Alþýðublaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 7. júní 1995 Stofnað 1919 83. tölublað - 76. árgangur
■ Þingferill Sivjar Friðleifsdóttur hefst með ósköpum
Siv fer með ósannindi á Alþingi
Oddviti Framsóknar á Reykjanesi neitar ummælum sínum; ummælum sem RÚVútvarpaði á sínum tíma. "
Við harðar umræður á Alþingi
í síðustu viku um stjórn flskveiða
neitaði Siv Friðleifsdóttir að aðr-
ir þingmenn Framsóknarflokks-
ins hefðu hótað sér í kosninga-
baráttunni vegna sérstöðu henn-
ar í sjávarútvegsmálum. Þetta
kom fram í andsvari hennar við
ræðu Össurar Skarphéðinssonar.
I ræðu sinni hafði Össur deilt
hart á þingmenn Framsóknar-
flokksins á Suðurnesjum, sem
hefðu gert breytingar í þágu
bátaflotans að helsta kosningatr-
ompi sínu fyrir kosningar, en
létu ekkert á sér kræla eftir
kosningar. Hann spurði meðal
annars hvort ástæðan fyrir því
að Siv hefði gleymt kosningalof-
orðum sínum væri sú, að aðrir
þingmenn hefðu beitt hana hót-
unum, og vitnaði til fréttar DV
frá því fyrir kosningar.
Þingmenn Framsóknar hafa
ekki hótað mér í þessu máli,“
sagði Siv meðal annars í svari
sínu. Össur kvaðst að sjálfsögðu
taka þingmanninn trúanlegan og
dró fyrrnefnd ummæli sín til
baka.
Nú er komið í Ijós, að í Kosn-
ingahorni Ríkisútvarpsins 23.
mars síðastliðinn var birtur kafli
úr ræðu Sivjar frá kosningafundi
á Suðurnesjum þar sem fram-
bjóðandinn greindi frá því að
Siv Friðleifsdóttir á þingi: „Þing-
menn Framsóknar hafa ekki hótað
mér í þessu máli."
Siv Friðleifsdóttir í BÚV 23. mars
1995: „Sumir hafa jafnvel verið svo
óánægðir að þeir hafa hótað því að
ég myndi ekki ná fram öðrum mál-
um sem ég er að berjast fyrir."
hinar umdeildu tillögur Fram-
sóknarmanna á Suðurnesjum
hefðu verið sendar „... á tvo
efstu menn í hverju kjördæmi,“
og hlotið misjafnar undirtektir.
Sumir hefðu verið afskaplega
óánægðir, en aðrir minna
óánægðir.
Síðan sagði Siv Friðleifsdóttir
orðrétt í ræðunni sem útvarpið
birti: „Sumir hafa jafnvel verið
svo óánægðir að þeir hafa hótað
því að ég myndi ekki ná fram
öðrum málum sem ég er að berj-
ast fyrir.“ Af þessu að dæma
virðist því Siv Friðleifsdóttir
hafa vísvitandi farið með ósann-
indi á Alþingi.
■ Þjóðvaki bregstvið hugsanlegum hags-
munaárekstrum í lyfjanefnd Ingibjargar
Pálmadóttur heilbrigðisráðherra
Þjóðvakamaðurinn
Kjartan Valgarðsson
sagði af sér
- og sleit samtali sínu við blaðamann Alþýdublaðsins í gær
samstundis og hann vissi að spyrja ætti hann útí málið.
Kjartan Valgarðsson - þjóðvaka-
maður og fyrrum formaður alþýðu-
bandalagsfélagsins Birtingar - hef-
ur sagt af sér setu í Lyfjanefnd þar-
inni,“ einsog sagði í frétt Morgun-
póstsins í gær. Það var Alþýðublaðið
sem greindi frá því 23. maí síðastlið-
inn að Þjóðvaki hefði skipað Kjart-
an í svokallaða Lyfjanefnd sem
starfar á vegum Ingibjargar Pálma-
dóttur heilbrigðisráðherra til að
fjalla um ýmis mál sem varða hags-
muni apótekara, meðal annars mál
tengd lyfjaverði, auknu verslunar-
frelsi með lyf og annað sem varðar
lyfjalögin er sett voru í kjölfar gild-
istöku EES-samningsins. Kjartan
Valgarðsson er hinsvegar fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins Klasa
hf. er annast innflutning og dreif-
ingu á vörum fyrir apótekara; fyr-
irtækis sem nýlega þurfti að sæta
afskiptum Samkeppnisstofnunar.
Hætta þótti á hugsanlegum hags-
munaárekstrum vegna setu Kjart-
ans í nefndinni og því sagði hann af
sér - eftir að harðorðar athuga-
semdir voru gerðar.
Alþýðublaðið hafði samband við
Kjartan í gær til að spyrja hann
nokkurra spurninga, til að mynda:
Afhverju sagðirðu af þér? Varstu
beittur þrýstingi - og þá af hverj-
um? Ertu með þessari afsögn þinni
að setja staðal fyrir íslenska stjórn-
málamenn? Tengist afsögn þín yfir-
lýstri stefnu Þjóðvaka um siðbót í
íslenskum stjórnmálum? Kjartan
gaf ekki færi á sér, vildi í engu
svara blaðamanni og sleit símtalinu
samstundis og hann vissi að spyrja
ætti sig um þetta tiltekna mál.
■ Samskipti Alþýðublaðsins og
Kjartans Valgarðssonar í gær
Tilraun til viðtals
581-1855
„Klasi, góöan dag."
Já, góðan dag. Er Kjartan Val-
garðsson við?
„Augnablik."
[Ein mínúta af tölvulagi.]
„Halló?"
Kjartan?
„Það er hann."
Komdu sæll, þetta er Stefán
Hrafn Hagalín á Alþýðublaðinu.
„Hvað segirðu?
Stefán Hrafn Hagalín - á Alþýðu-
blaðinu.
„Já, sæll."
Þú varst að segja af þér - í þess-
ari Lyfjanefnd, er það ekki rétt?
„Jú."
Afhverju?
„Varstu beðinn um að spyrja að
því?"
Var ég beðinn um það...
„Já..."
Nja, ég er að hringja í þig...
„Já, ég hef engan áhuga á að tala
við þig um það. Blessaður," sagði
Kjartan Valgarðsson og skellti á.
Eitthvað hefur greinilega vakið
eftirtekt þessara yngismeyja þar sem þær voru að sóla sig við
bakka nýuppgerðrar Laugardalslaugarinnar í gær. Sólin brosti þá við höf-
uðborgarbúum eins og þessi mynd Einars Ólasonar, Ijósmyndara Alþýðu-
blaðsins, ber með sér og fólk flykktist í laugarnar: Sumir til að sýna sig og
nokkrir bara til að sjá aðra... A-mynd; E.ÓI.
■ Opið bréf Kolbrúnar Bergþórsdóttur til herra Jóns Baldvins
Hannibalssonar, formanns Alþýðuflokks, og Hrafns Jökulssonar,
ritstjóra Alþýðublaðs og varaþingmanns Suðurlands
Mun Kolbrún fá inngöngu
í f lokkinn á 20. öld?
„Sú er forsaga þessa máls að um
alllangt skeið hef ég gert ítrekaðar til-
raunir til að ganga í Alþýðuflokkinn.
Þær tilraunir hafa ekki skilað viðun-
andi árangri og fremur mætt fálæti en
áhuga. Fari fram sem horfir mun ekki
verða af inngöngu minni í flokkinn
fyrr en einhvem tíma á næstu öld, eða
um það leyti sem Birta Össurardótt-
ir fær kosningarétt. Hætt er við að þá
hafi orðið formannsskipti í flokknum
og áhugi minn á inngöngu þarafleið-
andi farið mjög dvínandi.
Ég hef alloft kvartað við ritstjóra
Alþýðublaðsins vegna þessa seina-
gangs en fæ ætíð þau svör að málið sé
í athugun. Jafnframt hefur ritstjórinn
ýjað að því að þó taumlaus aðdáun
mín á formanni flokksins og ritstjóra
Alþýðublaðsins teljist óumdeilanlega
traustur grunnur að farsælu flokks-
starfi þá myndi ekki saka að ég kynnti
mér helstu stefnumál og áherslur
flokksins. Ég hef ákveðið að verða við
þeim tilmælum í þeirri von að það
muni flýta afgreiðslu þessa máls.
Nú skora ég á Jón Baldvin Hanni-
balsson, formann flokksins, og Hrafn
Jökulsson, ritstjóra Alþýðublaðsins
og varaþingmann Suðurlands, að beita
áhrifum sínum á þann veg að af inn-
göngu minni verði í allra nánustu
framtíð og koma þannig í veg fyrir
pólitískt umkomuleysi mitt.
Með virðingu og von um skjót við-
brögð.”
If h % -■
? ■& w " T, W V
V V' V
1
■miv
Þeir eru óneitanlega flottir þessir
en hverjir eru þetta? Sjömenning-
arnir sátu fyrir einhvern tíma á ár-
unum 1904 til 1910.
■ Sýning á nýupp-
götvuðum myndum
af óþekktum íslend-
ingum
Þekkirðu
manninn?
Á síðasta ári fannst safn af ljós-
myndaplötum í risinu á Laugavegi 46
í Reykjavík. Þegar búið var að gera
eftirtökur af plötunum kom upp úr
dúmum að þær voru frá ljósmynda-
stofu Bjarna Kristins Eyjólfssonar
sem rak eina fínustu ljósmyndastofu
landsins frá 1904 til 1910. Hún hét
Atelier Modeme og var í Templara-
sundi. Sýning á þessum myndum
verður í Bogasal Þjóðminjasafns ís-
lands dagana 8. til 25. júní.
Alls fundust 800 ljósmyndaplötur
frá Atelier Moderne og er nær ein-
vörðungu um mannamyndir að ræða.
Allt fólkið var óþekkt þegar eftirtök-
urnar voru gerðar en nú er búið að
bera kennsl á fáeina einstaklinga. Nú
er leitað til gesta Þjóðminjasafnsins til
að sjá hvort unnt reynist að þekkja
fleiri.
Kolbrún Bergþórsdóttir. Vill aö
menn beiti sér svo komið verði í
veg fyrir pólitískt umkomuleysi
eins bókmenntafræðings. A-mynd: E.ÓI.