Alþýðublaðið - 16.03.1986, Síða 24
alþýðu-
IH hT'jT'
Alþýðublaóið, Ármúla 38, 108 Reykjavík jr
Sími: (91) 681866, 681976 Útgefandi: Blað hf. Askrift
Ritstjóri: Árni Gunnarsson (á_bm.) Blaðamenn: Jón Daníelsson og Ása Bjömsdóttir í síma
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38 681866
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
Eggert G. Þorsteinsson:
Framtiðin
þarfnast
Alþýðu-
flokksins
Á þessum tímamótum í sögu
flokksins eru mér minnistæðastir
þeir áhrifamiklu málaflokkar, sem
Alþýðuflokkurinn hefur barist fyr-
ir og fengið framgengt. Ég vil eink-
um nefna vökulögin, sem tryggðu
mannsæmandi vinnutíma á togur-
um, og síðar almannatryggingar,
orlofslögin, atvinnuleysistrygging-
ar, verkamannabústaðakerfið,
jafnréttislögin og lögin um stéttar-
félög og vinnudeilur, Sem hafa haft
víðtæk áhrif á líf almennings í vel-
ferðarátt. Ékki má heldur gleyma
grunnskólalögunum.
Þessir þættir, sem nú þykja sjálf-
sagðir í þjóðlífinu, og allir vilja
eigna sér, hafa staðið upp úr, þegar
mismunandi góðir samningar um
kaup og kjör hafa verið gerðir. Með
þessu hefur flokkurinn raunveru-
lega tryggt mannsæmandi kjör í
landinu og hafa Iög um þessa þætti
velferðarkerfisins staðið af sér alla
storma efnahagsþrenginga og
kaupráns, og eru meira virði en
flestir gera sér grein fyrir í fljótu
bragði, og fæstir vildu vera án.
Þetta er meira virði en ella, þegar
frjálshyggjan herðir róðurinn gegn
velferðarkerfinu, og mun reynast
haldbetra en flest annað í barátt-
unni.
Á þessum tímamótum á ég þá
ósk heitasta og innilegasta til
flokksins og framtíðarinnar, að
honum megi áfram auðnast að
tryggja með sama hætti og hingað
til öryggi lítilmagnans, velferð hins
vinnandi manns og réttlátara þjóð-
félag. Oft var þörf en nú er nauð-
syn. — Áfram á braut friðar, frelsis
og jafnréttis og bræðralags manna
í millum. Framtíðin þarfnast
flokksins.
Með bestu afmælisóskum,
Eggert G. Þorí^-^isson.
Afmælishátlð á Hótel Sögu á sunnudag
í tilefni 70 ára afmælis Alþýðuflokks-
ins verður hátíðarfundur í Hótel Sögu
sunnudaginn 16. mars. Fundurinn hefst
með því, að Lúðrasveit verkalýðsins
leikur frá klukkan 13:30 til 14:00, en þá
setur Jóhanna Sigurðardóttir, varafor-
maður Alþýðuflokksins, fundinn.
Síðan verður fjölbreytt dagskrá.
Kristinn Sigmundsson óperusöngvari
syngur við undirleik Jónasar Ingimund-
arsonar, leikarar flytja samfellda dag-
skrá „Úr 70 ára sögu Alþýðuflokksins“,
félagar úr íslensku hljómsveitinni leika.
Bergþóra Árnadóttir syngur og Jón
Baldvin Hannibalsson, formaður
flokksins flytur ávarp. Að lokum syngja
átta Fóstbræður og stjórna fjöldasöng.
Kynnir á hátíðinni er Gunnar Eyjólfs-
son.
Á sunnudagskvöld verður samkoma í
Hótel Sögu, sem hefst með sameiginlegu
borðhaldi klukkan 19:30. Haukur
Morthens skemmtir matargestum,
Laddi flytur sína vinsælu dagskrá og
hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar
leikur fyrir dansi. Veislustjóri er Birna
Eyjólfsdóttir.
Allir eru velkomnir á þessar afmælis-
samkomur.
rtuéögutn
eiriumaba
7\ UNARBANKÁNS
L-uiv s. 27200
20120
0 SavíK,s.7A600
’ Doy^aVÍK. S.
fostóSveU.s.66^0
StvIK. s. 687200
nKeosW. 17-
0272ö
Nú hefst
nýr kaf li í sögu
tékkareikninga!
Spennandi fyrir þá sem vilja ávaxta
veltufé sitt betur.
Það urðu kaflaskil í bankaþjónustu árið
1984 þegar Verzlunarbankinn, fyrstur banka,
kom með óbundinn sérkjarareikning á markað-
inn: KASKÓ-REIKNINGINN. Um það geta
þúsundir ánægðra Kaskóreikningseigenda borið
vitni.
Enn ryður Verzlunarbankinn brautina og
nú með því að kynna nýjan kafla í sögu
tékkareikninga.
Hann er ætlaður þeim sem vilja ávaxta
veltufé sitt betur. Sérstaða hans felst í því að nú
geta eigendur tékkareikninga samið við
bankann um að hafa ákveðna lágmarksinnstæðu
á reikningi sínum mánuð í senn.
Af þeirri innstæðu greiðir bankinn síðan
almenna sparisjóðsvexti auk uppbótar.
Aðrar staðreyndir um tékkareikninginn.
1. Þú getur breytt lágmarksupphæðinni til
hækkunar eða lækkunar fyrir 21. dag hvers
mánaðar.
2. Af innstæðu umfram umsamið lágmark
reiknast vextir eins og af almennum
tékkareikningi.
3. Ef innstæða fer niður fyrir lágmarkið
reiknast almennir tékkareikningsvextir af
allri innstæðunni þann mánuð.
4. Vextir bætast við vaxtastöðu í lok hvers
mánaðar og við höfuðstól reikningsins í
árslok.
5. Mánaðarlega færðu yfirlit frá Verzlunar-
bankanum sem sýnir uppsafnaða vexti þína.
Nú þarftu ekki lengur að standa
í millifærslum.
Þessi reikningur er einnig tilvalin leið
til þess að prófa sig áfram í sparnaði.
Komdu við í næstu afgreiðslu Verzlunarbankans
og náðu þér í upplýsingabækling eða hringdu og fáðu hann sendan heim.
11 I ^
-vúuuvt meðpén !