Alþýðublaðið - 01.12.1993, Blaðsíða 1
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
Yfirráð yfir Svalbarðasvœðinu
NORÐMENN ÓTTAST AÐ TAPA
MÁLINU FYRIR DÓMSTÓLUM
— segir lektor við lagadeild Háskólans í Osló — Finnland eina ríkið sem hefur
viðurkennt túlkun Norðmanna um yfirráð yfir fiskveiðum við Svalbarða
Gróskutíð á aðventu
— Sumarveður í Eyjafirði
Ætlar að slá
blettinn i dag
„Það tr nijös trúlcgt að ég láti vcrða af því að taka
fram garðsláttuvclina í dag og slái blcttinn, svona í til-
efni af 75 ára afmæli fullveldisins, þó ekki væri nú
annað“, sagði Birkir Skarphcðinsson. kaupmaður í
Amaró á Akureyri í samtali við Alþýöublaðiö í gær.
Réttur Norðmanna til að ráða yf-
ir fiskveiðum við Svalbarða er mjög
óljós og þeir munu reyna að komast
hjá málarckstri við Haag-dómstól-
inn af ótta við að tapa máiinu. Ekk-
ert land nema Finnland hefur við-
urkennt þá túlkun Norðmanna að
þeir hafi yfirráð yfir fiskveiðum við
Svalbarða, segir Geir Ulvstein lekt-
or við lagadeild Háskólans í Osló.
Þetta kont fram í viðtali við Ulv-
stein í fréttaskýringaþætti í norska rík-
isútvarpinu á dögunum þar sem fjallað
var um ftskivemdarsvæðið við Sval-
barða. Landhelgin við Svalbarða er
fjórar sjómílur. Arið 1977 tók Noreg-
ur sér „fiskvemdunarsvæði“ að 200
mílum með heimild í lögum um efna-
hagslögsögu til að vemda fiskistofna
við Svalbarða. Um það hvort réttur
Norðmanna á þessu svæði væri óljós
sagði Geir Ulvstein í lauslegri þýð-
ingu:
Réttur Norðmanna
afar óljós
,Já, þar er rétturinn óljós, því Nor-
egur er ósammála flestum öðmm
löndum varðandi það hvort samning-
urinn gildi í raun um svæðið utan ijög-
urra mílna, það er á svæðinu milli 4 og
200 mílna umhverfis Svalbarða. En
Noregur túlkar þetta þannig að við
höfum yftrráð yfir ftskveiðum þar á
sama hátt og innan 200 mílna lögsög-
unnar út frá ströndum Noregs. Að svo
komnu hefur aðeins Finnland viður-
kennt þessa túlkun Norðmanna. Flest
ríki gera sem sagt fyrirvara varðandi
þessa túlkun Norðmanna. Fyrmm
Sovétríkin og Bretland hafa beinlínis
andmælt þessari túlkun Norðmanna
og haldið því fram að Svalbarðasamn-
ingurinn sem felur í sér jafnrétti verði
einnig að gilda á 200 mílna vemdar-
svæðinu. Ef aðrar þjóðir myndu knýja
fram alþjóðaákvörðun í þessu máli
með veiðum í mótmælaskyni myndi
það falla í hlut Haag dómstólsins að
dæniá um réttinn til ftskveiða um-
hverfis Svalbarða."
Noregur gæti
tapað málaferlum
í framhaldi af þessu var Geir Ulv-
stein spurður hvort hann teldi að Nor-
egur færi varlega í þessu máli af ótta
við að tapa málinu ef það færi fyrir
dómstólinn í Haag. Ulvstein sagðist
telja að Noregur rnuni reyna að kom-
ast hjá málarekstri við Haag-dómstól-
inn. Það sé hætta á að ntálið tapaðist í
þeim skilningi að dómstóllinn gæti
sagt að samningurinn gilti á 200 rnfina
svæðinu. Það þýddi reyndarað Noreg-
ur gæti sett reglur og framfylgt þeim á
svæðinu en þessar reglur yrðu allan
tímann að grundvallast á jafnrétti mis-
munandi þjóða.
Geir Ulvstein var þá spurður hvort
það væri þá á veikum grunni sem
Norðmenn rækju fiskiskip annarra
þjóða frá Svalbarðasvæðinu. Hann
svaraði því til að skiptar skoðanir
væru um það hvort samningurinn gilti
á 200 mfina svæðinu þannig að Nor-
egur gæti skírskotað til lagalegra sjón-
armiða. Það væri mikill efi um að
Noregur hefði rétt fyrir sér í þessu
máli.
Kkkert samband á
milli samnings og kvóta
í útvarpsþættinum var einnig rætt
við Ingvard Havnen, blaðafulltrúa
utanrfkisráðuneytisins. Hann sagði
sjónarmið Norðmanna skýr hvað
varðar yfirráðaréttinn yfir þessu
vemdarsvæði umhverfis Svalbarða.
Þótt fjöldi landa hefði ekki viðurkennt
hann formlega hefðu þau gert það í
reynd með því að ögra ekki norskum
yfirráðum á svæðinu.
Hann sagði ekkert við því að segja
ef Islendingar vildu verða aðilar að
Svalbarðasamningnum og skapa þar
með grundvöll fyrir að gera samning
við Norðmenn um fiskveiðar. Hins
vegar væri ekkert samband milli þess
að skrifa undir samninginn og þess að
fá norskan fiskveiðikvóta.
fslendlngar óttast
sjálflr Haag-dómstóIInn
Ingvard Havnen var spurður hvort
Islendingar gætu fengið fiskveiði-
samning eins og Grænlendingar ef
þeir beittu nógu miklum þrýstingi.
Hann kvað nei við því. Samningurinn
við Grænlendinga væri tvíhliða þar
sem norskir sjómenn fengu einnig til-
tekin réttindi á grænlensku hafsvæði.
Staðan væri því ekki endilega. sam-
bærileg.
Fréttamaður norska ríkisútvarpsins
bætti því við að íslendingar óttist
reyndar líka Haag-dómstólinn á sinn
hátt. Þeir hafi í raun aldrei viðurkennt
rétt dómstólsins til að dæma í slíkum
málum og hafi kallað dómstólinn hóp
gamalmenna þegar þeir færðu sjálfir
út fiskveiðilögsöguna á áttunda ára-
tugnum. Af ótla við að réttindi sem
þeir hafi öðlast verði afturkölluð kvíði
þeir því að þurfa að stefna Noregi fyr-
ir dómstólnum í Haag.
Hann sagði að hann hefði skilið við túnbiettinn við
heimili sitt snöggslcgið í haust, nú væri grasið vel grænt
og bletturinn orðinn kafloðinn og löngu tilbúinn undir
slátt.
Hlý sunnangola hefur leikið unt Akurcyringa síðustu
dagana, og hitinn komst hæst upp í 15 gráður um helgina,
í fyrradag var 10 stiga hiti og var heldur að færast í eðlilegt
horf í gær, það var Iteldur að kólna, en {xi ekki umutlsverí.
Birkir sagði að tíðin í haust hefði verið til ntuna bctri en
í júlfmánuði og cinstaklcga blíð, cinskonai' uppbót á ótíð-
ina sem var í sumar fyrir norðan.
Þegar jólamánuður rennur upp er semsagt gróskutíð
víða um land og í Eyjafiiði kom upp sinueldur á einum bæ
í gærmorgun. Náttúran er með ölltt óútreikníinleg.
Er f jallkonan
frjáls eða fjötruð?
Jón Baldvin og Guðbergur
halda framsögurœður á
fullveldishátíð í London
A fullvcldishátíð íslendingafélagsins í London á
laugardaginn munu þeir Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra og Guðljergur Bergsson rithöfund-
ur flytja aðalræður kvöldsins. Yfirskrift umfjöllunar-
efnis þeirra er Fullveldi í 75 ár: FrjáLs þjóð eða íjötr-
uð? Hátíðargcstum gcfst kostur á að taka þátt í um-
raeðum að loknum framsöguerindum.
Fjölmargir hafa tilkynnt þátttöku á fúllveldishátfðmni.
Auk þeiiTa sem búsettir eru í Lundúnum og nágrenni
koma gestir lrá norðurhluta Englands, Frakklandi og ís-
landi. Fjölmargir listamenn koma frani en þessi dagskrá er
iokin á röð íslcnskra listviðburða í London og Essex sem
hófst 4. nóvember og á fjórða tug íslenskra Iistantanna tók
þátt í. Fullveldishátíðn fer fram á Regent London hótelinu.
Kentucky Frled Chlcken
Faxafeni 2 • S: 680588
Hjallahrauni 15 • S: 50828
Shellskálanum Selfossi • S: 98-23466
Dæmi l: Pakki fyrir 4, kr. 1844 461 kr. á mann*
Dæmi 2: Pakki fyrir 6, kr. 2606 434 kr. á manir
Dæmi 3: Kjilklingaborgari og franskar kr. 440
*2 bitar, franskar, sósa, salat á mann.
Bílalúga
Opið frá ll-22