Alþýðublaðið - 17.06.1993, Page 7
Fimmtudagur 17. júní 1993
7
Arfurinn
Jórtas Kristjánsson
dkffitííöftön
Handritaspegill
Jónasar Kristjánsson
„Þessi bók er ekki hvað síst að-
gengileg fyrir ungt fólk sem vill
kynnast nienningararti okkar og
sögu,“ sagði Sigurður Líndal um
nýja og glæsilega bók dr. Jónasar
Kristjánssonar, Handritaspegil.
Handritaspegill veitir innsýn í feg-
urð og glæsileika íslensku handrit-
anna með fjölmörgum litmyndum úr
frægustu fombókunum. Sagt er frá
því hvemig handritin urðu til og gerð
grein fyrir hinum fomu sögum og
ljóðum. Inn í meginmál bókarinnar er
skotið völdum köflum úr bókmennt-
unum, þar á meðal þáttum úr íslend-
ingasögum.
Þá er fjallað um sögu íslensku
þjóðarinnar, stjómskipan og hennar
og menningu, frá landnámstíð og
fram eftir öldum. Einkum er fjallað
um gömlu handritin og þær merku
bókmenntir sem þær hafa að geyma.
Hagleiksverk fomaldar hafa mörg
farið forgörðum en handritin bera
vitni um verksnilli forfeðranna og em
besta heimild sem til er um myndlist
fomaldar. Jafnframt varðveita þau
sögur og ljóð sem em dýrasta arfleifð
okkar og merkasti skerfur norrænna
manna til bókmennta heimsins.
Höfundur bókarinnar, dr. Jónas
Kristjánsson er einn kunnasti fræði-
maður íslands á sviði fomrar sögu og
bókmennta. Hann hefur samið fjöl-
margar bækur og ritgerðir, annast vís-
indalegar útgáfur og þýtt merk rit úr
erlendum málum. I doktorsritgerð
sinni umbylti hann hugmyndum um
aldur fomsagnanna og setti fram nýj-
ar kenningar um upphaf þeirra. Jónas
hefur verið forstöðumaður stofnunar
Ama Magnússonar á íslandi frá 1971.
Þar em varðveitt handritin sem skilað
hefur verið til íslands frá Danmörku.
Handritaspegill er nú gefmn út á ís-
lensku og enskrar þýðingar er að
vænta síðar í sumar. í undirbúningi
em útgáfur á þýsku og frönsku.
Á blaðamannafundi í gær fór
dr. Jónas nokkmm orðum um *“
gerð íslensku fomhandritanna.
Blekið var soðið úr sortulyngi, víði og
mýrasortu og litir í fyrirsögnum og
upphafsstöfum munu með svipuðum
hætti hafa verið gerðir úr íslenskum
plöntum og jarðefnum. Myndskreyt-
ingar íslensku handritanna þykja bera
af því sem þekkist ffá öðmm Norður-
löndum á miðöldum.
Handritaspegill var prentaður í
Odda og ber fslensku prentverki
glæsilegt vitni. Litmyndir em margar
og óaðfmnanlega unnar. Sannkallað-
ur kjörgripur.
Þ
Handiita-
S1II
;fad^R.'irtwr HjprVúraa
IU !
1; ri^nuin^ftnaft jmirtr
Listahátíð í Hafnarfirði
Gluggað í Handritaspegil: Sigurður Lfndal, Þorgeir Baldursson, Jónas Kristjánsson og Sverrir Kristinsson. (A- mynd:
E.ÓI.)
Streymi ’93 í Straumi
Ara-leikhúsið sýnir „umhverfisvœnt“ verk í Listamiðstöðinni í
Straumi við Straumsvík
„Aðstandendur Streymis ’93
taka mið af staðnum við upp-
færslu og samningu verksins auk
þess sem dvalið var á staðnum
um mánaðar skeið við æfingar.
Má því segja sem svo að leikverk-
ið sé „umhverfisvænt“ í þeim
skilningi“, segja aðstandendur
Streymis en umhverfi Straums er
mjög fallegt og sérstakt.
Streymi ’93 verður fmmsýnt á
föstudaginn suður í Straumi og er
hluti Listahátíðar í Hafnarfirði. Það
er Ara-leikhúsið sem sýnir verkið
og fer ótroðnar slóðir við vinnslu
þess. Hefðbundin verkaskipting og
tímasetning leikhúsvinnunnar er
brotin upp á þann hátt að allir helstu
aðstandendur sýningarinnar; rithöf-
undur, leikstjóri og leikarar taka
þátt í vinnuferlinu frá upphafi.
Aðstandendur sýningarinnar
segja að „hópurinn hafi byrjað að
þreifa sig áffam gegnum ýmiskonar
æfingar og spuna; gerði tilraunir og
hugmyndir þróuðust og fæddu af
sér nýjar í gegnurn leikræna tján-
ingu. Þannig vom strengir stilltir
saman og safnað í sarpinn með
fijálsum tilraunum og leit. Hug-
myndir reyndar, teygðar og togaðar
þar til þær tóku á sig heildrænt form
og birtast nú sem fullgert leikverk."
Að þessari sérstæðu sýningu
standa Jón Friðrik Arason rithöf-
undur, Rúnar Guðbrandsson leik-
stjóri, Ámi Pétur Guðjónsson leik-
ari og leikaramir: Steinunn Ólafs-
dóttir, Harpa Amarsdóttir og Anna
E. Borg ásamt fjölda aukaleikara.
RAÐAUGLÝSINGAR
A
LYFJAVERSLUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 6 - 7. 105 REYKJAVÍK
Forval
Framkvæmdadeild I.R. mun á næstunni láta bjóða út endumýjun
innanhúss í Lyfjaverslun ríkisins að Borgartúni 6. í forvali verða
valdir allt að 5 verktakar til að taka þátt í lokuðu útboði í hverjum
verkhluta. Um er að ræða endurbyggingu á u.þ.b. 3.200 m2 svæði
í kjallara og á 1. og 2. hæð auk endurbóta á lagnakerfum.
Forvalsgögn verða seld á kr. 2.500,- m/vsk á skrifstofu Innkaupa-
stofnunar ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík, frá og með föstudeg-
inum 18. júní og til og með þriðjudeginum 22. júní.
Skila skal umbeðnum upplýsingum á sama stað eigi síðar en kl.
15.00 miðvikudaginn 23. júní 1993.
ll\ll\JKAUPASTOFI\IUI\l RÍKISINS
_________Boin.AH r UNI ~ ICf) HEtKlAvlK
Frá Alþýðuflokknum
Skrifstofa Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8-10, verður lok-
uð frá 21. júní til 31. julí vegna sumarleyfa.
Alþýðuflokkurinn -
Jafnaðarmannaflokkur íslands
Fjárhús að Hesti Andkílshreppi, Borgarfirði
Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins, f.h. Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins óskar eftir tilboðum í byggingu fjárhúss
að Hesti Andakílshreppi, Borgarfirði.
Verkið tekur til vinnu við gröft, lagnir, uppsteypu og frágang húss-
ins að utan sem innan. Stærð hússins er um 900 m2.
Verktími er til 1. nóvember 1993.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins,
Borgartúni 7, Reykjavík, til og með þriðjudeginum 29. júní 1993.
Verð útboðsgagna er kr. 12.450,- m/vsk.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins, Borg-
artúni 7, fimmtudaginn 1. júlí 1993, kl. 11.00.
lf\ll\IKAUPAST0FI\IUI\l RÍKISIWS
______ BQHiiAH TUNI • 105 HE.K.'AVIK____
SUMARFERÐ - SUMARFERÐ
Dagsferð 3. júlí Syðri Fjallabaks-
leið
Sumarferð Alþýðuflokksins verður 3. júlí. Farið verður frá Alþýðuhúsinu
í Reykjavík kl. 9.00 stundvíslega. Ekið verður austur í Fljófshlíð og það-
an upp á hálendið. Áð verður á fjöllum í Hvanngili og nesti snætt. Síðan
verður farið heim í Gunnarsholt þar sem starfsemi Landgræðslu ríkisins
verður skoðuð. Þar verður grillveisla um kvöldið.
Verð: fullorðnir 2500 krónur. Börn innan 12 ára 1200 kr.
Miðapantanir og nánari upplýsingar á skrifstofu Alþýðuflokksins sími
29244. Einnig hjá Valgerði sími 29878 og Jóhannesi sími 17488 eftir kl.
17 á daginn.
SAMBAND UNGRA JAFNAÐARMANNA
SAMBANDSSTJÓRNAR-
FUNDUR UM
JAFNRÉTTISMÁLIN
verður haldinn í veitingahúsinu við Bláa Lónið á Suðumesjum
næstkomandi laugardag (19. júní). Fundurinn er opinn öllum ung-
um jafnaðarmönnum og hefst stundvíslega klukkan 11 og mun
honum Ijúka klukkan 16.
Aðalefni fundarins er umfjöllun um stöðu jafnréttismála innan
Sambands ungra jafnaðarmanna og Alþýðuflokksins - Jafnaðar-
mannaflokks íslands.
UNGAR KONUR ERU SÉRSTAKLEGA HVATTAR TIL AÐ
KOMA Á FUNDINN OG HAFA ÁHRIF Á FRAMTÍÐARSKIPAN
ÞESSARA MÁLA INNAN HREYFINGAR ÍSLENSKRA JAFNAÐ-
ARMANNA.
í umfjölluninni á fundinum verður leitað svara við spurningum sem
undanfarið hafa risið innan SUJ og Alþýðuflokksins:
Hver er hin raunverulega staða kvenna innan samtaka okkar? Er
konum mismunað við kosningar í embætti og við stöðuveitingar?
Afhverju eru ekki fleiri konur í háttsettum embættum? Eru konur
tregari en karlar til að taka að sér erfið stjómmálastörf? Ber að taka
upp kynjakvóta í allar stjómir, nefndir og ráð? Hverjar eru framtíð-
arlausnimar?
FUNDURINN ER SEM FYRR SEGIR OPINN ÖLLUM
UNGUM JAFNAÐARMÖNNUM.
Athugið! Á fundinum mun fara fram kosning í trúnaðarstöður inn-
an Sambands ungra jafnaðarmanna.
Fyrir hönd framkvæmdastjórnar SUJ,
Magnús Árni Magnússon -
varaformaður.