Alþýðublaðið - 10.12.1992, Side 6
6
Föstudagur 10. desember 1992
Almenna bókalélagið
stórtækt á iólabókavertíðinni
- AB gefur út íslenskt auðmannatal eftir tvo unga sagnfræðinga og suðrœnir saltfiskréttir af
spœnsk/íslenskum toga nema land með aðstoð SIF
íslenskum bókmenntaunnendum
sjálfsagt til mikillar gleði er jólavertíð-
in þetta árið síst minni umfangs en und-
anfarin ár. Mörgum kenningum hefur
verið haldið á lofti vegna hvers þetta
stafar. Ein er sú að við íslendingar sé-
um, þrátt fyrir allt, alveg heilmikil
bókaþjóð. Eftir að brestir tóku að
myndast í múr myndbandamenningar-
innar og þjóðin tók að letjast við að
borga afruglaragjöldin hefur bókin
stöðugt sótt í sig veðrið. Bækumar eru
vissulega mismikið merkilegar enda
mismikið í þær lagt af höfundanna
hálfu. En það er með bækumar eins og
myndböndin og afþreyingarefnið á
stöð númer tvö, innan um fjöldann
leynist alltaf ein og ein virkilega góð,
eða í versta falli áhugaverð... Almenna
bókafélagið, með Pressuforstjórann
Friðrik í fararbroddi, er með nokkur al-
veg hreint ágætis innlegg í jólabóka-
bankann þetta árið. Vafalaust er AB
meðal stórtækustu bókaforlaganna á
því sviði. Athugum neðangreindar
bækur nánar.
Islenskir auðmenn
Höfundar Islenskra auðmanna eru
Jónas Sigurgeirsson (einn af þeim
sem aðstoðuðu Hannes Hólmstein
Gissurarson við Jón Þorláksson forsæt-
isráðherra) og Pálmi
Jónasson (Kristjáns-
sonar á DV). Bókin er
safaríkt upplýsingarit
um vel á annað hundr-
að auðugustu íslend-
ingana, þá sem eiga í
hreinum eignum að
minnsta kosti 200
milljónir króna. Á bókarkápu segir að
viðfangsefnið sé viðkvæmt mál og að
hér sé hulunni svipt af þeirri leynd sem
umlykur auð og peninga. Það er meðal
annars gert með því að greina frá því
hvemig auðæfunum hafi verið safnað.
Höfundamir segja í formála að víða
hafi verið lcitað fanga við gerð bókar-
innar. Stuðst sé við allar opinberar upp-
lýsingar sem liggja fyrir, en þó byggist
upplýsingar bókarinnar ekki síst á við-
tölum við fjölmarga sérfróða aðila,
sem skiljanlega hafa farið fram á nafn-
leynd. Margir af þeim sem um er fjall-
að hafa sjálfir veitt upplýsingar, að
sögn höfundanna. Einhverjir hafa þó
skorast undan og ekki hirt um að leið-
rétta það sem kunni að vera missagt.
í bókinni em fjölmargar myndir af
bæði einstaklingum og mannvirkjum
auk margskonar skýringamynda. (320
blaðsíður. - Verð: 2.995 krónur.)
Jón Þorláksson forsætisráðherra
Höfundur er Hannes Hólmstein
Gissurarson. Þetta er geysimikið rit-
verk og hefur verið afar lengi í smíð-
um. Jón Þorláksson var verkfræðingur
að mennt og sem landsverkfræðingur
var hann brautryðjandi hér á landi í
vegamálum og byggingamálum. Fyrir
Reykvíkinga var hann frumkvöðull í
vatns-, rafmagns- og hitaveitumálum.
Síðan snéri hann sér að
stjómmálum og var
þar samherji Hannesar
Hafsteins.
Jón Þorláksson var
einn af stofnendum
íhaldsflokksins og síð-
ar Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann var fyrsti
formaður síðamefnda flokksins og ráð-
herra fyrir þann fyrmefnda, fyrst fjár-
málaráðherra og loks forsætisráðherra.
Jón endaði feril sinn sem borgarstjóri í
Reykjavík, einhver sá framkvæmda-
samasti og dugmesti sem í því starfi
hefur setið. Líf þessa húnvetnska
bóndasonar var vissulega fjölbreytt. Þó
beindist það allt í eina átt-, að verkleg-
um framkvæmdum og því að vinna
þjóðina út úr húskuldanum, samgöngu-
leysinu og fátæktinni.
Bókin er prýdd fjölda mynda sem
margar hverjar hafa ekki birst áður á
prenti. (600 blaðsíður [!]. - Verð: 3.995
krónur.)
Suðrænir saltfiskréttir
Höfundar þessarar bókar eru Jordi
og Maite Busquets, Sigríður Steph-
ensen þýddi. Þeir bræður í anda og fé-
lagar í fiski: Rúnar Marvinsson og
Úlfar Eysteinsson veittu íslenska ráð-
gjöf og bókin er gefín út í náinni sam-
vinnu við Sölusamband íslenskra
fiskframleiðenda.
Hér fáum við að kynn-
ast því hvemig
spænskir matreiðslu-
snillingar matbúa ís-
lenskan saltfisk. I bók-
inni eru 59 uppskriftir
að saltfiskréttum sem
sýna hversu fjölbreytilegt lostæti má
gera úr þessari framleiðslu landans.
Hvílíkur veislumatur. (92 blaðsíður. -
Verð: 1.492 krónur.)
Benjamín
Skáldsaga eftir Einar Örn Gunn-
arsson. Höfundur er upprennandi rit-
höfundur, sendi frá sér sína fyrstu
skáldsögu árið 1990 og
hlaut hún góða dóma.
Þessi nýja bók gerist í
Reykjavík og fjallar
einkum um listamann-
inn Benjamín og sam-
skipti hans við sögu-
menn. Þetta er merki-
leg persónulýsing og í
senn kímin og harmræn. Listamaður-
inn Benjamín er málgefinn mjög og
nokkuð kæmlaus á yfirborðinu, undir
niðri leynist allt annar maður, allt ann-
ar Benjamín. Áhugaverð saga af furðu-
legum fír. (140 blaðsíður. - Verð: 2.495
krónur.)
Iþróttastjörnur
Viðtalsbók eftir Heimir Karlsson. í
bókinni er rætt við þrjá afreksmenn í
íþróttum; knattspymumanninn Atla
Eðvaldsson, körfu-
boltarisann Pétur
Guðmundsson og
handknattleikshetjuna
Sigurð Sveinsson.
Allir eru þeir í fremstu
röð, hver á sínu sviði,
og allir ]öngu lands-
kunnir. Þeir segja hér
frá lífi sínu, utan vallar sem innan, á
opinn og einlægan hátt. í samtölum við
Heimi Karlsson greina þeir frá mörgu
sem aldrei hefur fram í dagsljósið kom-
ið. Þeir em ófeimnir við að segja skoð-
anir sfnar á ýmsum málefnum sem
varða íþróttahreyfinguna og tjá sig
einnig um mál sem hafa verið ofarlega
á baugi í þjóðfélagsumræðunni. (202
blaðsíður. - Verð: 2.695 krónur.)
Adda
Adda, eftir Jennu og Hreiðar end-
urútgefin. Rebekka Rán Samper
gerði myndir. Öddubækumar hafa not-
ið mikilla vinsælda hjá yngstu kynslóð-
inni. Adda, er fyrsta bókin í þessum
frábæra bókaflokki og
kemur nú út í nýrri út-
gáfu og með myndum
eftir Rebekku Rán.
Hinar Öddubækumar
munu síðan fylgja í
kjölfarið næstu árin,
hver á fætur annarri.
Adda átti í fyrstu
erfiða daga sem munaðarleysingi og
niðursetningur hjá roskinni konu í
Reykjavík. Síðan eignast hún fyrir til-
viljun kjörforeldra - læknishjón - og
flyst með þeim í þorp úti á landi. Þar
lendir hún bæði í vanda og skemmti-
legum ævintýrum. (130 blaðsíður. -
Verð: 1.295.)
Glerfjallið
Ævintýri eftir Aðulstcin Ásberg
Sigurðsson. Myndir eftir Rebekku
Rán Samper. Ný bamabók eftir höf-
und verðlaunabókarinnar Dverga-
steinn, sem kom út í fyrra. Þetta er saga
. um tvo bræður, Halla
GLESfJALUD og Frikka og frænkuna
Gúndínu. Frikki týnist
með dularfullum hætti
og Gúndína og Halli
fara að leita hans. Þau
lenda inni í furðuheimi
þar sem hættur leynast
við hvert fótmál. Þar
kynnast þau blákonum, musteri morg-
undrauganna og óhugnanlegum illfygl-
um, svo eitthvað sé nefnt. (141 blað-
síða. - Verð: 1.295 krónur.
HAGSKYRSLUR
Bækur um landsins gagn og nauðsynjar
Nýlegar útgáfur
EES í tölum
Hagstofa Evrópubandalagsins og Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA, hafa geftð þetta upplýsingarit út. í því er að finna yf-
irlit um mannfjölda og umhverfi, efnahagslíf, atvinnulíf, verðlagsmál, peningamál, samgöngur, menntamál o.fl. Gefnar eru
upplýsingar um einstök lönd EB og EFTA og einnig dregnar saman upplýsingar fyrir EB, EFTA og Evrópska efnahagssvæð-
ið í heild. Ritið kostar 100 krónur.
Statistik utan gránser
I samvinnu við hagstofur hinna Norðurlandanna hefur Hagstofa Islands gefið út geisladisk sem á er gagnagrunnur með nor-
rænu og alþjóðlegu talnaefni. Gagnagrunninum fylgir einnig forrit sem er notað til þess að leita í honum og vinna með talna-
efnið. Hægt er að setja efnið fram á myndrænan hátt, t.d. í súlum, stöplum, sneiðmyndum o.þ.h. Geisladiskurinn kostar 4.000
krónur.
Fyrirtækjaskrá 1992
Hagstofan annast dreifingu hérlendis á Norrænni tölfræðihandbók (Yearbook of Nordic Statistics), sem Norðurlandaráð og
Norræna hagstofan gefa út. í riti þessu er margvíslegur fróðleikur í talnaformi um Norðurlönd og þær þjóðir sem þau byggja.
Handbókin fyrir árið 1992 er um 430 blaðsíður og kostar 2.500 krónur.
Ný útgáfa
Landshagir 1992
í ritinu er að finna mikinn fróðleik um mannfjölda, atvinnuvegi, félags- og heilbrigðismál, menntamál, þjóðarbúskap, versl-
un o.m.fl. Omissandi rit öllum þeim sem vilja fræðast um hag lands og þjóðar. Ritið mun kosta 2.100 krónur.
Vœntanlegar útgáfur
Verslunarskýrslur 1991
í þeim eru ítarlegar upplýsingar um utanríkisviðskipti íslendinga á árinu 1991. Skýrslan hefur verið endurbætt, þannig að nú
er þar að finna texta við öll tollnúmer og gerir það hana mun aðgengilegri en áður. Öllum þeim sem vilja kynna sér viðskipti
okkar við umheiminn er hún ómissandi rit. Skýrslan mun kosta 1.800 krónur.
Kosningaskýrslur
Ut eru að koma skýrslur um Sveitarstjómarkosningamar 1990 annars vegar og Alþingiskosningar 1991 hins vegar. Tekin er
upp sú nýbreytni að gefa út skýrslu um sveitarstjómarkosningar í sérriti, en skýrslan um Alþingiskosningamar er með hefð-
bundnu sniði. Hvort rit mun kosta 500 krónur.
Sveitarsjóðareikningar 1987-1988
Hagstofan hefur gert gangskör að því að koma út skýrslum um sveitarsjóðareikninga og síðan 1990 hafa komið út reikning-
ar sveitarfélaga fyrir árin 1976-1986. í október kom út skýrsla um sveitarsjóðareikninga fyrir árin 1987 og 1988 og um ára-
mót eru væntanlegar skýrslur fyrir árin 1989 og 1990. Sveitarsjóðareikningar 1987-1988 munu kosta 1.800 krónur.
HAGSTOFA ÍSLANDS
Skuggasundi 3, 150 Reykjavfk - Sími 91-609800
mm orn
OUNNARSSÖN