Alþýðublaðið - 24.02.1995, Qupperneq 19
HELGIN 24.-26. FEBRÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
19
Föstudaginn 24. febrúar verður hinn glæsilegi veitingastaður Lefolii vígður á Eyrarbakka
„Það er allt hægt á Islandi"
- segir Þórir Erlingsson, 21 árs veitingamaður.
„Auðvitað er ég bjartsýnn. Það er
allt hægt á íslandi,“ sagði Þórir Er-
lingsson veitingamaður, þegar Al-
þýðublaðið leit við hjá honum á Eyr-
arbakka á dögunum. Þórir, sem er 21
árs, var þá að vinna með harðsnúnu
liði að gagngerum endurbótum á
húsnæði sem verður vígt á föstudag-
inn. Þarmeð eignast Eyrbekkingar
fyrsta flokks veitingahús á tveimur
hæðum, með fallegu útsýni yfir
ströndina. Þórir er brautskráður frá
Hótel- og veitingaskólanum. Með-
eigandi hans að Lefolii er Katrín
Ósk Þráinsdóttir, tvftug að aldri.
En hvaðan er þetta framandi nafn
- Lefolii? „Hér var danskur kaup-
maður með þessu nafni. Okkur þótti
nafnið gott,“ segir Þórir. Eyrarbakki
var lengi einn helsti verslunarstaður
Islands og Lefolii var umsvifamikill
á sínum tíma.
Þórir og Katrín Ósk munu bjóða
uppá fjölbreyttan matseðil á efri hæð
hússins. Mest áhersla verður lögð á
fískrétti, en einnig á pizzur, pasta og
kjöt. A sunnudögum verður boðið
uppá kökuhlaðborð.
Neðri hæðin verður tekin í notkun
á föstudaginn, og sú efri fyrir páska.
A neðri hæðinni verður kráar-
stemmning, en þar verður líka boðið
uppá ýmsa smárétti. Þá mun Lefolii
taka að sér að sjá um veislur og
mannfagnaði, ekki bara á staðnum
heldur líka útí bæ. „Við stefnum að
því að geta reddað öllu,“ segir Þórir.
Hann segir að Eyrbekkingar haft
tekið því mjög vel þegar hann ákvað
Katrín Ósk og Þórir voru í vikunni
að leggja lokahönd á neðri hæð
hins nýja veitingastaðar, og fengu
dygga aðstoð. A-mynd.E.ói.
Lefolii er til húsa í fallegu gömlu timburhúsi á Eyrarbakka, þarsem gott
útsýni er yfir ströndina. A mynd:E.ói.
„Hér er um að ræða heildar-
könnun á gæðum umhverfis á
Suðurlandi. Gæði neysluvatns,
bæði í dreifbýli og þéttbýli, verður
kannað og einnig mál eins og
fráveitu- og sorpmál,“ segir Birgir
Þórðarson, heilhrigðisfulltrúi Suð-
urlands, í samtali við Alþýðublaðið
um átakið „Hreint Suðurland"
sem stendur til að hrinda af stað á
Suðurlandi von bráðar.
Birgir sagði mikla þörf á úrbót-
um í þessum málum og þá sérstak-
lega í sambandi við neysluvatn
sem mætti víða vera betra. „Vatn-
ið sjálft er gott en málið er að það
er hreinlega skemmt á leiðinni.
Frágangur vatnsbóla er lélegur og
lagnakerfi geta verið slæm sem
þýðir að þegar vatnið er komið í
kranann, þá er það allt að því
óneysluhæft.“
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
hefur í samvinnu við nokkur sveit-
arfélög á Suðurlandi unnið að for-
athugun vegna könnunarvinnu
sem þessari. Niðurstöðurnar
liggja nú fyrir og þykja þær styðja
nauðsyn þess að unnið verði að
slíkri könnun fyrir allt Suðurland.
Birgir sagði ekki meiri þörf á
þessu átaki á Suðurlandi frekar en
á öðrum stöðum landsins heldur
væri hér um frumkvæði þcirra á
Suðurlandi að ræða. Samkvæmt
Birgi mun átakið kosta um 15 til
16 milljónir króna sem verða að
meginhluta greitt af þeim sveitar-
félögum sem að verkinu standa.
Þá mun Umhverfisráðuneytið
leggja fram tvær miljónir króna.
Birgir sagði að hinsvegar hefði
komið á óvart að landbúnaðarráð-
herra hafi ekki sýnt þessu máli
neinn áhuga.
„Það er Ijóst að nauðsynlegt er
að vinna að umræddu verki, með-
al annars vegna þróunar í at-
vinnumálum, til dæmis matvæla-
vinnslu, ferðaþjónustu og land-
búnaði í framtíðinni,“ sagði Birg-
ir.
Birgir sagði að lokum að átakið
yrði framkvæmt með upplýsinga-
öflun, meðal annars með sýnatöku
og greiningu á neysluvatni, skil-
greiningu á núverandi ástandi og
aðgerðum til úrbóta.
Meðai þess sem er til sölu i Grænu
greininni eru Barbídúkkur á ís-
lenskum búningi. A-mynd: E.ÓI.
við litla verslun sem móðir okkar,
Helga Guðmundsdóttir, sér um
rekstur á. Þar eru seldir þessir tré-
munir og tréleikföng sem ég hanna
og framleiði ásamt öðrum munum,“
sagði Svanur Ingvarsson.
I versluninni Græna greinin má
sjá ótrúlega fjölbreytt úrval muna frá
listfengu handverksfólki á Suður-
landi. Munimir eru unnir úr ull, tré,
grjóti og leir. Þar em málverk, skart-
gripir og Iistaverk máluð á silki, tré
og þar fram eftir götunum. Svanur
sagði að þama hefðu verið lífleg við-
skipti fyrir jólin og nú biðu menn
spenntir eftir að sjá viðtökur ferða-
manna í sumar. Sá fjöldi fólks sem
framleiddi gripi og seldi í umboðs-
sölu í versluninni sýndi að margir
byggju yfir listfengi og hæfileikum
til að framleiða muni sem menn
vildu eignast. Þetta fólk hefði beðið
eltir tækifæri til að koma fram-
Svanur Ingvarsson: Hannar og framleiðir leikföng og smáhluti úr tré.
A-mynd: E.ÓI.
leiðslu sinni á markað og nú væri
það tækifæri komið.
Aður en Svanur slasaðist hafði
hann tekið virkan þátt í íþróttum og
hélt því áfram þrátt fyrir fötlunina.
Hann segir reynslu sína í íþróttum
hafa hjálpað sér mikið til að takast á
við fötlunina og nýta þá möguleika
sem fyrir hendi em. Fjölbreyttar
íþróttir standi fötluðum til boða og
það sé um að gera að leggja ekki ár-
ar í bát þótt menn verði fyrir því
áfalli að fatlast. Svanur smíðaði sér
handknúið reiðhjól sem vakið hefur
mikla athygli og hann hefur hug á að
smíða fleiri hjól og önnur hjálpar-
tæki fyrir fatlaða.
„Hjólið hefur reynst mér vel til að
halda mér í þjálfun og sem tóm-
stundagaman. Eg hef áhuga á að
framleiða fleiri hjól því þetta hefur
vakið áhuga hjá fötluðum. A keppn-
isferðum erlendis hef ég líka séð
ýmis hjálpartæki fatlaðra sem ég hef
hug á að framleiða hér. Eg er með
ýmsar hugmyndir í kollinum á því
sviði. Ég vil endilega geta þess að
Framkvæmdasjóður fatlaðra hefur
stutt ntig vel í framhaldi af því að ég
smíðaði þetta handknúna reiðhjól.
Ég er hef líka hug á að smíða sleða
og fleira sem fatlaðir geta notað. Það
er margt í gerjun hjá mér,“ sagði
Svanur Ingvarsson.
að ráðast í þetta fyrirtæki. „Fólkið er
ánægt að fá sinn hverfispöbb. Það
koma líka mjög margir ferðamenn til
Eyrarbakka allan ársins hring. Núna
síðustu daga hef ég talið tjórar rútur
sem hafá rennt í gegnum bæinn.
Auðvitað er langmest um ferðamenn
yfir sumarið, og þá verður áreiðan-
lega nóg að gera. En það verður opið
allt árið.“
Aðspurður segist Þórir ekkert
smeykur við að setja á laggimar fyr-
irtæki á erfiðum tímum. „Maður er
einfaldlega að búa sér til vinnu. Það
þýðir ekkert annað en að reyna. Ég
hef lika fengið gífurlega mikinn
stuðning frá íjölskyldunni. Allir eru
boðnir og búnir að hjálpa.“
Þórir er fæddur og uppalinn á Eyr-
arbakka, og segist hvergi annarsstað-
ar vilja búa. „Mamma vill oft halda
því fram að ég sé alveg rosalegur
Eyrbekkingur," segir hann og brosir.
„Hér er gott að búa. Maður þekkir
alla í plássinu - mér þætti alveg von-
laust að búa í blokk í Reykjavík þar-
sem maður þekkir engan.“
Semsagt: Lefolii verður til í slag-
inn klukkan tíu á föstudagskvöldið.
„Hreint Suðurland“
Vatn er
sums stað-
ar óneyslu-
hæft
- segir Birgir Þórðarson,
heilbrigðisfulltrúi Suður-
lands. Heildarkönnun á
gæðum umhverfisins.
Kostnaður 18 milljónir. Um-
hverfisráðuneytið leggur
fram tvær milljónir en land-
búnaðarráðuneyti ekki
krónu.
Helga Guðmundsdóttir í versluninni með haglega gert kirkjulíkan.
A-mynd: E.ÓI. ________________________________
Verslunin Grœna greinin á Selfossi
Selur listmuni
handverksfólks
á Suðurlandi
Einn af framleiðendunum er Svanur Ingvarsson sem hyggur
einnig á smíði hjálpartækja fyrir fatlaða.
„Ég smíða hér á verkstæðinu leik-
öng úr tré og ýmsa smáhluti sem
tu til sölu í versluninni Græna
;reinin sem opnuð var í nóvember.
>ar eru einnig seldur ýmis konar
íeimilis- og listiðnaður sem hand-
'erksfólk hér á Suðurlandi framleið-
r heima hjá sér úr íslenskum hráefn-
im. Þetta er ákaflega spennandi
'erkefni og það eru yfir 40 framleið-
:ndur sem hafa vöru sína í umboðs-
ölu hér í búðinni,“ sagði Svanur
ngvarsson á Selfossi í spjalli við
Uþýðublaðið.
Svanur slasaðist illa þegar hann
'ar 26 ára að aldri með þeim afleið-
ingum að hann er lamaður fyrir neð-
an mitti. Hann hefur hins vegar ekki
látið þá fötlun aftra sér frá þátttöku í
atvinnulífinu eða íþróttum. Svanur
keppti í sundi á Olympíuleikunum í
Barcelóna og í sleðastjaki á vetrar-
Icikunum í Lillehammer.
„Fyrir einu ári keyptum við
Þröstur bróðir minn húsnæði af
Selfossbæ og komum þar fyrir tré-
smíðavélum og tækjum sem við átt-
unt fyrir. Þröstur er í almennum
smíðum og ég tek þátt í þeim verk-
þáttum með honum sem henta mér
og hann hjálpar mér svo í því sem ég
þarf hjálp við. Sfðan innréttuðum