Alþýðublaðið - 28.04.1995, Side 20
XWREVF/ÍZ/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5
MfflUBUBIB
> -r
XWREVF/ZZ/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
Helgin 28. apríl - 1. maí 1995
64. tölublað - 76. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Athugasemd frá
Ólínu Þorvarðar-
dóttur.
Sóttist
ekki eftir
ritstjórastóli
Það er fráleitt að halda því fram
að ég hafi sóst eftir að fá fullt starf
sem ritstjóri Þjóðvaka og að þeirri
„ósk“ hafí verið hafnað, eins og
fram kemur í Alþýðublaðinu í
gær.
Sannleikurinn er sá að ég hef
aldrei sóst eftir neinum vegtyllum
innan Þjóðvaka, hvorki ritstjóra-
stóli né öðru.
Eg tók að mér ritstjóm blaðsins
fyrir kosningar að þrábeiðni Jó-
hönnu Sigurðardóttur og fleiri og
sinnti því starfi launalaust. Það
kom aldrei til greina af minni
hálfu að halda þeirri sjálfboða-
vinnu áfram þó að ég væri þess
mjög fýsandi að blaðið héldi
áfram að koma íit eftir kosningar.
Þaðan af síður hefði mér komið til
hugar að gerast „umsjónamiaður"
blaðsins í þrjátíu prósent starfi
undir þriggja manna ritskoðunar-
nefnd þingflokksins eins og lagt
var til á síðasta stjómarfundi
Þjóðvaka. Slík tilhögun samræm-
ist engan veginn mínum hug-
myndum um heilbrigða blaða-
mennsku, jafnvel þó um málgagn
sé að ræða.
Um raunverulegar ástæður
brottgöngu minnar kýs ég að
segja sem minnst af virðingu við
þann málstað sem var uppspretta
Þjóðvaka. Hins vegar er mér orð-
ið það ljóst að þó tímamir breytist
og það umhverfi sem við lifum í
þá breytist mannfólkið aldrei.
1. maí ávarp Alþjóðasambands verkalýðsfélaga
Öflug verkalýðshreyfíng er
grundvöllur lýðræðis og réttlætis
1. maí verða verkalýðssinnar um
allan heim að sameinast um mál-
efni dagsins af endurnýjuðum
þrótti. Þörfin fyrir það afl og þann
styrk sem vex af samstöðu launa-
fólks er sú sama í dag og áður í
sögu verkalýðshreyfingarinnar.
A félagsmálaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna vöruðu þjóðarleið-
togar og forystumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar alvarlega við
háskalegum afleiðingum og áhrif-
um hratt vaxandi, hömlulausra
heimsviðskipta og félagslegrar
sundrungar sem leiðir af vaxandi
atvinnuleysi og örbirgð. Bent var á
lönd þar sem öryggisnet samfélags-
ins hafa gjörsamlega brostið vegna
örbirgðar og mannlegt samfélag að
engu orðið.
Oheft markaðsfrelsið hefur
gengist undir próf og fengið fall-
einkunn. Það hefur engin úrræði
gagnvart alvarlegustu vandamálum
þjóða heims. Örbirgð, að viðbættu
atvinnuleysi og félagslegri upp-
lausn, er sóun á dýrmætustu auð-
lind veraldar, fólkinu sjálfu. Óheft
markaðsfrelsið veitir ekki þeim
sem höllum fæti standa og minnst'
mega sín skilyrði til að vinna sig út
úr örbirgðinni af eigin rammleik.
Öryggi er orðið tómt í veröld þar
sem meira en einn milljarður
manna þarf að framfæra sig á lægri
upphæð en einum dollara á dag. Fé-
lagsmálaráðstefna SÞ var haldin í
ljósi þess að samræmdar alþjóðleg-
ar aðgerðir eru nauðsynlegar til að
koma í veg fyrir glæpsamlega mis-
munum markaðarins; að tryggja
hlutdeild fátækasta hluta veraldar í
auðæfum jarðar og þar með örugg-
ari og réttlátari heim þegar við
göngum á vit 21. aldarinnar.
I jressu ljósi fær 1. maí 1995 nýja
Eftir að ræðumenn hafa messað yfir lýðnum á úti-
fundi á Ingólfstorgi 1. maí munu þeir Orn Árna og
Laddi leitast við að létta lund fundarmanna
„Upp með vinnuhanskana
& tökum höndum saman"
-segirÖm hvergi banginn..., eða þannig.
verkalýðsfélaga á brotum gegn rétt-
mætri starfsemi verkalýðshreyfing-
arinnar" kemur út árlega og gefur
glögga mynd af þeim þvingunum
og ófrelsi sem verkalýðshreyfingin
býr við víðs vegar um heiminn. Við
álítum að nú sé kominn tími til að
sýna hvar réttindi launafólks hafa
verið endurheimt eða varin.
1. maí ár hvert mun Alþjóðasam-
band verkalýðsfélaga gera grein
fyrir þeim árangri sem verkalýðs-
hreyfingin hefur náð í að tryggja
réttindi launafólks eftir heimsálfum
og þjóðlöndum víðs vegar um
heiminn.
Það er þetta sem knýr hreyfing-
una áfram. Við viljum í öllum lönd-
urn ná fram alþjóðlega viðurkennd-
um lágmarksréttindum sem felst í
samþykktum Alþjóðavinnumála-
stofnunarinnar. Við viljum fá þessi
réttindi sem órjúfanlegan hluta af
sérhverjum alþjóðlegum eða
svæðabundnum viðskiptasamning-
um.
Til að ná þessu markmiði verður
samstaða okkar að efla styrk þeirra
samtaka og stofnana sem hafa þessi
sömu markmið að leiðarljósi.
Félagsmálaráðstefna SÞ varpaði
skýru ljósi á þann mikla vanda sem
við stöndum frammi fyrir. En hún
staðfesti einnig nýjan vilja og
áherslu á öllum stigum, og í öllum
löndum, til að takast á við hann af
þrótti.
1. maí 1995 mun bera með sér
endurnýjaðan stuðning við grund-
völl verkalýðshreyfingarinnar.
Dagurinn mun jafnframt marka
upphaf að ári harðrar baráttu sem
mun færa okkur einu skrefí nær því
að sjá vonir okkar rætast.
„Öryggi er orðið
tómt í veröld þar
sem meira en einn
milljarður manna
þarf að framfæra
sig á lægri upphæð
en einum dollara á
dag."
„1. maí 1995 mun
marka upphaf að ári
harðrar baráttu sem
mun færa okkur
einu skrefi nær því
að sjá vonir okkar
rætast."
„Þú er sem sagt að spyrja hvort
þetta verði alveg sprenghlægilegt og
mega-ferskt og svona,“ sagði Örn
Arnason þegar hann var spurður um
það hverju verkalýðurinn mætti eiga
von á þegar hann og Þórhallur Sig-
urðsson stíga á stokk að loknum
ræðuhöldum. „Það er kolröng álykt-
un hjá þér. Þetta eru nú eiginlega
bara grínarar í hallæri."
Öm segir þetta vera tilraun frá því
sem áður hefur verið og að atriði
þeirra Ladda verði sárasaklaust og
standi einungis í örfáar mínútur.
Öm segir þá ekki ætla að vera
með neina verkalýðsbrandara og
ekki nefndi hann það að hann hygð-
ist lofa verkalýðnum rosalegum
launahækkunum. Þó er gæti farið
svo. Þeir Laddi eru að taka saman at-
riðið núna og það er aldrei að vita
nema menn með mönnum láti sjá sig
á svæðinu. „Mér datt nú í hug að
Davíð Oddsson, eða einhver mynd
af honum, gæti komið og haldið smá
ræðustúf.“
- En ætlið þið að æsa til átaka á
vinnumarkaðinum?
„Nei, ræðumennimir sem verða
þama eru hugsaðir til þess. Og okk-
ar atriði er ætlað að brjóta upp það
form. Að fólk mæti ekki þama og fái
bara einhveijar helvítis hundleiðin-
legar ræður: Upp með vinnuhansk-
ana - tökum hönuum saman - berj-
umst sem einn maður - betra Island
og svo framvegis. Eða þannig. Þetta
er hugsað sem uppbrot. Við verðum
með Jónas Þóri músíkant með okk-
ur. Hann er okkar maður og hefur
verið í gegnum tíðina.“
- Er ekki allt gott að frétta annars?
„Bara allt í góðu. Sumarið komið
og loksins farið að snjóa þannig að
maður kemst á skíði.“
- En varðandi listamenn og
verkalýðsbaráttu. Hafa þeir ein-
hverju hlutverki að gegna?
„Ja, ekki nema þá að gleðja þá
Örn Árnason segist ekki ætla að vera með neina verkalýðsbrandara en:
Mér datt nú í hug að Davíð, eða einhver mynd af honum, gæti komið
og haldið smá ræðustúf.
sem eru í fýlu. Það er nú líklega
helsta hlutverkið í dag. Fýlan dregur
ekki vagninn. Þeir segja það að þú
notir einhverja 18 vöðva til að brosa
en rúmlega sjötíu til að gretta þig.
Þannig að í því felst orkuspamaður."
Til skemmtunar þeim sem mæta á
fundinn verður auk þeirra Amar,
Ladda og Jónasar Þóris Egill Olafs-
son sem syngur tvö lög. Að sögn
Pálmars Halldórssonar fram-
kvæmdastjóra 1. maí nefndarinnar
verða hátíðarhöldin að öðm leyti
með hefðbundnu sniði. Avarp Full-
trúaráðs verkalýðsfélaganna í
Reykjavík, BSRB og INSI má finna
í Alþýðublaðinu í dag á blaðsíðu 13.
Gengið verður frá Hlemmi klukkan
14:00 og safnast saman á Ingólfs-
torgi þar sem Magnús L. Sveinsson
formaður Verslunarmannafélags
Reykjavíkur og Björg Bjarnadóttir
verða aðalræðumenn. Auk þeirra
flytur Hreinn Sigurðsson formaður
Iðnnemasambands Islands ávarp.
Fundarstjóri verður Sigríður Olafs-
dóttir aðaltrúnaðarmaður Dags-
brúnar hjá Reykjavíkurborg.
merkingu. Barátta okkar fyrir rétt-
indum og afkomu alþýðu manna
verði ekki ógnað með vaxandi al-
þjóðlegum viðskiptum.
Alþjóðasamband verkalýðsfé-
laga leggur áherslu á að styrkja ein-
ingu alþjóðlegrar verkalýðshreyf-
ingar þar til við höfum afl til að
græða sár atvinnuleysis, öryggis-
leysis og sárrar fátæktar sem misk-
unnarlaus öfl óhefts
markaðsfrelsis hafa
hvarvetna skilið eftir
sig.
Til að ná þessu
markmiði verður
verkalýðshreyfingin
að beina starfi sínu
að þeim sem ekki
eru í stéttarfélögum.
Við verðum að
stuðla að stofnun
óháðra verkalýðsfé-
laga í þeim löndum
þar sem valdhafar
umgangast lýðræði
og samtök launa-
fólks af fullkomnu
skeytingarleysi -
Nígeríu, Kína,
Guatemala og víða
annars staðar þar
sem verkalýðshreyf-
ingunni er haldið
niðri og félagsmenn
hennar verða fyrir
stöðugum ofsóknum
eða eru hreinlega
drepnir af valdhöf-
unum eða útsendur-
um þeirra. Við skulum draga lær-
dóma af atburðunum í Suður-Afr-
íku þar sem hundruð félaga í verka-
lýðshreyfingunni lét lífið í barátt-
unni gegn aðskilnaðarstefnu stjórn-
valda. Sigur þeirra er um leið skila-
boð til heimsins alls um að öflug
óháð verkalýðshreyfing er grund-
völlum þróunar til lýðræðis og fé-
lagslegs réttlætis.
„Könnun Alþýðusambands
r^ap t<ki k
w
Islenski dans-
flokkurinn sýn-
ir í Þjóðleik-
húsinu
Carmen eftir
Sveinbjörgu
íslenski dansflokkurinn æfir nú
af kappi fyrir frumsýningu flokks-
ins á Heitir dansar, sem verður í
Þjóðleikhúsinu þann 17. maí.
Meðal verka á efnisskránni er
Carmen eftir Sveinbjörgu Alex-
anders og er hún nú stödd hér á
landi af þessu tilefni.
Önnur verk á efnisskránni eru
Sólardansar, Adagietto og Til
Láru. Höfundar Sólardansa og
Adagietto voru hér á landi fyrir
skemmstu og settu upp verk sín.
Þá var verkið Til Láru sýnt á
menningarhátíðinni Sólstöfum í
Þjóðleikhúsinu í byrjun mars.
Dansverkið er eftir Per Jonson
við tónlist Hjálmars H. Ragn-
arssonar.
Miðasala á sýningar Islenska
dansflokksins er í Þjóðleikhúsinu
og dansflokkurinn lofar áhorfend-
um sínum vandaðri og skemmti-
legri sýningu.