið“ svaraði hann. „Kjarabaráttan er
orðin faglegri nú. Áður fyrr var
meiri tilfinningahiti í mönnum og
þeim kröfum sem settar voru fram
var fylgt eftir af fyllstu hörku. Sam-
staðan bilaði heldur aldrei. Nú er
baráttan háð með reiknivélum og
tölvum að nokkru leyti og það er
ugglaust til bóta“
Hannibal undirstrikaði að lokum
að eðli þessarar baráttu hefði ekk-
ert breyst á sjötíu ára ferli. „Þetta er
enn barátta fyrir mannréttindum og
bættum kjörumþ sagði hann.
Tveir Alþýðuflokksmenn og fyrrverandi forsetar
Alþýðusambands íslands: Björn heitinn Jónsson og
Hannibal Valdimarsson.
Alþýðuflokkurinn 70 ára
Afmæliskveðja frá Emil Jónssyni, fyrrverandi formanni Alþýðuflokksins
Um þessar mundir minnumst við
jafnaðarmenn þess að sjötíu ár eru
liðin frá stofnun Alþýðuflokksins.
Af því tilefni langar mig að senda
hér stuttar afmælisóskir.
Á þessum tímamótum er margs
að minnast, margir sigrar hafa unn-
ist og mörgum málum verið þokað
í jafnréttisátt.
Alþýðuflokkurinn hefur safnað
saman innan sinna vébanda því
fólki sem hefur svipaðar skoðanir á
stjórnmálum og hefur ákveðið að
berjast fyrir framgangi þeirra.
Kjarninn í þeirri stefnu er sá að
menn fái að njóta arðsins af vinnu
sinni sjálfir en hann gangi ekki til
óþarfa milliliða. Þessi hornsteinn
jafnaðarstefnunnar átti á upphafs-
árum Alþýðuflokksins mikilvægu
hlutverki að gegna við þjóðfélags-
breytingar þeirra tíma. í dag virðist
mér engu ntinni þörf fyrir áhrif
jafnaðarstefnunnar á skipan lands-
mála.
Þó að einn geti ekki komið þess-
um málum í framkvæmd, geta fleiri
þegar þeir vinna saman frekar gert
það. Saga Alþýðuflokksins í sjötíu
ár hefur verið óslitin saga um bar-
áttu fyrir þessum stefnumálum, sú
barátta heldur áfram um ókomna
framtíð.
Ég óska Alþýðuflokknum inni-
lega til hamingju með afmælið og
vona að honum takist ætlunarverk
sitt og rninni á að samtakamáttur,
trú við stefnuna, í öflugum Alþýðu-
flokk, getur eitt komið til leiðar
þeim hugsjónum sem um er barist.
Með baráttukveðju,
Emil Jónsson.
Flugleióir óska
Alþýðuflokknum
til hamingju með
70 ára afmælið
FLUGLEIÐIR J