Alþýðublaðið - 17.11.1995, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐK)
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1995
s k o ð a n i r
AIMDWDID
21021. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Til varnar Serbum
Eru allir Serbar blóðþyrstir villimenn? Er serbneska þjóðin haldin arf-
gengri þörf til að leggja stund á morð og hverskyns óhæfuverk? Er við þá
eina að sakast um harmleikinn á Balkanskaga? Eru Serbar einsog uppvakn-
ingar úr grimmri fomeskju, án tilveruréttar í mannlegu félagi nútímans?
Með öðrum orðum: Á að dæma Serba óalandi og ófeijandi? Já, segir Jónas
Kristjánsson ritstjóri í forystugrein DV í gær. Ritstjórinn er ekki að skafa
utan af hlutunum ífekar en fyrri daginn, hann segir ekki hægt „að komast
hjá því áliti, að Serbar séu geðbilaðir þúsundum saman, trylltir af sagn-
ffæðilegu mgli og eigi alls ekki heima í siðuðu samfélagi Vesturlanda. Öll
hin kmmpaða þjóð verður að bera glæpinn ífam á veginn."
Jónas Kristjánsson er ekki einn um þá skoðun að Serbar eigi ekki heima í
„siðuðu samfélagi Vesturlanda“. Kaldriíjaðir stríðsglæpamenn Serba hafa
murkað lífið úr óteljandi fómarlömbum í Króatíu og Bosníu: íjöldamorðin,
fangabúðirnar og „þjóðarhreinsanir“ virðast aðeins eiga samsvörun í
Þýskalandi nasismans. Síðla sumars vitnaðist að Serbar höfðu slátrað að
minnsta kosti sexþúsund vamarlausum íbúum Srebrenica þegar þeir náðu
bænum á sitt vald.
Serbneskir fjöldamorðingjar eiga sannarlega ekki heima í „siðuðu samfé-
lagi Vesturlanda“ - eða nokkm siðuðu félagi yfirleitt. En það felur í sér
stórfellt siðferðilegt ranglæti að afgreiða á einu bretti heila þjóð á þennan
hátt, og það sem meira er: það ber líka vitni um að sá sem fellir slíkan dóm
hefur ekki gmndvallarþekkingu á harmleiknum á Balkanskaga.
Á^ur en menn afgreiða alla Serba sem glæpamenn ættu þeir að hafa
nokkrar staðreyndir í huga. I stjómarher Bosníu em þúsundir serbneskra
hermanna sem hafa ffá stríðsbyijun barist við hlið múslíma og Króata: eng-
inn veit hve margir Serbar hafa týnt lífí í bardögum við hersveitir Karadzic
og Mladic. Sarajevo, höfuðborg Bosníu, var fyrir stríð heimkynni um 150
þúsund Serba. Talið er að helmingur þeirra hafi yfirgefið borgina í stríðs-
byijun 1992, - hinir hafa deilt kjöram með öðmm íbúum hinnar umsetnu
borgar og tekið þátt í vöm hennar. Em þeir glæpamenn? Tilheyra þeir hinni
„kmmpuðu þjóð“ sem Jónas Kristjánsson kallar svo?
Innan Serbíu hefur almenningur í mörg ár verið mataður kerfisbundið á
áróðri stríðsæsingamanna. Reynt hefur verið að telja fólki trú um að bæði
Króatar og múslímar eigi sér þann draum æðstan að tortíma öllu sem serb-
neskt er. í þessu skyni hefur auðvitað verið hamrað á því, að á heimsstyij-
aldarámnum ráku króatískir fasistar ógeðslegustu útrýmingarbúðir Evrópu.
Þar var tugum þúsunda Serba slátrað: það er sagt að harðsvíraðum SS-
mönnum hafi ofboðið aðfarir Króata. Vissulega hefði mátt segja, eftir
seinni heimsstyijöld, að Króatar - og Þjóðveijar - ættu ekki heima í „sið-
uðu samfélagi Vesturlanda“.
Serbar em ekki allir glæpamenn - langt í frá. í Serbíu hefur frá upphafi
verið andstaða gegn stríðsrekstri Milosevic. Serbía er lögregluríki, en samt
hefur ýmsum málsvömm friðar tekist að koma þeim skilaboðum áleiðis, að
helsteíha þjóðemisofstækisins hafi ekki náð tökum á allra hugum. Þúsundir
Serba hafa flúið land sitt, flúið hatrið, flúið ofstækið, flúið stríðið. Em þeir
glæpamenn?
Stríðinu á Balkanskaga mun ekki ljúka með því að Serbum sé tilkynnt að
þeir séu ,Jcmmpuð“ þjóð án tilvemréttar. Vitaskuld á að draga stríðsglæpa-
mennina fyrir dómstól Sameinuðu þjóðanna. Og vel að merkja: Serbar em
ekki einir um að hafa framið glæpi í þessu stríði. Hersveitir Serba hafa
hinsvegar, í krafti yfirburða sinna, getað staðið fyrir hroðalegri óhæfuverk-
um en fjendur þeirra. Serbar em ekki í neinum gmndvallaratriðum frá-
bmgðnir Króötum eða Bosníumönnum. Allar em þjóðimar slavneskar, ná-
skyldar og tala sama tungumál, og saga þeirra er að miklu leyti sameigin-
leg.
Serbar, Króatar og Bosníumenn munu um ókomna framtíð búa áfram
þarsem eitt sinn hét Júgóslavía. Það hlýtur að vera forgangsmál allra sem
em raunvemlegir áhugamenn um frið á Balkanskaga að reyna að eyða hatr-
inu og tortryggninni sem er runnið þjóðunum þar í merg og bein eftir
hörmungar síðustu ára. Og þegar menn leita að sökudólgum á Efalkanskaga
mættu þeir gjaman skyggnast víðar. Það gerir Jónas Kristjánsson reyndar
eftir að hafa bannfært serbnesku þjóðina. Hann segir: „Þegar stríðsglæpir
Serba verða kmfnir til beins, verður ekki gleymt aðild ýmissa vestrænna
ráðamanna og embættismanna, sem reyna enn að drepa málinu á dreif.“
Þetta em orð að sönnu: Þeir sem mesta ábyrgð bera em þeir ráðamenn
heimsins sem frá upphafi gátu komið í veg fyrir hörmungamar. Serbar em
hvorki „kmmpaðri“ eða „geðbilaðri" en aðrar þjóðir sem lenda í klóm
stríðsæsingamanna - og sannarlega eiga þeir tilvemrétt í heiminum einsog
aðrir. ■
Fyrirmynd heimsins?
Tölvulúnar hendur klesstar um skjalatöskur,
sorgarrendur á fingrum, grænar sorgarrendur, af
seðlatalningu. Og andlitin sorglega sálarlaus, með
rakspíra völdum eftir sjónvarpsauglýsingum og í
hverju þeirra þetta óttablandna „I wonder if my
boss will like it"-blik í augum.
Þegar staðið er á homi tuttugasta og
sjötta strætis og níundu breiðgötu á
Manhattan á sunnudegi rétt fyrir sex í
nóvember þegar myrkurhlið hnattarins
er í þann veg að færast yfir þessa
borgeyju og útsynningurinn næðir yfir
og á milli skýjaklúfa, Empire State-
byggingin veður í skýjum niður að
herðum og grálegur himininn úðar
mann léttmenguðu regni og maður
horfir, út yfir Hudsön River, yfir til
New Yersy, þar sem grillir í enn grárri
blokkir upp af hafnarkæjunum og
handan þeirra tekur við Esjugrár
þokubakki eins og maður þekkir að
heiman: Þá sér maður í gegnum New
York.
Þá fær maður allt í einu þessa til-
finningu sem maður fær daglega
heima þar sem sjórinn undan Skúla-
götunni kemur jafnan upp á Laugaveg
um Frakkastíg og Klapparstíg og
kemur upp um borgina: Hún er aðeins
h'till blettur af menningu í miðju hafi.
Blekking að halda að heimurinn endi í
síðasta leigubíl í Breiðholt eða við
dagskrárlok á Stöð tvö.
Og það er sorglegt að sjá í gegnum
New York. Hana líka. Hvað er þá eft-
ir? Ef stórborg heimsins opinberast
manni svo áþreifanlega sem. að vísu
nokkuð háreistur, hafnarbær á bökk-
um Hödsonár. Næðingurinn er alls
staðar eins og napur. Dapur í bragði
veifa ég næsta gulum bfl og læt hann
bera mig í gegnum hugleiðingar um
bandarískt þjóðfélag.
Vikupiltar
1 meira en hálfa öld hafa Bandarík-
in verið fyrirmynd heimsins í smáu
sem stóm. Ósigur kommúnismans var
túlkaður sem endanleg sönnun þess að
kapítalisminn væri það sem blifi.
Hvert Evrópuríkið á fætur öðru sker
niður velferðarkerfi og minnkar rflds-
umsvif, fetar hina thatcherísku leið í
átt að Washington þar sem „einstak-
lingsfrelsinu" er ennþá vaggað án af-
láts í hugmyndavöggu þessa risasam-
félags, vöggu sem rikið má hvergi
koma nærri en hefur nú verið rafknúin
til þess að heimilismenn geti notið
sins einstaklingsfrelsis.
Back in the US minnir hins vegar
átakanlega á „Back in the USSR“. Á
vissan hátt virkar þessi óhefti kapítal-
ismi á mann sem jafn gamaldags og
úrelt kerfi og það sáluga í Sovét. I
samanburði er hið þróaða og sið-
menntaða „blandaða hagkeríi" Evrópu
ljósámm fullkomnara.
Þegar neðanjarðarlestin - fátæklega
setin af fátæklegum blökkukonum og
1000 ára gömlum rússneskum slæðu-
konum malandi um vömtilboð í Wo-
olworth - rennir inn á Wall Street-
stöðina fyllist hún skyndilega af verð-
bréfasölum, hvítu kassalega fólki sem
allan daginn fyllir World Trade Cent-
er. Jakkaföt í tveimur litum, dragtir í
einum. Tölvulúnar hendur klesstar um
skjalatöskur, sorgarrendur á fingmm,
grænar sorgarrendur, af seðlatalningu.
Og andlitin sorglega sálarlaus, með
rakspíra völdum eftir sjónvarpsauglýs-
ingum og í hverju þeirra þetta ótta-
blandna „I wonder if my boss will like
it“-blik í augum.
Er þessi skyrtu- og bindisbúningur í
nokkru frábmgðinn skylduhnepptum
maófötum kínverskra kerfisþræla? Er
hlnn ameríski „Boss“ í nokkru frá-
bmgðinn hinum foma „Kommisar“?
Minnir „Hi guys” ekki nokkuð á „sæl-
ir félagar?"
Pýramfdabygging stórfyrirtækjanna
er í sjálfu sér litlu frábrugðin hinum
sósíalíska píramída, með Maó á
toppnum og billjónir af bakbrotnum
maurum undir niðri, að velta hrís-
grjónum fyrir flokkinn. Auðmýktin
gagnvart stjómar“formanninum“ er sú
sama, og hræðslan líka, hræðslan við
að geðjast honum ekki, koma ekki
með réttu hugmyndimar, standa upp á
vitlausum tíma, vera ekki með rétt
bindi, vona að hann bjóði manni í
sumarhúsið... Hér hljómar þrælslund-
in: „I hope my boss will like it.“
En Maó vildi láta ljúga með sér,
ameríski Bossinn vill sannleikann.
Það er ekki eins auðvelt fyrir undir-
menn í amerísku fyrirtæki að skálda
hagnað eins og það var fyrir kínversk-
an héraðsstjóra að búa til 1000 kflóa
uppskeru á hvem fermeter í héraðinu
til þess að „efla hagvöxt". En fyrir
austan réði hugmyndin, hér ráða pen-
ingar. Hvort tveggja jafn gamafdags.
Amerískt þjóðfélag byggir á hug-
myndum fárra en þjáningum margra.
Og nú sitja þeir félagamir í Wash-
ington, Bob Dole og Newt Gingrich, á
skyrtunum með uppbrettar ermar,
önnum kafnir við að skera niður ríkis-
útgjöld til að efla hag einstaklingsins
enn frekar, og búnir að skera svo mik-
ið að enginn er eftir í vinnu hjá rík-
inu...
Hvergi birtist þessi peningahyggja
mér betur en í sjónvarpinu. Ef sjón-
varpið er gluggi á samfélag era Amer-
íkanar allir kjálkabreiðir hvítingjar um
þrítugt, allir með axlabönd og vinna
allir á auglýsingastofu eða í verðbréfa-
fyrirtæki, leigja saman tveir og þrír og
sofa til skiptis hjá stelpunum í næstu
íbúð, stelpur sem samanlagðar líta all-
ar út eins og hver og ein þeirra. Og
svo fara þættimir í það að gera upp
hjásofelsið í síðasta þætti. Fyrir hveija
þáttaröð sem sýnd er heima era hér
hundrað á dagskrá. Allt er þetta meg-
instraumsefni. Allt er stflað á megin-
straumsmanninn. Hér þrífst ekkert
óvænt, skrýtið, pervert eða asnalegt.
Með öðram orðum ekkert áhugavert.
Allt er hannað til dauðs. I þágu mark-
aðar.
Á meðan hijóta séniín útí hverfun-
um, alls konar furðufuglar og fiktarar,
stórskáld og skemmtikraftar, rapparar
og ræmugerðarmenn, með alls konar
andlit og í alls konar litum. Trúar-
brögð jafn mörg og ísbrögðin í búð-
inni á hominu. En þeim er ekki hleypt
í gegn vegna þess að þeir líta ekki
nógu venjulega út, eru með hættuleg
nef og of stórar tungur. Einn og einn
er þó dubbaður upp í karríer með um-
boðsmanni en áður en honum er
hleypt upp á stóra sviðið í bandarísku
þjóðlífi er búið að snyrta hann svo
mikið til að allar skrýtnustu og bestu
fjaðrimar era horfnar. Hann er orðinn
„þjóðhæfur" og er varpað í megin-
strauminn þar sem lætur síðan reka
með öllum hinum selabreytunum
næstu árin. Robin Williams í hryll-
ingsmynd. Maðurinn með mestu hæfi-
leikana í þessu sólkerfi er látinn leika
heiðvirðan heimilisföður sem setur
upp ógnarsvip áður en skelfingin tíður
yfir heimilið. Woody Allen er smást-
irni hér. Nýjasta mynd hans hlýtur
meiri aðsókn í París en öllum Banda-
ríkjunum samanlögðum. Bukowski er
nánast óþekktur maður hér þó dauður
sé.
Bandaríkin era auðugasta og snið-
ugasta þjóð heims. Einn risastór tal-
ent-tankur. En það er bara kerfið.
Keríið er bara svona. Þetta er vannýtt
auðlind. Það hendir jafnvel bestu
menn að semja sitt efni „að lögmálum
markaðarins“ og troða „love- interest"
inn í söguþráðinn.
En þetta er náttúrulega ung og
frumstæð þjóð. Þeir þurfa 2000 ár í
viðbót til að ná hinu evrópska fijáls-
lyndi. Þetta kemur... ■
nóvember
Atburðir dagsins
1603 Sir Walter Raleigh
ákærður fyrir landráð. 1796
Katrín mikla, keisaraynja
Rússa, deyr eftir langan, litrik-
an feril og mikla landvinninga.
1913 Vilhjálmur Þýskalands-
keisari hannar hennönnum sín-
um að dansa tangó. 1917
Franski myndhöggvarinn Aug-
uste Rodin deyr, 77 ára gamall.
1922 Síbería gengur til liðs við
Sovétríkin. 1938 Vikan kom út
í fyrsta sinn. 1940 Akureyrar-
kirkja vígð. 1983 Stærsta versl-
un landsins, Mikligarður, opnar
í Reykjavík.
Afmælisbörn dagsins
Lúðvík XVIII 1755, konungur
Frakklands cftir fall Napóle-
ons. Rock Hudson 1925,
bandarískur kvikmyndaleikari.
Martin Scorsese 1942, banda-
rískur leikstjóri, gerði meðal
annars Taxi Driver og Raging
Bull.
Annálsbrot dagsins
Hjón deildu fyrir vestan í sjáv-
arijöru. Hljóp konan í æði út í
sjóinn. maðurinn cftir að hjálpa
henni. Hann komst af, hún'
fannst ei aftur.
Hrafnagilsannáll 1750.
Málsháttur dagsins
Njáls bíta ráðin.
Síld dagsins
Bjami frá Vogi á að hafa sagt,
einu sinni er hann sá ntig út um
glugga á kaffihúsi í Höfn:
.„Honum væri nær að fara heim
í sfld.“
Gunnar Gunnarsson skáld.
Orð dagsins
Dauður er minn faðirinn
og dauð er mín móðir,
dauð er mín systirin
og dauður er minn bróðir.
Lifir minn unnustinn
og glöð skal eg gullið spinna.
Fornt viðlag.
Skák dagsins
Enski meistarinn Plaskett er í
hópi mistækustu skákmanna.
Oft stendur hann sig hraksmán-
arlega en nær góðu flugi þess á
milli. 1 skák dagsins leikur
hann serbneska stórmeistarann
Velmirovic grátt. Plaskctt hef-
ur hvítt og á leik.
Hvítur leikur og mátar.
1. Dxh4+!! Kxh4 Velmirovic
sýndi þá háttvísl að teyga bik-
arinn í botn. 2. Hh7+ Kg5 3.
h4 Skák og mát: það er alltaf
skemmtilegt að máta með peði.