Alþýðublaðið - 20.02.1991, Page 3
Miðvikudagur 20. febrúar 1991
3
INNLENDAR FRÉTTIR
FRÉTTIR
IHNOTSKURN
NÆR OBREYTT VISITALA: Hagstofan hefur reiknað
vísitölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi um miðjan
febrúar. Reyndist hún vera 177,1 stig, eða 0,2% hærri en
í janúar. Þessi vísitala gildir fyrir mars. Síðastliðna 12 mán-
uði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,3%.
Síðustu þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,7% og
samsvarar það 7,1% árshækkun.
BREF FRA SYLVIU A FJALIRNAR: Nú eru æfingar
langt komnar á áhrifamiklu bandarísku leikriti, Bréf frá
Sylvíu, sem frumsýnt verður á Litla sviði Þjóðleikhússins
1. mars. Höfundur er Rose Leiman Goldemberg og byggir
hún verkið á fjölda sendibréfa sem skáldkonan Sylvia
Plath skrifaði fjölskyldu sinni frá menntaskólaárum til
dauðadags. Sylvia fæddist í Boston 1932, hélt til framhalds-
náms í Englandi og giftist þar Ted Hughes, sem nú er lávið-
arskáld Breta. Hún svipti sig lífi árið 1963. Höfundur lýsir
harmrænu hlutskipti skáldkonunnar, vonum hennar og
draumum og tilfinngaríkum samskiptum Sylvíu og móður
hennar, Aurelíu Plath. Það eru Helga Bachmann og Guð-
björg Thoroddsen sem fara með hlutverk mæðgnanna en
leikstjóri er Edda Þórarinsdóttir og er þetta í fyrsta sinn
sem hún leikstýrir í Þjóðleikhúsinu. Tónlist samdi Finnur
Torfi Stefánsson, Gunnar Bjarnason hannaði leikmynd, en
sviðshreyfingar annaðist Sylvia von Kospoth og Ásmund-
ur Karlsson lýsingu. Guðrún J. Bachmann þýddi leikritið
og Sverrir Hólmarsson þýddi fjögur ljóð Sylvíu sem flutt
eru í leiknum.
HÁSKÓLAHÁTÍÐ Á LAUGARDAG: Brautskráning
80 kandídata fer fram á Háskólahátíð í Háskólabíói klukk-
an 14 á iaugardag. Athöfnin hefst með því að Auður Gunn-
arsdóttir, sópran, og Ragnar Davíðsson, baríton, syngja við
undirleik Kolbrúnar Sæmundsdóttur, píanóleikara. Há-
skólarektor, dr. Sigmundur Guðbjarnason, ávarpar kandíd-
ata og síðan afhenda deildarforsetar prófskírteini. Flestir
kandídata eru brautskráðir með B.A.-próf í félagsvísinda-
deild, eða 20, og 18 með B.A.-próf í heimspekideild. Að
lokum syngur Háskólakórinn nokkur lög undir stjórn Fer-
enc Utassy.
TAKMARKAÐ ÞORRABLÓT: Borgaraflokkurinn í
Reykjavík auglýsir þorrablót flokksins í Drangey við Síðu-
múla á laugardagskvöldið. Aðgangur að blótinu er seldur
á 2.800 krónur sem þykir hagstætt á þessum síðustu og
verstu. Sá böggull fylgir þó skammrifi að ekki er ætlast til
að f lokksmenn eða aðrir f jölmenni á blótið því það er skýrt
tekið fram í auglýsingum að miðafjöldi sé takmarkaður.
KJARVAL Á KJAR-
VALSSTÖÐUM: nú
stendur yfir í austursal
Kjarvalsstaða sýning á
verkum eftir Jóhannes
Sveinsson Kjarval úr eigu
safnsins. Sýningin ber yfir-
skriftina „Kjarval og nátt-
úran". Sýnd eru olíuverk,
vatnslitamyndir og teikn-
ingar, sem lýsa stórbrotinni
náttúrusýn meistarans. I
austurforsal hefur verið
komið fyrir sýningarköss-
um með persónulegum
munum Kjarvals, bókum og handritum, ljósmyndum og
skissum, sem gefa innsýn í persónu listamannsins. í tengsl-
um við sýninguna tekur safnkennari á móti skólanemend-
um alla virka daga klukkan 8—16 og er tekið við tímapönt-
unum í síma 26188. Á fimmtudögum milli klukkan 14 og
15 er sérstaklega tekið á móti eldri borgurum.
SAVISAAR í HEIMSÓKN: Edgar Savisaar, forsætis-
ráðherra Eistlands, dvelur hér á landi í dag og á morgun
í boði Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra. í fylgd
með Savisaar er Lennart Meri utanríkisráðherra. Þeir
munu eiga viðræður við íslenska ráðamenn meðan á
heimsókninni stendur.
MEISTARINN A B0K: Mál og menning hefur gefið út
á prenti leikrit Hrafnhildar Hagalín Guðmundsdóttur, Ég
er meistarinn. Það var frumsýnt í Borgarleikhúsinu síðast-
liðið haust og vakti mikla athygli og lof. Á bókarkápu segir
að textinn sé bæði úthugsaður og njóti sín vel á bók. Hrafn-
hildur nemur nú leikhúsfræði í París.
UT I HOTT
— að vera á móti tillögum sjömannanefndar, segirÁrni Gunnarsson alþingis-
maður
„Það er út í hött að
standa gegn svona rót-
tækum tillögum,“ segir
Árni Gunnarsson alþing-
ismaður um tillögur sjö-
mannanefndar um sauð-
fjárrækt. Árni er ekki
sammála Jóni Baldvini
Hannibalssyni, for-
manni Alþýðufiokksins,
sem hefur gagnrýnt til-
lögurnar á þeim forsend-
um að þær gangi ekki
nógu langt og að ekki sé
tekið á frekari vanda
landbúnaðarins. Auk
þess segir Jón Baldvin
að það sé rangt að binda
hendur næstu ríkis-
stjórnar með því að gera
búvörusamning fyrir
þinglok.
„I stórum dráttum hélt ég
að þeir einir gætu verið á
móti tillögunum sem hétu
bændur," segir Árni Gunn-
arsson. Árni segir tillögurn-
ar róttækari en hann hafi
átt von á, en á þeim sé þó
stór ágalli, ekkert tillit sé
tekið til landverndar- og
landgræðslusjónarmiða.
Koma verði í veg fyrir að
stórbændur geti til dæmis
keypt til sín framleiðslurétt
og komið upp bústofni á
jörðum sem ekki þoli beit-
arálag.
Árni telur að 15—20%
allra býla í landinu verði
lögð af, verði farið að tillög-
um nefndarinnar. „Nú
kemur í ljós að öflugur
jarðakaupasjóður, sem ég
hef barist fyrir allar götur
frá 1978 hév á þinginu,
hefði fyrir löngu þurft að
vera kominn til þess að þeir
bændur sem vildu gætu
gengið með reisn frá búum
sínum."
Myndbönd á 70% heimila í landinu:
FLESTIR VILJA
CNN OG SKY
Meira en 70% heimila í
landinu hafa myndbönd,
og tæp 60% hafa aðgang
að Stöö tvö. Ekkert bendir
til að landsmenn horfi
minna á fréttatíma sjón-
varpsstöðvanna þrátt fyrir
tilkomu erlendu frétta-
sendinganna frá CNN og
SKY. Mikill meirihluti
landsmanna, eða tæp 80%,
telur að það hafi veriö rétt
að leyfa þessar sendingar.
Þessar niðurstöður komu
m.a. fram í víðtækri könnun
sem Félagsvísindastofnun
hefur gert til að kanna horfun
á útsendingar erlendu frétta-
stofanna, álit fólks á gæðum
þeirra frétta, skilning lands-
manna, og fleira þessu tengt.
í könnuninni var einnig at-
hugað viðhorf manna til
stöðu tungunnar og vanda
sem hugsanlega steðjaði að
vegna aukinna erlendra
áhrifa. Rúmlega 16% lands-
manna telja að verulegur
vandi steðji að íslenskri
tungu vegna erlendra áhrifa,
en þegar sambærileg athug-
un var gerð 1986 var þétta
hlutfall 21%.
Fram kemur að 40% lands-
manna hafa aldrei horft á er-
lendu stöðvarnar og þeir sem
hafa horft horfa ekki mjög
mikið, eða að jafnaði 20—40
mínútur á kvöldin og 10—20
mínútur á morgnana.
Flestir þeirra sem horfa
telja þessar fréttasendingar
sæmilegar, en fáir lélegar.
Þeir sem horfa telja margir,
eða 41%, að þeir skilji svo til
allt. Sé heildarfjöldi lands-
manna lagður til grundvallar
þýðir þetta að 24% þjóðar-
innar horfi á þessar útsend-
ingar og skilji svo til allt sem
sagt er.
Það þykir nokkuð athyglis-
vert að marktækur munur er
á horfun á erlendu sjónvarps-
stöðvarnar eftir stuðningi við
ákveðna stjórnmálaflokka.
Þannig voru stuðnings-
menn Sjálfstæðisflokks í 87%
fylgjandi því að þessar út-
sendingar hæfust en aðeins
60% þeirra sem styðja
Kvennalistann.
Sambærilegur munur var á
myndlyklaeign fyrir Stöð tvö.
Þannig áttu fylgismenn Sjálf-
stæðisflokks myndlykil í 72%
tilfella en fylgjendur Kvenna-
lista aðeins í 38% tilfella.
80% telja rétt að hleypa CNN og Sky inn í stofu.
A-mynd: E.ÓI.
Samkvæmt þessari könnun
má gera ráð fyrir að á milli
10—15% landsmanna hafi að-
gang að erlendum sjónvarps-
stöðvum í gegnum kapal-
kerfi.
Mikill meirihluti telur
nauðsynlegt að settar verði
skýrar regiur um þýðingar-
skyldu, en aðeins 15% telja
að þýða eigi allt efni skilyrðis-
laust. Menntamálaráðherra
segir að þessar niðurstöður í
heild hafi í sjálfu sér ekki
komið sér á óvart, hann hefði
þó alveg eins búist við meiri
andstöðu við að leyfa útsend-
ingar erlendu stöðvanna.
Könnunin stóð yfir dagana
8. til 12. febrúar og náði til
1500 manna á aldrinum
18—75 ára.
Ölvunarakstur
fer vaxandi
Á síðasta ári gerðu tryggingafélögin endurkröfur á
hendur 154 einstaklingum vegna tjóns sem varð af völdum
ölvunaraksturs, og/eða vegna gáleysis. Alls voru kröfurnar
upp á tæpar 24 milljónir, í langflestum tilfellum, eða 139
af 154, var um ölvunarakstur að ræða.
Umferðarlagabrot ökumanna, t.d. ölvunarakstur, hrað-
akstur o.s.frv., geta valdið ökuleyfissviptingu og refsingu í
formi sektar eða fangelsis. Tjón sem verður á ökutæki tjón-
valds í slíkum tilfellum verður hann einnig iðulega að bera
sjálfur.
Tryggingafélögin eignast endurkröfurétt hafi ökumaður
verið ölvaður eða valdið tjóni af ásetningi eða stórkostlegu
gáleysi.
Að minnsta kosti 25% dauðaslysa í umferðinni má rekja
tll ölvunaraksturs, og um 20% slysa þar sem áverkar eru
alvarlegir.
A-listinn á Yesturlandi
Framboðslisti Alþýðu-
flokksins í Vesturlands-
kjördæmí í komandi þing-
kosningum var ákvedinn á
fundi kjördæmisráðs í
Borgarnesi sl. föstudag.
Áður haf ði farið fram próf-
kjör um skipan tveggja
efstu sætanna á listanum
og urðu þar efsti Eiður
Guðnason í 1. sæti og Gísli
S. Einarsson í 2. sæti. Listi
Alþýðuflokksins á Vestur-
landi verður sem hér seg-
ir:
1. sæti: Eiður Guðnason al-
þingismaður, Reykjavík. 2.
sæti: Gísli S. Einarsson verk-
Eiður Guðnason.
stjóri, Akranesi. 3. sæti:
Sveinn Þór Elínbergsson
kennari, Ólafsvík. 4. sæti:
Guðrún Konný Pálmadóttir
oddviti, Búðardal. 5. sæti:
Ingibjörg J. Ingólfsdóttir
bankamaður, Akranesi. 6.
sæti: Jón Þór Sturluson skrif-
stofumaður, Stykkishólmi. 7.
sæti: Sveinn G. Hálfdanarson
innheimtustjóri, Borgarnesi.
8. sæti: Ingibjörg Steinsdóttir
skrifstofumaður, Rifi. 9. sæti:
Sigrún Hilmarsdóttir hús-
móðir, Grundarfirði. 10. sæti:
Bragi Níelsson læknir, Akra-
nesi.