Alþýðublaðið - 14.12.1995, Qupperneq 3
I
HELGIN 14. - 17. DESEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
i
I
í
\
I
i
Í
>
i
I
Umsagnir
Kolbrúnar
Bergþórsdóttur
um bækur
Kristín Ómarsdóttir:
Dyrnar þröngu
Mál og menning 1995
Eftir lestur skáldsögu
Kristínar Ómarsdóttur fer
ekki hjá því að vissar efa-
semdir leyti á hugann um
réttmæti þess að tilnefna
hana til íslensku bók-
menntaverðlaunanna.
Greinilegar tilraunir höf-
undar til að gæða skáld-
verk sitt frumleika og
ferskleika mistakast. Verk-
ið festist í meðalmennsku,
verður sjaldnast áhuga-
vert og stundum beinlínis
þreytandi. Á bókarkápu er
talað um grallaralegan,
Ijóðrænan, blíðlegan og
fyndinn texta - og einhver
lýsingarorð önnur eru lát-
in fylgja, sem sannfæra
eiga lesandann um ágæti
stílsins og verksins. En
þrátt fyrir margháttaðar
yfirlýsingar og bókarkápu
skortir veruleg stíltilþrif í
verkið. Þar vantar fjör, kát-
ínu og fyndni. Ljóðrænan
hefur einnig farið fyrir lít-
ið. Dramatík finnst ekki.
Kolbrún Bergþórsdóttir.
Böðvar Guðmundsson:
Híbýli vindanna
Mál og menning 1995
í þessu fyrra bindi stórrar
og viðamikillar skáldsögu
kynnumst við íslensku al-
þýðufólki sem eftir erfiða
vist í landi sínu heldur burt
í leit að betra lífi í öðru
landi. Þetta er átaka- og
harmsaga sem höfundur
segir, ekki einungis af yfir-
gripsmikilli sögulegri
þekkingu, heldur einnig af
mikilli innlifun og hlýju.
Sagan hefði aldrei orðið
eins áhrifamikil og hún er
nema vegna þess síðar-
nefnda. Höfundi stendur
ekki á sama um það fólk
sem hann er að segja frá
og hann er óhræddur við
að opinbera samúð sína.
Tilfinningin er ótvíræður
kostur sögunnar. Þetta er
bók sem ég er sannfærð
um að muni falla mjög
stórum lesendahópi í geð
og hún á skilið að njóta at-
hygli hans.
Kolbrún Bergþórsdóttir.
Skútuvogi 16, Reykjavík: Alla virka daga kl. 8.00-18.00, lau. 9. og 16. des. kl. 10.00-18.00,
sun. 10. og 17. des. kl. 13.00-17.00, fös. 22. des. kl. 8.00-20.00, lau. 23. des. kl. 10.00-20.00, aðfangadag lokað.
Helluhrauni 16, Hafnarfirði: Alla virka daga kl. 8.00-18.00, lau. 9., 16. og 23. des. kl. 9.00-13.00, sun. lokað.
unnai