Alþýðublaðið - 07.06.1995, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
s k
3
I þágu íslenskrar rassverndar:
Rassaskoðun Islands hf.
„Ég hef alltaf verið maður sátta og legg til
að bil beggja verði farið. í stað einhverrar
fjandafælu eins og ofurtolla verði sett á fót
stofnun sem gæti heitið Rassgæðaeftirlit
ríkisins eða kannski heldur í takt við nýja
tíma: Rassaskoðun íslands hf. Hlutverk
þessarar stofnunar væri eftirlit með stærð
og sköpulagi íslenskra rassa."
Menn hafa um aldir verið óþreyt-
andi að mæra land og þjóð; skáldin í
ljóðum, fyrirmenn í ræðum og alþýða
fólks í spjalli hvert við annað. Flestir
eru sammála um að ísland sé fegursta
land í heimi og hér búi fallegasta
þjóðin sem drekkur besta vatnið og
teygar hreinasta lofdð á byggðu bóli.
Ekkert af þessu er hins vegar beinlínis
okkur að þakka.
Pallborðið
Gunnar
Kristmannsson
skrifar
íslendingar eru fáir og það er
ástæða þess að okkur hefur ekki tekist
að menga loftið né grunnvatnið að
gagni. Fámennið er nú varla okkur að
þakka heldur, en þrátt fyrir það hefur
tekist að koma upp eyðimörkum ör-
foka lands hér og þar. Þetta örfoka
land er aftur á móti fómarkostnaður
baráttu sem staðið hefur í áratugi.
Þessi barátta hefur einnig kostað gríð-
arlega fjármuni, leiðigjarna og al-
menna skoðanamyndun - þras - sem
næði til sólar og aftur heim, væri það
geymt á segulböndum.
Hér er um að ræða baráttuna um
rassinn eða öllu heldur að viðhalda
þeim árangri sem náðst hefur, sem er
að íslendingar hafa fallegasta rass í
heimi. Þetta er baráttumál sem fólk í
flestum stjórnmálaflokkum hefur
komið sér saman um; að viðhalda ein-
okunaraðstöðu íslensks landbúnaðar á
heimamarkaði.
Meginástæðan fyrir mikilvægi þess-
arar einokunar er ekki hættan á
byggðaröskun og atvinnuleysi upp til
sveita og út um land allt, né heldur
vemd hinnar séríslensku sveitamenn-
ingar. Þv£ síður er ástæðan skortur
matvæla á hugsanlegum stríðstímum.
Þetta fólk veit sem er að besta þjóðin í
besta landinu á bestu bænduma sem
stæðust hvaða samkeppni sem er
fengju þeir frið til.
Astæðan er rassinn, eða eins og
Ingibjörg Pálmadóttir hjúkmnarffæð-
ingur og heilbrigðisráðherra orðaði
svo ágætlega í sjónvarpsþætti um
landbúnaðarmál:“Hafiði ekki séð am-
erísku hamborgararassana?"
Þetta er kjami málsins.
Ingibjörgu hjúkrunarfræðingi og
skoðanasystkinum hennar hrýs hugur
við innfluttu hormónakjöti sem gæti
breytt hinum stinna, kynhreina ís-
lenska rassi í ökklasítt, alþjóðlegt af-
styrmi.
Því fólki sem nú situr á þingi og
styður hæstvirta ríkisstjórn hefur <
stundum verð borið það á brýn að vera »
sérhyggjufólk og illar tungur jafnvel 0
talað um ríkisstjóm Sjálfsóknarflokks- *
ins. ->
Til er alþýðleg skilgreining á sér-
hyggjumanni og hún er sú að hann
hugsi bara um eigin rass. Sérhyggju-
stimpillinn á því alls ekki við um fólk
sem hugsar vakið og sofið um rass
allrar þjóðarinnar og ekki bara ís-
lensku þjóðarinnar, því til em sagnir
um það að lýðveldið ísland haft reynt
að greiða niður fallegan rass á Færey-
inga og jaíhvel fleiri þjóða kvikinda.
Og nú.eru enn uppi deilur um þessi
eilífu landbúnaðarmál. Ýmsir alþjóð-
legir samningar - sem allir eru
skammstafaðir á einhvem hátt - betja
á dyr og ógna stöðu íslenska rassins.
Rassvemdarmenn vilja beita ofurtoll-
um í skini rassvemdar meðan þeir sem
telja íslenska rassinn ekki í hættu eða
hugsa helst um rassa á viðkvæmustu
stundum einvemnnar, vilja sjá virka
samkeppni á íslenskum matvælamark-
aði.
Ég hef alltaf verið maður sátta og
legg til að bil beggja verði farið. f stað
einhverrar fjandafælu eins og ofurtolla
verði sett á fót stofnun sem gæti heitið
Rassgæðaeftirlit ríkisins eða kannski
heldur í takt við nýja tíma: Rassaskoð-
un fslands hf. Hlutverk þessarar stofh-
unar væri eftirlit með stærð og sköpu-
lagi íslenskra rassa.
Fari til dæmis rass upp fyrir
ákveðna stærð komi til blóðprufur og
leiði þær í ljós að hormónakjöts hafi
verið neytt fái viðkomandi stimpil
sem bannar honum að hreyfa á sér
rassinn eða að láta nokkum mann sjá
hann. Hinir sem hafa komið sér upp
stórum rassi úr íslensku hráefni fá aft-
ur á móti staðlaðan rassgæðastimpil.
Ég tel að með þessu væri íslenska
rassinum að mestu borgið og enginn
gæti kvarta yfir brotum á samningum
og kært til EES, ESB, GCD eða hvað
þetta heitir allt saman.
Ég kann annars öllu því góða fólki
þakkir, sem komið hefur að því þarfa
verki að móta á mér rassinn. Samt
læðist að mér sá gmnur í vanþakklæt-
isköstum að þeir sem harðast beijast
og em oft bændur í hjáverkum hugsi
meira um sinn rass en minn. Ég óttast
að þeim líki illa sú tilhugsun að standa
upp af rassinum og taka til hendinni í
búskapnum og búa sig undir sam-
keppni, líkt og nokkur fjöldi bænda er
reiðubúinn að gera. Þeim finnst þægi-
legra að verma á sér rassinn í Reykja-
vík og þiggja laun fyrir að þvælast
fyrir eðlilegri framþróun þjóðinni til
heilla.
Höfundur er nemi og jafnaðarmaður.
Nígeríumenn hafa sér-
legan áhuga á svikum
og prettum og Vest-
mannaeyingar hafa ekki
farið varhluta af því, eða
svo segir í það minnsta í
Fréttum, héraðsfrétta-
blaði Eyjamanna. Ekki
einasta að aðilar frá Níg-
eríu (les: fjárglæframenn)
hafi sett sig í samband
við sjálfan Sigga Gúmm
í Fjölverk og beðið hann lið-
sinnis við að þvo peninga
heldur hafa óprúttnir Níger-
íumenn skrifað lögreglunni í
sömu erindagjörðum. „Þeir
virðast svífast einskis," segir
í Fréttum, „því á lögreglu-
stöðina í Eyjum í vikunni
barst umslag þar sem utan-
áskriftin var Mr. President,
Lögregla Vestmannaeyjar
lceland. í umslaginu var bréf
frá ónefndum aðila í Nígeríu
sem vinsamlegast bað lög-
regluna um aðstoð við pen-
ingaþvott!"...
Salome Þorkelsdóttir,
fyrrum forseti Alþingis,
hefur eng-
in áform
um að
hætta af-
skiptum af
pólitík
þráttfyrir
að þing-
setu henn-
ar hafi lok-
ið með
sviplegum
og skyndilegum hætti. Hún
mun nú ætla að láta til sín
taka í bæjarmálum í Mos-
fellssveit og jafnvel er rætt
um að hún leiði lista Sjálf-
stæðismanna í
næstu kosningum
en þær verða næst
árið 1998. Sjálfstæð-
isflokkurinn galt af-
hroð í síðustu bæj-
arstjórnarkosning-
um og missti meiri-
hlutann. Það var
annar kvenskörungur sem
þá hrósaði sigri eða Guðný
Halldórsdóttir, leikstjóri og
dóttir Nóbel-skáldsins, en
hún vár á lista Alþýðu-
bandalagsins. Davíð Odds-
son lét einmitt svo um mælt
á sínum tíma að fylgishrun-
ið í Mosfellssveit væri sér-
stakt rannsóknarefni...
Innan Alþýðubandalagsins
má finna hóp, eða klíku,
áhrifakvenna sem ganga
undir nafninu Sellurnar. í
Sellunum má meðal ann-
arra finna Hildi Jónsdótt-
ur, fyrrverandi ritstjóra Viku-
blaðsins, Elsu B. Þorkels-
dóttur, framkvæmdastjóra
Jafnréttisráðs, og Auði
Sveinsdóttur, fyrrverandi
varaþingmann. Þær
Sellur ætla að styðja
Margréti Frí-
mannsdóttur í for-
mannsslagnum og
hefur það vakið
Steingrími J. Sig-
fússyni nokkurn ugg
í brjósti. Menn hafa
það á orði að kynferðið
verði honum síst til fram-
dráttar eins og nú árar þegar
foringjatign hjá Allaböllum
er annars vegar...
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson.
„Jæja, gæskur, þú náðir mér, það er víst ekki hægt að
neita því. En hvað sem allri þjóðtrú líður þá hef ég aldrei
talist sérlega heppinn búálfur..."
fimm á förnum vegi
Hver kemst næst því að vera hin íslenska Marilyn Monroe?
Freyr Ævarsson, nemi: Það
er engin önnur en fegurðar-
drottningin Linda Pétursdóttir.
Hólmfríður Bjarnadóttir,
forstöðumaður Útideildar:
Mér finnst það vera Edda
Heiðrún Backman leikkona.
Þóra Magnúsdóttir, versl-
unarmaður: Ég veit nú ekki
um neina sem kemst í hálf-
kvisti við Marilyn.
Kristín Valtýsdóttir, hús-
móðir: Engin. Enda er aðeins
ein Marilyn Monroe.
Kjartan Sigurðsson, verk-
fræðingur: Auðvitað Linda
Pé. Engin spuming.
m e n n
Með þessu áframhaldi er í raun
aðeins sú þróun framundan þegar
lögleysið mun vaxa og magnast þar
til óeðlið verður allsráðandi.
Gunnar Þorsteinsson í Krossinum um dómskerf-
ið og vill taka upp dauöarefsingu þegar kynferö-
isafbrotamenn eru annars vegar. MP í gær.
Ég er tilbúin til að veðja öUum
mínum peningum og hans að auki
að hann á ekki ástkonu, að hann á
ekki karlkyns elskhuga og að
hann stundar ekki kynlíf með
karlmönnum yfirleitt.
Nicole Kidman um Tom sinn Cruise og hafnar
því alfariö aö Tommi sé hommi. MP í gær.
Ástæða þess að ég gaf kost á mér
tíl formanns Kaupmannasamtak-
anna er að ég er búinn að starfa
í samtökunum í nokkuð mörg ár
og hef verið í framkvæmdastjóm
síðastliðin tvö ár.
Viöar Magnússon, nýkjörinn formaöur Kaup-
mannasamtakanna, en helstu áhugamál hans
eru útivera og stangveiöi. DV í gær.
Svona atferli lýsir svo einstökum
viðbjóði að ég má vart mæla.
Bjarni Ingólfsson hjá Vöku meö réttu lýsingar-
oröin á takteinum en hann er þarna aö úttala sig
um mennina sem stálu bílnum og voru meö
vandalisma uppí Heiömörk. MP í gær.
Alkunnug er í sálfræðinni sú
kenning að því meira sem fólk rífst
og skammast því meiri ást beri
það hvað til annars.
Dagfari, líkast til aö reyna aö segja aö þrátt fyrir
allt þá sé hann mannvinur. (Leiöinlegt aö eng-
inn skuli rífast í Dagfara.) DV í gær.
Villtir
Fyrst á dagskrá Villtra í dag er þrefalt
húrrahróp (HÚRRAI HÚRRAI HÚRRA! -
þá er því aflokið) fyrir Sólonstjóra þar-
sem þeirtóku sig loks saman í andlitinu
um helgina og brugðust snarlega við
tryllingslegu stríðsöskri Villtra (lok síð-
ustu viku: Beibin tilbakal Það skipti
nefnilega engu á hvaða tíma dagsins
maður leit inná Sólon íslandus um
helgina: alltaf var þar hraukur af vel-
heppnuðum einstaklingum af beiba-
stofni. Og svona til að bæta ennfrekar
fyrir beibfskar syndir sínar höfðu Sólon-
stjórar opið á sjálfan hvítasunnudag -
meðan flestir aðrir gerðu sig seka um
það skammarlega athæfi að loka - og
vitaskuld gaf þar á að lita beib á beib
ofan. En barstatus bæjarins var annars
viðbrugðið um helgina og því fá orð
um það djamm að hafa... Nema
kannski það, að á Astró hjá Halli og
Helga á mánudagskvöldið voru mætt
til kampavínsbætts veisluhalds að
mógúlasið: miðlajöfurinn Jón Ólafs-
son, Once Were IVarríors-stjarnan
Rena Owen og tiltölulega frítt föru-
neyti þeirra - þarsem til dæmis mátti
sjá Egil „Agga Slæ" Ólafsson og
geðverndarprýðiskonuna Láru Höllu
Maack. Tilefnið var vitaskuld vel-
heppnuð, fjöl- og góðmenn forsýningin
í Regnboganum á Once Were Warriors
þarsem létu sjá sig meðal annarra:
Bryndís Schram kvikmyndasjóðsstjóri
og fylgdarsveinn hennar, Jón Baldvin
nokkur Hannibalsson, og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstýra sem
virtist hafa skilið Hjörleif okkar Svein-
björnsson eftir heima - að passa. Jón
Ólafsson sagði fyrir frumsýninguna frá
því að það hefði verið út í Cannes í
fyrra sem hann fyrstur allra í heiminum
- fyrir utan Nýja-Sjáland - keypti sýn-
ingarréttinn á myndinni og komst í
kynni við aðalleikkonuna: maóírann
Owen. Sú hefði síðan notið fylgdar
Jóns&kó í öllu helstu Cannes-partýin
þarsem myndin hafði þá enn ekki náð
þeirri hylli að aðalleikkonunni væri boð-
ið eitt né neitt. Owen mun hafa glaðst
mjög við þennan óvænta stuðning frá
bræðraþjóðinni (þið vitið: sameiginleg-
ur hvalveiðaáhugi, grænfriðungahatur
og allt það) í norðurhöfum og vitaskuld
sagði hún!i„off kors Jon, æl komm tú
bí present att jor premier inn Æsland,"
þegar Jón leitaði eftir því atarna
fyrir skemmstu. Einhverjir höfðu á orði
að þarna á mánudagskvöldið hefði
sjálfumgleði Jóns keyrt framúr hófi,
en flestum hlýnaði þó um hjartarætur
við að sjá barnslega gleðina sem
skein úr andliti íslenska mógúlsins yfir
því að vera í vinfengi við aðra
eins stjörnu og Renu Owen frá Nýja-
Sjálandi. Takethat...
veröld ísaks
„Taktu þetta handrit,“ sagði Rudyard
Kipling við hjúkrunarkonuna sem
annaðist fyrsta bam hans, „og ef
þú lendir einhvemtífna í fjárþröng þá
geturðu kannski selt það.“
Hjúkmnarkonan lenti í þrengingum
mörgum ámm síðar ogdró þá upp
úr pússi sínu handritið góða
- fyrsta hefti Jungle Book - og lifði
£ vellystingum upp ffá því.
Úr Isaac Asimov's
Bookof Facts.