Alþýðublaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 15. desember 1993
NEYTENDUR, SKAGINN & BJARTSÝNI
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Neytendasamtökin vara við blekkjandi upplýsingum
verslana um afborgunarverð
Odýrara að borga
hlutinn út í hönd
Ekkert út og restin á 24 mánuðum! - verslanir með gylliboð freista, en afborganir kosta mikið fé. Besta leiðin cr að safna fyrir hlutunum og borga
út í hönd - gegn góðum afslætti. Teikning: Sigurður Valur-Neytendablaðið
Lög urn neytendalán
eru ekki farin að virka
sem skyldi í verslunum
þar sem boðið er upp á
afborgunarkaup, segir
Neytendablaðið.
Kaupmenn kvarta og
segja lögin óljós og ill-
framkvæmanleg og að
yfirvöld hafi enga til-
raun gert til þess að
leiðbeina um fram-
kvæmd laganna.
Neytendablaðið birtir
raunveruieg og nýleg
dænti um kaup gegn af-
borgunum. Dæmi er
tekið af þvottavé) sem
kostar 96.369 krónur í
staðgreiðslu. Afborgun-
arverðið er sagt 105.600
krónur í versluninni,
rúmlega 9 þúsund krón-
ur kostar að fá hlutinn
lánaðan í sex mánuði,
útborgun engin. Blaðið
segir að afborgunar-
verðið sé þó fjarri öllu
lagi, þvottavélin verður
dýrari en þetta.
I rauninni kostar
þvottavélin 113.694
krónur gegn áðumefnd-
um afborgunarkjörum.
Fjármagnskostnaður
kaupandans er þvf
17.325 krónur á aðeins
hálfu ári. í versluninni
hefur kaupmaðurinn að-
eins reiknað sín gjöld
vegna lántökunnar, en
sést yftr lántökugjöld,
vexti, greiðsluseðla,
gerð skuldabréfs og
fleira.
Því má bæta við að
komi fólk í verslun nteð
staðgreiðslu fæst iðu-
lega góður afsláttur, 5 til
10% ef fólk kann að
prútta. Kaupmaðurinn
sér yfirleitt hag í að gera
út um kaupin þegar
hann sér trygga stað-
greiðslu. Ef gert er ráð
fyrir 5% afslætti af
hlutnum, í þessu tilviki
þvottavélin á 96.369
þýðir það að vélin lækk-
ar um 4.818 krónur og
kostar þá 91.551 krónu.
Hin aðferðin, að fá hlut-
inn og borga á hálfu ári,
er því hvorki meira né
minna en 22.143 krón-
um dýrari en stað-
greiðslan. Það er því
ljóst að það borgar sig
að eiga fyrir því sem
kaupa skal. Stundum
getur verið betra bíða,
að leggja fyrir og kaupa
seipna.
I Neytendablaðinu er
tekið dæmi af manni
sem fór í verslun í októ-
ber og keypti litasjón-
varp. Tilgreint „afborg-
unarverð" var 109.950
krónur. Maðurinn
keypti sjónvarpstækið
með afborgunum til 18
mánaða með jafnmörg-
um gjalddögum.
Verslunin var illa í
stakk búin með upplýs-
ingar um hin nýju lög
um neytendalán sem þá
höfðu tekið gildi. Samd-
ist svo um að maðurinn
fékk nótu fyrir kaupun-
um og skyldu nánari
upplýsingar sendar í
pósti síðar, þegar málin
skýrðust. A nótunni seg-
ir að verð tækisins sé
109.950 krónur, auk
þess er tilgreindur
kostnaður, 2.199 krón-
ur.
Þegar verslunin hafði
reiknað allan kostnað
kom í Ijós að verðið á
tækinu var ekki 109.950
krónur eins og „afborg-
unarverðið“ var tilgreint
í búðinni. Verðið var
nefnilega 129.149 krón-
ur. Kaupandinn vissi að
tækið yrði dýrara en á
nótu hans stóð. En hon-
um varð hinsvegar ekki
um sel þegar hann sá að
fjármagnskostnaður
hans af kaupunum var
korninn í rétt um 20 þús-
und krónur. Maðurinn
vildi rifta samningnum,
en verslunin kom til
móts við hann og felldi
niður stóran hluta kostn-
aðarins.
Bifreiðaskoðun
áfram á Skaganum
*
- Bifreiðaskoðun Islands dregur til baka
ákvörðun um að loka skoðunarstöðinni
á Akranesi
Akurnesingar munu áfram njóta þjónustu Bifreiðaskoðunar íslands,
en þurfa ekki að aka til Borgarness til að láta skoða bfla sína, eins og til
stóð. Þetta kemur fram í bréfi frá Karli Ragnars, forstjóra Bifreiða-
skoðunar Islands til Gísla Gíslasonar, bæjarstjóra á Akranesi, í fyrra-
dag.
„Eg var ekki nema hæftlega bjartsýnn á að ákvörðuninni um að loka skoð-
unarstöðinni hér á Akranesi yrði snúið til baka. Nú hefur það verið gert og að
sjálfsögðu eru bæjarbúar allir afar ánægðir með þá niðurstöðu“, sagði Gísli
Gíslason, bæjarstjóri, í samtali við Alþýðublaðið í gær. Hann sagði að kostn-
aður Akumesinga vegna aksturs í Borgames hefði orðið 12 milljónir króna í
það minnsta.
Karl Ragnars segir í bréfi sínu til bæjarstjóra að Bifreiðaskoðun hefði vit-
að af vilja heimamanna að koma á fót skoðunarstöð á Akranesi. Bifreiða-
skoðun teldi eðlilegt að rýma fyrir slrku framtaki. Því hefði staðið til að loka
á Akranesi, enda teldi fyrirtækið samkeppni æskilega. Hinsvegar hefði orð-
ið vart við megna óánægju bæjarbúa, gagnstætt því sem ætlast var til, auk
þess sem svo virtist sem stofnun skoðunarstöðvar á vegum Ólafs Óskarsson-
ar, bifvélavirkja, og fleiri Akumesinga, virtist ekki lengur í myndinni.
Járnblendifélagið á Grundartanga -
BJARTSÝNI
Starfsmönnum þakkaður
góður órangur í rekstri
Stjórn íslenska járnblendifélagsins hf. á Grundartanga hefur ályktað
um þann góða árangur sem náðst hefur undanfarið við að koma rekstri
fyrirtækisins á réttan kjöl og þann áfangasigur sem í því felst. Starfsliði
járnblendisins er þakkaður hlutur þess í þeirri aðgerð.
Eftir skelftleg tapár í rekstri tókst að snúa hjólinu við og nú lítur út fyrir að
hagnaður verði af rekstrinum á Gmndartanga, trúlega á bilinu 70-100 millj-
ónir króna á þessu ári. Auk þess hafa skuldir upp á nærri 200 milljónir verið
greiddar. Að baki þessum árangri er ýmiskonar hagræðing og aðgerðir af
ýmsu tagi.
Tekist hefur að lækka hráefnakostnað um 120 milljónir, afsláttur af orku-
verði skilar nærri 150 milljónum, lækkun launa- og starfsmannakostnaðar
röskum 90 milljónum króna og annars konar kostnaðarlækkanir metnar á 30
milljónir.
Auk þessarar lækkunar á kosmaði upp á 390 milljónir hafa afurðir fyrir-
tækisins á erlendum mörkuðum hækkað í verði eins og kunnugt er.
Þeir í jámblendinu horfa fram á veg og em að vonum bjartsýnir. Gert er ráð
fyrir mun betri afkomu á næsta ári, talað er um hagnað allt að 350 milljónum
króna, að mestu vegna hærra verðlags á afurðum. Stafar sú hækkun einkurn
af vemdaraðgerðum fyrir þennan iðnað í Bandaríkjunum og Evrópubanda-
laginu. Sá gmnnur verður að teljast ótraustur, en kemur jámblendifélaginu að
gagni að óbreyttu. Niðurgreiðsla skulda á næsta ári á að nema 400 milljónum
króna.
Endurljármögnun íslenska jámblendifélagsins hf. er nú lokið. Auk hlut-
hafa, sem lögðu félaginu til nýtt hlutafé, veittu Landsbanki íslands, Iðnþró-
unarsjóður og að hluta til Norræni fjárfcstingarbankinn þá fyrirgreiðslu, sem
þurfti til að endurgreiðslubyrði lána yrði fyrirtækinu viðráðanleg og rekstrar-
fé nægilegt til framhaldandi rekstrar.
Jólagjöf
jeppamannsins
fæst hjá
Vagnhöfða23 • Póstnúmer: 112 Reykjavík • Sími 91-685825