Alþýðublaðið - 20.02.1991, Side 1

Alþýðublaðið - 20.02.1991, Side 1
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991 LOKSINS SMÁVETUR! Hundslappadrífa lagðist yfir Reykvíkinga í gær og minnti fótgangendur við Laugaveg- inn og fleiri borgarbúa á að enn ríkir vetur og á ýmsum veðrum kann að vera von. Myndin er frá miðborginni rétt um lokunartíma sölubúða í gær. A-mynd: E.Ól. DAVIÐ NEITAR ENGU: í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins var fréttaskýring Arnars Páls Haukssonar fréttamanns. Hann taldi íjóst að fram undan væru tvö framboð til for- mennsku í Sjálfstæðisflokknum. Davíð Oddsson er ófá- anlegur til að neita eða játa að hann fari í framboð og vilji setjast í stól formanns. Fram kom ennfremur að Þorsteinn Pálsson formaður ætli í engu að víkja fyrir fyrrverandi vöggubróður sínum frá Selfossi. 400 BEKKIR ÁN RÉTTINDAKENNARA: Sjötti hver kennari í grunnskóla i landinu er án tilskilinna réttinda. 475 stöðugildi í grunnskólum eru mönnuð leiðbeinendum, en það svarar til þess að um 400 bekkir njóti að jafnaði kennslu „réttindalausrá' kennara. HANNA FYRIR ÍSLAND: Þrír ungir íslendingar keppa í úrslitakeppni í fatahönnun Smirnoff-fyrirtækisins og Nýs lífs, en keppnin fer fram hér á iandi í fyrsta sinn 16. mars næstkomandi. Þau þrjú sem munu hanna fyrir íslands hönd eru þau María Olafsdóttir, Sólveig Eiríksdóttir og Vilhjálmur Vilhjálmsson. Aðalúrslit verða í Hollandi 29. maí. Á myndinni með ungu hönnuðunum er Júlíus P. Guðjónsson, umboðsmaður Smirnoffs hér á landi. EKKIMEIRILOÐNA: Sjómenn eru bjartsýnir á loðnu- stofninn. En ekki sjávarútvegsráðherra. Hann sagði á þingi í gær að ekki yrði um meiri veiðar að ræða nema önnur loðnuganga birtist við landið. LEIÐARINN Í DAG Fréttirnar af hugsanlegu framboði Davíðs Oddsson- ar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, til formanns flokksins á komandi landsfundi eru til umræðu í leið- ara Alþýðublaðsins í dag. „Það sem landsmenn eru vitni að þessa dagana er forleikurinn að stríðinu um hvorir stjórni Sjálfstæðisflokknum: Gamla lýðræðis- kynslóðin umburðarlynda eða frjálshyggjuhaukarnir frökku. Þessi átök afhjúpa mikla og djúpa gjá í Sjálf- stæðisflokknum sem sífellt er að opnast og breikka," segir í leiðara Alþýðublaðsins, Bardaginn á götunum dýr Haft er eftir forráðamanni tryggingafélags að þau risaið- gjöld sem íslenskir ökumenn þurfa að greiða stafi af bardaga á götunum, sem sé að fara með okkur. Aðrar þjóðir greiða ekkert í líkingu við okkar ið- gjöld. RÚV skammtar fréttir Stórviðburðir eiga sér stað suður við Persaflóa á degi hverjum. Það vekur athygli að á sama tíma og frjáls sjón- varpsstöð, Stöð 2, sendir út linnulaust fréttefni frá svæð- inu, er ríkisstöðin farin að skammta fréttirnar. Evrópskir þingmenn hræddir Á þingmannafundi Evrópu- ráðsins fyrir skömmu kom í Ijós ótti evrópskra þingmanna við beinan stuðning við Eystra- saltsríkin. Eiður Guðnason, al- þingismaður, fann vel fyrir þessum ótta erlendra starfs- bræðra. Forystumadur í fremstu víglínu innan Sjálfstœdisflokksins: DAVÍÐ MIIN EKKIFARA FRAM Framámenn innan Sjálf- stæðisflokksins sögðu í viðtölum við Alþýðuflokk- inn í gærkvöldi að búast mætti við að framboðsmál Davíðs og Þorsteins mundu gerjast fram eftir vikunni. Sumir töldu að Davíð mundi klippa á allt tal um framboð af sinni hálfu — af flokksheilind- um einum saman. „Þeir sem nú standa í að koma Davíð á framfæri sem formannsefni eru aliflestir Reykvíkingar, frjálshyggju- menn sem stóðu að framboði Guðmundar Magnússonar í prófkjörinu. Þeir ráða ekki ferðinni nema að sáralitlu leyti. Þeir hafa ekkert heyrt í „landinu", fulltrúum flokks- ins um land allt. Þeir mega vita að tónninn utan af landi veröur sá sami og hjá Einari Oddi Kristjánssyni á Stöð 2. Þeir vilja frið um formann- inn,“ sagði einn þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðismenn sem rætt var við töldu áróðurinn gegn Þorsteini innan flokksins hafa farið úr öllum böndum, og hann hefði verið rekinn skefjalaust um alllanga hríð með það fyrir augum að koma honum frá formennsk- unni. Það mun alveg ljóst að margir af forystumönnum flokksins eru lítt hrifnir af því að Davíð hyggist velta núverandi formanni, Þor- steini Pálssyni, úr sessi. Sam- kvæmt heimildarmanni blaðsins, sem vel þekkir til innan Sjálfstæðisflokksins, vinnur „Eimreiðargengið" að kjöri Davíðs sem formanns og samkvæmt DV í gær eru ungir sjálfstæðismenn farnir að safna undirskriftum til að skora á Davíð að gefa kost á sér í formannssætið. Fyrr í mánuðinum birti Stöð 2 skoðanakönnun þar sem spurt var hvort viðkom- andi treysti Þorsteini eða Davíð betur til að leiða Sjálf- stæðisflokkinn tii stórsigurs í næstu kosningum. Sam- kvæmt niðurstöðum könnun- arinnar treystu mun fleiri Davíð til slíks. Talið er að stuðningsmenn Davíðs hafi staðið að baki þeirri könnun. í fyrri viku gagnrýndi Vík- verji í Morgunblaðinu harð- lega fréttaflutning Stöðvar 2 í þessu máli og er það talið vís- bending um að Morgunblað- ið sé lítt hrifið af hugsanleg- um formannsslag. Davíð hef- ur hins vegar ekki svarað því af eða á hvort hann hyggist gefa kost á sér í formanns- embætti Sjálfstæðisflokksins. Tómas Andrésson loðnusjómaður hampar silfri hafsins. A-mynd: E.ÓI. * Astandid á loðnunni eins og það á aö vera: MOKVEIÐI Á LOÐNU Mjög gód veidi hefur ver- ið hjá loðnuskipunum við Suðurland síðustu daga. Verksmiðjurnar bjóða nokkuð mismunandi verð, eða allt frá rúmum 5000 þúsundum og niður í 3600 þúsund fyrir tonnið. Sjó- menn segja að nóg sé af loðnu en nú hafa rúmlega 80 þúsund tonn borist á land, þar af 21 tonn vegna tilraunaveiða. Aðalveiðisvæðið hefur ver- ið frá Knarrarási, rétt austan við Stokkseyri, að Vest- mannaeyjum. Loðnan hefur gengið hratt vestur með land- inu en sunnan og suðaustan- áttir hafa verið ríkjandi við Suðurland undanfarið. Kristbjörn Árnason, skip- stjóri á aflaskipinu Sigurði, sagði að loðnan væri núna á nánast sama stað og fyrir tveim árum og ástandið væri ekki á neinn hátt óvenjulegt, og ekkert væri nýtt við það að hún færi 15—20 mílur á sólarhring þegar kominn væri þessi tími. Alþýðublaðið hafði í gær- kveldi samband við Erling Pálsson, stýrimann á Víkingi frá Akranesi. Þeir voru þá á landleið með fullfermi, um 1300 hundruð tonn sem þeir höfðu fengið í fimm köstum undan Krýsurvíkurbjargi. Er- ling sagði að núna væri ástandið á loðnuveiðunum eins og menn hefðu átt að venjast hér á árum áður, ann- ars væri greinilega ekki hægt nema að litlu leyti að segja til um hegðun hennar. RITSTJÓRN (D 625566 - 625538 • FAX 627019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR © 625566

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.