Alþýðublaðið - 17.11.1995, Síða 1
Föstudagur 17. nóvember 1995 Stofnað 1919 176. tölubiað - 76. árgangur
■ Norðmenn ákveða einhliða kvóta úr norsk-íslenska síldarstofninum
Þetta nær engri átt
- segir Óssur Skarphéðinsson alþingismaður og átelur íslenska ráðamenn fyrir linkind gagnvart Norðmönnum.
„Framkoma Norðmanna í þessu
máli nær engri átt. Það voru þeir en
ekki íslendingar sem eyddu síldarstofh-
um á sjöunda áratugnum. Það var ekki
ofveiði á fullorðinni sfld heldur gríðar-
leg rányrkja á síldarseiðum innan
norskrar lögsögu sem leiddi til þess að
stofninn hrundisagði Össur Skarp-
héðinsson alþingismaður í samtah við
Alþýðublaðið.
Sjávarútvegsráðherra Noregs hefur
tilkynnt að Norðmenn hafi ákveðið ein-
hliða milljón .tonna heildarkvóta fyrir
veiðar úr norsk-íslenska sfldarstofnin-
um á næsta ári.
„Norðmenn gripu ekki til neinna að-
gerða tii bjargar stofninum fyrr en um
seinan. Það var viðurkennt af norskum
vísindamönnum árið 1980 að það hefði
ekki verið veiðin við ísland sem leiddi
til þess að stofninum hrundi heldur
þeirra eigin rányrkja á seiðum. Öll hin
siðferðilega og líffræðilega ábyrgð á
hruni stofhsins á sínum túna er Norð-
manna,“ sagði Össur Skarphéðinsson.
,,Því miður hafa þeir ráðherrar ríkis-
stjómarinnar sem fara með þessi mál,
Halldór Ásgrímsson og Þorsteinn
Pálsson, ekki gert sér grein fyrir þessu
og -ekki kannað söguna nægilega vel.
Það hefur komið skýrt fram að linkind
þeirra gagnvart Norðmönnum mótar
væntanlega afstöðu Norðmanna núna.
Þó að það hafi aldrei komið nákvæm-
lega fram hvað þeir Halldór og Þor-
steinn fóm fram á þegar þeir áttu fyrst
fund með Norðmönnum, hefur þvf ekki
verið neitað af þeim við umræður á Al-
þingi, að þeir óskuðu eftir minna held-
ur en hundrað þúsund tonnum. Þetta
var í fyrrasumar og þá var verið að tala
um að veiða nánast milljón tonn. Auð-
vitað var þetta óafsakanleg framkoma
og stórveikti stöðu íslendinga í samn-
ingaviðræðunum við Norðmenn. Það
var ekki fyrr en stjómarandstaðan, út-
gerðarmenn og sjómenn skutu stáli í
hryggsúlu þeirra að þeir fóm að setja
fram harðari kröfur," sagði Össur.
„Samt varð niðurstaðan sú að ís-
Össur: Halldór og Þorsteinn hafa
ekki kannaö söguna.
lenskir ráðamenn kysstu á vöndinn og
tóku það sem Norðmenn réttu þeim.
Sjálfir tóku Norðmenn sér einhliða
kvóta ásamt Rússum þannig að það
vom aðeins 250 þúsund tonn eftir sem
Islendingar tóku síðan ásamt Færeying-
um. Það liggur klárt fyrir að fullorðni
stofninn eyddi yfirleitt ekki nema
tveimur mánuðum á ári innan norskrar
lögsögu en sex til átta mánuðum á haf-
svæðum út af Austurlandi. Það var á
því svæði sem stofninn fitaði sig og
varð að verðmæti. Norðmenn beita nú
ofriki gagnvart fslendingum vegna þess
að íslenskir ráðamenn hafa sýnt þeim
ótrúlega mikla linkind í þessu máh og
ekki haft fyrir því að rannsaka söguna.
Eg hef aldrei orðið þess var að því væri
beitt gegn Norðmönnum að það vom
þeir sem drápu stofhinn. Rfkisstjómin
bíður lægri hlut í viðskiptum við Norð-
menn í hvetju málinu á fætur öðm og
má sjá það í Síldarsmugunni, Smug-
unni í Barentshafi og hvemig sjávarút-
vegsráðherra var kúskaður eins og
ótíndur strákur varðandi flæmska hatt-
inn,“ sagði Össur Skarphéðinsson.
■ Ungir jafnaðarmenn
Vilja ræða
sameiningu
Á fundi sambandsstjómar ungra jafnað-
armanna var samþykkt ályktun þar sem
segir að Samband ungra jafnaðarmanna
lýsi sig úlbúið úl viðræðna um sameiningu
jafnaðarmanna á breiðum vettvangi við alla
þá sem hafi áhuga á því brýna verkefni. I
ályktuninni segir að mörg og margbreytileg
verkethi blasi við í íslenskum stjómmálum.
Vandamálin sem fylgi mörgum þeirra séu
slfk að þau höggvi að rótum íslensks sam-
félags. Ef ekki verði tekið á þeim geú þau
hæglega stórskaðað afkomumöguleika
þjóðarinnar í náinni framtíð. Þar megi
nefna opinbera skuldasöfnun, ólýðræðis-
legt kosningakerfi, helstefhu í landbúnaði,
efnahagslega, pólitíska og menningarlega
einangrun, óréttlátt kerfi í sjávarútvegi,
fjársvelt menntakerfí og einhæft atvinnulíf.
Ungir jafnaðarmenn segja að þegar horft sé
yfir svið íslenskra stjómmála megi glöggt
sjá að ekkert stjómmálaafl hafi eiú og sér
burði úl að leysa þessi og önnur aðsteðj-
andi vandamál. Þeir sem helst gætu leyst
þennan vanda séu sundraðir í mörg lítil
flokksbrot, oftast sakir eigin hégómagimd-
ar eða persónuágreinings. Samband ungra
jafnaðarmanna telur þessar ástæður sundr-
ungar of léttvægar til þess að íslenskir jafh-
aðarmenn láú á þeim bijóta í samstarfi sín
á milli. Forsendur þess að taka megi á þeim
mikla vanda sem steðji að íslensku þjóðar-
búi sé að hér verði úl stór og nútímalegur
jafnaðarmannaflokkur.
■ Samþykkt
ríkisstjórnarfundar
Fæðingardagur
Jónasar verði Dagur
íslenskrartungu
Ríkisstjórnin féllst í gíer á þá tillögu
menntamálaráðherra að 16. nóvember ár
hvert, fæðingardagur Jónasar Hallgríms-
sonar, verði Dagur íslenskrar tungu. Þann
dag mun menntamálaráðuneytið beita sér fyr-
ir sérstöku átaki í þágu móðurmálsins og
verður dagurinn helgaður rækt við það.
Björn Bjarnason, menntamálaráðherra,
sagði f stuttu samtali við Alþýðublaðið að
átakið yrði í samráði við skóla, fjölmiðla,
stofnanir og aðra aðila sem beita sér fyrir
rækt íslenskrar tungu. Hugmyndin væri sú að
menn tækju höndum saman með einum eða
öðrum hætú úl að minnast tungunnar á þess-
um degi og heiðruðu um leið minningu Jón-
asar Hallgrímssonar.
Listaskáldið góða varð 188 ára í gær
og ríkisstjórnin hélt upp á daginn með
því að gera fæðingardag þess að Degi
íslenskrar tungu.
I Þingflokkur Framsóknar stöðvaði flutning
tillögu um jöfnun atkvæðisréttar
Breytti þessu í fýrirspurn
- segir Siv Fridleifsdóttir alþingismaður.
„Ég var búin að undir-
búa þingsályktunartillögu
um að það yrði strax haf-
ist handa við það ákvæði
stjórnarsáttmálans sem
segir að það eigi að ein-
falda kosningalöggjöfina
og jafna vægi atkvæða.
Ég breytti þessari ályktun
í fyrirspurn til forsætis-
ráðherra," sagði Siv
Friðleifsdóttir alþingis-
maður í samtali við Al-
þýðublaðið. „Þeim í
þingflokknum þótti betra
að ég setti þetta í fyrir-
spurnarform og það væri
þá hægt að ýta á málið með þeim
Siv: Þingflokkurinn
stöðvaði tillöguna.
hætti. Ég mun fylgja fyrirspuminni
úr hlaði með hvatningarorðum um að
það verði sem fyrst hafist
handa um að breyta þess-
ari úreltu kosningalög-
gjöf. Ég mun spytja hvað
líði þessu ákvæði stjóm-
arsáttmálans," sagði Siv.
„Ég tel mjög óeðlilegt að
þetta mál verði unnið
eins og það var gert af
síðustu ríkisstjórn. Það
var svona ákvæði í hvít-
bók Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks, en
vinna við málið hófst
ekki fyrr en í desember
þegar aðeins var korter í
kosningar og niðurstaðan
nánast engin. Þetta vil ég ekki sjá
núna og er þess vegna að ýta á eftir
þessu máli,“ sagði Siv Friðleifsdóttir.
Lög Þormars
Ingimarssonar
við Ijóð Tómasar
Guðmundssonar
Á þessari vönduðu plötu er að finna
m.a. lagið „í vesturbænum“ með
Pálma Gunnarssyni ásamt fleiri
skemmtilegum lögum sungnum af
landsliði söngvara;
Ara Jóns, Björgvini Halldórs,
Guðrúnu Gunnars, Pálma Gunnars,
Ríó Tríó ofl.
Utgefandi:
S K I F
utgetanai:
Hófaljön
Jóhann Þorsteinsson, Miðsitju
Grettir B. Guðmundsson, Búðardal
Guðjón Sigurðsson, Kirkjubæ
Gísli Sveinsson, Leirubakka
Sigurbjörn Bárðarsson, Reykjavík
Magnús Magnússon, Reykjavík
Björgvin Halldórsson
Guðrún Gunnarsdóttir
Ari Jónsson
Guðrún Óla Jónsdóttir
Pálmi Gunnarsson
Ríó Tríó