Alþýðublaðið - 14.12.1995, Qupperneq 15
HELGIN 14. -17. DESEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
15
\
Umsagnir
Hrafns
Jökulssonar &
Sæmundar
^ Guðvinssonar
um bækur
Ingólfur Margeirsson:
María - konan bak vid
goðsögnina
Vaka-Helgafell 1995
Ingólfur Margeirsson hef-
ur einstakt lag á að magna
áhrif frásagnar Maríu
Guðmundsdóttur hvenær
sem færi gefst. Litla þorp-
ið Deauville við Signuflóa
var athvarf Maríu frá brjál-
æði tískuheimsins í París.
Þangað fór hún „til að
finna sterkan storminn í
fangið á auðri ströndinni,
horfa á dökk skýin æða
um trylltan himininn og
villtar öldurnar hamrandi
ströndina meðan máninn
slokknaði og kviknaði á
víxl." Þetta er eins og að
horfa á atriði í kvikmynd
þar sem tónlist er notuð tii
auka þau hughrif sem ver-
ið er að lýsa.
Sæmundur Guðvinsson.
Sigurður A.
Magnússon:
Irlandsdagar
^ Fjölvi 1995
frlandsdagar er afar fróð-
• leg og.á köflum skemmti-
leg lesning. Sigurður A.
Magnússon hefur gott
auga fyrir umhverfinu og
lýsingar hans á landi og
þjóð bera vott um einlæg-
an áhuga hans fyrir við-
9 fangsefninu. Það hefur
ekki í annan tíma verið
gefin út á íslensku jafn ít-
arleg og vönduð bók um
(rland.
Sæmundur Guðvinsson.
Einar Már
Guðmundsson:
(auga óreiðunnar
Mál og menning 1995
( nýrri Ijóðabók er engu lík-
ara en Einar Már hafi fyllst
gráum Ijóðfiðringi - fortíð-
arþrá, nostalgíu. Það er
einsog Einar Már sé að
reyna að yrkja einsog Ein-
ar Már. Útkoman er í
hæsta máta pínleg. Einar
Már Guðmundsson er sá
höfundur íslenskur sem
einna mestar kröfur eru
gerðar til. Vitanlega geta
allir gert sig seka um örlítil
gráfiðruð hliðarspor, en
við væntum þess að þau
séu ekki gerð að opinberu
hneyksli með því að aug-
lýsa þau upp sem meiri-
háttar afrek.
Hrafn Jökulsson.
Sinfóniuhljómsveit íslands
Fjölskyldutónleikar í Háskólabíói
laugardaginn 16. des. kl 14.30
Hljómsveitarstjóri:
Einleikari:
Einsöngvarar:
Kynnir:
Kórar:
Bernharður Wilkinson
Ástríður A. Sigurðardóttir
Árný Ingvarsdóttir, Guðrún Árný
Karlsdóttir, María Marteinsdóttir og
Rúrik Fannar Jónsson
Lovísa Árnadóttir
Gradualekór Langholtskirkju,
stjórnandi Jón Stefánsson
Kór Öldutúnsskóla,
stjórnandi Egill Friðleifsson
Skólakór Garðabæjar,
stjórnandi Guðfinna Dóra Ólafsdóttir
Skólakór Kársness,
stjórnandi Þórunn Björnsdóttir
t/W
Dmitri Shostakovich:
Ludwig v.Beethoven:
Glazunov:
W&C Noona:
Hátíðarforleikur
Píanókonsert nr. 1, 3. þáttur
Árstíðirnar, Haustið
Hljóðu Jólaklukkurnar
Ýmis jólalög
*
Mióasala é
skrifstofu
hljómsveitarinnar
og við innganginn
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANPS
Háskólablói við Hagatorg. sími 562 2255
Heimalöguð
jólasaga
og glöggur
leynigestur
Alþýöuflokksfólktakið eftir!
Jólaskemmtun flokksins verður haldin í Risinu
Hverfisgötu 105 Reykjavík.
Gleðin hefst klukkan 20:30 stundvíslega.
Hrafn Jökulsson
hinn glaðbeitti ritstjóri Alþýðublaðsins
flytur heimalagaða jólasögu.
Leynigestur
kemur í heimsókn.
(Passið ykkur á geimverunum)
Bryndís Schram
stjórnar veislunni af alkunnri röggsemi.
Söngur, grín og jólasveinahúfur.
(Skiljið silkihúfurnar eftir heima).
Mætið tímanlega í jólafötunum.
Skemmtilegasta nefndin.
enær fær
learinn
Gullí Bergmann
aðalhlutx erk?
Grátbrosleg frásögn af leikaranum í litla
leikhúsinu við Tjörnina sem er
þjóðkunnur fyrir sinn smitandi hlátur.
Hröð og spennandi atburðarás minnir í
mörgu á sakamálasögur.
Þegar til tíðinda dregur koma þau
lesandanum á óvart.
ORMSTUNGA
BÓKAÚTGÁFA
um stúlkuna
á Græna kaffi?
W. D. Valgardson
Þessi spennandi verðlaunasaga Vestur-
íslendingsins William D. Valgardson
fjallar um leit sögumanns að stúlku sem
hverfur á dularfullan hátt. Inn í söguna
fléttast uppgjör hans við líf sitt ásamt
minningabrotum sem hægt og bítandi
skerpa einkenni sögupersónanna og
skýra breytni þeirra.
Gunnar Gunnarsson og
Hlldur Finnsdóttir íslenskuðu
ORMSTUNGA
Ȓtu Siliif
áfram að vera
vdðimaður?
Óvenjuleg skáldsaga frá síðustu dögum
einræðisins í Rúmeníu. Engin sagnfræði getur
miðlað því sem þessi skáldsaga gerir.
Herta Muller, sem hefur sópað til sín bókmennta-
verðlaunum, sameinar myndrænaframsetningu
og rytmiskan prósa í einstæðri umfjöllun um
einræðisvald.
Efnistök höfundar minna oft á vinnubrögð
Franz Kafka.
Franz Gíslason íslenskaði ORMSTUNGA
BÓKAÚTGÁFA
Alþýðublaðið
fyrir þá sem eru á milli
tannana áfólki